Morgunblaðið - 14.07.1990, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JULI 1990
33
Sjónvarpsáhorfendur vonsviknir
í annars upptendraðri hrifiiingu
Til Velvakanda.
Vinsamleg skrif Baldurs Pálma-
sonar í Velvakanda, m.a. vegna út-
sendingar Sjónvarpsins á tónleikum
Pavarotti, Domingo og Carreras frá
Róm, eru kærkomið tilefni til þess
að koma á framfæri nokkrum upplýs-
ingum fyrir hönd Sjónvarpsins.
Fyrst og fremst vil ég þakka
Baldri Pálmasyni og öllum öðrum
unnendum sönglistar og sjónvarps-
efnis í hæsta gæðaflokki fyrir einstök
viðbrögð við tónleikum meistaranna
7. júlí sl. Sem betur fer láta áhorfend-
ur okkur sjónvarpsmenn oft vita um
það, þegar þeim fellur sérlega vel
við einhver dagskráratriði, en við-
brögðin við Rómartónleikunum voru
svo umsvifalaus, sterk og eindregin
að langt er að leita samjafnaðar, og
það er síður en svo einkennilegt þótt
einasta umkvörtunin sé sprottin af
þeim grun áhugasamra áhorfenda
að þeir kunni að hafa misst af ein-
hvenu eða eitthvað hafí verið af þeim
haft.
Innkaupa- og markaðsdeild Sjón-
varpsins gerði samning í maí um
sýningu Rómartónleikanna fyrir
íslenska áhorfendur. Þá voru þeir
áætlaðir 90 mínútur og upp á það
hljóðar samningurinn. Vegna undan-
úrslita í heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu gat upphafi þeirra
seinkað og tímasetningu þeirra allri
þar með. Til þess að vera viðbúnir
slíku pöntuðu ítalskir sjónvarpsmenn
rúman tíma fyrir dreifingu um gervi-
hnött, svo hún væri trygg þótt til
framlengingar og vítaspyrnukeppni
kæmi.
Nú kom ekki til slíks og tónleik-
arnir hófust á réttum tíma. Fljótlega
mátti sjá staðfestu þess að rætast
myndu spár þeirra, er að þeim stóðu
eða keypt höfðu útsendingarrétt:
Tónleikar söngvaranna þriggja
Stefndu í að verða sérlega vel heppn-
aðir. Þegar komið var í síðasta kafla
þeirra var áhorfendum ljóst að þeir
höfðu orðið vitni að einstæðum og
framúrskarandi ánægjulegum list-
viðburði. Síðasti kaflinn var syrpa
af „léttum lögum“ sem Pavarotti,
Domingo og Carreras fluttu saman,
og að honum loknum var hinn eigin-
legi tími tónleikanna liðinn. Þá tók
við uppklapp í stemmningu sem eng-
inn gat verið ósnortinn af, síst söngv-
ararnir, sem eftir stutta ráðfærslu
við samverkamenn ákváðu að endur-
taka syrpuna. Við það lengdust tón-
leikarnir um nær hálftíma fram yfir
það sem áætlað hafði verið, nokkuð
sem er mjög óvenjulegt í slíkri send-
ingu og gat aðeins orðið vegna þess
hve rúmur tími var enn til umráða
á alþjóðlegu dreifingarkerfi, þar eð
engin seinkun hafði orðið á knatt-
spyrnunni. Við lok endurtekningar-
innar, þegar þessi einstaka hátíð
hafði þegar lengst um fjórðung um-
fram áætlun, var svo send út afkynn-
ing eins og vera bar. En þá hafði
að líkindum gerst það sem gott fólk
þekkir úr réttum og víðar, að hvorki
söngvarar né áhorfendur gátu hugs-
að sér að láta staðar numið, og það
síðasta sem við sáum' til liinna fram-
úrskarandi mannlegu þremenninga
var að þeir sungu „Nessun Dorma“
fullum hálsi: Enginn sefur. ítölsku
stjórnendurnir notuðu síðustu út-
sendingarsekúndur sínar, þótt raun-
ar væri tónleikunum lokið, en þær
sekúndur dugðu ekki fyrir flutning
lagsins alls — og það verður að segja
íslenskum sjónvarpsáhorfendum til
hróss að þeir urðu upp til hópa sár-
lega vonsviknir í annars upptendr-
aðri hrifningu sinni.
Hafí „Nessun Dorma", og hugsan-
lega fleiri lög sem ekki voru send
út, verið tekin upp og eru fáanleg,
þá mun Sjónvarpið gera sitt ítrasta
til þess að útvega upptöku af þeim
og senda út með endursýningu tón-
leikanna síðdegis sunnudaginn 16.
september næstkomandi. En jafnt
þótt sú útvegun takist ekki er til-
hlökkunarefni að eiga I vændum
tveggja tíma endurfundi við lista-
mennina og rómverska aðdáendur
þeirra. Hinrik Bjarnason,
dagskrárstjóri.
Hljótum að geta
séð okkur fært
að aðstoða
náungann
Til Velvakanda.
Morgunblaðið sagði frá því á baks-
íðu 12. júlí að fjöldi fólks hefði ekið
framhjá tvítugum Borgfirðingi sem
var illa slasaður á fæti. Hvað er að
gerast með íslendinga? Erum við að
verða eins og þeir sem búa stórborg-
irnar erlendis þar sem enginn þorir
að skipta sér af bágstöddu fólki og
öðrum sem eru í vandræðum? Sam-
kvæmt fréttinni beið pilturinn í þtjá
stundarfjórðunga upp á vegarbrún-
inni og voru margir bílar sem óku
fram hjá honum án þess að stoppa
og athuga hvað væri að. Er ég viss
um að enginn vildi hafa verið í spor-
um piltsins og vonandi að þetta hafi
verið einstakt tilfelli. Við íslendingar
hljótum að geta séð okkur fært að
aðstoða náungann þegar hann er í
nauðum staddur. Því það er aldrei
að vita nema maður lendi sjálfur í
aðstæðum þar sem aðstoð væri vel
ÞeS'n- íslendingur.
Hestur i óskilum
Á Indriðastöðum í Skorradal er óskilahestur,
brúnn á lit, ómarkaður,u.þ.b. 10-12 vetra,
gamaljárnaður. Upplýsingar í símum 93-70066
og 93-70005.
Hreppstjóri Skorradalshrepps.
EFLING SJÁLFSVITUNDAR
OG PERSÓNUSTYRKS
Dr. Paula Horan heldur námskeið i Reykjavík 27. til 30. júlí
um ofanskráð efni.
Sérstök áhersla lögð á að þátttakendur nái tengslum við
eigið sjálf og læri að virkja jákvæð öfl innri vitundar; breyta
hugsanamynstri sínu til aukinnar vellíðunar og lífsfyllingar.
Upplýsingar og skáning: Hugræktarhúsið, Hafnarstræti 20,
sími 91-620777. Opið frá 14.30-16.30 virka daga.
Skráningu lýkur 20. júlí.
útgáfu bókar með
íslensku vættatali, þar sem gerð^ferður grein
fyrir nafngreindum yfirnáttúrulegum verum
sem einhverjar sagnir eru til um á íslandi.
Leitað hefur verið fanga í öllum helstu
þjóðsagnasöfnum og fornsögum. Heimildir
um slírar verur geta þó leynst ótrúlega víða,
ekki síst í munnmælum.
Því biðjum við þá sem kannast við drauga,
huldufólk, tröll, verndarvættir eða aðrar
yfirnáttúrulegar verur, sem ekki er að^finna í
stærri þjóðsagnasöfnum, að skrifa,okkur í
draugadeildinni.
Mál IMI og menning
„Draugadeild“
Laugavegi 18, Reykjavík.
BENETTON - VERZLANIRNAR
verða lokaðar í dag vegna verðbreytinga
Útsalan hefst á mánudag kl. 10
Benetton, Skólavöröustíg
Benetton, Kringlunni
cnellon
SISLEY