Morgunblaðið - 21.08.1990, Síða 18

Morgunblaðið - 21.08.1990, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990 Bráðabirgðalög' og þjóðarsátt eftir Ögmund Jónasson Það er alvarlegt mál þegar gengið er á gerða samninga að ekki sé á það minnst þegar þeir eru hreinlega numdir úr gildi með lögum. Það er alvarlegt fyrir samtök launafólks, stjórnmálamenn og siðferði í samn- ingum þegar slíkt gerist. Þetta er slíkt alvörumál að öllum sem á ein- hvern hátt tengjast því beint eða óbeint ber skylda til að gaumgæfa það á gagnrýninn hátt. Á undanfömum árum og áratug- um hafa íslensk stjómvöld oftsinnis ógilt eða skert kjarasamninga. Stundum hefur lagasetningu verið beitt á einstök stéttarfélög en iðulega hefur slíkum ráðstöfunum verið stefnt gegn launafólki í heild. Eftir að lög voru sett á alla kjarasamninga í byrjun sumars árið 1988 voru menn samdóma um að nóg væri komið af þessari óhæfu og vom uppi heit- strengingar á meðal launafólks að taka höndum saman um að koma í veg fyrir að slíkt endurtæki sig. Að öðrum kosti væri fijálsum samnings- rétti í voða stefnt og þar með leik' reglum réttarríkisins. En hvar em þá útifundirnir og hið samstillta átak nú þegar kjarasamn- ingar BHMR em numdir á brott með lagaboði? Hvar er samstaðan — hvers vegna taka menn ekki höndum sam- - an gegn lagasetningu sem öllum ber saman um að sé slæm? Staðreyndin er sú að þótt ríkisstjórnin hafi staðið forkastanlega að málum og sæti réttilega ámæli fyrir sinn hlut þá verður ekki fram hjá því horft að víðar er pottur brotinn. Það er ekki að ástæðulausu að brigslyrði og ásakanir ganga nú á víxl milli launa- mannahreyfinga, því rætur vandans liggja einnig þeim megin samninga- borðsins. Þetta verðum við að viður- kenna og horfast í augu við ef okkur á annað borð er alvara að færa málin til betri vegar og koma á þeirri sjálfsögðu skipan að kjarasamningar séu viðurkenndir og virtir — ekki stundum, heldur ætíð og ævinlega. • Sú staða sem nú er uppi verður mönnum því aðeins skiljanleg að þeir skoði þá kjarasamninga sem gerðir hafa verið á síðustu misserum, markmið þeirra og innihald. Samtök launafólks kveðast flest hver vilja beita sér fyrir breyttri tekjuskiptingu í landinu launafólki í hag. Þetta ætti að vera öllu launa- fólki sameiginlegt hagsmunamál og svo er að sjálfsögðu einnig í raun. Nýlegar upplýsingar um hagnað í heimi fjármagns- og stórfyrirtækja og tekjur þeirra sem þar fara með völdin hafa enn á ný fært okkur heim sanninn um að sameiginlegum tekjum þjóðarinnar er ranglátlega skipt. Þegar þessi gjá er skoðuð bliknar allt annað í samanburði. Engu að síður er fólk ekki reiðubúið að horfa framhjá því að einnig á meðal almenns launafólks er umtals- verður kjaramunur. Og vissulega skiptir það máli hvort menn hafa fimmtíu þúsund krónur í dagvinnu- laun eða eitt hundrað þúsund krón- ur. Innan samtaka launafólks og þeirra í milli er iðulega tekist á um þennan mun og vill þá gjarnan hver hyggja að sínu. Svo rammt kveður að þessu að oft eru þeir fyrirvarar settir inn í kjarasamninga að hækki aðrir hópar umfram viðkomandi þá skuli hann eiga rétt á sömu hækkun. Vill þá hver hafa vaðið fyrir neðan sig. Þetta hefur ákveðna og auðsæja ókosti í för með sér. Þegar til lengri tíma er litið torveldar þetta t.d. að koma á ýmsum tilfæringum og leiðréttingum í launakerfinu sem hlýtur að vera nauðsynlegt í þjóðfélagi sem sífellt tekur breytingum. Kjarabætur ekki sóttar með viðhengistryggingum En það er ekki nóg með að menn noti viðmiðunar- eða viðhengistrygg- ingar af þessu tagi til að tryggja eigin stöðu innan kauptaxtakerfisins. Margir hafa talið sjálfum sér trú um að með þessu móti megi sækja kjara- bætur fyrir launafólk almennt. Rök- semdafærslan gengur þá út á að bindi sig hver við annan — þá sjái víxlverkunarákvæðin til þess að ágengir hópar og baráttusinnaðir þoki öllum upp á við. Staðreyndin er allt önnur. Þegar litlir hópar ná ekki fram annarri tryggingu en við- miðun við næsta hóp þá flýtur allur mannskapurinn í lausu lofti og er látinn steypast niður í kaupmætti, oft í tugum prósenta talið annað- hvort með gengisbreytingum eða öðrum leiðum ef stjórnvöldum býður svo við að horfa. Með viðhengis- tryggingum treystum við ekki kaup- máttinn heldur tökumst við fyrst og fremst á um það hvar einstakir hóp- ar skuli standa í launastiganum. Út á þetta gengu samningar BHMR og ríkisstjórnarinnar vorið 1989, að leiðrétta stöðu háskóla- manna innan ríkiskerfisins gagnvart launamönnum með sömu menntun á hinum almenna vinnumarkaði, auk þess sem þáttum á borð við peninga- lega og stjómunarlega ábyrgð skyldi gefið aukið vægi. Þetta skyldi gert á grundvelli samanburðarfræða, en á meðan sú vinna væri unnin og komið í framkvæmd skyldu félags- menn í BHMR eiga kröfu á öllum þeim hækkunum sem samið væri um í almennum kjarasamningum. Skyldi þetta svo fram ganga næstu fimm árin. Með öðrum orðum, félagsmenn í BHMR áttu kröfu á að fá allar þær IVIII TOLVUUTSALA TVm TÖLVUSALAN H.F. GEFUR ALLT AÐ 30% AFSLÁTT AF TÖLVUM OG TÖLVUBÚNAÐI TIL MÁNAÐARMÓTA ÁGÚST/SEPTEMBER. í tilefni þess að TVM, sem er stórfyrirtæki í framleiðslu á hágæða tölvuskjám, hefur gert Tölvusöluna að umboðsaðila sínum á íslandi, þá munum við gefa mikinn afslátt af öllum tölvuskjám, tölvum og tölvubúnaði út ágúst eða á meðan birgðir endast. PC MAGAZINE, eitt virtasta tölvublað heims, valdi VGA skjá frá TVM sem besta valkost ("Editors Choise") af öllum þeim skjám sem þeir höfðu prófað. Nú býðst þér einstakt tækifæri til að kaupa hágæða litaskjá sem býður upp á Ijósmyndagæði, þ.e. mun meiri myndgæði en venjulegir VGA litaskjáir (upplausn 1024 x 768 í stað 640 x 480) á lægra verði en venjulegir VGA skjáir. Einnig bjóðum við mjög öflugar 386 tölvur (ekki SX) bæði 25MHz og 33MHz með 85MB og 150MB diskum. Tölvurnar eru með bæði 3.5" og 5.25" disklingadrifum og með 16 bita 512KB skjákorti. Fast Verð Tilboð Afsl. -SuperSync 3A hágæða litaskjár 65.000 48.850 30% -Prisma VGART 1024 skjákort 16 bita með 512KB minni 21.900 15.330 30% -JAFUCO-INTEL 386 25MHz 85MB diskur SuperSync 3A, 2MB minni 365.000 273.750 25% -JAFUCO-INTEL 386 33MHz 150MB diskur SuperSyrtc 3A, 4MB minni 565.000 423.750 25% -JAFUCO-INTEL 286 12MHz 30MB diskur Einlitaskjár 640KB minni 172.000 120.000 30% -EX-88 PC/XT 12MHz 360KB drif 70.000 48.500 30% Allt að 30% afsláttur gefinn á aukahlutum til ágúst loka. Afsláttarverð miðast við staðgreiðslu. Opið næstkomandi laugardag frá kl. 10-16. Tölvusalaixi hf Suðurlandsbraul 20 108 Reykjavík Sími 91-83777 ft i n í íS&lftfflliQfr Hiiti launahækkanir og kjarabætur sem BSRB semdi um í hálfan áratug auk sérstakra hækkana sér til handa. Þegar talsmenn BHMR segja að hvorki ASÍ né BSRB éigi að semja fyrir þeirra hönd, þá er það nú einu sinni byggt inn í þeirra eigin samn- inga að svo skuli vera. Én spuming- in snerist ekki um það eitt að fá allt sem aðrir fengju heldur ívið meira. Þannig mætti snúa dæminu við og segja að samið hafi verið um það fyrir hönd BSRB að með skipulegri umsköpun launakerfisins skyldum við dragast aftur úr félagsmönnum BHMR. Þetta er vert að hafa í huga nú þegar spurt er um samstöðu. Þar sem ríkisvaldið hafði fallist á kröfu BHMR um að jöfnuð yrðu kjör félagsmanna samtakanna við það sem tíðkast í sambærilegum störfum annars staðar í þjóðfélaginu hefði verið rökrétt að finna viðmiðunar- bindingu á meðal háskólamanna í einkageiranum en ekki í okkar launa- kerfi eins og gert var. Með því móti var einfaldlega byggður inn í launa- kerfí ríkis og sveitarfélaga aukinn launamunur háskólamenntuðu fólki í hag. Þetta gagnrýndum við á af- dráttarlausan hátt þegar eftir gerð BHMR-samningsins í fyrrasumar. Innan BSRB eru einnig stórir hóp- ar sem krafist hafa leiðréttingar sinna kjara og eru kröfur um þetta settar fram á ýmsum forsendum. Jafnframt er þó ljóst að kauptaxtar hjá ríki og bæ eru almennt alltof lágir. Það er einnig staðreynd að þegar kreppa tók að árið 1988 eftir skammvinnt góðæri, þá rýrnaði kaupmáttur jafnt og þétt. Ekki bætti úr skák þegar stefndi að því í vetrar- byrjun í fyrra að kaupmátturinn héldi áfram að hrynja. Það er að segja ef ekkert yrði að gert. Það var af þess- um ástæðum sem ákveðið var að gera það að forgangsverkefni að stöðva kaupmáttarhrunið með samn- ingum, fresta leiðréttingum um sinn — sameinast þess í stað um að ná fram kaupmáttartryggingu og síðar kaupmáttaraukningu fyrir taxta- kerfið i heild sinni. Kaupmáttarhrunið stöðvað Ljóst er að þetta mun ganga eft- ir. Kaupmáttarhrunið hefur þegar verið stöðvað en eins og vikið verður að síðar mun árangurinn í framhald- inu ráðast af því hve launafólki auðn- ast að standa saman um að þrýsta á breytingar sem færa raunverulegar kjarabætur til allra — ekki aðeins í nokkra daga eða vikur heldur til frambúðar. Fólk telur sig hafa lært af biturri reynslu að kjarasamningar á vegum heildarsamtaka sem ekki hafa að geyma haldgóðar tryggingar séu ekki til eftirbreytni. Þetta á vissulega við um okkur félaga í BSRB. Eitt nöturlegasta dæmi þessa er gengis- íi i GRILL - BAKSTURS ÖRBYLGJUOFN ÞREFALT- NOTAGILDI: 1) GRILL-STILLIING 900 wöti 2) BLÁSTURS-STILLING (BAKSTUR) 1100 wölt 3) ÖRBYLGJUSTILLING 600 wölt 60 MÍNÚTRA KLUKKA. EINFALDUR (X'. TVEGGJA HÆÐA SNÚNINGSDISKUR. 16.5 LÍTRA. ÍSLENSKUR LEIBARVÍSIR, MATREIDSLUNÁMSKF.II) INNIFAUÐ SUM ARTCLBOiJ KR. 29.950 stgr. RÉTT VERÐ KR. 34.750 slgr. SD Aíborgunarskilmálar [£] VÖNDUÐ VERSLUN Ögmundur Jónasson „Staðreyndin er nefni- lega sú að nú er lag til að vinna markvisst að því að bæta kaupið.“ fellingin sem gerð var strax eftir langvinnt verkfall BSRB árið 1984. Þar var endi bundinn á margra vikna verkfall án þess að kaupmáttartrygg- ing væri knúin fram og því fór sem fór. Með þessu móti tóku stjórnvöld kauphækkun til baka þegar eftir að samningum og verkfalli var lokið. Verkfallið 1984 færði launafólki að sönnu margvíslega og mikilvæga ávinninga en það breytir þó ekki því að með stjómvaldsaðgerð var í raun- inni framkvæmd kauplækkun þótt ekki væri formlega gengið á samn- inga eins og nú hefur verið gert. í fyrra var gengi krónunnar fellt um 30 prósent og á árinu öllu féll kaupmáttur um 10 prósent að meðal- tali. Viðhengistryggingar BHMR eða annarra einstakra hópa breyttu þar að sjálfsögðu engu um. Þegar svo var komið, hlutu samtök launafólks að spyma við fótum: stöðva þessa óheillaþróun og snúa undanhaldi í sókn. Það gat ekki gerst öðruvísi en með víðtækri samstöðu launamanna. Það var varla að undra að atvinnu- rekendur væm reiðubúnir fyrir sitt leyti að stuðla að lækkun verðbólgu og stöðugleika í þjóðfélagi þar sem hundruð fyrirtækja hafa rambað á barmi gjaldþrots. Það sem hins vegar er nýtt er vilji almennings til að reyna nýjar leiðir. Á þeim vilja vom kjara- samningarnir sem kenndir hafa verið við þjóðarsátt byggðir. í álitsgerð Félagsdóms sem fylgdi dómnum í máli BHMR og ríkisins er staðhæft að fyrst hafi verið gerð- ir kjarasamningar á hinum almenna markaði en opinberi geirinn undir merkjum BSRB hafi fylgt í kjölfarið. Þetta er ekki aðeins rangt heldur byggist þetta á gmndvallarmisskiln- ingi um eðli samninganna. Kjara- samningar BSRB og ASÍ voru gerð- ir samhliða og undirritaðir með fárra klukkustunda millibili. Áður en að þessu kom höfðu farið fram ítarlegar viðræður á milli Bandalags starfs- manna ríkis og bæja og Alþýðusam- bandsins um möguleika á því að sam- einast um þau meginmarkmið að stöðva kaupmáttarhrunið jafnframt því sem staða yrði sköpuð til að bæta kaupmátt taxtalauna. Samn- ingsgerðin var fyrst og fremst tækni- leg útfærsla á þessum meginmark- miðum. Samstaða stærstu heildarsamtaka Ljóst var að því aðeins væri þetta gerlegt að allir væru með — að launa- mannahreyfingin í heild sinni sam- einaðist um þessi markmið. Þetta var mönnum ljóst hvort sem þeir voru í NÝTT BLAÐAAFGRBÐSL- iiiimi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.