Morgunblaðið - 14.07.1990, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990 25
Skyndilega var Kristján Þór Ingi-
bergsson, Diddi eins og við nefndum
hann alltaf, kvaddur héðan í blóma
lífsins kvöldið 3. júlí sl. Fyrir nær
tveimur árum fékk hann áfall sem
hann virtist hafa komist yfir að
fullu. Kallið kom því öllum á óvart
nú.
Hann fæddist 23. febrúar 1947
hér í Keflavík. Foreldrar hans voru
María Auðunsdóttir og Ingiberg Þ.
Halldórsson.
Diddi ólst að mestu upp hjá móð-
urforeldrum sínum, heiðurshjónun-
um Onnu Kristjánsdóttur og Auð-
unni Karlssyni á Ásabraut 2.
Okkar næstu og bestu nágrannar
í 20 ár. Diddi var því heimagangur
hjá okkur frá barnæsku. Hann var
ekki gamall þegar hann fékk fyrst
að fara með okkur í dragnótaróður
á mb. Baldri út í Buktina.
Sextán ára byrjaði hann að fara
með okkur í hlauparóðra og var svo
að mestu á mb. Baldri þar til hann
fór í Stýrimannaskólann. Þar lauk
hann námi vorið 1971. Þá fór hann
strax stýrimaður á mb. Hegra með
Jóhanni Péturssyni, sem áður hafði
verið með mb. Baldur.
Árið 1972 var Diddi skipstjóri á
mb. Ólafi II KE. Um skeið átti
hann mb. Skagaröst með Sævari
Brynjólfssyni og var þar skipstjóri.
Eftir að þeir seldu Skagaröstina var
hann að mestu með Þorsteini Árna-
syni á ms. Ársæli. Árið 1981 kom
Diddi aftur á mb. Baldur og þá sem
skipstjóri. Þar fann hann sig vel,
einkanlega á dragnótaveiðunum og
náði á þeim betri tökum en flestir
eða allir þau ár sem hann átti eftir.
Öll árin hafði hann sömu sam-
hentu skipshöfnina að mestu með
sér á mb. Baldri.
Diddi var nútíma skipstjóri. Hann
var fljótur að tileinka sér öll ný
tæki og náði leikni í að fara með
þau og nýtti sér kosti þeirra.
Ekki stólaði hann þó alfarið á
tæknina, heldur lagði sig einnig
eftir fræðum þeirra eldri og margar
„lexíurnar" í dragnótafræðum nam
hann í eldhúsinu hjá Óskari Jóns-
syni, sem kenndur var við mb. Gull-
þór á sinni tíð.
Síðan í haust var hann búinn að
bijótast í að eignast mb. Baldur sem
seldur hafði verið til Akureyrar, til
þess að hirða af honum kvótann.
Sú sala 'var honum mikið áfall og
kom honum sem öðrum mjög á
óvart. Diddi var kominn í forustu í
félagsskap skipstjórnarmanna og
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á
þeirra vegum. Mest lét hann þó til
sín taka í öryggismálum sjómanna.
í einkalífi var Diddi mikill gæfu-
maður. Kornungur valdi hann sér
traustan lífsförunaut, Kristínu
Guðnadóttur. Þau stofnuðu heimili
aðeins 16 ára gömul.
Ekki spáðu allir vel fyrir því til-
tæki, en þau voru samhent og stað-
ráðin í að hnekkja öllum hrakspám.
Leystu öll sín vandamál ekki síður
en þeir sem eldri voru og fljótlega
varð heimili þeirra og sambúð til
fyrirmyndar. Börnin urðu þrjú,
Ánna María, bóndakona austur á
Helluvaði III, sem á tvö börn, stúlku
og dreng, Guðný, sem þegar hefir
fest ráð sitt, og yngstur er svo
Bergþór.
Diddi var mjög hændur að afa
sínum og sjaldan lét Auðunn sig
vanta á bryggjuna þegar Baldur
kom að landi. Það mátti vel sjá á
honum hvernig Baldur hafði fiskað.
Nú verða þáttaskil í lífi þeirra
sem næst stóðu Didda, mest hjá
þér Kidda mín og börnunum. Megi
góður Guð styðja ykkur og styrkja.
Olafur Björnsson
Þann 3. júlí sl., þegar ný bæjar-
stjórn Keflavíkur hélt sinn fyrsta
fund, lést Kristján Þ. Ingibergsson,
5. maður á lista okkar sjálfstæðis-
manna í nýafstöðnum sveitarstjórn-
arkosningum, er hann var að koma
heim úr stuttri ferð erlendis.
Kristján hafði tekið ötulan þátt
í kosningabaráttunni, eins og hans
var von og vísa, og með glettni sinni
og græskulausri kímni átti hann
stóran þátt í þeim góða samstarfs-
anda sem ríkti innan hóps okkar
frambjóðenda. Hann hafði glaðst
með okkur yfir góðum úrslitum
kosninganna og nú lá fyrir honum
að gegna stöðu fyrsta varamanns
sjálfstæðismanna í bæjarstjórn
næsta kjörtímabil ásamt því að vera
formaður atvinnumálanefndar. Við
fráfall hans er því skarð fyrir skildi.
Kristján Þ. Ingibergsson var bor-
inn og barnfæddur Keflvíkingur,
fæddur 23. febrúar 1947. Foreldrar
hans eru Ingiberg Þ. Halldórsson
og María Auðunsdóttir.
Eins og svo márgir stráklingar
þess tíma í Keflavík, ólst Kristján
að miklu leyti upp á bryggjunni.
Hefur það án efa orðið til þess að
hann var einn þeirra sem gerðu sjó-
mennskuna að ævistarfi sínu. Hann
byijaði snemma til sjós og var há-
seti á ýmsum bátum en síðar vél-
stjóri. Árið 1971 lauk Kristján prófi
frá Stýrimannaskólanum í
Reykjavík og var eftir það stýrimað-
ur og skipstjóri, hin síðari ár var
hann skipstjóri á mb. Baldri KE 97
og var gjarnan kenndut' við þann
bát í daglegu tali. Hann var far-
sæll sjómaður og fengsæll skip-
stjóri.
Ung að árum bundust þau
tryggðarböndum, Kristján og
Kristín Guðnadóttir, og saman tók-
ust þau snemma á hendur hlutverk
foreldra og rekstut' heimilis. Hvort
tveggja fórst þeim einkar vel úr
hendi og eignuðust þau 3 börn sem
öll bera þess merki að vera alin upp
við .ástríki og umhyggju foreldra
sinna. Börn þeirra eru Anna María,
f. 1962, Guðný, f. 1967, og Ingi-
berg Þór, f. 1973. Þær systur hafa
þegar stofnað sín heimili en Ingi-
berg er enn í foreldrahúsum. Barna-
börnin eru orðin 2.
Kristján var ekki sú manngerð
sem lætur sér nægja að sitja hjá
og fylgjast með mönnum og málefn-
um. Hann vildi aðhafast. Þannig
hafði hann lengi látið að sér kveða
innan sjómannastéttarinnar og voru
öryggismál sjómanna honum sér-
lega hugleikin.
Kristján var formaður Vísis, fé-
lags skipstjórnarmanna á Suður-
nesjum, og átti sæti í Farmanna-
og Fiskimannasambandi íslands.
Hann var í stjórn Fiskifélags ís-
lands og í stjórn Fiskmarkaðar
Suðurnesja. Þá sat Kristján í skóla-
nefnd Stýrimannaskólans í
Reykjavík og var einnig virkur inn-
an Lionshreyfingarinnar, en hann
hafði m.a. gegnt formennsku í Li-
onsklúbbnum Oðni í Keflavík. Að
framansögðu má vera ljóst að
Kristján hafði komið mörgu í verk
þótt æviárin teldu ei meira en 43.
En hann var ekki hættur, áfram
skyldi haldið.
Kristján hafði ásamt fleirum
áhyggjur af versnandi stöðu sjávar-
útvegs á Suðurnesjum og enn vildi
hann aðhafast, nú á sviði sveitar-
stjórnarmála. Af því varð ekki —
kallið kom svo ótímabært og óvænt.
Undirrituð átti því láni að fagna
að geta talið Didda og Kiddu, eins
og þau voru jafnan kölluð, til per-
sónulegra vina. Sú vinátta hefur
staðið allt frá því að ég flutti til
Keflavíkur fyrir tæpum 20 árum
og giftist einum „stráklinganna af
bryggjunni". Engan grunaði nú að
ekki gæfust fleiri samverustundir —
að ekki fengjum við lengur notið
glaðværðar og hnyttni Didda í vina-
hópi. Ég háfði einnig hlakkað til
að vinna með honum að sveitar-
stjórnarmálum, því þar hafði hann
margt til málanna að leggja. Nú
er aðeins hægt að þakka og safna
minningunum í sjóð er verður vand-
lega geymdur.
Ég vil fyrir hönd allra þeirra er
skipuðu framboðslista sjálfstæðis-
ntanna, þakka Kristjáni Þ. Ingi-
bergssyni að leiðarlokum fyrir sam-
starf og samveru. Við biðjum Guð
að styrkja ástvini hans aila í þeirra
þungu raun.
Jónína Guðmundsdóttir
Kveðjuorð
Mig langar til að kveðja vin minn
Didda með nokkrum fátæklegum
orðum. Við Diddi höfðum þekkst
frá því við vorum drengir, en vin-
átta okkar styrktist ekki verulega
fyrr en ég fór að stunda sjóinn, þá
kynntist ég því hvern mann hann
hafði að geyma. Hann var alltaf
boðinn og búinn til að hjálpa og
segja manni til ef hann taldi sig
þess umkominn. Þegar ég fór minn
fyrsta snurvoðarróður bauðst Diddi
til að koma með mér sem ég þáði,
og hefur sú tilsögn reynst mér rnjög
gott veganesti.
Eftir því sem lengra hefur liðið
hef ég betur gert mér grein fyrir
því hversu heppinn ég var að fá
þessa góðu tilsögn í upphafi. Það
kom ekki ósjaldan fyrir að Diddi
hafði samband við menn sem kontu
ókunnugir inn á okkar veiðisvæði
frá öðrum landshlutum, og varaði
þá við því sem varast þurfti og
sagði þeim til um þá hluti sem þeir
þurftu að vita um, en oft tekur lang-
an tíma fyrir menn að koma sér
niður á veiðisvæði, því flestir skipta
sér lítið að þeim.
■ Sama var með okkur heimabát-
ana, alltaf var hann boðinn og bú-
inn að aðstoða eða koma til hjálpar
sama hvort lítið eða mikið lá við,
smá tilsögn eða eins og þegar Blik-
anum var bjat'gað frá því að reka
upp í Stafnesið í suðvestanbrælu.
Diddi var mjög skemmtilegur
félagi, því þar fóru saman góðar
gáfur og mjög skemmtileg kímni-
gáfa, sem naut sín vel í þeim félags-
málum sem hann gaf sig að, hvort
sem vat' á vegunt sjómannasamtak-
anna eða annarra félagasamtaka.
Hann var tillögugóður og fylginn
sér í öllum þeint málum sem hann
tók sér fyrir hendur. Inn á heimili
okkar Guðrúnar kom Diddi oft og
var þá gjarnan sest við eldhúsborð-
ið og málin rædd yfír kaffibolla.
Okkur og börnunum þótti alltaf
gott að fá hann í heimsókn og létt-
ist þá brúnin á öllum og þó sérstak-
lega á syni okkar honum Árna, en
Diddi og hann voru alveg sérstakir
vinir.
Alltaf þegar Iliddi birtist í dyra-
gættinni hljóp Árni upp um hálsinn
á honum og stóð gjarnan við hliðina
á honum eða reyndi alltaf að vera
sem næst honum. Þeir heilsuðu allt-
af hvor öðrum með því.að segja
hvot' við annan: „Hvað segirðu,
gamli seigur?“ Diddi var þolinmóður
þegar Árni átti í hlut og við öll sem
þekkjum til vitum að við fráfall
Didda hefur Árni misst kæran vin.
Elsku Kidda, Anna María, Guðný
og Beggi, ég veit að sorgin er stór
og mikið frá ykkut' tekið, en eitt
eigið þið alltaf sem aldrei verður
frá ykkur tekið og það er minning-
in um góðan eiginmann og föður.
Megi góður Guð styrkja ykkur í
þessari miklu sorg.
Raggi
Sunna rís sæl úr unnum
sest undir kvöld í vestri
eins rennur ævin manna
ört þar til daprast fartin.
En skerfur hvers er hverfull
hvik lífsþráin svikul,
molna björg, brotna hörgar
bresta stoðir svo flestar.
(Jón frá Pálmholti)
Þriðjudagurinn 3. júní rann upp
bjartur og fagur. Einn í röð þeirra
yndislegu sólskinsdaga sem við höf-
um fengið að njóta undanfarið hér
sunnanlands. Að vakna inn í svona
dag er engu öðru líkt. Fyrirheit
hans eru mörg. Munaðurinn að
finna sólina verma sig. Blómin og
grösin í sínum skæru litum. Spegil-
sléttur sjórinn. Sólroðna kletta ber
við bláan himinn. Fegurð náttúr-
unnar hvert sem litið er. Það eina
sem minnir á haustið og fallvaltleik
lífsins eru ljósgrænir deplar langt
í fjarska, nýslegin tún.
En um það hugsum við ekki á
svona fögrum degi. í dag þarf ekki
að betjast við náttúruöflin, í dag
eru þau á okkar bandi. Það veitir
öryggi.
En innst inni vitum við þó að
öllum góðum dögum fylgir kvöld
og þá daprast litir náttúrunnar í
kulinu. Og áður en sólin settist í
vestrinu þennan dag, hafði birta
hennar fölnað í hugum okkar sem
vissum að hann Diddi væri allur.
Það var fyrir u.þ.b. 15 árum að
leiðir okkar og Kristjáns Ingibergs-
sonar, eða Didda eins og hann var
jafnan kallaður, lágu saman. Alla
tíða síðan höfum við átt því láni
að fagna að mega telja þau hjónin
meðal vina okkat'. Við fluttum burt
frá Keflavík, það varð vík milli vina,
en sambandið hélst og var ræktað
svo sem kostur var. Þó að við viss-
um að Diddi gengi ekki fullkomlega
heill til skógar síðustu árin, hvarl-
aði hugurinn ekki að veikindum
þegar hann var annars vegar. Jafn-
an vai' hann með gamanyrði á vör,
brosið. leyndist í augnakrókunum
og hressilegur hlátui'inn hljómaði í
kringum hann. Upp í hugann kem-
ur gömul staka sent á vel við.
Þá mig höfðu glöpin grætt
gafst ljðs í skugga
hlýjan frá þér hefur brætt
hélu á sálarglugga.
Þannig var hann hlýr og gefandi
og honum var jafnan hröð höndin
ef hann hélt að einhver þyrfti hjálp-
ar við. Menn sem eiga lífsafkomu
sína undir óblíðum tökum íslenskrar
veðráttu vita vel hve vamnáttug
ntannskepnan er gagnvatt náttúru-
öflunum. Þeir vita vel að kallið
hinsta kemur oft óvænt og oft et'
höggvið þar sem þess er síst von.
Engu að síður ganga þeir æðrulaus-
ir til starfa sinna. Enginn má sköp-
um renna og ekkert er tilviljunum
háð í forsjón almættisins. Þetta er
bjargföst trú flestra sjómanna og
þar var hann engin undantekning.
Hann var trúaður maður og fjarri
honum var að álíta að lífinu væri
lokið við landamærin.
Við stöndunt nú og horfum á
eftir Didda sem kallaður er burt á
miðjum annadegi. Við erum góðunt
vini fátækari. En við verðunt að
sætta okkur við það sem orðið er
og reyna að læra að lifa með minn-
ingunum og þeirri vissu að þegar
við verðum kölluð, þá standi Diddi
á ströndinni hinum megin og taki
á móti okkur glaður og reifur eins
og áður.
Þessar fátæklegu línur eru skrif- '
aðar sem nokkurs konar þakklætis-
vottur frá okkut' og börnurn okkar,
fyrir það að hafa átt að vini góðan
dreng sem gerði líf okkar svo miklu
t'íkara. Huggunarorð mega sín lítils
í þeirri sorg sem nú ríkir í Hamra-
gat'ði 9. Þess vegna segjum við
aðeins að endingu. Elsku Kidda,
Anna María, Guðný, Beggi og allir
aðrir ástvinir Kristjáns Ingibergs-
sonar, Guð styrki ykkur.
Sævar og Ebba
Fyrstu tónleikarnit' voru í
Húsavíkurkirkju föstudaginn 6. júlí
og léku þar Kolbeinn Bjarnason
flautuleikari og Guðrún Óskarsdótt-
ir semballeikari og síðan léku þau
í Reykjahlíðarkirkju á laugardag
og í Akureyrarkirkju á sunnudag.
MISHERMT var í blaðinu síðastlið-
inn fimmtudag að Frans Andries-
sen, varaforseti Framkvæntda-
stjórnar Evrópubandalagsins, yrði
á morgunverðarfundi hjá Verslun-
Okkur félagana í Vísi setti hljóða
er þær fregnir bárust að formaður
okkar, Kristján Ingibergsson hefði
látist að kvöldi 3. júlí síðastliðinn.
Það er erfitt að skilja og trúa þeg-
ar menn í blóma lífsins eru svo
skyndilega burt kvaddir. En sláttu-
maðurinn mikli virðist engan grein-
armun gera á því hver okkar er
næstur.
Diddi, eins og hann var ævinlega
kallaður, ólst upp í Keflavík. Strax
á unglingsárum hóf hann störf við
fiskvinnslu en síðan tók sjómennsk-
an við. Sjómennsku stundaði hann
til dauðadags, lengst af sem skip-
stjóri á Baldri KE 97.
Á vordögum 1973 gekk hann í
Vísi, félag skipstjórnarmanna á
Suðurnesjum, og gerðist strax virk-
ur félagi. Árið 1981 er hann kosinn
ritari félagsins, en tekur við fort
mennsku 1984 og er formaðut' fé-
lagsins til dauðadags.
Ásamt því átti Diddi sæti í stjórn
Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands, hann sat í skólanefnd
Stýrimannaskólans, síðustu ár hef-
ur hann setið fiskiþing sem fulltrúi
Suðurnesja og var á síðasta fiski-
þingi kosinn í stjórn Fiskifélags Is-
lands.
Diddi lét öryggismál sjómanna
mikið til sín taka og á ráðstefnu
um öryggismál í september 1987
beindi hann m.a. þeim tilmælum til
siglingamálastjóra að settar yt'ðu
reglur unt að hluti smábáta yrði
málaður skærrauðum lit svo þeir
mættu betur sjást og er þetta orðin
skylda í dag. Á sömú ráðstefnu
ræddi hann ýtarlega um nauðsyn
þess að keypt yrði stærri og öflugri
þyrla fyrir landhelgisgæsluna en sá
þáttur öryggismála var honum sér-
staklega hugleikinn.
Nú að leiðarlokum viljum við
þakka honum fórnfúst og óeigin-
gjarnt starf í þágu félags okkar og
Sjómannasamtakanna í heild.
Við færum eiginkonu, börnum,
tengdabörnum, barnabörnum og
öðrum ástvinum, okkar dýpstu sam-
úð, með þeirri vissu að góður Guð
styrki þau í þeirra miklu sorg.
Vísir, félag skipstjórnar-
manna á Suðurnesjum.
Viðtökur voru góðar, en aðsókn
ekki nógu góð á Húsavík, en ágæt
í Reykjahlíð. Næstu vikurnar vet'ða
tónleikar á nefndum stöðum og
dögum og koma þar fram margir
af okkar þekktu listamönnum.
- Fréttaritari . ,
arráði íslands þann 13. þessa mán-
aðar. Hið rétta er að fundurinn
verður þann 27. á Hótel Sögu. Beð-
ist er velvirðingat' á þessu mishermi:
Morgunblaðið/Silli
Guðrún og Kolbeinn á tónleikunum á Húsavík.
Húsavík:
Sumartónleikar á Norðurlandi
Húsavík.
SUMARTÓNLEIKAR á Norðurlandi 1990 eru að byrja og heQast
nú Qórða árið, vegna mikils áhuga og fórnfús starfs þeirra Margrét-
ar Bóasdóttur óperusöngkonu og Björns Steinars Sólbergssonar
organisia, sem eru upphafsmenn þeirra.
Andriessen kemur 27. júlí