Morgunblaðið - 21.08.1990, Side 19

Morgunblaðið - 21.08.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990 19 BSRB eða ASÍ. Þetta hefði ríkis- stjórninni að sjálfsögðu átt að vera ljóst einnig og hefja þegar í stað við- ræður við BHMR um þátttöku í þess- ari tilraun. Þrátt fyrir þá samstöðu sem mynd- aðist milli stærstu heildarsamtaka landsins vildu margir hafa vaðið fyr- ir neðan sig. Þar er án efa komin skýringin á því að Alþýðusambandið gerði það að forsendu í sínum samn- ingum að launaþróunin yrði hin sama hjá öllum hópum launafólks. Mun þetta hafa verið metið sem svo að samningárnir yrðu ekki samþykktir að öðrum kosti. BSRB setti hins veg- ar ekki ákvæði af þessu tagi inn í sína samninga. Vildu samtökin þann- ig leggja áherslu á það grundvallar- viðhorf að samstöðu ætti að byggja á fijálsum og fúsum vilja og gagn- kvæmri tillitssemi. En þá þarf líka að sýna hana þegar hagsmunir innan launamannahreyfingarinnar rekast á eins og nú hefur komið á daginn. Þar sem félagsmönnum í BHMR bar samkvæmt samningi og úrskurði Félagsdóms almenn launahækkun upp á 4,5% umfram aðra óskaði ríkis- stjórnin eftir viðræðum við fulltrúa BSRB um það hvernig samtökin myndu bregðast við slíkri hækkun. Við sem þátt tókum í þeim viðræðum bentum á að samningsbundinn rétt til endurskoðunar á kaupgjaldsá- kvæðum ætti BSRB ekki fyrr en í nóvember að undanskildum þeim hækkunum sem rauð strik í septem- bermánuði kynnu að færa okkur. Myndum við að sjálfsögðu standa við okkar samninga að þessu leyti og þannig ekki standa í vegi fyrir iauna- hækkunum til annarra. Þetta er grundvallaratriði. Við bentum þó jafnframt á að við teldum okkur eiga rétt á kjarabótum til jafns við aðra sem notið hefðu góðs af kauphækkunum og öðrum kjarabótum sem við hefðum samið um. Þegar til lengri tíma væri litið þá væri það því að okkar mati ekki ásættanlegt að ein samtök opinberra starfsmanna, þ.e. BHMR, högnuðust af ávinningum annarra samtaka, þ.e. BSRB, án þess að það væri gagn- kvæmt. Ef almenn launahækkun gengi síðan yfír allan launamarkað- inn eins og allt benti til þá væri eðli- legt að launanefnd BSRB og ríkis- ins, sem sett var á fót í tengslum við kjarasamningana til að taka á verðlags- og kaupgjaldsmálum, end- urskoðaði ákvæði um launahækkanir til félagsmanna í BSRB. í rauninni hefði annað verið óframkvæmanlegt því forsendur kjarasamninga BSRB hefðu brostið ef almennar víxihækk- anir hefðu orðið á launamarkaðnum. Óhjákvæmilegt að leysa hnútinn Dæmið var eins augljóst og verða mátti. BHMR fengi 4,5% launahækk- un. Vinnuveitendasambandið hefði látið samsvarandi hækkun ganga til ASÍ samkvæmt samningi þessara aðila. BHMR hefði þá að nýju nýtt sér víxlverkunarákvæði eigin samn- inga til 4,5% hækkunar og síðan koll af kolli. Þetta staðfestu forystu- menn BHMR að yrði framvindan. Sá hængur var á að þessar hækkan- ir voru ekki kaupmáttartryggðar. Fjölmiðlum láðist mörgum hveijum að geta þess að I tilboði Vinnuveit- endasambandsins til Alþýðusam- bandsins var jafnframt krafa um að allar fotsendur samninganna yrðu teknar upp eða allt það sem varðar verðlagsmál og gengi eins og sagði orðrétt í tilboði atvinnurekenda. Þá var ljóst að losna myndi um skuld- bindingar bænda og stjórnvalda um frystingu á verðlagi innlendrar land- búnaðarvöru. Hér við bættist sú krafa BSRB að ekki yrði hvikað frá þeim kaupmáttartryggingum sem fólust í kjarasamningunum. Þetta er sá hnútur sem þurfti að leysa. Framhjá þessu verður ekki horft þegar þessi mál eru skoðuð. Það er deginum ljósara að hér þurfti einhver að hliðra til, slá af sínum kröfum eða fresta framkvæmd um sinn. Þessa ósk og síðar kröfu setti BSRB á hendur ríkisstjóminni og BHMR svo forða mætti mönnum frá því sem utanríkisráðherra hefur líkt við umferðarslys og má til sanns vegar færa að því leyti að slys geta verið alvarleg auk þess sem þau geta skilið eftir djúp sár. En þetta slys var hægt að forð- ast. Til þess þurfti tvennt, ríkisstjóm sem skildi að samninga ber að virða en þurfí að breyta þeim skuli þess freistað í tíma að ná um það sam- komulagi, en ekki eins og gerðist, með einhliða ákvörðun rétt áður en 4,5% áttu að koma til útborgunar. Með slíku framferði var engu líkara en verið væri að loka á sáttaleið. í annan stað hefði BHMR að mínu mati mátt skoða samningsrétt sinn í ljósi hagsmuna og vilja annars launafólks. Þegar grundvallaratriði koma til álita í samskiptum félaga- samtaka sem ættu að eiga samleið, þá kann meirihlutavilji að vera gildi, ekki síður en samningsréttur, sem við viljum í heiðri hafa. Einmitt þetta ákváðu fjölmennir hópar innan BSRB og ASI að gera — að fresta um sinn sérhagsmunamálum og láta þau víkja fyrir heildarhagsmunum. Það er ekki þar með sagt að hópar eigi aldrei að beijast fyrir sérhagsmun- um, því síður að hvika frá þeirri kröfu að samningsréttur sé virtur. En stað- festa í þessu efni má ekki leiða til óbilgirni. Einmitt vegna þess að við viljum veija samningsréttinn er ljóst að þegar upp kemur ágreiningur og gagnstæðir hagsmunir innan okkar raða gengur ekki að_ stinga höfðinu í sandinn. Þá þurfum við að viður- kenna vandann og leysa hann með samkomulagi. Forræðishyggjumönnum hefur gengið erfiðlega að skilja hvers vegna kjarasamningarnir í vetur nutu svo mikils stuðnings sem raun bar vitni. Helstu skýringar sem þeir kunna er að benda á fortöluhæfileika forystumanna atvinnurekenda og samningsvilja forystumanna í verka- lýðshreyfingunni. Hér gleymist að kjarasamningarnir nutu stuðnings yfirgnæfandi meirihluta launafólks og er þeim sem nú tala um klofning og bálin björt innan verkalýðshreyf- ingarinnar hollt að hafa í huga að í áratugi hefur ekki verið eins mikil samstaða um markmið á meðal íslenskra launamanna og einmitt nú. Þorri íslensku þjóðarinnar stóð að samningunum í vetur. Meiri kaupmátt Ég hygg að ástæður þessa séu margar'. Því fer fjarri að sú skýring ein dugi að menn hafi óttast frekari kjaraskerðingu og atvinnuleysi þótt þetta hafi vissulega ráðið miklu. Hitt vegur þyngra að fólk er búið að fá yfir sig nóg af því að hlaupa hring- inn í kringum sjálft sig án Jiess að nái raunverulegum árangri. Á meðan tekjumunur hefur aukist á Islandi, okrið viðgengist, stórfyrirtæki og íjármagnsfyrirtæki blómstrað sem aldrei fyrr er almennt launafólk jafn- vel ijær því en áður að dagvinnan dugi því til framfæris. Kjarasamningarnir í vetur sem leið eru krafa um breytingar. Þeir eru ólíkir öðrum samningum að því leyti að þeir eru krafa um byijun en ekki endi. Fæstir þeirra sem sam- þykktu samningana voru ánægðir með kjör sín hvað þá að þeir teldu að eigin laun væru orsök verðbólg- unnar eins og sumir eru að brigsla okkur um að hafa haldið. Mönnum er hins vegar ljóst að það þarf að taka á mörgum þáttum til þess að ná raunverulegum árangri. Nú dugar ekki lengur að einblína á tekjurnar einar heldur þarf að fara í saumana á útgjöldum heimilanna og þjóðar- innar ailrar ef því er að skipta. Það þarf að koma í veg fyrir sóun og sólundun hvort sem hún er í einka- geira eða í skjóli opinberra aðila. Launafólk er búið að fá sig full- satt á því að semja um laun sem ekki verður lifað af á meðan aðrir taka sér milljónir á mánuði. Fólk er búið að fá nóg af því að horfa á stjórnvöld reiða fram milljarða til kvótaþega og milljónir á milljónir ofan tii aðalverktaka þessa lands. Á þessu viljum við breytingar, ekki bara upp á fáein prósent sem hirt verða af okkur án þess að við fáum rönd við reist. Nú stendur krafan hærra. Þess vegna voru menn tilbún- ir að leggja á hiliuna um sinn inn- byrðis ágreining. Nú vilja menn árangur. Margir hafa löngum sameinast um þá fullyrðingu að hér á landi væri ekki hægt að auka kaupmátt til frambúðar nema verðbólgunni yrði náð niður fyrst. Það hefur tekist og nú er sú krafa gerð að unnið verði að því að auka kaupmáttinn, bæta lífskjör alls launafólks. Þá mega menn ekki vera hræddir við að styggja fámenna sveit bankastjóra með því að ná niður ijármagnskostn- aði, þá mega menn ekki vera hrædd- ir við að stokka upp hvort sem er í landbúnaði eða sjávarútvegi, eða hagga samanþjöppuðu valdi stórfyr- irtækjanna. Staðreyndin er nefnilega sú að nú er lag ‘til að vinna_ mark- visst að því að bæta kaupið. í fyrsta lagi er hægt að lækka .tilkostnað heimilanna og þannig bæta kaup- máttinn án þess að verðbólga sé til staðar. I öðru lagi þarf að færa til launafólks milljarða sem eignahluti þjóðarinnar nýtur góðs af á meðan öðrum eru búin bág launakjör með margföldum vinnudegi. Þessu þarf að breyta og nýta til þess skatta-, velferðar- og launakerfið. Því miður virðist hugmyndaauðgi atvinnurekenda og stjórnmálamanna vera takmörk sett þegar kemur að þessu grundvaliaratriði. Þess vegna þarf samstillt átak launafólks til þess að eitthvað gerist í raun. Því öflugra sem þetta átak verður því meiri ástæða til bjartsýni fyrir okkur öll. Höfundur er formnður BSRB. Hagstætt tengiflug til Hamborgar M/jzr Laugavegi 3, sími 62 22 11 Úlpur Rúllukragabolír Buxur Skór frá kr. 3, frá kr. frá kr. 2.495 frá kr. 1.995 3 'gj siýy ir* ^

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.