Morgunblaðið - 21.08.1990, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990
31
íslandsmótið í atskák:
Flestir beztu með í undanrásunum
Skák
Margeir Pétursson
VINSÆLDIR hálftímaskáka, eða
atskáka, virðast ætla að ná hing-
að til lands. íslandsmótið í grein-
inni er haldið með nýju sniði í
ár. Fyrst eru háðar undanrásir
og þeir sextán skákmenn sem í
úrslitin komast munu tefla út-
sláttareinvígi. Lokaeinvíginu
mun væntanlega verða sjónvarp-
að beint. Atskákkeppnir með
þessu fyrirkomulagi hafa farið
fram í Englandi, Frakklandi og
í V-Þýzkalandi og heppnast mjög
vel. Sjö stigahæstu skákmenn
landsins komast beint í úrslitin,
en flestir aðrir öflugustu skák-
mennirnir voru önnum kafnir um
helgina við taflmennsku á þrem-
ur undanrásamótum.
Á mótinu í Reykjavík var teflt
um sjö sæti. Þar sigraði Þröstur
Þórhallsson, alþjóðameistari, mjög
örugglega. í öðru til sjötta sæti
voru Björgvin Jónsson, Elvar Guð-
mundsson, Hannes Hlífar Stefáns-
son, Þröstur Árnasom Áskell Örn
Kárason og Jóhannes Ágústsson. Á
Akureyri sigraði Rúnar Sigurpáls-
son og á Vestfjarðamótinu í Súðavík
Ágúst S. Karlsson, en teflt var um
eitt sæti á hvorum stað.
Röð efstu manna á mótunum
þremur varð þessi:
Reykjavík:
1. Þröstur Þórhallsson 8 v. af 9
mögulegum.
2. Björgvin Jónsson 7 v.
3-6. Elvar Guðmundsson, Hannes
Hlífar Stefánsson, Þröstur Árnason
og Áskell Örn Kárason 6 ’A v.
7-10. Jóhannes Ágústsson (39 stig),
Sæberg Sigurðsson (38,5 stig),
Bragi Halldórsson (37 stig) og Sig-
urður Daði Sigfússon (36,5 stig)
allir 6 v.
11-13. Ögmundur Kristinsson, Þrá-
inn Vigússon og Eggert Isólfsson
5 ’/z v.
14-20. Andri Áss Grétarsson, Tóm-
as Björnsson, Magnús Gunnarsson,
Arnaldur Loftsson, Magnús Örn
Úlfarsson, Ingvar Ásmundsson,
Halldór Ólafsson og Sigurður Inga-
son 5 v.
Akureyri:
1. Rúnar Sigurpálsson 9 v. af 10
mögulegum
2-3. Gylfi Þórhallsson og Halldór
G. Einarsson 7 v.
Vestíjarðamótið fór fram á kaffi-
stofu frystihússins Frosta á
Súðavík: 1. Ágúst S. Karlsson 4
v. af 5 mögulegum
2. Magnús Pálmi Örnólfsson 3'A
Stig réðu því að Jóhannes
Ágústsson var úrskurðaður í sjö-
unda sætið á Reykjavíkurmótinu,
en Sæberg er fyrsti varamaður,
Bragi annar og Sigurður Daði þriðji.
Varamennirnir eiga býsna góða
möguleika á að komast í úrslitin,
því ólíklegt er að allir stórmeistar-
arnir geti verið með. Það myndi
þýða að Hannes Hlífar, Þröstur
Þórhallsson eða Björgvin, einn eða
fleiri, yrðu inni á stigum og þá losna
sæti fyrir varamenn.
Stefnt er að því að halda úrslita-
keppnina í byrjun janúar á næsta
ári.
Það leiðir af hlutarins eðli að
atskákir eru ekki eins vel tefldar
og kappskákir með fulium tíma.
Baráttan er hins vegar mun líflegri,
sérstaklega undir lok skákanna
þegar þær snúast upp í hreinar
hraðskákir. Við skulum nú líta á
eina frá mótinu í Reykjavík. Eftir
rólega byrjun nær sigurvegarinn
óvæntri sókn, sem hvítur finnur
enga vörn við. Síðustu leikirnir bera
síðan miklu tímahraki vitni.
Hvítt: Bragi Halldórsson
Svart: Þröstur Þórhallsson
Drottningarbragð
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rc3 -
d5 4. Bg5 — c6 5. cxd5 — exd5
6. e3 - Be7 7. Bd3 - 0-0 8. Dc2
- Rbd7 9. Rf3 - He8 10. 0-0 -
Rf8 11. Habl - a5 12. a3 - Re4
13. Bxe7 — Dxe7 14. b4 — axb4
15. axb4 — Rg6
Teflendur hafa hingað til þrætt
fremur fornfálegt afbrigði upp-
skiptaafbrigðisins í drottningar-
bragði. 15. — Bf5 er algengara, en
því er svarað með 16. Bxe4 — dxe4
17. Re5 og hvítur stendur ívið betur.
16. b5 - Bg4 17. bxc6?
Með þessu gefur hvítur höggstað
á sér, en hann gat hér valið um
mjög traustar leiðir, 17. Bxe4 —
dxe4 18. Rd2 eða 17. Rd2 strax.
17. - Bxf3 18. gxf3
\$S0 ■ i
Góð ending — maigir litir
Söngnámskeið Svan-
hvítar Egilsdóttur
DAGANA 27. ágúst til 8. september nk. verður söngnámskeið á
vegum Svanhvítar Egilsdóttur í húsnæði Tónlistarskólans í Reykjavík
á Laugavegi 178.
Svanhvít, sem er Hafnfirðingur
að uppruna, byijaði snemma nám
í píanóleik, lærði söng hjá Franz
Mixa og síðar í Leipzig, Vín og
Graz. Eftir stríð hélt hún námskeið
víða um heim t.d. í Japan, Finn-
18. - Rh4! 19. Re2?
Tapleikurinn. Svartur hótaði
máti með 19. — Dg5+, svo það var
úr vöndu að ráða. Bezti kosturinn
virðist 19. Khl, með þeirri hugmynd
að svara 19. — Rxf3 með 20. Bxe4
- dxe4 21. Dxe4! - Dxe4 22.
Rxe4 — Hxe4 23. cxb7 og hvítur
hefur fullnægjandi bætur fyrir
mann í endataflinu.
19. - Rxf3+ 20. Kg2 - Dh4!
Nú gengur 21. Kxf3 ekki vegna
21. - Rg5+ 22. Kg2 - Dh3+ 23.
Khl — Rf3 og hvítur er óveijandi
mát.
21. h3 - bxc6 22. Rg3
Tapar skiptamun, en hvítur hafði
hvort eð var tapað peði og var í
krappri vörn. Til gamans skulum
við láta lokin fylgja.
22. - Red2 23. Dxc6 - Rg5 24.
Hhl - Rxbl 25. Bxbl - Had8
26. Ba2 - Re4 27. Hel - Rxg3
28. fxg3 - De4+ 29. Kf2 - Hc8
30. Dxd5 - Hc2+ 31. He2 -
Hxe2+ 32. Kxe2 - Dc2+ 33. Kf3
- Ddl+ 34. Kf4 - Dfl+ 35. Df3
— g5+ 36. Kg4 — h5+ 37. Kxg5
— Dxf3 og hvítur gafst upp.
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000
Verð til
að taka eftir:
Vöðlur frá kr. 3.990.-
Mikið úrval af regnfatnaði.
OPIÐ LAUGARDAGA FRÁ KL. 10-13.
SPORT|
MARKAÐURINN
SKIPHOLTI 50C, SÍMI 31290
(Nýja húsið gcgnt Tónabíói)
landi, Taiwan og „Mozarteum" í
Salzburg, auk námskeiðanna á ís-
landi.
Undirleikarar á námskeiðinu eru
Ólafur Vignir Albertsson og Hólm-
fríður Sigurðardóttir.
Skrifstofutækninám
Betra verð - einn um tölvu á f |I; {) &77ijy
Tölvuskóli íslands
S: 67 14 66
Blomberq
KÆ L I S K A PAR
KS180
185L kælir
Mál:H109B50D58 cm
KS 282 /KS 242
225 L kælir/55 L frystir / 194L kælir/52 L frystir
Mál:H157B55D58 cm / Mál:Hl42B55D58 cm
. &
Hér sést hluti af úrvalinu,
sem við bjóðum af
BLOMBERG
kæliskápunum.
BLOMBERG er vestur-
evrópsk gæðaframleiðsla
á verði, sem fáir geta
keppt við.
BLOMBERG kæliskápur
er sönn kjarabót!!
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28, símar 16995
og 622900
<r
/KS 182
169 L kælir/16 L frystir
iI:H109B50D58 cm
f KS 140
143L kælir
il:H85B50D58 cm'
KS 142
129L kælir/14 L frystir
Mál:H85B50D58 cm