Morgunblaðið - 21.08.1990, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990
;>
/z NiðrC .. . Gibta. bréf....
byrjar ci 3• *
*
Ast er...
8-17 MUÍ)
. .. næg handa öllum.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights resarvod
© 1990 Los Angeles Times Syndtcate
Hefði ég farið inn fyrr væri Stelpurnar munu aldrei trúa
ég komin út nú ... þessu.
Þjónusta góð á flestum
greiðastöðum við þjóðvegi
Til Velvakanda.
í dálki Víkverja í Morgunblaðinu
þann 24. júlí er rætt um þjónustu
og matarverð á greiðastöðum og
hótelum hérlendis. Dæmi er þar
tekið um verð á fiskrétti á þrem
stöðum á landinu, nánar tiltekið á
smálúðuflökum sem kosti á Hótel
Holti kr. 860, á Sauðárkróki kr.
12-1300, og á Akureyri kr. 1100,
(að sögn heimildarmanns Víkveija).
Auk þessa kemur fram að eitt
besta hótel landsins sé að Laugum,
ekki veit ég hvort um er að ræða
Laugahótelið í Dalasýslu eða í
Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu,
enda skiptir það raunar ekki máli
þar sem ég veit af eigin reynslu
Hver á að hreinsa við
Borgarleikhúsið?
Til Velvakanda.
Mig langar til að biðja Velvak-
anda að koma á framfæri fyrir mig
fyrirspurn um hvort ekki sé kominn
Hver keyrði
á Honduna?
Til Velvakanda.
Skorað er á bílstjórann sem ók
á glænýja dökkbláa Hondu Accord
á emkabílastæði við Bernhöftstorfu
miðvikudaginn 15. ágúst að gefa
sig fram. Bifreiðin er mikið skemmd
og ljóst að það hefur ekki farið
framhjá viðkomandi að hann ók á
hana. Lýsing sjónarvotta er vonandi
nægjanleg til að fínna þann, sem
var valdur að skemmdunum, en
skemmtilegra væri fyrir viðkomandi
að gefa sig fram. Hringdu í síma
629550 eða 624735.
Ingibjörg
tími til að hreinsa blóma- og tijá-
beðin í kringum Borgarleikhúsið.
Þessi beð voru aldrei hreinsuð. í
fyrrasumar og hafa ekki verið
hreinsuð núna í allt sumar og er
arfi og annað illgresi orðið hærra
en gróðurinn. Ég hef aldrei séð
annan eins sóðaskap, nema þá í
kringum Tjörnina okkar, sem öllum
þykir svo vænt um, áður en byijað
var að byggja þar.
Ég talaði við Theodór sem sér
um hreinsun á skrúðgörðum
Reykjavíkurborgar, en hann sagðist
ekki sjá um þetta svæði, síðan tal-
aði ég við Jón í Laugardal, hann
sagðist hafa séð um þessa hreinsun
meðan verið var að byggja, en síðan
ekki meir.
Hver á að hreinsa þarna? Eða á
þetta kannski bara að vera 'svona
til sýnis fyrir útlendinga og aðra
sem koma til að sjá Borgarleikhús-
ið og umhverfí nýja miðbæjarins.
Þvílík skömm.
Ein sem gengur þarna næstum
daglega.
að bæði þessi hótel veita ágætis
þjónustu, en hins ber að gæta að
víða eru ágætis hótel sem standa
vel undir nafni ekki síður en þessi
tvö.
I því tilviki vil ég einmitt nefna
Hótel Áftingu á Sauðárkróki, en þar
hef ég starfs míns vegna, gist einu
sinni og þrisvar neytt kvöldverðar.
Ég veit ekki hvaðan heimildarmað-
ur Víkveija fær sínar tölur um verð
á fiskréttum á Sauðárkróki, en sam-
kvæmt mínum nótum, kostar hann
kr. 880, en sjálfsagt er hægt að fá
þar dýrari fiskrétti af sérréttaseðli
hótelsins.
Þá er ótalið það sem kvöldverðar-
gestir Hótels Áningar fá í kaup-
bæti með kvöldverðinum, en það
er skemmtidagskrá sem fram fer
flest kvöld vikunnar.
Fyrir nokkrum dögum var ég
staddur á Hótel Áningu og þá
skemmtu þar Jónas Þórir píanóleik-
ari og Jónas Dagbjartsson fiðluleik-
ari, og samkvæmt því sem starfs-
fólk hótelsins sagði mér hafa marg-
ir frábærir listamenn skemmt þar
í sumar svo sem Ingibjörg Guðjóns-
dóttir söngkona, og svo bóndinn og
söngvarinn Jóhann Már Jóhannsson
í Keflavík, og þetta veit ég ekki til
að sé gert á nokkru hóteli öðru, að
minnsta kosti ekki úti á Iandi.
Þetta kvöld sem ég var staddur
á Hótel Áningu var sérstaklega
skemmtilegt að sjá upplitið á hinni
mislitu hjörð innlendra og erlendra
matargesta þegar listamennirnir
gengu í salinn, og undirtektir þeirra
voru einnig frábærar.
Þetta vil ég gjarna að komi fram,
vegna þess að Sagðárkrókur var
sérstaklega tilnefndur í pistli
Víkveija, en þar kannast ég ekki
við það verð á mat sem tilgreint
er, og mjög víða og raunar á flest-
um stöðum þar sem greiði er keypt-
ur meðfram þjóðvegum landsins,
er þjónustan góð, og víða aldeilis
ágæt.
Hótelgestur
MVTT SÍMANÚMER
"uGriSlNGAOEHD^
«ilH
fltorgiittMftfrft
HOGNI HRKKKVISI
„HéfZ 1/eRÐOR þ>Ú þ(4R TIL Hl'ANAR "
Víkveiji skrifar
Nú er gamla húsið, sem stóð á
horni Tjarnargötu og Vonar
strætis horfið. Skyndilega blasir
ráðhúsið við frá nýju sjónarhorni,
þegar horft er til þess frá homi
Kirkjustrætis og Aðalstrætis. Og
um leið verður ljóst, að ráðhúsið
mundi njóta sín enn betur, ef hið
myndarlega steinhús Oddfellowa
yrði fjarlægt. En það gerist tæplega
á næstunni!
Einn af viðmælendum Víkveija
hafði orð á því, að nú væri öll suður-
hlið Austurstrætis til sölu og taldi
það til marks um hve alvarlegt
ástand væri í gamla miðbænum.
Annar bjartsýnismaðurtaldi, að það
ætti að rífa þá húsalengju alla frá
Aðalstræti til Lækjargötu, sem og
öll hús við hið svonefnda Hallæris-
plan. Með öðru móti væri ekki
hægt að skapa skilyrði til endur-
byggingar gamla miðbæjarins.
Þessum hugmyndum er hér með
komið á framfæri!
Annars eru miðbæjarvandamál
víðar en í Reykjavík. Kópa
vogsbær er ungur kaupstaður en
þar er orðinn til miðbær við hina
svonefndu Hamraborg, þar sem eru
bæði verzlanir og bankar og stutt
í bæjarskrifstofur. Það er orðið
ákaflega þröngt um bílaumferð á
þessu svæði. Bílastæðum á götunni
sjálfri er þannig fyrir komið, að
óþægilegt er að leggja þar bíl, nema
komið sé frá brúnni eða upp Skelja-
brekku. Ef hins vegar komið er frá
Álfhólsvegi er erfitt um vik að
leggja bíl. við götuna.
Bílastæðin eru skásett og mikil
hætta á árekstri, þegar ökumaður
ekur bifreið sinni aftur á bak út
úr stæðinu og yfirleitt erfitt að sjá,
hvort bifreið kemur akandi eftir
.þeim helmingi götunnar vegna ann-
arra bifreiða, sem lagt hefur verið
við hliðina. Hinum megin götunnar
hefur verið komið fyrir töluverðum
fjölda bflastæða en umferð á þessu
svæði er orðin svo mikil, að á mesta
annatíma dagsins er nánast ómögu-
legt að finna bflastæði á þessu
svæði. Hér er um nýjan miðbæ að
ræða og varla hægt að segja, að
mikillar framsýni hafi gætt við
skipulagningu hans.
xxx
Svo að áfram sé haldið með
umferðarmálin: þegar ekið er
eftir Snorrabraut og beygt til vinstri
til þess að aka inn á Eiríksgötu en
bifreið stöðvuð vegna umferðar eft-
ir hinni akrein Snorrabrautar, er
umferðarskilti, sem kemur í veg
fyrir, að ökumaður sjái þá bíla, sem
koma úr gagnstæðri átt. Hér er um
að ræða örvarmerki, sem vísar öku-
mönnum veginn en er þannig stað-
sett, að það getur valdið árekstri
vegna þess, að það er sett niður á
afar ópheppilegum punkti. Víkveiji
hefur áður vakið athygli umferðar-
yfírvalda á þessu skilti en án árang-
urs. Þess vegna skal þessi ábending
ítrekuð.