Morgunblaðið - 21.08.1990, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990
íslandsmót í hestaíþróttum í Borgarnesi:
Enn á ný er norskt
strandhögg í töltinu
Borghildur Kristinsdóttir sigraði í fimmgangi og tölti ungmenna,
hér situr hún Hlekk frá Sveinatungu í töltkeppninni.
__________Hestar_______________
Valdimar Kristinsson
ÞAÐ var fyrir átta árum að
norsk stúlka, Olil Amble, skaut
íslenskum reiðsnillingum aftur
fyrir sig í töltkeppninni á ís-
landsmótinu þá. Nú hefur sagan
endurtekið sig á íslandsmótinu
sem haldið var á félagssvæði
Skugga í Borgarnesi um helg-
ina. Var það Unn Kroghen hin
norska sem sigraði í töltinu að
þessu sinni á Kraka frá Helga-
stöðum en töltmeistaratitillinn
er án efa eftirsóttasti titillinn á
íslandsmótunum.
Frammistaða Unn á mótinu var
mjög góð en hún sigraði einnig í
fjórgangi og íslenskri tvíkeppni.
Hestur hennar Kraki stóð annar í
B-flokki gæðinga á Landsmótinu
í sumar en hann hefur vakið mikla
athygli fyrir svifmikið brokk og
fallegan hvítan lit. Samspil þeirra
er með miklum ágætum og fer
ekki milli mála að Unn er með
alsnjöllustu reiðmönnum því Kraki
er langt í frá að vera auðveldur
hestur.
Sigurbjörn Bárðarson varð lang
stigahæstur keppenda að venju og
virðist enginn eiga möguleika á
að ógna veldi hans í stigakeppn-
" inni. Reyndar má segja að oft hafi
gengið betur hjá Sigurbimi á þess-
um mótum en nú sem sýnir best
að keppnin fer stöðugt harðnandi
og sífellt fleiri bætast í þann hóp
sem berst um verðlaunin.
Af öðrum keppendum mætti
geta systranna frá Skarði Borg-
hildar og Sigríðar Theódóru Krist-
insdætra en þær voru mjög sigur-
sælar í sínum aldursflokkum. Þá
var Reynir Aðalsteinsson sonur
Aðalsteins Aðalsteinssonar
tvímælalaust maður unglinga-
flokksins en hann sigraði í öllum
greinum sem hann tók þátt í.
Reyndar fannst mörgum ósann-
gjörn úrslit í fjórgangi unglinga
** þar sem Gríma Sóley Grímsdóttir
var sett í annað sæti. Var það álit
margra brekkudómara að hún
væri hinn ótvíræði sigurvegari, en
enn einu sinni urðu brekkudómarar
að láta í minni pokann fyrir þessum
me_ð skírteinin.
í fullorðinsflokki virtust hestar
koma vel fyrir í bæði fjór- og fimm:
gangi enda einkunnir háar þar. I
töltinu voru sýningar ekki eins
góðar í heildina. Sýningar hjá
yngstu krökkunum voru góðar og
var stórskemmtilegt að fylgjast
með þeim í úrslitunum. Þetta end-
urspeglar tvímælalaust framfarir í
reiðmennsku.
Að venju voru dómararnir eilítið
milli tannanna á fólki og það
kannski ekki að ósekju. Án þess
að hér sé felldur nokkur dómur
um ágæti þeirra, þá er það stað-
reynd að sérstaklega í úrslitunum
bar ansi oft á hróplegu ósamræmi
milli þeirra og svo geta menn deilt
um hvort það sé allt í lagi. Þá
vakti það furðu og hneykslan
margra að tveir dómarar skiptu
með sér verkum í töltkeppninni,
þannig að báðir tóku þátt í henni
auk þess að dæma. Hér er ekki
verið að fordæma þessa ágætu
menn sem hlut áttu að máli heldur
hinu að í fyrsta lagi er hart _að
þurfa að hafa þennan hátt á á ís-
landsmóti og hinu að vera yfirleitt
að skipta um dómara í einni keppn-
isgrein. Er þetta vegna skorts á
fölum dómurum til þessara starfa
eða er einhver önnur ástæða fyrir
þessu neyðarfyrirkómulagi?
Metþátttaka var í íslandsmótinu
að þessu sinni og er þetta nú orð-
ið fjögurra daga mót í stað þriggja
áður. Veldur þar mestu tilkoma
ungmennaflokksins sem _nú var
keppt í í fyrsta sinn á íslands-
móti. Þrátt fyrir mikla þátttöku
gekk framkvæmd mótsins vel fyrir
sig og gekk all sæmilega að halda
tímasetningum. Ljost var þó fyrir-
fram að ekki væri hægt að halda
tímasetningar á sunnudeginum.
Ekki verður þó annað sagt en
framkvæmd á sunnudegi hafi
gengið vel fyrir sig og tókst að
ljúka mótinu á mjög skikkanlegum
tíma þar sem ríflegur tími hafði
verið áætlaður í verðlaunaafhend-
ingu. Aðstaðan á Vindási er prýði-
leg, hesthúsin alveg við vellina,
vellirnir all sæmilegir og snyrtilegt
í hvívetna. Nokkur óánægja var
meðal keppenda að umferð skyldi
lokað inn í hesthúsahverfið þar sem
bera þurfti reiðtygi langan veg að
morgni og svo aftur að kveldi.
Hefði auðveldlega verið hægt að
leysa þetta mál án stífni og leið-
inda.
Á laugardagsdagskvöldið var
haldin kvöldvaka. Var þar brotin
sú meginregla sem virðist gilda
um að kvöldvökur á hestamótum
skuli vera leiðinlegar. Öllum á
óvart reyndist kvöldvakan hin
besta skemmtan og voru keppend-
ur sjálfir með skemmtiatriði sem
soðin voru saman á staðnum og
hittu beint í rriark. Þetta er annað
árið í röð sem Borgnesingar halda
íslandsmótið, reyndar héldu þeir
það í samvinnu við fleiri aðila í
fyrra en stóðu nú einir að því að
þessu sinni. Var greinilegt að mik-
il vinna hafði verið lögð í undirbún-
ing og skipulagningu fyrir mótið.
Þetta mót er í sama gæðaflokki
og tvö síðustu mót og ljóst að
búið er að heija þessi mót á viðeig-
andi stall. Þrátt fyrir þetta virðist
erfitt að auka aðsókn að þeim.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Tíu efstu í töltinu frá vinstri: Unn og Kraki, Einar og Atgeir, Sigríður og Árvakur, Vignir og Blesi, Sævar og Kjarni, Baldvin og Kolbak-
ur, Sigurbjörn og Drangur, Jóhann og Þorri, Eiður og Hrlmnir og Erling og Snjaíl.
Að loknum úrslitum í íjórgangi barna: Sigurvegarinn Sigríður Theódóra lengst til vinstri á Vöku, Þóra
á Gammi, Steinar á Ögra, Guðmar Þór á Limbó ogíSigrxður á Skagíjörð.
Til sigurs í fjórgangi: Unn Kroghen
Qaðurmögnuðu og svifmiklu brokki.
Kraka frá Helgastöðum á
-