Morgunblaðið - 21.08.1990, Page 16

Morgunblaðið - 21.08.1990, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990 Afmæli Reykjavíkur: Umhverfís- o g menningar- málum gert hátt undir höfði REYKJAVÍK átti 204 ára af- mæli á laugardaginn, 18. ágúst, sem haldið var upp á með ýmsum hætti af hálfu borgaryfirvalda. Einkum var menningar- og umhverfis- málum gert hátt undir höfði á afmælisdaginn. Hátíðahöldin hófust með því að opnað var formlega þjónustu- rými fyrir aldraða að Dalbraut 18-20. Borgarstjóri og borgar- fulltrúar drukku þar morgunkaffi með íbúunum. Eftir hádegið var svo haldið upp á 30 ára afmæli Fæðingarheimilis Reykjavíkur, sem ber upp á afmælisdag borg- arinnar. Davíð Oddsson afhjúpaði á lóð Fæðingarheimilisins stytt- una „Móðir og bam“ eftir Tove Ólafsson, sem borgaryfírvöld gáfu heimilinu í afmælisgjöf. Klukkan fjögur fór fram óvenjuleg vígsluathöfn lista- verksins _ „Sólfars“ eftir Jón Gunnar Ámason myndhöggvara. Dráttarbíll kom akandi með lista- verkið að fótstalli þess í fjömnni við Sætún, og stór krani hífði verkið á sinn stað. Verkið stend- ur á odda, sem skagar fram í sjóinn, en þar á að útbúa útsýn- is- og áningarstað við nýju Sæ- brautina. Að lokum var móttaka í Höfða, þar sem afhentar vom viðurkenn- ingar fyrir snyrtilegt umhverfi og listamenn heiðraðir. Fegursta gata Reykjavíkur var valin Klapparás í Seláshverfi. íbúar við Frostafold 14 fengu viðurkenn- ingu fyrir fallega lóð fjölbýlis- húss. Melstaður við Grandaveg og Langahlíð 13-17 þóttu dæmi um gömul hús, sem vel hefði tekizt að gera upp. Þá fengu fimm fyrirtæki og stofnanir við- urkenningu fyrir snyrtilega lóð. Morgunblaðið/Einar Falur Svava Björnsdóttir borgarlistamaður tekur við viðurkenningar- skjali af Davíð Oddssyni borgarstjóra. Megas þakkar fyrir starfslaunin, sem honum voru veitt til þriggja ára. Borgarlistamaður Reykjavíkur borgarinnar að veita Magnúsi 1990-1991 var útnefnd Svava Þór Jónssyni, Megasi, starfslaun Björnsdóttir myndlistarmaður. til þriggja ára. Þá ákvað menningarmálanefnd Höggmyndin Móðir og barn eftir Tove Ólafsson var afmælisgjöf Reykjavíkur til Fæðingarheimilisins. Fjöldi borgarbúa kom í af- mælisveizluna. Borgarbúar virða Sólfar Jóns Gunnars Árnasonar fyrir sér, þar sem það er komið á pall sinn og snýr stafni út á Sundin. » í » ► Samningar um fulla þátttöku Islendinga í vísindaáætlun Evrópubandalagsins SAMNINGUR um fulla þátttöku íslendinga í vísindaáætlun Evrópu- bandalagsins, sem miðar m.a. að greiðari samskiptum evrópskra vísindamanna (SCIENCE-programme), er til umfiöllunar á þingi Evrópubandalagsins og verður væntanlega tilbúinn til undirritunar í lok þessa árs. Samkomulag er um að undirbúa framkvæmd hans m.a. með því að auglýsa nú þegar eftir umsóknum um styrki frá SCIEN CE-áætluninni. SCIENCE-áætlunin styrkir ýmiss konar verkefni sem valin eru á grundvelli mats á vísindalegum og tæknilegum gæðum umsókn- anna, enda miðist verkefnin við að koma á fót kerfisbundinni samvinnu og samskiptum á milli evrópskra vísinda- og tæknimanna. Megintil- gangur áætlunarinnar er að auð- velda útbreiðslu nýrrar þekkingar yfir landamæri og á milli rann- sóknastofnana. Þannig er vísinda- mönnum frá aðildarríkjum áætlun- arinnar, sem hafa sérhæft sig í mismunandi fræðigreinum, veitt tækifæri til þess að læra hver af öðrum í viðleitni sinni að skapa nýja þekkingu. Áætlunin leitast við að efla rann- sóknir í aðildarríkjunum og draga úr vísindalegum og tæknilegum mismun á milli þeirra. Áhersla er lögð á að styrkja verkefni sem eru fjölfagleg, fela í sér nýbreytni og stuðla að því að bijóta niður hindr- anir á milli mismunandi sviða evr- ópskra rannsókna og þróunarverk- efna. SCIENCE-áætlunin nær til allra fræðigreina raun- og náttúru- vísinda, svo sem stærðfræði, eðlis- fræði, líffræði, jarðfræði, haffræði, verkfræði og vísindalegrar mæli- tækni. Umsóknir má senda hvenær sem er, en reikna verður með sex mán- aða biðtíma eftir svari. Umsókna- reyðublöð og allar nánari upplýsing- ar fást hjá Rannsóknaráði ríkisins og Vísindaráði. I I I I I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.