Morgunblaðið - 21.08.1990, Side 23

Morgunblaðið - 21.08.1990, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990 23 Bretland: Kvikmyndin Alþjóð- legir skæmliðar leyfð Múslimar fagna ákvörðuninni St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari BANNINU á kvikmyndinni Al- þjóðlegir skæruliðar var aflétt sl. fóstudag, m.a. vegna áskor- ana rithöfundarins Salmans Rushdie sem myndin lýsir sem glæpamanni. Rushdie segir Ijáningarfrelsið öllu æðra. Tals- menn breskra múhameðstrúar- manna fögnuðu ákvörðuninni. Kvikmyndin Alþjóðlegir skæru- liðar, sem er flutt inn til Bretlands frá Pakistan, greinir frá skærulið- anum Salman Rushdie, sem drekk- ur sig í öngvit og myrðir múha- meðstrúarmenn og er á allan hátt hið versta illmenni. Breska kvik- myndaeftirlitið bannaði hana fyrir nokkru, en áfrýjunardómstóll ák- vað sl. föstudag að aflétta bann- inu. Rithöfundurinn Salman Rus- hdie ritaði áfrýjunardómstólnum bréf til stuðnings því, að heimilað yrði að sýna myndina. I bréfinu hvatti hann dómstólinn til að af- létta banninu, því að það gæti komið í veg fyrir, að hann næði sáttum við múhmameðstrúar- menn. Hann sagðist vera mótfall- inn því að nota hegningarlögin til að ritskoða listaverk og þótt kvik- myndin væri augljóslega níð um sig, sæi hann enga ástæðu til að gera undantekningu á andstöðu sinni við ritskoðun hennar vegna. Einn meðlimur dómstólsins sagði, að bréf Rushdies hefði ráð- ið úrslitum um ákvörðun dómstóls- ins._ Á næstu vikum verður mynd- böndum dreift með myndinni og sýning hafin á henni í nokkrum stórborgum Bretlands. Eftirspurn- in er mikil og talið er að eigendur sýningarréttarins hagnist veru- lega. Frímannssyni, fréttarilara Morgunblaðsins. Talsmenn breskra múhameðs- trúarmanna hafa fagnað þessari ákvörðun og sögðu það myndu hafa verið óþolandi, hefði bók Rushdies, Söngvar Satans, verið leyfð, en myndin bönnuð. En þeir sögðu, að stuðningur Rushdies við afléttingu bannsins myndi ekki þýða neinar sættir við múhameðs- trúarmenn. Andstaða þeirra við bók hans stæði óhögguð. Reuter Serbnesk kona í Króatíu greiðir atkvæði um aukið sjálfræði minni- hluta Serba í júgóslavneska sambandsríkinu. Atkvæðagreiðslan á sunnudag hefur aukið mjög á spennu í Kroatíu milli Serba og Kró- ata og er talin hætta á borgarastyijöld í Júgóslavíu. Júgóslavía: Mikill órói í Króatíu eft- ir atkvæðagreiðslu Serba Knin. Reuter. SERBAR í júgóslavneska lýðveldinu Króatíu ögruðu yfirvöldum með því að efna til atkvæðagreiðslu á sunnudag. Spennan milli Króata og Serba hefur magnast mjög og er landið nú á barmi borgarastyrj- aldar. Atkvæðagreiðsla hófst í bænum Knin nálægt Adríahafsströnd- inni eftir að vopnaðir Serbar höfðu sett upp vegatálma til að koma í veg fyrir að króatíska lögreglan reyndi að stöðva kosningarnar en ekki kom til neinna átaka. Atkvæðagreiðslan var haldin til að leggja áherslu á menningarleg réttindi serbneska minnihlutans í Króatíu. Serbar og Króatar hafa eldað saman grátt silfur í tvær aldir. Þeir hafa í sameiningu farið með völd í landinu en sú samvinna hefur versnað stöðugt síðan kommúnistar misstu völdin í Króatíu í maí sl. Talsmenn forsetaembættis Júgó- slavíu og hersins sögðu að reynt yrði að koma í veg fyrir borgara- styrjöld með öllum tiltækum, lög- legum ráðum. Serbar, vopnaðir rifflum og handsprengjum, settu upp vega- tálma með því að fella tré og stóðu Yfírlýsing George Blake: Kom uppum sex himdruð • / njosnara London. Reuter. BRESKI gagnnjósnarinn George Blake segist hafa skýrt Sovét- mönnum frá störfum 600 félaga sína er unnu fyrir bresku leyni- þjónustuna víða um heim. Honum tókst að flýja úr Wormwood Scrubs-fangelsinu í Bretlandi árið 1966 með ævintýralegum hætti, naut til þess stuðnings so- vésku öryggislögreglunnar, og hefur síðan búið í Sovétríkjunum. Blake lýsti þessu yfir í viðtali við blaðið Sunday Express. Áður var talið að Blake hefði skýrt _sovéskum húsbændum sínum í öryggislögregl- unni, KGB, frá 42 njósnara. Hann sagðist ekki iðrast þess að hafa svikið félaga sína og hélt því fram að Sovétmenn hefðu heitið því að enginn þeirra, sem hann kæmi upp um, yrði tekinn af lífi. „Enginn líflátinn? Það getur ekki verið að hann hafi trúað því. Þetta er ósvífni, þegar hugað er að því hvernig tímarnir voru,“ sagði Sir Dick White, fyrrum háttsettur yfirmaður í bresku leyniþjónustunni, MI-6. Hann tók þátt í að yfirheyra Blake er sviksemi hans varð ljós. KGB veitti Blake leyfi til að eiga viðtal við breska blaðið. Hann sagð- ist hafa borið örlitla ljósmyndavél stöðugt á sér í starfi sínu hjá MI-6 og myndað allt sem hann hafi kom- ist yfir. Hann er nú kvæntur so- véskri konu og á nítján ára gamlan son. Síðast sást hann á almanna- færi í Moskvu við útför Kims Phil- bys, annars bresks njósnara, er einnig starfaði fyrir Sovétmenn, en hann lést á síðasta ári. við þá vörð. Lögregluyfirvöld af- hentu Serbum í heimavarnaliði staðarins vopn og voru við því búin að til átaka kæmi. Króatar og Serbar eru tveir stærstu þjóðernishóparnir í Júgó- slavíu, tala nokkurn veginn sömu tungu en hinir fyrrnefndu eru ka- þólskir, voru lengi undir stjórn Austurríkismanna og nota latínulet- ur. Serbar hins vegar heyra til Rétt- trúnaðarkirkjunni, og nota kyrílskt letur og lutu öldum saman Tyrkjum. Serbar eru alls um átta milljónir. Leiðtogar Serba í Króatíu, sem eru 600.000 af 4,5 milljónum íbúa, krefjast meiri framlaga til mennt- unar auk tungumála- og menning- arréttinda en þeir hafa ekki lýst því yfir hvað þeir ætla að gera að atkvæðagreiðslunni lokinni. Margir þeirra sem tóku þátt í atkvæða- greiðslunni vissu ekki hvað þeir voru að greiða atkvæði um. Serbar segja að þeir hafi verið beittir órétti síðan hin hægrisinnaða lýðræðishreyfing Króata kom kommúnistum frá völdum í maí með því m.a. að höfða til þjóðernis- kenndar Króata. Serbar óttast end- urtekningu þess sem gerðist í síðari heimsstyijöldinni þegar hundruð þúsunda Serba, gyðinga og sígauna voru drepin af fasistahreyfingu Króata. Yfirvöld í Króatíu segja Serba ekki hafa neinar sannanir fyrir því að þeir hafi verið ofsóttir og ásaka kommúnistastjórnina í Serbíu, sem er stærsta lýðveldi landsins, um að reyna að koma á óstöðugleika í Króatíu með yfirráð í Júgóslavíu allri í huga. Kaupmannahöfn: Ellilífeyris- þegar stunda búðahnupl Kaupmannahöfn. Reuter. Ellilífeyrisþegar í höfuðborg Danmerkur virðast hafa fundið nýjan tilgang með Iífinu, lög- regluyfirvöldum til mikils ama. í tíu vikna herferð, sem gerð var nýlega gegn búðahnupli, var aldurs- hópur ellilífeyrisþega langfjölmenn- astur. Lögreglumenn gómuðu 106 manns eldri en 65 ára en til saman- burðar aðeins 81 á aldrinum 15 til 25 ára. „Það er skömm að því að afar og ömmur skuli vera meiri þjófar en barnabörn þeirra þegar þau ættu einmitt að vera góðar fyrirmyndir," sagði Willi Eliasen lögregluforingi. Pakistan: Sovéskir fangar gáf- ust upp eftir flugrán Karachi. Reuter. SOVÉSKRI 170 sæta farþegaþotu var rænt í innanlandsfiugi í fyrra- kvöld og snúið til Pakistans. Pakistönsk yfirvöld neituðu vélinni í fyrstu um lendingarleyfí en þegar flugmaður tilkynnti að nær ekkert eldsneyti væri eftir á vélinni var leyfið veitt og vélin lenti á flugvelli í höfupborginni Karachi. Vélin, sem er í eigu sovéska flug- félagsins Aeroflot, var á leið frá Nerijungri í Síberíu til annarrar borgar í Síberíu. Um borð voru 92 farþegar, þar af 15 fangar. Eftir að föngunum hafði tekist að yfirbuga þijá lögregluþjóna sem gættu þeirra létu þeir snúa vélinni aftur til Nerij- ungri og hleyptu 41 farþega, konum og börnum, úr vélinni og fengu vopn í staðinn. Þar gáfust sex fangar upp og yfirvöld leyfðu tveimur föngum til viðbótar að fara úr fangelsinu í vélina að kröfu flugræningjanna. Frá Nerijungri var flogið til Tas- hkent í sovésku Mið-Asíu og báru flugræningjarnir þar fram þær kröf- ur sínar um að komast til útlanda.. Þegar flogið var þaðan var ferðinni í fyrstu heitið til Nýju Delí á Indl- andi en indversk yfirvöld höfðu veitt leyfi fyrir lendingu vélarinnar. Fan- garnir sögðust vilja fara til Asíu- lands, helst Pakistans, en pakistönsk yfirvöld gáfu ekki lendingarleyfi. Til að koma í veg fyrir að vélin lenti í Karachi var ýmsum tiltækum farar- tækjum ekið út á flugbrautir. Það var ekki fyrr en flugmaður vélarinn- ar tilkynnti að eldsneyti dygði aðeins til nokkurra mínútna flugs og brot- lending væri óhjákvæmileg að lend- ingarleyfi var gefið. Vélin lenti klukkan 7.30 að íslenskum tíma á flugvellinum í Karachi. Mörg hundr- uð hermenn umkringdu vélina og flugvallarsvæðið og hleyptu engum inn á það. Flugræningjarnir hótuðu að skemma vélina og gera áhöfninni mein ef ekki yrði sett eldsneyti á vélina. Tveimur og hálfri klukku- stund eftir lendingu gáfust flugræn- ingjarnir upp og voru fluttir burtu. Farþegarnir voru allir heilir á húfi. Volvo 244 QL >87. Ljósblár met., sjáffsk., vökvast., útv/segulb. Ek. 42.000. Verö I.OOO.OOO. Ford Slerra 2000 station '86. Beige, 5 gfra, útv/segulb., sóilúga, vetrardekk. Ek. 138.000 km. verð 550.000. Saab 90 '87. Rauður, 5 gfra, 3 dyra, 2000 cc vél útv/seg- ulb. Ek. 55.000 km. Verð 650.000. Dalhatsu Charade CX ’88. Hvítur, sjðlfsk., 5 dyra, útv/segulb. Ek. 37.000. Verð 590.000. MMC Lancer ’88. Hvítur, sjálfsk., vökvast., útv/seg- ulb. Ek. 44.000 km. Verð 750.000. Volvo 244 GL '85. Qrár málm- litur, sjálfsk., vökvast., útv/segulb. Ek. 70.000 km. Verð 760.000. Fjöldi annarra notaðra úrvals bíla á staðnum og á skrá. Brimborg hf. Faxafeni 8, s. (91) 685870. BÍLAGALLERÍ Opið virka daga frá kl. 9-18. Laugardaga f rá kl. 10-16. MMC Qalant '86. Sllfurmet., sjálfsk., útv/segulb. Ek. 91.000. Verð 550.000.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.