Morgunblaðið - 21.08.1990, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990
STRIÐSASTAND VIÐ PERSAFLOA
Á annað hundrað
útlendingar flutt-
ir á leynilega staði
Nikósíu. Reuter.
ÍRAKAR hafa nú flutt á annað
hundrað vestræna borgara á
leynilega staði. Þeir segjast ætla
að sleppa þegnum fímm vinveittra
ríkja úr landi en ekki hefur komið
til þess enn þá.
Talið er að um 13.000 Vestur-
landabúar séu nú í Irak og Kúvæt.
Vitað er að 185 Bandaríkjamenn,
Bretar og Frakkar hafa verið fluttir
á ókunna dvalarstaði- í framhaldi af
tilkynningu íraka um að borgarar
fjandsamlegra ríkja yrðu fluttir á
hernaðarlega mikilvæga staði.
Starfsmaður frönsku sjónvarpsstöðv-
arinnar TFl í Bagdad sagðist hafa
heyrt að Bandaríkjamönnunum væri
haldið í hjólhýsum umhverfis ra-
forkuver í nágrenni höfuðborgarinn-
ar.
Frönsk stjórnvöld segja að 27
Frakkar hafi verið fluttir á brott á
leynilegan stað síðastliðinn fimmtu-
dag. Frakki sem ekki var í þeim
hópi hringdi á sunnudag í eiginkonu
sína, Elsu Quenton, og sagði að ver-
ið væri að flytja sig til Basra í suður-
hluta íraks og hann óttaðist að hann
myndi ekki sjá hana aftur. Konan
sagði eftir samtalið að hún teldi að
manni sínum hefði verið leyft að
hringja til þess að setja fjölskyldur
gíslanna undir sálrænan þrýsting.
Bandarísk og bresk yfirvöld hafa
vísað á bug boði íraka um að gíslun-
um verði sleppt ef herir þeirra yfir-
gæfu Persaflóasvæðið og viðskipta-
banni Sameinuðu þjóðanna yrði af-
létt.
írakar tilkynntu á sunnudag að
þeir ætluðu að hleypa einhveijum
þeirra Austurríkismanna, Svía,
Svisslendinga, Finna og Portúgala
sem eru í Kúvæt og írak úr landi.
Væri þétta gert vegna þess að ofan-
talin ríki hefðu ekki sent hermenn
til Persaflóa. Fleirum yrði sleppt ef
ríkisstjórnir landanna afléttu vip-
skiptabanni. Stjómvöld í Sviss og
Svíþjóð hafa neitað að aflétta bann-
inu.
Danska utanríkisráðuneytið hefur
mælt með því við þá hundrað Dani
sem eru í írak og Kúvæt að þeir
fylgi fyrirskipunum íraka um að
safnast saman á þremur hótelum í
Kúvætborg. Ýmis önnur ríki hafa
hins vegar ráðlagt þegnum sínum
að óhlýðnast skipuninni.
írakar hafa skipað erlendum
ríkjum að loka sendiráðum sínum í
Kúvætborg fyri.r föstudag. Vestræn
ríki segjast flest ekki ætla að hlýða
þeirri fyrirskipun.
Jórdanir hafa skorað á íraka að
hægja á flóttamannastraumnum úr
landinu til þess að auðveldara sé að
taka á móti fólkinu þegar það kemur
til Jórdaníu. Allt að 20.000 manns
hafa farið yfír landamærin á degi
hveijum að undanförnu og hefur
skapast mikið öngþveiti af þeim sök-
um. Talið er að um 20.000 Egyptar
bíði þess í höfninni í Aqaba við
Rauðahafíð að verða fluttir heimleið-
is.
**K+y*-*
á -1 ’ *; J t r ’\*&H
Reuter
Bandaríska freigátan Raid, sem búin er eldflaugum, á siglingu á Persaflóa. Freigátan er sögð hafa
skotið viðvörunarskotum að írösku olíuskipi á Hormuz-sundi sl. laugardag.
Hernaðarviðbúnaðurinn
eykst stöðugt við Persaflóa
Salalah í Óman, Nikosíu. Reuter.
Hernaðarstuðningur Bandaríkjamanna við vinveitt ríki á Arabíu-
skaga eykst sifellt. Tilkynnt var í gær að sextán flutningavélar banda-
ríska flughersins fengju aðgang að flugvöllum í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum og að Bandaríkjamenn myndu selja Saudi-Aröbum
fleiri orrustuþotur. Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum
heimuluðu á sunnudag erlendum hersveitum að koma til landsins.
Fjölþjóðlegu hersveitirnar við Persaflóa eru nú skipaðar meira en
300.000 hermönnum og er þetta einn mesti hernaðarviðbúnaður frá
því heimsstyijöldinni síðari lauk.
18. DAGUR STRIÐSASTANDS VIÐ PERSAFLOA
Mánudagur 20. ágúst: Sunnudagur 19. ágúst:
írakarskipa útlendum 40_Bretar fluttir
ertndrekum ab loka til óþekktra
ákvörðunarstaða
sendiráðum
TYRKLAND
" JSRAEL-
Bandarískir embættismenn, sem
eru með Dick Cheney, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, á fjögurra
daga ferð hans til Persaflóaríkja,
sögðu að Bandaríkjastjórn hygðist
selja Saudi-Aröbum fleiri F-15 orr-
ustuþotur. Ekki var vitað í gær
hversu margar þotur Saudi-Arabar
fengju en þeir eiga nú þegar 58
F-15 orrustuþotur og fá tólf til við-
bótar afhentar bráðlega. Cheney
ræðir í dag við stjórnvöld í Saudi-
Arabíu.
Bandaríkjamenn hafa þegar fímm
risastórar herflutningavélar af gerð-
inni C-130 á Bateen-flugvelli í Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum og
þangað verða sendar ellefu til viðbót-
ar. Þær eiga að flytja matvæli, vopn
og fleira til um 90.000 bandarískra
hermanna á Persaflóasvæðinu.
Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum tilkynntu á sunnu-
dag að hersveitum frá arabalöndum
og öðrum vinveittum ríkjum yrði
heimilað að koma til landsins. Ekki
er vitað hvaða arabaríki sendi her-
sveitir þangað. Stjórnvöld landsins
höfðu eins og Kúvætar sætt harðri
gagnrýni íraka fyrir að stuðla að
lágu olíuverði með offramleiðslu.
Um 5.000 hermenn frá Egypta-
landi og um 2.200 frá Sýrlandi og
Marokkó hafa verið sendir til Saudi-
Arabíu. Bretar hafa sent tíu herskip
og 24 orrustuþotur til Persaflóa og
hafa hafíð samningaviðræður við
stjómvöld í Bahrain um aðgang að
flugvöllum í landinu.
Meira en 300.000 erlendir her-
menn eru nú á Persaflóasvæðinu og
um 60.000 til viðbótar eru á leiðinni
Laugardagur 19. ágúst:
Bandarískt herliö,-
tekur sér stööu
Sunnudagur
19. ágúst:
Tveir banda-
rískir tundur-
spillar fara inn
á Rauöahaf
REUTER
|
Laugard.
18. ágúst:
Bandaríska herskipfö
Reid skýtur viövörunar-
skotum aö tveimur
iröskum olíuskipum
Mikil reiði í Sýrlandi í garð Iraka:
Spjótín standa á Saddam og
óvíst hvernig hann bregst við
Damaskus. Frá Jóhönnu Kristjónsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
ÞAÐ er á vitorði manna hér í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, að
þeir fjendurnir Hafez Assad Sýrlandsforseti og Saddam Hussein íraks-
forseti hafa haft samband eftir óopinberum leiðum til að ráðgast um
hvað gera skuli í Persaflóadeilunni. A hinn bóginn er greinilegt að
Sýrlendingar hyggjast ekki gera neitt það sem orðið gæti Saddam til
bjargar enda gætir hér djúpstæðrar reiði í garð íraka.
„Vitaskuld verðum við að finna
leið til lausnar þessari deilu en hún
á ekki að verða til þess að bjarga
Saddam úr þeirri klemmu sem hann
hefur komið sér í,“ sagði Zahar
Jannan, ráðuneytisstjóri í sýrlenska
upplýsingaráðuneytinu, í samtali við
Morgunblaðið. „Saddam hefur
greinilega villst á leiðinni til Pal-
estínu, hafí hann haldið sig vera að
fara þangað. Frelsari Palestínu fer
nefnilega ekki um Kúvæt,“ bætti
hann við.
í sýrlenska utanríkisráðuneytinu
sögðust menn vona að hófsamir
arabaleiðtogar svo sem Hassan Ma-
rokkókonungur og jafnvel Muammar
Gaddafí Líbýuleiðtogi gætu talið
Saddam Hussein ofan af því að grípa
til efnavopna. „Við viljum leysa deil-
una með samningaviðræðum en nú
hefur Saddam verið stillt upp við
vegg og það er aldrei að vita hvem-
ig hann bregst við í þeirri stöðu,“
sagði háttsettur embættismaður í
sýrienska utanríkisráðuneytinu.
Hann kvaðst ekki hafa heyrt um
væntanlega sameiningu Jórdaníu og
Iraks, sem jórdanskir heimildarmenn
boðuðu í síðustu viku en bætti við
að því fáránlegri sem fréttir af hug-
myndum Saddams Husseins væru
því líklegri væru þær til að verða
að veruleika. Aðspurður um viðbrögð
Sýrlendinga sagði hann: „Sýrlands-
forseti mun bregðast við eins og
honum einum er lagið.“ Hann bætti
við að ekki þyrfti að útskýra þetta
nánar fyrir þeim er þekktu vitsmuni
Assads forseta.
Það er ekki ný bóla að Saddam
Hussein sé í litlum metum hér í
Sýrlandi og reiðin í garð hans er
djúpstæð. „Hann er sjálfur djöfullinn
í mannsmynd," sagði Rasheed, kaff-
ishúsastjóri á Gamla markaði hér í
Damaskus, er hann var inntur álits
á sunnudagskvöld. Sýrlenskir emb-
ættismenn halda því fram að óvænt
sáttagjörð Iraka og Irana í Persaf-
lóastríðinu stofni á engan hátt sam-
bandi írana og Sýrlendinga í tvísýnu.
Kveðast þeir raunar hafa fengið
tryggingu fyrir þessu frá Hashemi
Rafsanjani Iraiisforseta. Þrátt fyrir
þetta má heita líklegt að sýrlensk
stjómvöld séu mjög óróleg vegna
friðarsamnings írana og Iraka og
greinilegt er að það traust sem emb-
ættismenn segjast hafa á Rafsanjani
er ekki öldungis í samræmi við það
sem almenningur fullyrðir. Fyrr-
nefndur Rasheed var a.m.k. fullur
efasemda: „Ég má ekki segja það
en guð veit að íranir eru jafnvel
svikulli en Saddam."
þangað. Bijótist út stríð yrði hægt
að tvöfalda liðsaflann á stuttum
tíma. Að minnsta kosti 1.200 orr-
ustuþotur eru á svæðinu og 120
herskip, þar á meðal fímm flugvéla-
móðurskip.
Efnavopn gegn kjarnavopnum
Talið er að um 170.000 íraskir
hermenn séu í Kúvæt. íraksher hef-
ur um milljón manna undir vopnum
og írösk stjórnvöld skýrðu frá því á
sunnudag að ein og hálf milljón
manna í Bagdad-borg einni hefði
skráð sig í sveitir sjálfboðaliða.
Breska tímaritið Jane’s Deferíce
Weekly skýrði frá því á laugardag
að írakar hefðu yfir að ráða um tíu
sovéskum sprengjuþotum af gerð-
inni Sukhoj Su-24, sem Atlantshafs-
bandalagið nefnir Fencer. Þoturnar
gætu gert árásir á skip og herstöðv-
ar hvar sem er á Persaflóasvæðinu
eða Mið-Austurlöndum og eru geys-
inákvæmar.
Tareq Aziz, utanríkisráðherra ír-
aks, sagði í viðtali við bandarísku
sjónvarpsstöðina CBS á laugardag
að írakar myndu ekki beita efna-
vopnum gegn Bandaríkjamönnum
nema þeir síðarnefndu beittu kjarn-
orkuvopnum. Vestur-þýska frétta-
tímaritið Spiegel skýrði frá því um
helgina að fyrrum valdhafar
Austur-Þýskalands hefðu aðstoðað
íraka við að framleiða efnavopn en
Rainer Eppelmann, varnarmálaráð-
herra A-Þjóðveija, vísaði fréttinni á
bug.
Viðskiptabannið:
íraskt skip slapp til Aqaba
Dubai, Amman. Reutcr.
ÍRASKT skip lagðist að bryggju í jórdönsku hafnarborginni Aqaba
við Rauðahaf á sunnudag, þrátt fyrir viðskiptabann Sameinuðu þjóð-
anna og flotaviðbúnað Vesturveldanna. Bandarísk herskip skutu á
íraskt oliuskip á laugardag en það stansaði ekki; Bandaríkjamenn
segjast fylgjast náið með ferðum skipsins.
Talið er að annað íraskt olíuskip
sé á leið til olíuhafnar Iraka við
Mina al-Bakr norðarlega við Persa-
flóa og muni e.t.v lesta þar olíu til
að láta reyna á viðskiptabannið.
Að sögn heimildarmanna hjá
skipaútgerðum hlíta skip, önnur en
írösk, viðskiptabanninu. Bandarísk
og bresk stjórnvöld hafa gefíð stjórn-
endum herskipa sinna leyfi til að
beita valdi til að tryggja að við-
skiptabannið gegn Irak verði ekki
brotið. Franska stjórpin segir sína
menn á Persaflóa munu koma fram
af,,fyllstu ákveðni."
Iraska fragtskipið í Aqaba, er
nefnist Zein al-Qaws, mun vera hlað-
ið ýmsum varningi, þ. á m. pappír,
til kaupenda í Jórdaníu og Irak.
Egypskir embættismenn sögðu skip-
ið hafa siglt um Súezskurð á föstu-
dag. Þeir hefðu talið að það flytti
matvæli og efnahagslegar refsiað-
gerðir SÞ tækju ekki til slíkra flutn-
inga.