Morgunblaðið - 21.08.1990, Qupperneq 45
45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
l/wvwi U. táAV 'U IT
Þessir hringdu . . .
Veðurfréttirnar góðar eins
og þær voru
Anna hringdi:
„Ég var að lesa í Velvakanda þar
sem Jóndi járnsmiður skrifar um
veðurfréttirnar í ríkissjónvarpinu.
Ég er alveg sammála honum og
er ein í þögla hópnum. Mér finnst
það fyrir neðan allt að hafa veður-
fréttirnar eins og þær eru núna í
sjónvarpinu. Ég vil fá veðurfræð-
ingana'og gula kortið aftur. Nú
skipti ég alltaf yfir á Stöð 2 og
horfi á veðurfréttirnar þar.“
Tapaði gleraugum
Gleraugu með gylltri umgjörð og
lituðum glerjum töpuðust þriðju-
daginn 14. ágúst á leiðinni frá
Mjóddinni yfir í Smiðjuveg.
Finnandi er beðinn að hringja í
Kristin í síma 45544 eða 686482.
Tapaði úri
Sjö ára stúlka tapaði úrinu sínu
í grennd við Laugarnesskóla
síðastliðið þriðjudagskvöld. Úrið
nefnist Flik Flak og er bleikt með
blárri og gulrí skífu. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma 39815.
Köttur í óskilum
Gulur köttur hefur flækst um
Skjólin síðan um miðjan vetur í
fyrra. Þeir sem vilja fá frekari
upplýsingar hringi í síma 21805.
Tapaði myndavél
Chinon myndavél tapaðist á
Landsmóti hestamanna á Vind-
heimamelum á föstudagskvöldinu.
Finnandi hringi í síma 98-22408
eða 98-77744.
Kettlingur
Kettlingur fæst gefins. Kassavan-
ur. Upplýsingar í síma 82052.
Motturnar hurfu
Kona hringdi:
„Ég var að ryksuga bílinn minn
á Shell-bensínstöðinni á Suður-
landsbraut sl. fimmtudag milli kl.
16.30 og 17 og tók nýlegar mot-
turnar úr bílnum. Við hliðina á
mér var annar bíll sem einnig var
verið að þrífa og er líklegt að sá
sem var á þeim bíl hafi tekið
motturnar mínar í misgripum. Bið
ég þann hinn sama að hringja í
síma 34571 eftir kl. 17.“
Fressköttur týndur
Ungur grábröndóttur fressköttur
með hvíta bringu, trýni og loppur
tapaðist. Þeir sem hafa séð kött-
inn vinsamlega hringi í síma
25657 eða 53918 á kvöldin.
STJÖRNUKORT
Persónulýsing, framtíðarkort, samskiptakort.
Gunnlaugur Guðmundsson,
Stjörnuspekistöðin,
Miðbæjarmarkaðinum,
Aðalstræti 9, sími 10377.
Týndir kettir
Þessi steingrái köttur hvarf frá Dal
í Mosfellsbæ fyrir nokkru. Ef ein-
hver hefur orðið hans var, er hann
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 666885.
Gott að gista í
Til Velvakanda.
Það er mikið búið að tala um
verslunarmannahelgina og drykkju-
skap sem verið hefur þessa helgi.
Við hjónin búum í Reykjavík og
gistum um verslunarmannahelgina
í Bjarkarlundi. Þar var yndislegt
að vera, enginn drykkjuskapur og
ekkert vesen þó þarna væri fólk á
öllum aldri.
Mig langar að koma á framfæri
þakklæti til fólksins sem rekur hót-
elið. Það er svo elskulegt að það
er engu líkara en maður sé að heim-
sækja vini þegar komið er þarna,
þó við höfum ekki gist þarna fyrr
en þessa verslunarmannahelgi.
Þetta var því mjög góð dvöl þarna
Þetta er kötturinn Jenni sem tapað-
ist frá heimili sínu, Víðihvammi 20
í Kópavogi, 30. júlí sl. Hann er
gulbrúnn á litinn og ómerktur. Þeir
sem vita eitthvað um Jenna eru
vinsamlega beðnir að hringja í síma
40153.
Bjarkarlundi
í Bjarkarlundi, þakkir til starfs-
fólksins fyrir það.
Fullorðin hjón úr Reykjavík.
Hugulsemi
á Flúðum
Til Velvakanda.
Kær kveðja til kokksins og starfs-
fólks á Hótel Flúðum fyrir hugul-
semi og hlýhug er við gistum 7.-12.
ágúst. Lifið heil.
Tvær áttræðar.
Þakstál með stíl
Plannja Jl þakstál
Aðrir helstu sölu- og
þjónustuaðilar:
Blikksmiðjan Funi sf, Kópavogi,
sími 78733.
Blikkrás hf, Akureyri,
sími 96-26524.
Vélaverkstæði Bjöms og Kristjáns,
Reyðarfirði, sími 97-41271.
Vélaverkstæðið Þór,
Vestmannaeyjum, simi 98-12111
Hjá okkurfærðu allar
nýjustu gerðir hins vinsæla
og vandaða þakstáls
fiA Plannja. Urval lita
og mynstra, m.a. Plannja
jjakstál með mattri litaáferð,
svartri eða tígulrauðri.
ISVÖn HF.
Smiöjuveg 4e, 200 Kópavogur.
Póstbox: 435,202 Kópavogur.
S: 91-67 04 55, Fax: 67 04 67
Aukin þjónusta vlö helmili
og stofnanlr.
Ef hreinsa þarf gluggatjöld
kemur Fönn til hjálpar. Viö
komum og tökum gluggatjöldin
niöur, hreinsum þau og setjum
þau upp aftur - slétt, falleg og
í jafnri sídd.
Skeifunni 11, sími 82220
Pol — þakmálning
Þekur, verndar og fegrar
Þarftu að mála þakið? Þá vantar þig Þol
þakmálningu frá Málningu hf. Hún er
sérstaklega framleidd fyrir bárujám
og aðra utanhússfleti sem
þarfnast varanlegrar vamar.
Pol er hálfgljáandi alkýð-
málning sem er auðveld í
notkun. í>ol þakmálningin dregur nafn af
einstöku veðrunarþoli sínu og litaúrvalið er
fjölbreytt. Þol þakmálningin frá
Málningu hf. er punktur-
inn yfir vel málað' hús. —
Það segir sig sjálft.
Jmálninghlf
Næst þegar þú sérð fallega málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er — það segir sig sjdlft —