Morgunblaðið - 14.07.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990
21
Krossanes:
Akvörðun um framtíð verk-
smiðjunnar tekin á mánudag
ENGIN ákvörðun var tekin á
hluthafafundi í Krossanesverk-
smiðjunni sem haldinn var í gær
um framtíð verksmiðjunnar.
Annar hluthafafundur helur
verið boðaður á mánudag. A
fundinum í gær átti að ákveða
endanlega hvort haldið yrði
áfram uppbyggingu verksmiðj-
unnar sem brann að morgni
gamlársdags, eða hvort hætt
yrði við uppbygginguna.
Hólmsteinn Hólmsteinsson for-
maður stjórnar Krossanesverk-
smiðjunnar sagði að skömmu áður
en fundurinn í gær hófst hafí nýr
áhugaverður flötur á málinu kom-
ið upp sem menn vildu skoða nán-
ar. Því hafí verið ákveðið að fresta
ákvörðun um framtíð verksmiðj-
unnar fram yfir helgi, en fundur
hefur verið boðaður kl. 10 á mánu-
dagsmorgun.
Hólmsteinn vildi ekki tjá sig
nánar um hinn nýja flöt sem kom-
ið hafi upp á málinu, en sagði að
menn vildu halda öllum leiðum
opnum og því yrði hinn nýi mögu-
leiki skoðaður nánar um helgina.
Val eigenda verksmiðjunnar
stendur annars vegar um það að
halda áfram uppbyggingu, en
fram hefur komið að kostnaður
við uppbygginguna er mun meiri
en áætlað hafði verið og hins veg-
ar að hætta við að endurbyggja
loðnuverksmiðjuna, en skiptar
skoðanir eru um það hvor leiðin
sé vænlegri.
Urgnr í Grímseyingnm vegna
hárra fargjalda með Sæfara
Ódýrara að sigla með Herjólfi til Vestmannaejja en með Sæfara til Grímseyjar
Grímsey.
MIKIL óánægja er á meðal Grímseyinga vegna fargjalda með feij-
unni Sæfara. Grímseyingum þykja fargjöldin of há og benda m.a.
á að mun ódýrara er að sigla með Heijólfi til Vestmannaeyja en
með Sæfara í Grímsey en tíminn sem siglingin tekur er álíka langur.
Fargjaldið með Sæfara frá
Dalvík til Grímseyjar og til baka
kostar 3.650 krónur, en ef farið
er með rútu frá Akureyri til
Reykjavíkur kostar farið 4.450
krónur. Áður en feijan hóf sigiing-
ar var rætt um að fargjaldið ætti
að vera a.m.k. helmingi lægra en
flugfar frá Akureyri til Grímseyj-
ar. Svokallað mini-prís fargjald
sem í boði er hjá Flugfélagi Norð-
urlands á laugardögum og mánu-
dögum er 3.752 krónur, en aðra
daga er fargjaldið 7.402 krónur.
Grímseyingar bera fargjaldið
saman við siglingu með Heijólfi
milli lands og eyja, en um er að
ræða sama siglingartíma og á
milli Dalvíkur og Grímseyjar. Far-
gjaldið með Heijólfi er 1.400 krón-
um lægra eða 2.300 krónur. Það
er því mikill urgur í Grímseyingum
vegna þessa máls.
Þá þykja dagarnir sem siglt er
út í eyju einnig óhentugir, en hing-
að kemur feijan á mánudögum og
föstudögum. Sérstaklega hefur
það komið illa við verslun kaupfé-
lagsins, en ýmsar vörur, kjöt og
annað sem fyrirhugað er að selja
fyrir helgina, er ekki komið fyrr
en síðla á föstudegi.
Ennfremur má nefna að FN
fékk flutningsstyrk frá samgöngu-
ráðuneytinu fram til 1. júlí sl. á
alla fragt, en eftir að siglingar
Sæfara hófust fluttist styrkurinn
yfir á feijuna. Kostnaður við flutn-
ing varnings með flugi er því mik-
ill, en löng bið getur orðið eftir
varningnum ef hann er fluttur með
feijunni.
Bára
Leiðrétting
Þuríður Snæbjamardóttir er
varaoddviti í Skútustaðahreppi, en
missagt var í frétt í blaðinu í gær
að Hörður Sigurbjarnarson gegndi
stöðunni. Hörður er hins vegar
fyrsti varamaður í sveitarstjórn.
Beðist er velvirðingar á þessu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ytra-Krossanes afhent
Akureyrarbæ
Steingrimur J. Sigfússon landbúnaðarráðherra afhenti Sigríði Stef-
ánsdóttur forseta bæjarstjórnar fyrir hönd Akureyrarbæjar jörðina
Ytra-Krossanes við athöfn í Minjasafnsgarðinum í fyrradag. Jörðin
er um 165 hektarar að stærð og er hugmyndin sú að nýta hana til
útivistar fyrir bæjarbúa.
Ráðuneytið staðfestir
niðurstöður kosninga
Vestmannaeyj u m.
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur úrskurðað í kærumáli Andrésar
Sigmundssonar, efsta manns B-lisla, vegna bæjarstjórnarkosninganna
í Vestmannaeyjum. Niðurstaða ráðuneytisins er að úrslit kosninganna
skuli standa óhögguð.
Andrés kærði niðurstöðu kjör-
nefndar sem skipuð var eftir að hann
kærði niðurstöðu enduitalningar í
Eyjum. Kjörnefnd úrskurðaði að úr-
slit kosninganna. ættu að standa ór-
öskuð og hefur ráðuneytið nú stað-
fest þann úrskurð.
Andrés sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann væri mjög hissa á
niðurstöðu ráðuneytisins. Hann sagði
að þeir svöruðu ekki þeim spurning-
um sem hann hefði beint til þeirra
og tækju ekki á þeim kæruatriðum
sem hann hefði viljað fá svör við.
„Mér fínnst það mjóg slæmt að það
skuli ekki eiga að endurskoða lög
um kosningar og sama ruglið eigi
að halda áfram. Það virðisf vera að
það sé góð og gild aðferð að strika
yfir einhveija á listum eða teikna
einhverja hakakrossa eða annað við
listann til að atkvæðið teljist gilt.
Næsta ski'ef mitt í málinu verður að
skrifa dómsmálaráðherra og fara
fram á gjafsókn til að fá skorið úr
því fyrir hæstarétti hvernig á að*
kjósa í íslenska iýðveldinu og hvern-
ig á að túlka þau lög sem í gildi
eru,“ sagði Andrés Sigmundsson.
Grímur
Eftirlit með ómerktum
bifreiðum
Samkvæmt reglugerð merkir rautt ljós á götuvita að ökutæki |
skuii stöðvað við stöðvunarlínu eða við umferðarljósastólpa ef stöðvun- j
arlína er ekki á vegi.
Rautt ljós sem logar samtímis gulu ljósi hefur sömu merkingu og
rauða ljósið eitt sér en gefur til kynna að grænt ljós sé að koma.
Óheimilt er að halda áfram fyrr en græna ljósið er komið.
Gult ljós eitt sér merkir að numið skuli staðar við stöðvunarlínu
nema ökutækið sé komið það langt þegar það kviknar að ekki verði
stöðvað með fullu öryggi í tæka tíð.
Lögreglan hefur að undanförnu verið með ómerktár bifreiðir til
eftirlits við umferðarljósagatnamót í borginni. Tilgangurinn er fyrst
og fremst að ná til þeirra ökumanna sem virða ekki merkingu um-
ferðarljósanna en aðrir ökumenn, sem virða þau , þurfa ekki að
hafa áhyggjur af slíku eftirliti. Sem betur fer eru þeir miklum mun
fleiri en hinir en mikil slysahætta fylgir þeim fáu sem gerast brotleg-
ir. Þeir eru ekki einungis sjálfum sér hættulegir heldur og öðrum
ökumönnum, sem jafnan eiga sér einskis ills von.
Undanfarið hafa orðið slys á ljósagatnamótum þar sem orsökina
má rekja til þess að annar ökumannanna virti ekki umferðarljósin.
Tiltölulega auðvelt ætti að vera að koma í veg fyrri slíkt með ár-
vekni og góðum ásetningi hvers einasta ökumanns um að virða
umferðarijósin í hvívetna. Undirstrika ber að ómerktu eftirliti sem
og öðru eftirliti lögreglunnar er beint gegn hugsanlegum brotamönn-
um en ekki öðrum. Slíku eftirliti verður haldið áfram.
Átthagamót
Amameshrepps
verður laugardaginn 21. júlí og hefstí Freyjulundi
kl. 15.00 með kaffisamsæti og dagskrá.
Dansleikur í Hlíðarbæ um kvöldið með
Mióaldamönnum.
Sveitungar, núverandi og brottfluttir, velkomnir.
Netndln
Til sölu
Til sölu er fyrirtæki í rafverktakastarfsemi í
fullum rekstri, staðsett á Eyjafjarðarsvæðinu.
Upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni.
■HlRÁÐGJÖF
Endurskoðun Akureyri hf., Glerárgötu 24, sími 26600