Morgunblaðið - 14.07.1990, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 14.07.1990, Qupperneq 36
LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. í sjálfheldu á skólaþaki Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson SLÖKKVILIDID í Reykjavík bjargaði um kvöldmatarleytið í gær þrem- ur drengjum niður af þaki Snælandsskóla í Kópavogi. Höfðu þeir kom- ist upp á þakið án teljandi erfiðleika en brast kjark þegar að því kom að fara niður. Að sögn slökkviliðs voru drengirnir orðnir nokkuð skelk- aðir er körfubíl slökkviliðsins bar að en þeir hresstust fljótt þegar niður var komið. Þorskblokk seld fyrir met- verð á Bandaríkjamarkaði VERÐ á þorskblokk hefur hækkað á Bandaríkjamarkaði síðastliðna tvo mánuði um 7,7%, úr 1,90-1,95 Bandarikjadölum pundið í 2,05-2,10 dali, og er því búið að ná metverðinu, sem þar fékkst árið 1987, að sögn Magnúsar Gústafssonar forstjóra Coldwater Seafood Corp., dótt- urfyrirtækis Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna i Bandaríkjunum. Verð á þorskblokk liefur hækkað um 27,37» í Bandarikjunum á þessu ári. „Við höfnm hækkað verð á þorskflökum umtalsvert undanfarið til að vera samkeppnisfærir við Evrópu, þó ekki ja&imikið og verðið á blokk- inni,“ segir Magnús. Fljótsdalsvirkjun: Hálfur ann- ar milljarður T vegagerð, rannsóknir og hönnun ÞEGAR hefur verið varið 1.500 milljónum króna til undirbúnings Fljótsdalsvirkjunar. Þarna er um að ræða rannsóknar- og hönnun- arvinnu, auk talsverðrar vega- gerðar á Fljótsdalsheiði. Halldór Jónatansson, forstjóri Lands- virkjunar, segir að þessi vinna muni nýtast ef farið verður út í 4Mið virkja á Fljótsdal vegna nýs álvers. Þær 300 milljónir, sem Alþingi heimilaði að yrði varið til virkjunarundirbúnings á þessu ári, muni fara til að Ijúka hönnunarvinnu og ganga frá út- boðsgögnum fyrir Fljótsdals- virkjun og stækkun Búrfells- virkjunar. Halldór sagði að af þessum 1.500 milljónum, á verðlagi síðustu mán- aðamóta, hafi um 1.200 milljónum ■verið varið af Orkustofnun og Raf- magnsveitum ríkisins, áður en Landsvirkjun tók við virkjunarund- irbúningnum. Gerðir hafi verið veg- ir, sem nýtast inuni við gerð nýrrar virkjunar, og einnig litlir stíflugarð- ar vegna vatnamælinga. Þessi mannvirki hafi verið færð til eignar í reikningum Landsvirkjunar, og afskrifuð eins og annar rannsókna- og undirbúningskostnaður. Halldór segir að stefnt sé að því að strax eftir áramótin verði stærstu verkþættirnir boðnir út, og síðan gerðir verksamningar, þannig að hægt sé að hefja vinnu á virkjun- arsvæðunum að vori. Búið sé að bjóða út vélar í stækkun Búrfells, { a^n eftir s® að bjóða út byggingar- vinnu. Fyrir Fljótsdalsvirkjun þurfi að bjóða út vélar, byggingarvinnu og rafbúnað. „Að þessu verður unn- ið til áramóta, auk þess sem ætlun- in er að fara í vegagerð á F'ljótsdals- heiði, sem við verðum að ljúka í október, áður en veturinn gengur í garð,“ sagði Halldór. Halldór sagði að þessar undir- búningsframkvæmdir væru ástæð- an fyrir því, að íslendingar væru samkeppnishæfir um að bjóða orku til nýs álvers. Án þeirra væri ekki unnt að lofa öðrum orku til álvers 1994, eins og nú væri myndazt við. Magnús Gústafsson sagði að hækkanir tii framleiðendanna væru ekki allar komnar til viðskiptavinar- ins. „Við hækkuðum verð á ýsu úr 2,75 Bandaríkjadölum í 2,90 til að fá meira framleitt af henni. Þá minnkaði hins vegar salan en við vonumst til hún aukist aftur núna vegna verðhækkunar á þorski. Við höfum hækkað verð á karfa lítils- háttar en það hefur verið mikið framboð af honum frá Kanada og verðið hefur lækkað undanfarið. Við höfum hins vegar selt beinlausan karfa og fengið fyrir hann mun hærra verð en Kanadamenn fá fyrir sinn karfa. Okkur hefur gengið ágætlega að selja ufsa og framboð af hoiium hefur verið nægilega mik- ið,“ sagði Magnús. Hann sagðist telja að nú væri það svipaður kostur fjárhagslega að framleiða fyrir Bandaríkin annars vegar og Evrópu hins vegar en hart væri barist um hráefnið. „Við höfum reynt að vera samkeppnisfærir um hráefnið gagnvart framleiðendun- um,“ sagði Magnús. Hann sagði að lifnað hefði yfír framleiðslunni fyrir Bandaríkjamarkað í síðastliðnum mánuði. „Fyrstu sex mánuðina í ár höfum við selt sama magn af unn- inni vöru og á sama tíma í fyrra en aðeins meira af flökum. Við höfum hins vegar gengið á birgðir, bæði á íslandi og hjá okkur sjálfum. Vonandi verður gengisþróun okk- ur hagstæð og við fáum þá athygli framleiðendanna, sem við þurfum til að halda viðskiptunum. Aðalatriðið fyrir okkur er að fá nægilega mikið af fiski frá íslandi til að halda þeim viðskiptavinahópi, sem hefur reynst okkur vel í gegnum árin en vegna skorts á fiski höfum við tekið þann kost að skammta helstu viðskipta- vinum okkar fisk í hlutfalli við þeirra fyrri viðskipti, eins og við gerðum árin 1986 og ’87.“ Magnús sagði að þorskveiðar með botnvörpu hefðu verið stöðvaðar við Alaska, þar sem kvóti af lúðu sem aukaafla með þorski hefði verið fyllt- ur. Talið væri að um 100 þúsund tonn af þorskkvótanum hefðu verið óveidd þegar veiðarnar voru stöðvað- ar. Til að fylla upp í þann þorsk- kvóta telja menn að leyfa hefði þurft eitt þúsund tonna viðbótarkvóta af lúðu. Eitthvað af þorskinum næst þó trúlega í önnur veiðarfæri. Magn- ús sagði að á næsta ári kæmi hins vegar áreiðanlega mikið af þorski úr Beringshafinu og frá Norðmönn- um úr Barentshafinu. Tíðni krans- æðasjúkdóma hefur lækkað BREYTT mataræði og minni reykingar íslendinga hafa orðið til þess að tíðni kransæðastíflu hefur lækkað á síðasta áratug. Þetta kemur fram í rannsókn sem framkvæmd var á vegum Hjartaverndar. Að sögn Guðmundar Þorgeirs- son, læknis og formanns rannsókn- arstjórnar Hjartaverndar, er niður- staðan tölfræðilega marktæk og ekki ástæða til annars en að ætla að framhald verði á þessari þróun. Aðspurður um orsakir þess að til- fellum fækkaði, nefndí Guðmundur að neysla á harðri dýrafitu hefði farið minnkandi, að reykingar færu minnkandi og að of hár blóð- þrýstingur væri oftar greindur en áður. Sjá nánar á bls. 14 39 manns eru á biðlista eft- ir hjartaaðgerð hér á landi Mælst til þess að sjúklingar verði sendir utan BIÐLISTI vegna hjartaaðgerða við hjartadeild Landspítalans hefúr aldrei verið eins langur og nú, þegar 39 manns eru á honum. Vegna sumarleyfa verður að fækka aðgerðum í sumar. í júlí verða framkvæmdar tvær aðgerðir á viku, ein á viku í ágúst og í septem- ber er vonast til að hægt verði að framkvæma þrjár til fjórar að- gerðir á viku. Því hefúr hjartadeildúi sent hjartasérfræðingum bréf þar sem mælst er til þess að þeir sendi sjúklinga sína utan. Grétar Ólafsson, yfirlæknir hjartadeildar, segir það ákaflega bagalegt að ekki sé hægt að fram- kvæma allar hjartaaðgerðii' hér- lendis. „Við höfum framkvæmt 76 aðgerðir það sem af er ári og ætlum okkur að reyna að ná á milli 130 og 140 aðgerðum á þessu ári. Ef sinna ætti öllum aðgerðum þyrfti að framkvæma um 160-180 aðgerðir árlega. Biðlistinn var kominn niður í 25 manns fyrir um mánuði en þar sem hann lengdist svona mikið á stuttum tíma fannst okkur ekki stætt á að bæta fleirum við list- ann. Þeir sem lengst hafa verið á listanum, hafa beðið frá því í febr- úar. En bráðaaðgerðum munum við sinna eftir sem áður,“ segir Grétar. í ágúst verður hjartadeildinni lokað en lteknar fá inni á lyflækn- ingadeild með þá sjúklinga sem skornir verða upp. Grétar sagði starfsfólk hjartadeildar einnig reiðubúið að starfa við kransæða- útvíkkanir sem gerðar eru á veg- um lyflækningadeildar og langur biðlisti væri í. Grétar sagði að óskað hefði verið eftir við stjórnarnefnd Ríkisspítalanna að fá leyfi til að gera fjórar aðgerðir í viku í stað þeirra þriggja sem gerðar eru vikulega og viðbrögðin hefðu ver- ið góð. Þá hefðu læknar hjarta- deildar átt von á því að þeir pen- ingar, sem færu í að borga ferðir hjartasjúklinga utan, rynnu til deildarinnar en ekki hefðu borist nein svör við því.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.