Morgunblaðið - 21.08.1990, Page 35

Morgunblaðið - 21.08.1990, Page 35
35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990 eiga henni svo mikið að þakka, ekki hvað síst fyrir þessi tvö ánægjulegu ár vestan hafs. Störf hennar við skólann og spítalann á miklum breytingaskeið- um voru alla tíð mjög krefjandi en Sigríður lét þau aldrei hlekkja sig. Hún kunni þá list að aðskilja hæfi- lega þann heim sem var að finna innan stofnunar og hins sem var fyrir utan og njóta beggja. Þess vegna varð starfið henni aldrei of- viða og því síður þurfti hún að láta tryggð við fjölskyldu og vini logn- ast út af, en hvort tveggja var mikil- vægt til endurnýjunar á starfs- ánægju og lífsgleði. Sigríður sótti mikið leikhús, ekki hvað síst ef hún var í Bretlandi, hún var tíður gest- ur á tónleikum og ferðaðist innan- og utanlands. En hún lét sér ekki þetta nægja og hafði ríka þörf fyr- ir að deila viðburðunum með öðrum og naut þess að segja frá ferðum sínum, jafnvel inn í heim bók- mennta og leikhúsa. Hún var raun- sær hugsjónamaður sem alltaf var í góðu jafnvægi og hélt andlegri og líkamlegri heilsu svo til alla ævi. Farsælli ævi hreinskiptinnar konu er lokið og við sem kveðjum hana finnum fyrir tómleika. En það væri mikil og ósanngjörn eigingirni ef við gætum ekki fagnað, úr því sem komið var vegna veikinda- áfallsins í síðustu viku, komu dauð- ans sem allra meina bótar og líknar- gjafa aldraðri konu. Við eigum þó okkar björtu endurminningar um hana og vonum að sú birta er fylgdi henni alla tíð og blessunaróskir okkar megi lýsa henni áfram á eilífðarbraut. María Pétursdóttir Sigríður Bachmann, fyrrverandi forstöðukona á Landspítalanum, lést eftir stutta sjúkdómslegu 10. ágúst sl. Hún fékk hvíldina á þeirri stofnun er hún hafði helgað starfs- krafta sína. Sigríður var ein þeirra kvenna á þriðja áratugnum, sem gerðu sér grein fyrir nauðsyn þess fyrir þjóð- félagið að fá vel menntaðar hjúkr- unarkonur til starfa og að stuðla bæri að framgangi hjúkrunar- menntunar á íslandi. Hún sigldi til Englands og lauk hjúkrunarnámi við University Col- lege Hospital School of Nursing og stundaði framhaldsnám í heilsu- vernd og kennslu við Bedford Coll- ege for Women, University of Lond- on 1927-1928. Eftir heimkomuna 1929 hóf hún störf hjá Akureyrardeild Rauða krossins við hjúkrun í heimahúsum og heilsuvernd. Á árunum 1931- 1941 starfaði hún hjá Rauða krossi íslands og ferðaðist um landið og kenndi heimilishjúkrun og hjálp í viðlögum á námskeiðum. Einnig annaðist hún hjálparstarf í þágu sjómanna í Sandgerði. Sigríður fór til Bandaríkjanna 1935 og dvaldi þar í 10 mánuði til þess að kynna sér rekstur hjúkr- unarkvennaskóla íslands og skóla- stjóri 1949-1953, eða-þar til hún tók við stöðu forstöðukonu Land- spítalans 1954. Þeirri stöðu gegndi hún til 1968, er hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. Þegar Sigríður Bachmann tók við forstöðukonustöðunni stóðu fyrir dyrum framkvæmdir við nýbygg- ingu Landspítalans. Var það mikið lán fyrir stofnunina að fá konu með slíka þekkingu, reynslu og framsýni til að setjast í þann stól. Sigríður fylgdist grannt með nýj- ungum og tækni á sviði hjúkrunar og fylgdi fast eftir framkvæmdum og umbótum og þá fyrst og fremst með bættan hag sjúklingsins að leiðarljósi. Sigríður sat í skólanefnd Hjúkrunarkvennaskólans, en það fylgdi embætti forstöðukonu Land- spítalans, og beitti sér stöðugt fyrir endurbótum á hjúkrunarmenntun hérlendis auk þess sem hún þreytt- ist aldrei á að hvetja og. tryggja íslenskum hjúkrunarkonum tæki- færi til framhaldsnáms erlendis. Það má segja að markmið hjúkr- unar á Landspítalanum í tíð Sigríð- ar Bachmann hafi í raun verið svip- uð og þau eru nú, byggð á svipuðum grundvallarviðhorfum. Sterkir stjórnendur eins og Sigríður Bach: mann setja ætíð mark á alla starf- semi. Hún var fyrirmynd í dagleg- um. störfum. Fas hennar einkennd- ist af hlýlegum virðuleik og hún hafði með framkomu sinni og stjórnunarstíl sterk mótandi áhrif. = ÖRTÖLVUTÆKNI Tölvukaup hf., Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími 687220, Fax 687260. § með NEC V20 örgjörva | • 10MHz tiftíðni • 640KB vinnsluminni • | eitt disklingadrif • 20MB harðan disk 3 • 12" svart/hvítan skjá • MS-DOS 4.01 stýri- kerfi • Prentaratengi • RS-323 tengi • 102 lyklaborð • HugKORN heimilisbókhald Tilboðsverð stgr. kr. 83.900 HAUSTTILBOÐ Tulip PC Compact 2, Jl í ár á Landspítalinn 60 ára starfsafmæli. Á slíkum tímamótum skoðar maður gjarnan hvað hefur áunnist og hvert við stefnum. Óhætt er að fullyrða að starfsemi og þjón- usta spítalans stenst fyllilega sam- anburð við það sem best þekkist í nágrannalöndum okkar og er það ekki síst að þakka brautryðjendun- um Sigríði Bachmann og samstarfs- fólki hennar, sem lögðu grunninn að því sem við nú byggjum á. Við, sem nú störfum við hjúkrunarstjórn á Landspítala, höfum sumar starfað með Sigríði og þekkjum störf henn- ai' af eigin raun, en aðrar af orð- spori. Þó nokkuð sé' liðið síðan Sigríður Bachmann stóð hér í brúnni má finna áhrif starfs hennar víða. Þó vinnugleði hennar virtist lítil takmörk sett og vinnudagurinn oft langur tókst Sigríði að sinna hugar- efnum sínum og fylgjast með alls kyns málefnum af vakandi áhuga. Henni var sýndur margvíslegur sómi. Hún var gerð að heiðursfélaga Rauða kross Islands, hlaut heiðurs- merki Rauða kross íslands, sæmd Florence Nightingale-orðunni og Hinni íslensku fálkaorðu. Hjúkrunarfræðingar á Landspít- ala kveðja Sigríði Bachmann með virðingu og þakklæti og biðja Guð að blessa minningu hennar og það starf sem hún vann í þágu hjúkrun- ar á íslandi. Við vottum aðstandendum henn- ar innilega samúð. F.h. hjúkrunarstjórnar Land- spítalans, Vigdís Magnúsdóttir hjúkrunarforstjóri. Vinningstölur laugardaginn 1 8■ ágÚSt 1990 18)Ö( VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 2 2.475.388 O £. 4af5Íyjl} 5 101.993 3. 4af5 144 6.108 4. 3 af 5 4.805 427 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 8.392.028 kr. UPPLYSINGAR : SÍMSVARI 681511 - LUKKULINA 991002 MOTTU OG TEPPA 20-50% Gram TepP' afsláttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.