Morgunblaðið - 21.08.1990, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 21.08.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990 17 Bach-tónleikar í Skálholti ______Tónlist_____ Jón Ásgeirsson Sveitaorgelleikarinn Johann Se- bastian'Bach var ekki heimsmaður og auk þess ófrumlegur og gamal- dags í tónsmíðum sínum. Tónskáld- skapur hans var eins konar niður- lagshljómur í þeirri tegund tónverka sem tekið var til við að semja um það bil eitt hundrað og fimmtíu árum áður. Nýr tími sinfónískrar tónlistar, nýrra formgerða, hljóðfæra og hug- mynda um list gerði verk hans óþörf og óaðgengileg. Þegar sú liststefna, klassíkin, sem útrýmt hafði barokk- inni, var algengin og tekin að gaml- ast og rómantíkin lagt sitt til við að afnema klassísk gildi, þá var blásið rykið af gulnuðum blöðum meistar- ans og verk hans dásömuð. Það hef- ur valdið sagnfræðingum nokkrum heilabrotum að einmitt rómantíkin hafi endurreist þetta gamla tónmál og haliast að tvennu, í fyrra lagi, að uppgötva tónskáld sé í eðli sínu rómantískt atferli og í öðru lagi, að rómantíska tónlist hafi skort þá tækni sem tónlist Bachs var svo auð- ug af og að þessi samanburður sé einnig ástæðan fyrir vaxandi vin- sældum hans í dag. Fyrri Sumartónleikamir síðustu listahelgarinnar í Skálholti voru helg- aðir meistara J.S. Bach. Flytjendur voru Hörður Áskelsson, orgelleikari, FRÖNSK FLAUTUTÓNLIST eftir Ferrod, er nefnast Bergére cap- tive Jade og Toan-Yan og tónleikun- um lauk með þremur skáldlegum verkum eftir Jolivet, nefnilega Sær- ingaþulu frá 1936 og tveimur þáttum úr verkinu Meinlæti frá 1962, sem bera yfirskriftina „Til að leyndar- dómurinn geymist skulum við vera hljóð þar til þögnin er fullkomin“ og „0, kona sem veist ekki að þú barst heiminn í þér“. Manuela Wiesler hefur hljóðfærið á valdi sínu og drottnar yfir tónmáli verkanna og því hefur leikur hennar fengið nýja dýpt í sýn hennar á inn- viði listarinnar, sem er lokað svið fyrir þeim er enn eru að kljást við tæknivandamálin. Tónninn og blæ- mótun hans er eins og taltexti, per- sónuiegur og ástríðufullur, mildur og dulúðlegur, glettinn og leikandi, ber i sér sýn yfir víðfeðm akuriendi mannlegra tilfmninga. Leikur Manu- elu er mikil listamennska sem ekki verður skilgreind en aðeins notið. Síðustu Sumartónleikarnir að þessu sinni voru helgaðir franskri flaututónlist og það var flautusnill- ingurinn Manuela Wiesler sem sló botninn í þessa sumartónlistarhátíð í Skálholtskirkju. Það er við hæfi, því það var einmitt Manuela ásamt ásamt Helgu Ingólfsdóttur sem lagði grunninn að vinsældum þessara sér- stæðu tónleika. Sérkennilegt er hversu ýmis hljóð- færi og stíltegundir tengjast þjóðum og hafa tónlistarsagnfræðingar velt þessu fyrir sér. Virginalið var nær því sérsvið Englendinga á tímum Tudoranna, fjölradda kórsöngur sem næst uppfinning Niðurlendinga, org- elsnillingar flestir þýskir, söngur og fiðluleikur glæsilegastur á Ítalíu og flautan, sem hafði notið mikilla vin- sælda sem barokkhljóðfæri, varð eins konar tákn fyrir franska tónlist á fyrri hluta 20. aldar. Klassíkin og rómantíkin náðu aldrei að nýta flaut- una almennilega til túlkunar á til- Mianuela Wiesler finningum en það voru Frakkar, sem ávallt hafa verið sakaðir um skraut- girni, er fundu leið til að nýta lipur- leik flautunnar í „impressionísku" tónmáli sínu. Manuela Wiesler hefur ávallt haft mikið dálæti á franskri flaututónlist og leikið hana löngum af mikilli leikni og innsæi. Á efnisskrá Manuelu var Syrinx eftir Debussy, Smáverk eftir Ibnert, Density eftir Varése, þrjú lög Manuela Wiesler Hörður Áskelsson Inga Rós Ingólfsdóttir Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari og Manuela Wiesler flautuleikari. Á efn- isskránni voru Sálmforleikurinn Schmucke dich, o liebe Seele (BWV. 654), fyrsta gambasónatan (BWV. 1027), sónata í e-moll (BWV. 1034), fyrir flautu og basso continue og orgelpassacaglian fræga (BWV 582) í c-moll. Hörður Áskelsson flutti sálmforleikinn og passacagliuna á orgel kirkjunnar og lék bæði verkin af smekkvísi. Það má vera að radd- skipan sú sem Hörður notaði í sálm- forleiknum sé „kórrétt" en svo mik- ill munur á styrk gagnraddanna og sálminum, sem var að þessu sinni, gerir sálminum of hátt undir höfði, svo að meistaralegt raddferli gagn- raddanna týndist og var ógreinilegt á móti útfærslunni á sálminum, sem er í raun andstætt hugmyndum kontrapunktsins, þar sem allar radd- ir eru jafnar að stöðu. Passacaglian var leikin af yfii-veg- un og þar var raddskipan mjög skýr. Gambasónatan í g-dúr var ágætlega leikin af Ingu Rós Ingólfsdóttur en vantaði sterkari andstæður í hraða. Hörður Áskelsson lék undir á nýja continue-orgel kirkjunnar og sá einn- ig um continue leikinn ásamt Ingu Rós í flautusónötunni, en þar fór á kostum flautusnillingurinn Manuela Wiesler. Manuela lék verkið meist- aralega-vel. Tónmyndun hennar hef- ur auðgast að blæbrigðum og hend- ingamótum öll orðin mun mýkri og hlýrri en undirritaður man frá fyrri tíð. Ró endurfundanna við verkefnin er ríkjandi í túlkun hennar og vanda- málin hætt að vera bundin við ytri útfærslu en vísa nú æ meir að inni- haldi verkanna. Þannig er þroska- saga listamanna endalaus átök, sem fá dýpri merkingu að fengnum nýjum sigrum. Vaskhugi Forritió sem sér um sölureikninga, viðskipta- menn, lager, vsk, innheimtu o.s.frv., svo að þú getir einbeitt þér að arðbærari starf- semi! Röskur og nákvæmur meðhjálpari á skrifstofuna. Hringdu og fáóu sendar nánari upplýsingar. íslensk tæki, Garðartorg 5, sími 656510. DANF0SS SKAPAR VELLÍÐAN Á HEIMIUNU! = HEÐINN = SELJAVEGI 2, SÍMI 624260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER Mikil útbreiðsla DANFOSS ofnhitastilla á (slandi sýnir að þeir eru í senn nákvæmir og öruggir. Æ fleiri gera nú sömu kröfurtil baðblöndun- artækja og velja hitastilltan búnað frá DANFOSS. Með DANFOSS næst kjörhiti á heimilinu Þú stillir þægilegasta hitann í hverju herbergi og DANFOSS varðveitir hann ná- kvaemlega, hvernig sem viðrar. Og í baðinu ertu alitaf víss um réttan vatnshita. Það er ekki síst öryggi fyrir þá eldri. Aukin uellíðan, lœgri orkukostnaður. HÖRPUDEILDIN LEIKUR Á ALS 0DDI má/i HÖRPU MÚRAKRÝL er terpentínuþynnt akrýlmálning, ætluð fyrir múr og steinsteypta fleti utanhúss. MÚRAKRÝL er öndunarvirk og alkaiíþolin, hefur frábæra viðloðun, bindur mjög vel duftsmitandi fleti og hleypir raka auðveldlega út í gegnum sig. Sterkur leikur í vörn og sókn. HARPA lífinu lit. 3 g 3 < ÞEGAR Á HEILDINA ER LITIÐ ÞARF EKKI AÐ SPYRJA AÐ LEIKSL0KUM íis'bihiKi/ 3srt) íj tjit,L>r*tlIfi i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.