Morgunblaðið - 14.07.1990, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990
35
KIMATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD
Islands-
meistarar
KA einir á
botninum
ÍSLANDSMÓTIÐ í knattspyrnu
er nú hálfnað, en 10. umferðin
fer fram um helgina. Athygli
vekur að íslandsmeistarar KA
sitja einir á botninum — hafa
aðeins sigrað Víking og Stjörn-
una og gert jafntefli við ÍBV,
en tapað öðrum leikjum.
Valsmenn eru í efsta sæti, hafa
unnið sex leiki, gert jafntefli
við Víkinga, en tapað fyrir nýliðum
Stjörnunnar og bikarmeisturum
Fram. Efsta liðið mætir ÍA á Akra-
nesi í dag, en Skagamenn eru í
óvenjulegri stöðu — í botnbaráttu.
Þeir hafa unnið neðstu liðin, KA
og Þor, á heimavelli, gert jafntefli
við Stjörnuna heima og Víking úti,
en tapað öðrum leikjum, þ.á.m. 1:0
gegn Val.
Víkingur fær KR í heimsókn á
morgun. Heimamenn hafa leikið vel
og eru i fimmta sæti eftir þijá
sigra, fjögur jafntefli og aðeins tvö
töp — gegn KR og KA. KR, sem
vann Víking 2:1 í fyrstu umferð, er
í öðru sæti eftir sex sigra og þijú
töp — gegn ÍBV, Fram og Val.
íslandsmeistarar KA taka á móti
FH á mánudag, en FH vann fyrri
leikinn 1:0. Liðin höfnuðu í tveimur
efstu sætunum í fyrra, en hafa átt
erfitt uppdráttar í sumar. KA í fall-
sæti og FH með fjóra sigra og fimm
töp — gegn Víkingi, ÍBV, Þór, KR
og Val.
13 óhappatala Fram?
Um leið fer fram viðureign Fram
og ÍBV í Laugardal. Framarar byij-
uðu mótið með, miklum látum og
virtust vera að stinga af, en 13 er
greinilega ekki happatala liðsins.
Að fimm umferðum loknum var
markatalan 13:0 og stigin 13, en
síðan komu þrír tapleikir í röð —
gegn Víkingi, FH og Stjörnunni —
og fjórða tapið var í bikarkeppn-
inni, en loks í síðustu umferð birti
til og bikarmeistararnir eru í 3.
sæti með stigi meira en ÍBV. Nýlið-
arnir hafa staðið sig vel, aðeins
tapað tveimur leikjum — 4:0 gegn
Fram og 4:1 gegn Val, gert jafn-
tefli í síðustu þremur leikjum, en
sigrað fjórum sinnum.
Stjarnan og Þór leika í Garðabæ
á sama tíma. Stjarnan vann fyrri
leikinn 2:0 og hefur auk þess sigrað
Val og Fram, gert tvö jafntefli og
tapað fjórum leikjum. Þór getur
aðeins státað af tveimur sigrum,
gegn FH og KA, og jafntefii gegn
Fram, en norðanmenn hafa tapað
öðrum leikjum.
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS
Leikir U j T Mörk U J T Mörk Mörk Stig
VALUR 9 4 1 1 11:5 2 0 1 43 15:8 19
KR 9 3 0 2 7:5 3 0 1 7:4 14:9 18
FRAM 9 2 0 2 9:4 3 1 1 8:3 17:7 16
ÍBV 9 3 1 1 8:8 1 2 1 4:6 12:14 15
VÍKINGUR 9 2 2 0 5:2 1 2 2 5:7 10:9 13
FH 9 3 0 2 8:4 1 0 3 6:9 14:13 12
STJARNAN 9 1 1 2 5:8 2 1 2 6:7 11:15 11
ÍA 9 2 1 1 7:5 0 1 4 3:11 10:16 8
ÞÓR 9 1 1 3 4:7 1 1 2 2:5 6:12 8
KA 9 1 1 1 3:2 1 0 5 5:12 8:14 7
ÍÞróttir
helgarinnar
KNATTSPYRNA
1. DEILD KARLA
Laugardagur:
ÍA-Valur..............kl. 14
Sunuudagur:
Víkingur-KR...........kl. 20
Mánudagur:
Fram-ÍBV..............kl. 20
Stjarnan-Þór..........kl. 20
KA-FH.................kl. 20
1. DEILD KVENNA
Laugardagur:
Þór-KR................kl. 14
4. DEILD KARLA
Laugardagur:
Huginn-Sindri.........kl. 15
2. DEILD KVENNA
Sunnudagur:
Einheiji-Valur....kl. 16.30
GOLF
EM í GRAFARHOLTI
Evrópumeistaramót unglinga
í golfi, sem fram fer á Golf-
velli GR í Grafarholti, heldur
áfram í dag, en keppni lýkur
á morgun.
OPIÐ MÓT
Opið mót, Coca Cola mótið,
verður á Hólmsvelli í Leiru, í
dag. Byijað verður að ræsa
út kl. 8 og verður ræst tii kl.
14. Leiknar verða 18 holur,
með og án forgjafar,
FRAMDAGURINN
Hinn árlegi Framdagur verður
á morgun, sunnudag. Knatt-
spyrnuleikir í öllum yngri
fiokkum félagsins verða á
Framsvæðinu við Safamýri
frá kl. 12.30. Dagskráin endar
á leik 3. flokks Fram og
Vikings í bikarkeppni KSI,
sem hefst kl. 16. Framkonur
selja veitingar að vanda, frá
kl. 14 þar til kl. 18.
KEILA
Öskjuhlíðarmótið fer fram í
kvöld eins og venjulega á
laugardagskvöldum og hefst
kl. 20.00.
.vr'
REYKJAVIKURMARAÞON
Mikilvægt að
stígandinn í æfing-
unum sé réttur
Fjöldi æfinga í annarri viku
verður hinn sami og í fyrstu
viku. Hins vegar bætist aðeins við
vegalengdirnar og ein æfingin hjá
skemmtiskokkurunum verður
hraðari. Mikilvægt er að stígand-
inn í æfingunum verði réttur.
Þannig mun bætast við ein æfing
í þriðju viku og síðan lögð aukin
áhersla á hraða í þeirri fjórðu.
Seinasta vikan fyrir Reykjavík-
urmaraþon verður hins vegar ról-
eg. Rétt er að benda á að æski-
legt er að teygja í u.þ.b. 10 mínút-
ur fyrir og eftir hveija æfingu.
Það dregur úr stirðleika og hjálp-
ar líkamanum til að vera í jafn-
vægi. Einnig vii ég benda byijend-
um á að hlaupa ekki eingöngu á
malbiki og reyna að komast á
gras. Með því móti má draga úr
stífleika.
2. vika
Skemmtiskokk Hálfmaraþon
1. d. 6 km rólega 12 km rólega
2. d. Hvíid Hvíld
3. d. 3 km jafnt ökmjafnt
4. d. Hvíld 8 km rólega
5. d. 5 km rólega Hvíld
6. d. Hvíld 8kmjafnt
7. d. Hvíld Hvíld
Útbúnaður
Skóbúnaður er mjög mikilvægt
atriði. Góðir skór eru ein besta
forvörnin fyrir meiðsli. Skórnir
eiga að vera þægilegir og hafa
þykkan og mjúkan sóla, til að
draga úr höggum upp í hælinn.
Þetta er sérstklega mikilvægt fyr-
ir þá sem er þungir. Gott er að
eiga tvö pör til skiptanna. Keppn-
isskór eru gjarnan þynnri og létt-
ari. Það er ekkert atriði fyrir
skokkara að kaupa slíka skó þar
sem ávinningurinn hvað hraða
snertir er í raun mjög lítill. í
keppni ætti fólk aldrei að nota
nýja skó heldur hafa hlaupið
nokkrum sinnum í þeim áður.
Um fatnað má almennt segja
að hann á að vera þægilegur.
Notagildi ætti ávallt að koma á
undan öðrum gildum s.s. tísku.
Einstaklingar eru misjafnir og
eiga að búa sig eins og þeim kem-
ur best. Þeir sem þurfa að nota
vettlinga eiga að gera það o.s.frv.
Varhugavert getur verið að gera
allt eins og aðrir í hópnum því
þeir hafa líkast til aðrar þarfir.
Undanfarin ár hefur alls konar
búnaður fyrir skokkara komið
fram á sjónarsviðið. Nefna má
þyngdarvesti, púlstæki, sérhæfð-
ar skeiðklukkur, drykkjarbelti og
kassettutæki. Sumt af þessu er
ágætt en annað algjörlega óþarft
og jafnvel truflandi. Fólk á að
vera krítískt þegar það kaupir
siíkan búnað, t.d. má nefna að
þyngdarvesti ætti ekki að nota
nema undir leiðsögn þjálfara:
Með kveðju,
Sigurður P. Sigmundsson.
LANDSMOT UMFI
M org un blaðiö/Þo rkei I
600 krakkar í UMFÍ hlaupi
Úrslit í UMFÍ hlaupinu fóru fram í Mosfellsbæ í gær. Um 600 krakkar, víðs vegar af að landinu, mættu þá til leiks en
þau höfðu unnið sér þátttökurétt í forkeppni. Talið er að alls hafi um 20.000 börn tekið þátt í forkeppninni út um land.
Það eru krakkar á aldrinum 11-14 ára sem hlupu. Setningarathöfn Landsmótsins fór fram í gærkvöldi, og voru m.a.
menntamálaráðherra og heilbrigðisráðherra viðstaddir. Einnig nokkrir keppendur frá því á Landsmótinu 1940 sem fraœ—
fór í Haukadal. Mikil keppni var á svæðinu í gær í hinum ýmsu greinum og heldur hún áfram af krafti í dag og má
sjá dagskrána á síðunni hér til hliðar. Landsmótinu lýkur annað kvöid.