Morgunblaðið - 21.08.1990, Qupperneq 7
7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990
Hópur kartöflubænda:
Telja lágt
verð ekki til-
komið vegna
offramleiðslu
HÓPUR kartöflubænda hefur
mótmælt þelm ummælum form-
anns Landssamtaka kartöflu-
bænda að lágt verð á kartöflu-
markaði sé til komið þar sem
uppskeran í ár stefni í að verða'
um tvöföld ársneysla landsmanna.
Segja bændurnir að ummælin séu
„illskiljanleg og ótímabær," og
nefna þeir átök á milli dreifinga-
raðila sem ástæðu fyrir þeim lágu
verðum sem nú eru á kartöflum.
í bréfi sem bændurnir hafa sent
frá sér segir m. a.: „Yfirlýsing form-
anns LSK um offramleiðslii á kartöfl-
um í haust er ótímabær og illskiljan-
leg, nema fyrir honum vaki að ganga
frá félagsskapnum og leggja í rúst
afkomu margra kartöflubænda."
Tryggvi L. Skjaldarson, einn bænd-
anna sem skrifa undir bréfið, sagði
í samtali við Morgunblaðið að ógern-
ingur sé að segja til um hver uppsker-
an verði fyrr en uppskerustörfum sé
að fullu lokið. „Þrátt fyrir að aðstæð-
ur til ræktunar hafi verið góðar í
sumar, og undanfarið með besta
móti, er ljóst að uppskeran verður
aldrei nálægt því sem undanfarið
hefur verið haldið fram,“ sagði
Tryggvi. „Það að koma svo villandi
upplýsingum á framfæri hlýtur að
skaða hagsmuni kartöflubænda, og
við finnum okkur knúna til að leið-
rétta þennan misskilning.“
Bændurnir segja, að hin lágu verð
er nú bjóðast á kartöflum séu ekki
tilkomin vegna offramleiðslu, heldur
vegna átaka á milli dreifingaraðila.
Þá bjóði margar verslanir nú smælk-
isafganga í takmörkuðu magni á
mjög lágu verði, með því markmiði
að standa sig vel í verðkönnunum.
Yerðbólgan
6% síðustu
sex mánuði
HRAÐI verðbólgunnar hefur ver-
ið 6,3% síðustu sex mánuði á
mælikvarða lánskjaravísitölu.
Lánskjaravísitala 2.932 gildir fyr-
ir septembermánuð og er það
0,24% hækkun frá mánuðinum á
undan. Umreiknað til árshækkun-
ar jafngildir það 2,9% hækkun.
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Sofnaði undir
stýri
STÓR flutningabíll með tengi-
vagni valt á Bæjarhálsi um klukk-
an sex í gærmorgun. Talið er að
ökumaðurinn hafi sofnað undir
stýri, að sögn lögreglu. Hann sak-
aði ekki. Blllinn lokaði Bæjarhálsi
algjörlega. Framendi bílsins braut
niður ljósastaur en tengivagninn
lá þvert yfir götuna óg þurf/i að
kalla til vinnuvélar að losa farm-
inn, rúm 10 tonn af vikri, af ak-
brautinni.
HEILL TÖFRAHEIMUR í EINNI FERÐ
Þá hefur Hagstofa íslands reiknað
út launavísitölu og byggingarvísitölu
í ágúst. Launavísitala ágústmánaðar
er 116,9 eða 0,3% hærri en í júlí.
Byggingarvísitalan eftir verðlagi um
miðjan ágúst reyndist vera 172,2
stig eða 0,2% hærri en í júlí. Síðast-
liðna tólf mánuði hefur vísitala bygg-
ingarkostnðar hækkað um 16,9%.
Síðustu þijá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 1,1% og jafngildir það
4,6% árshækkun.
Viðskipti við Sovétríkin:
Viðræður hefl-
EINSTAKIR TOFRAR I RIKIDÆMI NATTURUNNAR:
VIKTORÍUFOSSAR í ZIMBABWE,
VILLIDÝRAHJARÐIRNAR í CHOBE, BOTSWANA,
KRUGER ÞJÓÐGARÐURINN OG ZULULAND MEÐ
FÍLA, UÓN, GÍRAFFA, HLÉBARÐA, ZEBRA, HIPPO,
NASHYRNINGA, plús 285 aörar tegundir dýra, 500
tegundir fugla og 24.000 tegundir blómjurta, sem
teyga krónur sínar mót sól í nóvember og gleðja
augaö á “Blómaleiöinni” Garden Route, einum
fegursta vegi í heimi.
Hvaö gerír þessa ferö svo sérstaka?
BORGIR GULLS OG
DEMANTA - fagrar,
sögulegar byggingar í
nýlendustíl og
skýjakljúfar. Glæsileg
lúxushótel, frábær
matur og eöalvín á
góöu veröi. Sólskin,
holl hreyfing og
útivist, ákjósanlegt
hitastig, um 25° C.
KYNNING:
Ingólfur Guðbrandsson
segir frá Afríku og sýnir
kvikmynd í Ársal Hótel
Sögu annað kvöld,
miðvikud. 22. ágúst
kl. 21-22.15
Ókeypis aðgangur
ast í október
ÁRLEGAR viðskiptaviðræður ís-
lendinga og Sovétmanna hefjast
væntanlega 8. október næstkom-
andi, að sögn Sveins Á. Björnsson-
ar í utanríkisráðuneytinu. Hann
sagði að reynt hafi verið að koma
viðræðunum á fyrr, en það hafi
ekki tekist.
Núgildandi rammasamningur um
viðskipti íslendinga og Sovétmanna
rennur út um næstu áramót, en hing-
að til hafa slíkir samningar gilt til
fimm ára í senn. Sovétmenn hafa
rætt um að næsti samningur komi
til með að gilda í tvö ár, en hann
verði síðan hugsanlega framlengdur
um þrjú ár.
„Fjarlægar álfur og furður heimsins í fylgd Ingólfs
Guðbrandssonar teljum við svo einstaka upplifun
að við höfum ekki sleppt neinni úr í 10 ár. Félags-
andinn í ferðunum hefur verið góður. Okkur finnst
Geir Jóelsson og frú, Hafnarfirði.
Aðeins örfá sæti laus.
Síðustu forvöð að panta og
láta þennan óskadraum rætast.
Lúxus fyrir lítið.
Grunnverð ferðar aðeins kr. 212.900,-
IHBOLFUK GUMHHQSSQH
AUSTURSTRÆT117,101 REYKJAVlK , SÍMI: (91) 62 22 00 & 622 011
■liMiuriii
---—