Morgunblaðið - 21.08.1990, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 21.08.1990, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990 37 Hvermg verða kjörm bætt? eftir Einar Emilsson í tengslum við deilur um kjara- samninga að undanfömu hafa menn velt fyrir sér markmiðum með starfi samtaka launafólks. í þeirri umræðu hefur komið fram í fjölmiðlum gagn- rýni frá félögum og forustumönnum BHMR á forustumenn annarra sam- taka. Hafa þeir verið sakaðir um, að þá skorti vilja til að vinna að kjara- bótum fyrir sína félaga. Einnig hefur komið fram hjá félaga í BHMR (Þjóð- arsálin á Rás 2, 30.7.), að BRSB og ASÍ hafi ekki sýnt vilja til víðtækrar samstöðu í kjarabaráttunni. Slík gagnrýni frá samtökum, sem ætlast til þess að allt annað launa- fólk færi þeim fyrirhafnarlaust allar kjarabætur, jafnframt því sem þeir gætu setið að ákveðnum leiðrétting- um fyrir sig eina, er alveg fráleit. Það væri skrítin staða ef öll stéttarfé- lög væru með slíkt ákvæði í sínum kjarasamningum. Hvaða launagreið- andi þyrði þá að ríða á vaðið og verða fyrstur til að hækka launin hjá sínum viðsemjendum? Víðtæk samstaða getur aldrei náðst á grundvelli þess- arar hugsunar, en samstaða er okkur nauðsynleg ef okkur á að takast að ná árangri. Þegar hins vegar grannt er skoðað ættum við í höfuðdráttum öll að eiga þau höfuðmarkmið sameiginleg að vilja bæta kaupmátt kauptaxta. Spurningin er um leiðir til að ná þessu marki. í BSRB var þetta rætt mjög ítarlega í upphafi vetrar. Okkar niðurstaða var sú að nú væri komið að því að gera eitthvað raunhæft í málunum, sjá til þess að það, sem við sendum um, gufaði ekki jafnóðum upp. Finna nýja leið upp úr dal kaup- máttarrýrnunar, þar sem vart hefur sést til sólar undanfarin ár. Leið, þar sem við ættum ekki á hættu að renna niður aftur um leið og fyrsta hjalla væri náð, jafnvel niður fyrir þann stað þar sem við vorum á áður. Þetta hefur að sjálfsögðu verið markmið verkalýðshreyfingarinnar lengi en þessi hugsun fékk byr undir báða vængi síðastliðið sumar. Þá höfðum við gert samninga, sem fólu í sér margvíslegar tryggingar sem þó héldu misvel. Þegar þessar trygg- ingar fóru að gefa sig var mótmælt hressilega og safnaðist fólk saman til útifunda víðsvegar um landið. Þessir fundir sýndu betur en flest annað, hve mikil alvara fólki var að reyna nýjar leiðir til að bæta kjörin og umfram allt að tryggja þau. í framhaldi af þessu ákvað BSRB að leita eftir sem víðtækustu samstarfi á meðal launafólks um þessi megin- markmið. Það var mat manna, að nú væri þörf samstöðu ef takast ætti að snúa þessu dæmi við. Það tókst og nú er árangurinn að byija að koma í ljós. í fyrsta lagi tókst að koma í veg fyrir frekara kaup- máttarhrap sem allir höfðu spáð. í öðru lagi nálgumst við nú þann tíma- punkt að kaupmáttur kaupvaxta rís, ekki bara fáeinar vikur, heldur til frambúðar. Til þess er leikurinn gerð- ur. Markmiðið er að skapa okkur aukinn kaupmátt til frambúðar. Á undanförnum árum höfum við horft á miklar sveiflur í kaupmætti og stjórnvöld og atvinnurekendur hafa komist upp með þetta því ekkert hefur verið tryggt. Veikleikinn í samningum BHMR er hins vegar sá, að þeir byggja ekki á neinum tryggingum. Það er lítill ávinningur af því að fá mikla launa- hækkun sem veltur jafnharðan út í verðlagið og hækkar alla nauðsynja- vöru og rýrir kaupmáttinn um leið. Krónufjöldinn eða prósentustigin segja ekkert, heldur hitt hvað hægt er að kaupa fyrir krónurnar, kaup- máttur þeirra. Og það er trygging þessa kaupmáttar og tilraun til að auka hann sem okkar samningur byggir á. Ástæðan fýrir því að við gerðum þessa samninga er þessi og engin önnur. Það skorti ekki vilja í okkar hópi til að reyna að ná fram raunhæfum kjarabótum fyrir okkar fólk. Og það þurfti líka kjark til að Einar Emilsson „Við erum nefnilega flest hundóánægð með kjörin og viljum bæta þau í reynd og til fram- búðar.“ fara með þessa samninga og bera þá undir atkvæði úti í félögunum. Við erum nefnilega flest hundóá- nægð með kjörin og viljum bæta þau í reynd og til frambúðar. Á þessu þarf að byggja kjarabaráttuna ef hún á að skila okkur árangri. í kjarabar- áttu þarf að meta aðstæður hveiju sinni, endurskoða fyrri afstöðu ef þörf er á vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu. Leita nýrra leiða til að mæta þeim breytingum. Það ætti að vera hægt í því þjóðfélagi sem við lifum í að bæta kjör hinna lægst launuðu án þess að þeir sem betur eru settir geri þá kröfu að launa- munur verði aukinn frá því sem nú er. Höfundur er formaður Starfsmannafélags Dalvíkurbæjar og stjórnarmaður í BSRB. - Hárlos l - Kláði - Flasa - Litun - Permanent MANEX vítamín sérstaklega fyrir hár, húð og neglur. MANEXsjampó MANEX næring íOSIfðilSffWKISS^S Jóna Björk Grétarsdóttir: Ég missti megnið af hár- inu 1987 vegna veikinda. Árið 1989 byrjaði hárið fyrst að vaxa aftur, en það var mjög lélegt; það' var svo þurrt og dautt og vildi detta af. Síðan kynntist ég Manex hársnyrtilínunni og það urðu mjög snögg um- skipti á hári mínu til hins betra. Eftir 3ja mánaða notkun á Manex prótein- inu, vítamíninu og sjampóinu er hár mitt orðið gott og enn í dag finn ég nýtt hár vera að vaxa. Fæst í flestum apótekum hárgreiðslu- og rakara- stofum um land allt. Dreifing: s. 680630. ambrosia sA í Reiðhöllinni 8. september Dregið verður úr miðanúmerum allra sem kaupa miða á Risarokkið, laugardaginn 8. september. Miðana þarf aðeins að kaupa fyrir sunnudaginn 26. ágúst. 1 .-2. verðlaun: Fjögurra daga ferð á Monsters of Rock hljóm- leikana í París 3. sept. Whitesnake verður þar aðalhljómsveitin. Einnig leika þar Aerosmith, Poison og Vixen. 3.-7. verðlaun: Kvöldverður fyrir tvo á veitingastaðnum L.A. Café, Laugavegi 45. JLÁi \ 8.-50. verðlaun: Litlarog stórarplötur oggeisladiskarmeð Whitesnake og Quireboys. Athugið! Aðeins verður dregið úr miðum á laugardagsrisarokkið. Kaupið miða í síðasta lagi 25. ágúst. • • S • K- I • F • A • N FORSALA AÐGONGUMIÐA Reykjavík: Skífan, Kringlunni og Laugavegi 33, Hljóðfærahús Reykjavíkur, Laugavegi 96, Stein- ar, Austurstræti, Álfabakka 14, Glæsibæ, Laugavegi 24, Rauðarárstíg 16 og Eiðistorgi, Mynd- bandaleigur Steina, Plötubúðin Laugavegi 20. Hafnarfjörður: Steinar, Strandgötu 37. Akranes: Bókaskemman. Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga. ísafjörður: Hljómborg. Sauðárkrókur: Kaupfé- lag Skagfirðinga. Akureyri: KEA. Húsavík:Bókaverslun Þórarins Stefánssonar. Neskaupstaður: Tónspil. Höfn: KASK. Vestmannaeyjar: Adam og Eva. Selfoss: Ösp. Keflavík: Hljómval. Einnig er hægt að panta miða ísíma 91-667 556. Gíróseðinn verður sendurog er hann hefurverið greiddurverða miðarnir sendir um hæl. Muniðað greiða strax. S T £ I N A R m MUNIÐ: . ATHUGIÐ JJJJKj? Flugleiðir veita 35% afslátt af verði flugferða gegn framvísun aðgöngumiða _._ __ ciruo að risarokktónleikunum. rLUlJiLbltJlR Beint þotuflug til Akureyrar nóttina eftir risarokkið Enn eru nokkrir miðar eftir á tónleika Whitesnake og Quireboys í Reiðhöllinni föstudaginn 7. september. E EUROCARO

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.