Morgunblaðið - 21.08.1990, Side 5

Morgunblaðið - 21.08.1990, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990 5 jf LANDSBRÉF H.F. Landsbankinn stendur með okkur Suðurlandsbraut 24,108 Reykjavík, simi 606080 Lóggilt veröbréfafyrirtæki. Aöiti aö Veröbréfaþingi íslands. Afkoma ríkissjóðs svipuð og fjárlög gera ráð fyrir Olafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra: ÚTLIT er fyrir að afkoma ríkis- sjóðs verði svipuð og ijárlög gera ráð fyrir á þessu ári í heild, samkvæmt upplýsingum sem fram komu á blaðamanna- fundi Olafs Ragnars Grímsson- ar ijármálaráðherra í gær. Samkvæmt endurskoðaðri áætl- un mun halli á rekstri ríkissjóðs verða 3.954 miljónir króna á árinu, en fjárlög gera ráð fyrir að hallinn verði 3.687 milljónir. Afkoma ríkissjóðs fyrri hclming ársins varð 2,3 milljörðum króna betri en gert var ráð fyr- ir á fjárlögum og er það einkum þakkað bættum skilum á virðis- aukaskatti og hertum inn- heimtuaðgerðum. verði ekki gripið til sérstakra að- gerða af hálfu viðkomandi ráðu- neyta. Þrátt fyrir þetta er gert ráð fyrir að heildarafkoma ríkissjóðs verði svipuð og gert var ráð fyrir á fjárlögum. Olafur Ragnar Grímsson fj'ár- málaráðherra þakkaði það meðal annars aukinni innlendri lánsfjár- öflun að aukinn stöðugleiki væri nú í peningamálum. Hann sagði stöðugleikann um þessar mundir vera meiri en verið hefði undanfar- in 20 ár eða lengur. Morgunblaðið/Árni Sæberg Embættismenn fjármálaráðuneytisins greina frá afkomu ríkissjóðs fyrstu sex mánuði ársins. Frá vinstri Halldór Árnason, Marianna Jónasdóttir, Bolli Þór Bollason, Oiafur Ragnar Grímsson fjármálaráð- herra, Magnús Pétursson og Þórhallur Arason. í endurskoðaðri áætlun um af- komu ríkissjóðs 1990 kemur fram, að gert er ráð fyrir að tekjur hækki um milljarð króna, verði 92.546 milljónir í stað 91.545 milljóna á fjárlögum. Helsta skýr- ing þessa munar er talin vera að álagning gjalda fyrir gjáldárið 1990 skili meiri tekjum en áætlað var og munar þar mestu um tekju- skatt félaga. Fjármálaráðherra sagði það benda til þess að afkoma fyrirtækja árið 1989 hafi verið betri en áætlanir fjárlaga gerðu ráð fyrir. Gjöld hækka samkvæmt sömu áætlun um 1.268 milljónir króna, úr 95.232 milljónum í 96.500 milljónir. Lánsfjárþörf ríkissjóð er nú áætluð um 4.904 milljónir króna á árinu, en fjárlög áætluðu hana vera 3.277 milljónir. Miðað við fjárlagatöluna er lánsfjárþörfin 1,4% af vergri landsframleiðslu, en var 2,6% í fyrra og 3,3% 1988. Áætlað er að innlend lántaka verði 10.905 milljónir, erlend lán verði greidd niður um 470 milljónir og greidd verði 5.562 milljóna króna skuld ríkissjóðs við Seðlabankann. Innheimtar tekjur ríkissjóðs fyrstu sex mánuði ársins námu 44.525 milljónum króna, 3.060 milljónum hærri en gert var ráð fyrir með fjáraukalögum. Það er hækkun um 30% frá sama tíma í fyrra. Hækkun verðlags hækkaði um 20% á sama tímabili. Innheimt- ar tekjur hækkuðu því um 7% að raungildi Embættismenn fjár- málaráðuneytisins segja skýringar þessa fráviks einkum vera tvær, annars vegar hafi innheimta eldri skattskulda verið betri en reiknað hafi verið með, meðal annars vegna betri skattskila í virðisauka- skattskerfi en söluskattskerfi og vegna hertra innheimtuaðgerða, hin meginskýringin sé að inn- heimtar tekjur af virðisaukaskatti hafi verið meiri en áætlað var. Þessi áhrif segja þeir að séu fyrst og fremst tilfærsla innan ársins, en leiði ekki til aukinna tekna ríkissjóðs fyrir árið í heild. Þá varð innheimta beinna skatta tæplega 1.300 milljónum króna meiri fyrra helming ársins en reiknað hafði verið með og er það skýrt með aukinni innheimtu eldri skattskulda. Útgjöld ríkissjóðs fyrstu sex mánuði ársins námu 47 milljörðum króna, eða 825 milljónum umfram áætlanir. Það er hækkun um 21% frá sama tíma í fyrra. Almenn rekstrargjöld hækkuðu um 192 milljónir umfram áætlun, trygg- ingagreiðslur um 876 milljónir, hins vegar lækkuðu vaxtagjöld um 168 milljónir og stofnkostnaður um 109 milljónir. Fjármálaráð- herra sagði að óvissa ríkti um þróun útgjalda síðari hluta ársins, þar sem ýmsir útgjaldaliðir eins og á sviði trygginga- og mennta- mála stefndu fram úr fjárlögum, Einar Pétursson i Reykjavikurhófn. Allir landsmenn geta eignast ÍSLANDSBRÉF Bjartsýni og baráttuandi hefur ætíð einkennt stóru stundirnar í lífi og starfi íslensku þjóðarinnar. Þegar miklir hagsmunir eru í húfi stöndum við saman og fáum miklu áorkað. Á þeirri hugmynd grundvallast íslandsbréf. íslandsbréf eru eignarhluti í sam- eiginlegum sjóöi sparifjáreigenda, þar sem fjárfest er í ýmsum tegund- um vel tryggðra verðbréfa. Með því að eignast hlutdeild í sjóðnum geta einstaklingar notið þess ávinnings sem felst í því að dreifa fjárfesting- um og njóta góðrar ávöxtunar. Fæstir sparifjáreigendur hafa tíma, þekkingu eða fjárráð til að notfæra sér þá kosti sem felast í því að dreifa fjárfestingum. íslandsbréf leysa vandann. íslandsbréf eru nánast fyrirhafn- arlaus fjárfesting og henta vel jafnt ungum sem öldnum hvort sem um er að ræða háar eða lágar upphæðir. Reglubundinn sparnaður er mikil- vægur. Þannig öðlast fólk skilning á gildi sparnaðar og lærir að bera virðingu fyrir verðmætum. Þótt upphæðirnar séu ekki háar, er gott að venjasig áað leggja hluta af tekj- um sínum í örugga og arðbæra fjár- festingu. Á nokkrum árum getur þannig myndast álitlegur sjóður. Dæmi: Fermingarbarn fær íslandsbréf að upphæð 20.000 krónur. Á hverju ári leggur það fyrir svipaða upphæð af sumarlaunum og kaupir íslandsbréf. Tíu árum síðar er sjóðurinn orðinn næstum 290.000 krónur að núvirði.* * Án innlausnargjalds, miðað við að 8% árleg raun- ávöxtun náist á sparnaðartimanum. Sérfræðingar Landsbréfa h.f. sjá um alla umsýslu, svo að eigendur íslandsbréfa geta notið áhyggju- lausrar ávöxtunar. Leitið ráða hjá Landsbréfum h.f. Komið og fáið nánari upplýsingar, bæklinga og aðstoð hjá ráð- gjöfum okkar og umboðsaðilum í útibúum Landsbanka íslands og Samvinnubankans um land allt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.