Morgunblaðið - 21.08.1990, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990
VEÐUR
ísafjörður:
Frá slysstað í Hallarmúla.
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Ók á bam og stakk af
TVÖ umferðarslys urðu á Suð-
urlandsbraut í Reykjavík laust
eftir klukkan 17 í gær. Þrír
meiddust en enginn lífshættu-
lega, að sögn lögreglu. Barn
varð fyrir bíl á Suðurlandsbraut
við Teppabúðina. Ökumaður
bílsins fór af vettvangi án þess
að gefa sig fram.
Á leið á slysstaðinn ók lögreglu-
maður á bifhjóli á gangandi veg-
faranda á Suðurladnsbraut vð
Hallarmúla. Bæði vegfarandinn og
lögreglumaðurinn, sem féll af hjól-
inu og skrámaðist, voru fluttir á
slysadeild en voru ekki, fremur en
barnið, taldir alvarlega slasaðir.
Mikil eftirspurn
eftir verkafólki
Aflamark Suðumesjaskipa
11% minna 1990 en 1986
> #
- segir Halldór Ibsen hjá Utvegsmannafélags Suðurnesja
AFLAMARK Suðurnesjaskipa var 41.333 tonn í þorskígildum um
síðustu áramót, eða rúmlega 18% minna en árið 1986 en sem hlutfall
af heildaraflamarki alls Iandsins minnkaði aflamark svæðisins aftur
á móti um rúm 11% á sama tímabili, mælt í þorskígildum, að sögn
Halldórs Ibsen framkvæmdastjóra Utvegsmannafélags Suðurnesja.
„Einstakir Suðurnesjabátar geta hins vegar verið á sóknarmarki og
veitt umfram aflamark sitt og þá landa aðkomubátar í einhverjum
mæli á Fiskmarkaði Suðurnesja,"
Allir togarar frá Keflavík,
Njarðvík og Garði, 9 talsins, hafa
verið seldir á síðastliðnum 6-7 árum,
að sögn Ellerts Eiríkssonar bæjar-
stjóra í Keflavík. Frá Suðurnesjum
eru nú gerðir út fimm togarar, þrír
frá Sandgerði og tveir frá Grindavík.
Miðnes hf. í Sandgerði gerir út Ólaf
Jónsson GK og Svein Jónsson KE
og Valbjörn hf. í Sandgerði gerir
út Hauk GK. Hópsnes hf. í Grindavík
gerir út Hópsnes GK og Þorbjöm
hf. í Grindavík Gnúp GK.
Halldór Ibsen segir að um síðustu
áramót, hafí Suðurnesjaskip, 12
rúmlestir eða stærri, verið 90 tals-
ins, samtals 14.196 rúmlestir með
41.333 tonna kvóta í þorskígildum.
Árið 1984 hefðu Suðurnesjaskip hins
vegar verið 109 talsins, samtals
egir Halldór Ibsen.
17.743 rúmlestir með 48.622 tonna
kvóta í þorskígildum, en þá var Suð-
urnesjaflotinn stærstur.
Halldór segir að Suðurnesjaskip-
um hefði því fækkað um 17% á þessu
tímabili en þeirra hlutur hefði
minnkað um rúmlega 14% í heildar-
skipafjölda landsins á tímabilinu.
Meðalskip á Suðurnesjum hefur hins
vegar heldur bætt við sig í þorsk-
ígildum talið, eða um 1,3%, á meðan
meðaltal allra skipa í landinu hefur
minnkað um 1%, þegar tekið er mið
af úthlutuðum aflakvóta á skip yfír
10 rúmlestir.
Suðurnesjaskip voru með um
41.300 tonna kvóta í þorskígildum
um síðustu áramót, eða 11,3% af
heildarkvótanum, 50.600 tonna
kvóta árið 1986, eða 12,7% af heild-
arkvótanum og 48.600 tonna kvóta
1984, eða 12,9% af heildarkvótan-
um. Skip frá Grindavík og Sand-
gerði voru hins vegar með meiri
kvóta um síðastliðin áramót en árið
1984. Grindavíkurskip voru með
17.184 tonna kvóta um síðustu ára-
mót, eða 4,4% meiri kvóta en 1984
og skip frá Sandgerði voru með
10.523 tonna kvóta um áramótin,
sem er 9% meiri kvóti en 1984.
Skip frá Garði voru með 1.422
tonna kvóta um síðastliðin áramót,
sem er 60% minna en 1984.
Keflavíkurskip höfðu 11.020 tonna
kvóta, eða 25% minna en 1984 og
skip frá Vogum höfðu 1.184 tonna
kvóta, sem er 3% minna en 1984.
Njarðvíkingar áttu engan kvóta um
áramótin en voru hins vegar með
3.048 tonna aflakvóta 1984.
Frá Suðurnesjum voru í fyrra
gerðir út 110 bátar undir 10 tonn-
um, þar af 50 frá Kefiavík, 12 frá
Garði, 12 frá Grindavík, 12 frá Vog-
um, 10 frá Sandgerði, 10 frá
Njarðvík og 2 frá Höfnum. „Mér
finnst þetta stórt skref aftur á bak
í sögu útgerðar á Suðurnesjum.
Þessir bátar stunda jöfnum höndum
línu-, neta- og handfæraveiðar allan
ársins hring og finnst manni stund-
um sótt af meira kappi en forsjá.
Árið 1984, fyrsta kvótaárið, voru
gerðir út örfáir slíkir bátar héðan
frá Suðurnesjum og þá aðeins með
handfæri yfír hásumarið," sagði
Halldór Ibsen.
Lamb skotið
á færi, fleg-
ið og verkað
Djúpavogi.
BÓNDINN á Teigarhorni,
Krislján Jónsson, fann eitt
lamba sinna dautt í laut á
landareign sinni nýlega.
Hann tók um horn því og
fannst það þá óvenjulétt.
Skýringin reyndist sú að dýr-
ið hafði verið skotið, flegið
að aftan og hirtur úr því
hryggur og bæði læri.
Svo virðist sem lambið hafi
verið skotið með stórum riffli
af 40-50 metra færi og síðan
verið dregið í lautina þar sem
gert var að því. Ekki er vitað
hver þarna var að verki. Riffil-
patróna fannst í grenndinni og
verður hún send til rannsóknar
í Reykjavík. GB
VEÐURHORFUR I DAG, 21. AGUST
YFIRLIT j GÆR: Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1020 mb hæð, en
vaxandi 990 mb lægð um 300 km austsuöaustur af Hvarfi þokast
norðaustur.
SPÁ: Allhvöss austan og suðaustanátt og rignig um mestallt landið
fram eftir morgni en undir hádegi snýst vindur í hægari suðvestan-
ðtt með skúrum suðvestanlands. Þegar líður á daginn lægir einnig
í öðrum landshlutum og styttir upp með hægri suölægri átt norðan-
lands og austan undir kvöld. Heldur kólnandi síðdegis, fyrst suð-
vestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðvestlæg átt um mestalit landið, þó
ef tii vill norðaustanátt á Vestfjörðum. Skúrir um sunnan- og vestan-
vert landið en þurrt að mestu og líklega bjart veður norðaustan-
lands. Heldur kóinandi.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Vestlæg eða norðvestlæg átt og áfram
kólnandi. Skúrir um landið vestanvert og einnig sums staðar norðan-
lands en léttskýjað á Suðausturlandi og Austurlandi.
TÁKN:
Heiðskírt
Lettskyjao
Hálfskýjað
Skyjað
Alskyjað
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * / * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-| o Hitastig:
10 gráður á Celsius
*\J Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
ÞrumUveður
m
mm
Akureyri
Reykjavik
Bergen 11
Helsinki 14
Kaupmannahöfn 20
Narssarssuaq S
Nuuk 4
Óslá 13
Stokkhölmur 15
10
skýjað
hálfskyjað
téttskýjað
skýjaft
þoka
skýjað
léttskýjað
Barcetona
Beriín
Chicago
Frankfurt
taePalmaa
London
LosAngetes
Uixemborg
Madrid
Momreai
NawYork
Orlando
Parts
Róm
Vín
Washington
19
18
iíé:
15
21
17
17
11
16
14
19
16
24
20
15
17
niii
18
21
||16
skýjað
skýjaft |
rígnlng
aiskýjað
heiftskirt
skur
rignktg
vantar
skýjaft
téttskýjað
skjöaft
skýjað
skýjað
skýjað
helðskirt
skýjaft
Þökumóöa
skýjað
vantar
ísafiröi.
UMTALSVERÐ eftirspurn er eftir ófaglærðu verkafólki á ísafirði og
er stór hluti af síðum bæjarblaðanna undirlagður af auglýsingum eft-
ir fólki í hin margbreytilegustu störf. Á atvinnuleysisskrá í sumar
hafa verið að meðaltali fimm manns. í fyrri viku voru þeir sjö, þar
af fjórir útlendingar þar sem vinna hefur legið niðri í frystihúsum
vegna sumarleyfa.
Mikil vinna er í rækjuverksmiðjunum
og útlit fyrir að fisk vinnslustöðvar
muni starfa óslitið út árið þótt flest-
ar gætu þegið meiri fisk.
Litlar framkvæmdir eru fyrirhug-
aðar hjá ísafjarðarbæ á árinu nema
að verið er að undirbúa lagningu
olíumalar á nokkrar götur, þar á
meðal nýja tengingu við hafnar-
svæðið. Þá er verið að vinna við jarð-
vegsskipti og lagningu bundins slit-
lags á Isafjarðarflugvöll, verið er að
leggja veg að munna væntanlegra
jarðgangna um Breiðadals- og
Botnsheiði en þar þarf jafnframt að
færa vatnsból.
Úlfar
Leifur Asgeirsson
prófessor látinn
LEIFUR Ásgeirsson, doktor í
stærðfræði og prófessor við Há-
skóla íslands, er látinn. Leifur
var fæddur þann 25. maí árið
1903 að Reykjum í Lundar-
reykjadal, sonur Ásgeirs Sig-
urðssonar bónda og Ingunnar
Daníelsdóttur kennara.
Leifur varð stúdent frá MR árið
1927. Hann tók doktorspróf við
háskólann í Göttingen 1933, og var
skólastjóri héraðsskólans á Laugum
1933-1943, er hann hóf stærðfræði-
kennslu við HÍ. Sem prófessor starf-
aði Leifur síðan á árunum 1945-
1973. Þá var hann forstöðumaður
rannsóknarstofu í stærðfræði við
Raunvísindastofnun háskólans
1966-1973.
Eftirlifandi maki Leifs er Hrefna
Kolbeinsdóttir.
Leifur Ásgeirsson prófessor