Morgunblaðið - 21.08.1990, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.08.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990 27 Vátryggingafélag Islands: Afrýjar ekki en sældr um skráningu á VIS VÁTRYGGINGAFÉLAG íslands mun ekki áfrýja þeirri ákvörðun vörumerkjaskrárritara að synja um skráningu á vörumerkinu VÍS, vegna andmæla greiðslukortafyrirtækisins Visa International, að sögn Inga R. Helgasonar stjórnarformanns Vátryggingafélagsins. „Við leggjum áherslu á að hér er um orðmerki að ræða og höfum óskað eftir staðfestingu og löggild- ingu á myndmerki okkar af sömu stöfum, sem er fráleitt að geti vald- ið ruglingi; þar eru allt aðrir litir og stílbragð og engin leið að villast á því og myndmerki Visa,“ sagði Ingi R. Helgason. „Við viljum ekki skaða hagsmuni Visa; erum bara að skammstafa eftir málvenju okk- ar íslenska nafn, sem við höfum löghelgi yfir í hluthafafélagaskrá. Ef réttur Visa er meiri en það þá beygjum við okkur bara fyrir því, enda geri ég mér vonir um að við finnum náð fyrir augum vöru- merkjaskrárritarans hvað mynd- merki okkar varðar," sagði hann. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 20. ágúst. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- - verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 81,00 66,00 77,34 31,541 2.439.545 Þorskur (st.) 84,00 84,00 84,00 0,342 28.728 Smáþorskur 66,00 66,00 66,00 0,381 25.146 Ýsa 120,00 80,00 104,73 5,419 567.537 Karfi 41,00 30,00 39,69 59,460 2.359.873 Ufsi 48,00 28,00 45,35 35,825 1.624.837 Smáufsi 34,00 28,00 29,79 2,905 86.502 Steinbítur 70,00 49,00 54,04 1,061 57.341 Langa 50,00 46,00 48,87 2,087 102.002 Lúða 270,00 90,00 149,23 0,279 41.636 Koli 35,00 20,00 28,01 0,088 2.465 Keila 20,00 20,00 20,00 0,078 1.560 Langlúra 20,00 20,00 20,00 0,028 560 Skötuselur 70,00 70,00 70,00 0,001 70 Samtals 52,60 139,496 7.337.802 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur(sl) 87,00 72,00 80,57 46,529 3.748.880 Ýsa (sl.) 122,00 50,00 92,49 16,984 1.570.975 Karfi 42,00 37,00 37,88 3,221 122.041 Ufsi 47,00 39,00 39,92 3,357 134.027 Steinbítur 54,00 46,00 47,91 0,966 46.278 Háfur 29,00 29,00 29,00 0,158 4.582 Langa 47,00 46,00 46,68 2,510 117.166 Lúða 295,00 205,00 261,25 0,862 225.200 Skarkoli 46,00 20,00 40,80 1,974 80.532 Keila 12,00 12,00 12,00 0,146 1.752 Skata 79,00 • 5,00 52,51 0,068 3.571 Skötuselur 400,00 175,00 186,48 0,196 36.550 Lýsa 25,00 22,00 24,14 0,171 4.128 Gellur 380,00 380,00 380,00 0,016 6.08Ó Blandað 55,00 20,00 34,40 0,141 4.850 Undirmál 77,00 30,00 50,69 3,213 162.852 Samtals 77,87 80,513 6.269.464 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 103,00 55,00 81,96 59,598 4.884.681 Ýsa 110,00 50,00 76,13 37,387 2.846.170 Karfi 48,00 30,00 43,72 2,978 130.212 Ufsi 49,00 15,00 31,92 21,774 695.022 Steinbítur 62,00 57,00 59,37 0,231 13.715 Langa 58,00 49,00 54,98 2,780 152.833 Lúða 410,00 200,00 355,53 0,955 339.530 Skarkoli 70,00 70,00 70,00 0,926 64.840 Koli 57,00 57,00 57,00 0,101 5.757 Keila 32,00 10,00 24,74 1,410 34.880 Blálanga 49,00 49,00 49,00 0,073 3.577 Skata 76,00 76,00 76,00 0,308 23.408 Skötuselur 430,00 430,00 430,00 0,019 8.170 Lýsa 19,00 19,00 19,00 0,091 1.729 Blandað 45,00 26,00 35,17 2,162 76.048 Samtals 70,96 130,793 9.280.552 Olíuverð á Rotterdam-markaði 1.-17. ágúst, dollarar hvert tonn • ' , I" P' '. 5 ú. igij jyPwj prKmS®- IpyprSHHfc^/r'* rv. f V Jst'jfmk. 1111 |II M fe ,í '*****&, • X l: 'J Leikarar og annað starfsfólk Leikfélags Reykjavíkur komu saman í gær í Borgarleikhúsinu að loknu sumarleyfi. Leikfélag Reykjavíkur: Þrjár sýningar í æfíngu LEIKARAR og annað starfsfólk leikár Leikfélagsins að hefjast, Leikfélags Reykjavíkur kom annað árið í Borgarleikhúsinu. saman í gær í Borgarleikhúsinu Þijár sýningar eru nú í æfingu að loknu sumarleyfi. Nú er 94. í Borgarleikhúsinu, Fló á skinni Tónleikar Rolling Stones: Enn beðið lokasvars hlj óms veitarinnar ENN er ekki ljóst hvort af tónleikum Rolling Stones verður hér á landi að sinni, en þó er ljóst að þeir verða ekki um næstu mánaða- mót líkt og fyrirhugað var. Að sögn talsmanns þeirra sem hugðust greiða götu hljómsveitarinnar ef af yrði bíða þeir enn lokasvars frá hljómsveitarmeðlimum. Talsmaðurinn sagði tónleikana hafa átt að vera utan venjulegrar tónleikaferðar Rolling Stones, sem lýkur á næstu dögum. Hann sagði persónulegan umboðsmann eins hljómsveitarmeðlima hafa haft samband við menn her á landi að fyrra bragði og þeir verið í stöðugu sambandi við hann síðan og sent utan allskyns upplýsingar sem ósk- Hornafjörður: Nýja Hauka- fellið strandar Höfn. HAUKAFELLIÐ SF 111 strand- aði á föstudag rétt innan við Ós og sat þar í nokkra tíma. Skipið komst á flot rétt fyrir hádegi, þrátt fyrir að mikil fjara væri ennþá, en Haukafell er frekar djúprista, eða á við meðal togara. Haukafellið landaði í gær 20 tonnum eftir sína fyrstu veiðiferð. Að sögn Axels Jónssonar skipstjóra líst honum mjög vel á allar aðstæð- ur í skipinu. Hann kvað þá hafa verið að veiðum í um einn og hálfan sólarhring að þessu sinni. Menn hefðu verið að prófa búnað og tæki og hefðu ekki miklir byrjunarerfið- leikar gert vart við sig. J(JG að var eftir. Enn væri svo beðið lokasvars frá hljómsveitarmeðlim- um, en tíminn væri of naumur til að hægt yrði að halda tónleikana á næstu vikum eins og upphaflega var fyrirhugað. eftir Georges Feydeau í leikstjóm Jóns Sigurbjörnssonar, Ég er hætt- ur, farinn! eftir Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur í leikstjóm Guðjóns Pedersens og Ég er meistarinn, eft- ir Hrafnhildi Guðmundsdóttur í leikstjórn Kjartans Ragnarssonar. Fló á skinni er það verk sem hvað mestum vinsældum hefur átt að fagna af öllum gangstykkjum Leikfélagsins fyrr og síðar. Það var sýnt fyrir fullu húsi í Iðnó á ámnum 1972-1975. Ég er hættur, farinn! er fyrsta leikverk Guðrúnar Kristínar, en leikritið vann til fyrstu verðlauna í leikritasamkeppni Leikfélagsins sem haldin var í tilefni af opnun Borgarleikhússins. Ég er meistarinn er fmmsmíð Hrafnhildar Hagalín Guðmunds- dóttur, verk samið fyrir þijá leikara og iítið rými og fer því væntanlega vel um það á Litla sviði Borgarleiks- hússins. . ............ (Ur frettatilkynningu.) Evrópuráðið: Albert Guð- mundsson fastafiilltrúi ALBERT Guðmundsson, sendi- herra íslands í París, liefur verið , skipaður fastafulltrúi íslands hjá Evrópuráðinu í Strassborg. í frétt frá utanríkisráðuneytinu segir, að Albert hafi verið skipaður fastafulltrúi frá og með 1. ágúst síðastliðnum. UR DAGBOK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: 17. - 19. ágúst 1990. í heild reyndist helgin með ró- legra móti, þó hefðbundinn erill væri eins og venjulega upp úr miðnætti og fram undir morgun, á föstudags- og laugardagskvöld. Ölvun var nokkur og sinnti lög- regla alls um 115 ölvunarköllum, en auk þess komu 20 aðilar á lög- reglustöðina og báðu um nætur- gistingu. Af þeim sem gistu fangageymslur lögreglu voru 7 færðir fyrir dómara, flestir vegna óspekta. Dómari ýmist veitti þeim árninningu, eða dæmdi í sektir. Eitthvað varð um að skemmt- anahald í heimahúsum og utan þeirra gerðist hávaðasamara en nágrannar þoldu og var lögregla alls send 26 sinnum í hús, til að biðja fólk sem gerðist einum of kátt að lækka og alls 17 sinnum var beðið um að hugað yrði að hávaða utandyra. Þrisvar var tilkyrtnt til lögreglu að fólk hafi orðið fyrir líkams- meiðingum og var það oftast vegna pústra, en ekki alvarlegs eðlis. Tíu rúðubrot voru tilkynnt til lögreglu og í þrem tilfellum voru handteknir þeir sem grunaðir voru um verknaðinn. Sex sinnum var tilkynnt um eld, en reyndist ekki meiriháttar, en í tveim tilfellum höfðu menn hafið matseld, en ekki haft biðlund og sofnað út frá pottum og pönnum. Alls voru tilkynnt til lögreglu 29 umferðaróhöpp, en þar af voru þijú umferðarslys, en ekki er vitað til þess að nokkur hafi slasazt alvarlega, þá lentu aðilar, grunað- ir um ölvun, tvisvar í óhöppum. Aðeins 12 ökutæki voru ijar- lægð með kranabifreið og gefur það vonandi til kynna að ökumenn leggi bifreiðum sínum betur en fyrr. Þjónusta lögreglu við borgara var mikil eins og alltaf og meðal annars voru 37 ökutæki opnuð auk fimm íbúða. Talsvert var að gera í umferð- armálum og voru alls 14 teknir vegna gruns um ölvun við akstur. Þá voru 40 teknir fyrir of hraðan akstur og sex þeirra urðu að sjá á eftir ökuskírteinum sínum til lögreglu. Auk þessa voru 32 aðrir ökumenn kærðir fyrir önnur um- ferðarlagabrot. Aðfaranótt laugardagsins voru lögreglumenn í Lækjargötu varir við að verið var að hnupla ein- kennishúfum þeirra. Þeir sem það reyndu voru umsvifalaust teknir og færðir á lögreglustöðina í mið- borginni þar sem varðstjóri mess- aði yfir þeim. Sömu nótt var tilkynnt um vopnaðan mann við Hótel Borg, en þegar betur var að gáð var hann með leikfangabyssu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.