Morgunblaðið - 14.07.1990, Side 24

Morgunblaðið - 14.07.1990, Side 24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990 24 Minning: Kristján Þ. Ingibergs■ son, skipstjóri Fæddur 23. febrúar 1947 Dáinn 3. júlí 1990 Okkur setti hljóð þegar fregnin um að Diddi vinur okkar væri dá- inn. Hann sem var svo lífsglaður ogþróttmikill, og hann sem gegnum árin hafði fyllt líf okkar svo mikilli gleði, þegar hann geystist inn um dyrnar með bros á vör. Hann hét fullu nafni Kristján Þórarinn Ingibergsson og var alltaf kallaður Diddi af okkur vinum hans. Hann var alinn upp hjá afa slnum og ömmu á Asbrautinni hér í Keflavík og alla tíð mat hann það, sem þá bestu guðsgjöf að hafa feng- ið að njóta nærveru þeirra á þess- ari jörð. Afi hans var fyrirmyndin að dugnaði, sem hann taldi að hver maður ætti að líkjast, ef hann hefði heilsu til. Aðra guðsgjöf hlaut Diddi í þessu jarðlífi. Þegar hann ungur að árum kynntist konu sinni Kristínu Guðna- dóttur, sem varð honum sólargeisli í lífinu. Alla tíð mat hann hana meira en nokkuð annað og glamp- inn sem kom í augu hans, er hann leit til hennar, sýndi þá ást er á milli þeirra var. Kidda og Diddi eignuðust þijú mannvænleg börn, Önnu Maríu, Guðnýju og Ingiberg, sem voru augasteinar þeirra, og gleðin yfir barnabörnunum var mik- il hjá afa og ömmu, sem umvöfðu þau ást og umhyggju. Kynni okkar Didda hófust, er við litlir drengir renndum okkur á skíðasleða í snjónum á Suðurgöt- unni. Alla tíð síðan hefur vinátta okkar verið fölskvalaus og skoðanir okkar féllu vél saman. Aldrei man ég eftír því að okkur yrði sundur- orða, samgangur milli okkar var tíður og við sóttum kjark hvor til annars. Þau voru ekki ófá heimilin í Keflavík sem hann Diddi rétti fisk inn um dyrnar og hann gleymdi ekki þeim sem minna máttu sín. Við störfuðum saman í Lions- klúbbnum Oðni frá stofnun hans, málefni Lions voru lionum hugleikin og þar sýndi hann sinn innri mann. Það verður erfitt að mæta í haust, þegar tvö skörð hafa verið höggvin í raðlr okkar Lionsmanna á stuttum tlma. Félagsmál voru áhugamál Didda og fagurt mannlíf var undir- staða lífsmáta hans. Kristján Ingi- bergsson lauk prófi frá Sjómanna- skóianum 1972 og var lengst af skipstjóri á mb. Baldri KE 97, og síðasta árið eigandi bátsins. Hann barðist fyrir því að héðan færi hvorki bátur né kvóti, en mest af hans frítíma fór I félagsmál sjó- mannastéttarinnar. Hann vann að öryggismálum sjómanna, hvatti menn I ræðu og riti til kaupa á þyrlu til bjargar sjómönnum á hafi úti. Hann var ófeiminn að láta skoð- anir sínar I Ijós og fá umræður um þær. Lífíð er ekki sjálfsagt og bilið milli lífs og dauða er svo stutt. Elsku Kidda okkar og börn, við biðj- um góðan Guð að styrkja ykkur og þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast svo góðum dreng. Anna og Friðrik Dagur var að kvöldi kominn þeg- ar okkur barst sú harmafregn að vinur okkar og æskufélagi Kristján Ingibergsson væri dáinn, horfinn svo skyndilega úr llfi okkar. Það verður undarleg tilfinning að sjá hann aldrei aftur þeysast hér um eins og hann var vanur. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar við vorum börn og var margt brallað saman á unglingsárunum. Minningamar hrannast upp I hug- ann hver annarri ljúfari og skemmtilegri og sefa þær sorgina og söknuðinn. Diddi var sérstaklega lífsglaður maður og var stutt I glettið brosið og skjót tilsvörin, sem einkenndu jafnan glaðlyndi hans. Hann var óspar á að hugga þá minnimáttar og mörgum færði hann nýjan fisk I soðið, en sjómennsku stundaði hann frá unga aldri. Það var mikið átak hjá honum á sínum tíma þegar hann dreif sig I Sjómannaskólann, kominn með fjölskyldu, en með vilja og áræði lauk hann skólanum með miklum sóma. Sjómennskan var honum allt og var hann ávallt farsæll, hvort sem hann var háseti eða skipstjóri. Diddi gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir sjómannastéttina, þar sem hann taldi ekki eftir sér að vinna að sem bestum hag sjómanna. Má þar nefna öryggis- og björgunar- mál, þar sem ný og stærri þyrla var hans draumur. Hann giftist eiginkonu sinni, Kristínu Guðnadóttur, 27. nóvem- ber 1965 og eignuðust þau þrjú börn, Önnu Maríu, Guðnýju og Ingi- berg. Diddi var sérstakur faðir og bar börn sín á höndum sér og er sorg þeirra mikil. Hann var lánsam- ur að eignast tvö barnabörn, sem hann var hreykinn af og var óspar að keyra austur til þeirra, þegar tími gafst til. Það var gott að heimsækja þau hjónin I Hamragarðinn og var Diddi alltaf hrókur alls fagnaðar og áttum við saman margar góðar samveru- stundir, þar sem við ræddum um lífið og tilveruna. Á þessum stund- um kom alltaf I ljós að hann var mjög trúaður maður. Minningarnar munu lifa með okkur að eilífu, við þökkum fyrir þær og allar ljúfu samverustundirn- ar. Kiddu, börnunum, foreldrum og öðrum ástvinum sendutn við okkar innilegustu samúðarkveðjur og megi góður Guð veita ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Minningin um góðan dreng lifir. Eddi og Gerða Það dimmdi skyndilega yfir öllu er ég kom heim þriðjudagskvöldið 3. júlí sl. og mér var tilkynnt að pabbi bestu vinkonu minnar væri látinn. Það er erfitt að sætta sig við að svona góður og lífsglaður maður eins og Diddi sé numinn á brott frá okkur svona fljótt. Öllum er okkur ætluð einhver hlutverk hér á jörðinni en Didda hefur verið ætlað eitthvað meira enda er þörf fyrir góða menn alls staðar. Og ekki síður á hinum æðri slóðum, sem við öll endum á, fyrr eða síðar. Það fyrsta sem kom upp I huga mér er ég heyrði þessar sorgarfrétt- ir voru þ'éssi orð, þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Og það yrði erfitt að ætla að rengja þau. Kynni mín af Didda voru fremur stutt en góð. Enda fannst mér hann sú ímynd um hvernig góður faðir ætti að vera. En hann var ekki bara góður faðir barna sinni heldur líka þeirra besti vinur og félagi. Enda er þetta alveg sérstaklega samhent fjölskylda. Ef eitthvað bjátaði á hjá einhvetju þeirra voru allir hinir tilbúnir að hjálpa. Og ég veit það að þau ntunu standa saman á þessari sorgarstund og styrkja hvert annað. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Elsku Guðný, Kidda, Beggi og Anna María, Guð styrki ykkur og leiði I þessari miklu sorg. Fjóla Jónsdóttir í dag er til grafar borinn vinur minn Kristján Þórarinn Ingibergs- son, skipstjóri og formaður Vísis, félags skipstjórnarmanna á Suður- nesjum. Sumar fregnir koma við mann sem hnífsstunga og á eftir fylgir níðþung þrúgandi tilfinning, sem fyrst I stað kallar fram við- brögð höfnunar. Maður hreinlega neitar innst inni að trúa þeirri harmafregn, sem sögð var. Þannig fór fyrir mér er ég heyrði andláts- fregn eins besta vinar thíns, Krist- jáns Ingibergssonar, og samstarfs- manns I stjórn Farmanna- og fiski- mannasambandi íslands síðastliðin ár. Ég var á sjó er mér barst. þessi harmafregn, veröldin var fögur, logn og sólskin allt um kring, samt varð tóm og deyfð, sársauki og jafn- vel heift, hvers vegna hann I futlu fjöri og á besta aldri. Maður með mikinn áhuga og athafnaþrá. Góður málsvari sjómannastéttarinnar, enda valinn til forystu af stéttar- bræðrum sínum á Suðurnesjum. Kristján var vinur vina sinna. Hann var sáttfús, jákvæður og lagði mjög oft gott til mála. Skemmtileg- ur félagi I góðra vina hópi. Það mætti fara mörgum fleiri orðum um drengskaparmanninn, félaga og vin, störf hans og skoðanir I hags- muna- og öryggismálum sjómanna- stéttarinnar. Það sem ég vil og get sett á blað nú er eingöngu það að ég sakna hans sárt. Kristján Þórarinn Ingibergsson fæddist I Keflavík 23. febrúar 1947 og lést 3. júlí síðastliðinn. Fyrir hönd okkar samstarfs- manna hans I stjórn FFSÍ færi ég eftirlifandi eiginkonu hans, Kristínu Guðnadóttur, börnum og fjölskyld- um innilegar samúðarkveðjur. (jóð- ur guð styrki þau I sorginni við frá- fall ástkærs eiginmanns og föður. Félagsmönnum I Vísi, félagi skip- stjórnarmanna á Suðurnesjum, fær- um við innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu vinar míns, Kristjáns Ingibergssonar. Guðjón A. Kristjánsson, skipsljóri. Þau harmatíðindi bárust okkur stjórnarmönnum I Farmanna- og fiskimannasambandi íslands að kvöldi þriðjudagsins 3. júli sl. að Kristján Þórarinn Ingibergsson hefði látist, þá fyrr um kvöldið. Kristján fæddist I Keflavík 23. febrúar 1947. Foreldrar hans voru Ingiberg Þ. Halldórsson, vélstjóri hjá Hval hf. og María Auðunsdóttir. Kristján hlaut sjómennskuna I vöggugjöf og saltan sæ I æðarnar, eins og gjarnan gerist um margan sjómannssoninn. Það var öllum ljóst er til þekktu að það rann sjómanns- blóð I æðum hans og við sjávarút- veg var hans áhugi bundinn, ásamt því að vilja af öllum mögulegum mætti byggja upp atvinnulíf á Suð- urnesjum. Við kynntumst þessu vel sem störfuðum með honum innan stjórnar FFSÍ hin síðari ár. Kristján var á ýmsum fiskiskip- um, fyrst sem háseti og síðar sem vélstjóri, enda ekki langt að sækja þá þekkingu. Hann starfaði sem vélstjóri á Baldri KE-97 á árunum 1968-1970. Hann útskrifaðist frá Stýrimarinaskólanum I Reykjavík 1971. Árið eftir er hann orðinn skipstjóri á ýmsum fiskiskipum. Hann var síðast skipstjóri á mb. Baldri KE-97. Kristján Ingibergsson tók við formennsku í Vísi, félagi skipstjórn- armanna á Suðurnesjum, 8. janúar 1984. Fullyrða má að við andlát Kristjáns Ingibergssonar, fellur frá mikilhæfur stjórnandi og sérstakur drenglyndismaður. Þegar Vísir hélt upp á 40 ára afmæli sitt I desem- ber 1985, var okkur nokkrum for- ystumönnum FFSÍ, boðið til fagn- aðarirts sem hófst fyrst á heimili Kristjáns og eiginkonu hans, Kristínar Guðnadóttur. Þessar stundir eru okkur ógleymanlegar og við minnumst þessa með sökn- uði og trega þar sem við fáum ekki lengur notið þess að eiga slíkar stundir með þeim hjónum og félög- um hans I Vísi. Einnig er skammt að minnast ánægjulegra stunda, þegar FFSÍ hélt formannaráðstefnu I Keflavík I boði Vísis I desember 1988. Kristjáni var mikið umhugað um hagsmuni félagsmanna sinna og átti margoft tal við okkur sem I forsvari vorum hjá FFSÍ um þeirra málefni, sérstaklega ef gengið hafði verið á hlut þeirra. Hann bjó yfir sérstökum hæfileika til að rr.iðla málum og reyna að sætta stríðandi fylkingar. Slík náðargáfa lærist ekki á skóiabekk, hún lærist með reynslunni og byggist á mannkær- leikanum sem að baki býr. Kristján var með skemmtilegri mönnum að vera með I hvers konar félagsskap, enda naut hann hylli allra sem honum kynntust. Hann gat haldið þrumandi ræður með til- heyrandi fágætu orðskrúði og hik- aði ekki við að setja markmiðið hátt. Hann var einn fyrsti talsmað- ur þess markmiðs að stuðla að kaupum á stórri og öflugri björgun- arþyrlu fyrir íslendinga. Hann lét þessa skoðun sína I ljós I sköru- legri ræðu sem hann hélt á öryggis- málaráðstefnu sjómanna 1987. Helstu rökin sem hann byggði kröfu sína á, voru þau að þar sem tækni- þróun og rekstur þyrlna, væri orð- inn svo fullkominn, sem raun bæri vitni, að unnt væri að vera með afísingarbúnað við þyrlurnar og þær væru orðnar svo stórar að þær gætu borið heila áhöfn stærri fiski- skipa, þá væri engin spurning um að slík tæki þyrftum við íslendingar að eignast. Hann fylgdi þessu máli vel eftir æ síðan. I sama streng tóku nemendur Stýrimannaskólans I Reykjavík og hafa haldið ótrauðir áfram söfnun til þessa átaks. Krist- jáni var ljós sú staða sem upp gæti komið fyrir skipstjóra skips á neyð- arstundu, að ákveða hvetjum skyldi auðnast að lifa eða bjargast og hveijit' skyldu hljóta önnur örlög. Þess vegna var stór björgunarþyrla honum kappsmál. Hann fór heldur ekki dult með skoðanir sínar á stjórnun fiskveiða eins og það kerfi kom honum fyrir sjónir. Til marks um það hve mikið traust þingheimur FFSÍ bar til hans sl. haust, þá var hann kjörinn til forystu fyrir starfshópi er skyldi halda áfram mótun þeirra tillagna er FFSÍ vill láta sitja I fyrirrúmi sem fiskverndunarsjónarmið og sem fiskveiðat' skuli stjórnast af. En stefnumótun þings FFSÍ var og er enn að fiskur skuli ekki seldur óveiddur I sjó. Enda eru nær allir sjómenn sammála um að það er ekki fiskverndun að selja fiskinn óveiddan hæstbjóðanda. Þar eru allt önnur sjónarmið sem liggja að baki og eiga því miður ekkert sam- eiginlegt með fiskverndun. Enginn var orðinn betur kunnugur þessum málum en einmitt Kristján Ingi- bergsson sem varð að sjá á bak aflamarki I annan landsfjórðung. Því er mikill söknuður I röðum sjó- manna og yfirmanna innan FFSÍ sem aðhylltust þau skýru og ein- lægu rök fiskimannsins sem Kristj- án heitinn átti svo gott með að koma á framfæri. En við, sem vitum um mátt hins almáttuga, vitum vel að Kristján hafði fengið hlutverk sem hann ætlaði sér að vinna. Hann mundi heldur ekki liggja á liði sínu ef hann ætti þess kost að leiða mál- efni sjávarútvegsins til betri vegar. En oft fer á annan veg en ætlað er og því miður er það svo að ýmis réttiætismál geta snúist I algert óréttlæti I höndum þeirra sem vald- ir eru til að vera í forsvari og stjórna I hinu opinbera kerfi. Kristján var einn þeirra manna sem sýndi I verki, hve vel hann gat afborið slíkt mótlæti en jafnfram barist hetju- legri baráttu við það I kyrrþey og án þess að misnota aðstöðu sína. Kristján sat mörg undanfarin þing FFSÍ fyrir hönd Vísis og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir samtökin sem stjórnarmaður. Hann sat I núverandi skólanefnd Stýrimannaskólans I Reykjavík, átti sæti á síðasta Fiskiþingi sem full- trúi FFSÍ og sat I stjórn Fiskifélags- ins. Hann var fenginn til að kynna sér sérstaklega ýmis öryggismál sjómanna I Amsterdam 1988 I sam- vinnu við Slysavarnarfélag Islands, ásamt því að kynna sér ýmis mark- aðsmálefni sjávarafurða á alþjóð- legri ráðstefnu um sama leyti. Við sem störfuðum með Krist- jáni, innan FFSÍ og sjáum nú á bak okkar ágæta félaga, erum að von- um þakklátir fyrir þær ánægju- stundir og samvistir sem við áttum með honum og félögum hans úr Vísi. Við færum eftirlifandi eigin- konu hans, Kristínu Guðnadóttur, börnunum, fjölskyldunni og félags- mönnum Vísis, innilegustu samúð- arkveðjur með von um að minning- in um góðan dreng lifi sem lengst. Við getum sannarlega ályktað sem svo að hann hafi nú verið kallaður I flokk góðra félaga, þar sem bíða hans ný og mikilvæg viðfangsefni til úrlausnar. Harald Holsvik í stjórn FFSÍ í dag verður jarðsettur frá Keflavíkurkit'kju Kristján Ingi- bergsson, skipstjóri, sem varð bráð- kvaddur að kvöldi 3. júlí sl. aðeins 43 ára gamall. Á slíkum stundum eru spurningarnar áleitnar og margar en svörin fátækleg. Við Kristján kynntumst á vettvangi fé- lagsmálanna, hann var í forustu- sveit skipstjórnarmanna á Suður- nesjum og síðar formaður Vísis, félagsins þeirra. Fyrstu eiginlegu samskiptin hófust innan FFSÍ (Far- manna- og fiskimannasambandið) en þar sátum við báðir í stjórn. Á þann vettvang berast fjölmörg mál og alls ekki öll af sömu rót runnin. Flest eru tengd kjörum af einhvetju tagi en önnur tengjast samskiptum manna, þau eru yfir- leitt vandmeðfarin og erfið. Ef lausn á að finnast verða viðkom- andi að tala hreint út um kjarnann annars finnst aldrei varanleg lausn. Frá samskiptum mínum við Kristján á þessum vettvangi á ég eingöngu ljúfar minningar. Eg man hann á fundum reiðubúinn að leggja þeim málum lið sem hann taldi skynsamleg og til framfara, óragur að hafna öðrum þótt þau féllu í fjöldann. Upp hafa komið innan FFSÍ deil- ur milli stétta, svipaðar og í öðrum samtökum. Slík mál eru viðkvæm, stundum af þeim toga að leiðrétta verður fyrri get'ðir eigi lausn að fást, vera tilbúinn að breyta starfs- háttum jafnvel þótt stundum bijóti í bága við skoðanir samhetja. í slíkum málum var Kristján heill og óragur. Eg man Kristján einnig á góðri stund, ofarlega eru í huga lok síðustu formannaráðstefnu sem haldin var í Keflavík. Henni lauk að vanda með sameiginlegu borð- haldi. Þar þakkaði Kristján okkur aðkomumönnum komuna til Keflavíkur, með snjallri tækifæris- ræðu eins og honum einum var lag- ið. Með flutu nokkrar skemmtilegar frásagnir um menn og málefni samtímans. Við sem sátum undir borðum skemmtum okkur konung- lega. Kristján hafði næma kímni- gáfu, kímnigáfu sem ekki særði þann sém atvikinu tengdist heldur færði hversdagsleg atvik í búning sem vakti kátínu þeirra sem hlýddu. Við leiðarlok streyma myndir minninganna um hugann. Myndir af góðum dreng sem hafði bætandi og lífgandi áhrif á umhverfið hvar sem hann kom og hvert sem hann fór. Á kveðjustund stendur minn- ingin ein eftir en hún mun lifa um ókomin ár. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Megi algóður guð veita eiginkonu börnum og öðrum aðstandendum huggun og frið. Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags Islands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.