Morgunblaðið - 05.09.1990, Side 1

Morgunblaðið - 05.09.1990, Side 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990 BLAÐ Guðjón A. Kristj- ánsson og Krist- inn Pétursson. Viðtai 10 Sveinn Ingóifsson framkv.stjóri Skagstrendings. Aftamiðiun Leyfi til útflutn- ings á ferskum fiski. Fréttaskýring 18 Erfiðleikarí togaraútgerð frá Keflavík. ÞRÍR VÆNIR FRÁ VESTMANNAEYJUM Morgunblaðið/Sigurgeir HELGI Þór Gunuarsson, skipverji á Frá VE hampar hér golþorski, góðu sýnishorni úr aflanum, sem fékkst í troll á Víkinni. Aldrei hærra verð fyrir sjófryst flök VERÐ á sjófrystum þorsk- flökum í Englandi hefur aldrei verið hærra. Þá er verð einnig hátt á sjófryst- um flökum í Bandaríkjunum og nýlega hækkaði verð á sjófrystum ufsaflökum í Þýzkalandi. í Asíulöndum hefur verð á karfa verið hátt í ár og eftirspurn eftir grálúðu í Japan og Tævan verið meiri heldur en framboðið og verð í samræmi við það. Afkoma fiystiskipa mjög góð á þessu ári Gyða Þórðardóttir hjá Þjóðhags- stofnun sagði í samtali við blaðið í gær að ekkert benti til annars en að afkoma frystiskipanna yrði mjög góð á þessu ári. Tölur um afkomu fiskiskipa hefðu ekki verið teknar saman nýlega, en í marzmánuði hefði hreinn hagnaður verið um 9% og brúttóhagnaður 25%. í þessum útreikningum hefðu tölur frá 1989 verið framreiknaðar. Útgerðarmaður, sem rætt var við, sagði að verð á sjófrystum þorsk- og ýsuflökum hefði aldrei verið hærra í Englandi og hjálpaðist þar að eftir- spurn umfram framboð og sterk staða sterlingspundsins. „Það hafa alltaf ver- ið sveiflur í þessu og núna er sveiflan með okkur bæði í verði og gengi,“ sagði hann. Markaðir fyrir karfa hafa verið sterkir í Japan í ár og varðandi grálúðuna var á tímabili slegist um hvern farm þar sem verulegur sam- dráttur varð í grálúðuafla á þessu ári. í Tævan hafa opnast sterkir markaðir fyrir þessa fisktegund. Indriði ívarsson hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna tók í sama streng og sagði að útlitið framundan væri gott. Indriði sagði að hækkun hefði nýlega orðið á Bretlandsmarkaði og á ufsa í Þýzkalandi. Einnig fengist mjög gott verð fyrir sjófryst þorskflök í Bandaríkjunum, en lágt gengi dollars setti strik í reikninginn. Fréttir Markaðir Kvótakaupá eigin ábyrgð ■ VIÐSKIPTI með afla- kvóta smábáta gera viðkom- andi á eigin ábyrgð segir sjávarútvegsráðherra og segist harma að þau eigi sér stað. Ekki hafi verið ákveðið hvaða reglur gildi umafla- mark smábáta, en svo verði gert á næstunni./2 ---------- Greittfyrir útselíár ■ í HAUST greiðir Hring- ormanefnd 30 krónur fyrir kílóið af útsel. Einnig verður greitt sérstaklega fyrir víg- tennur og ýmis líffæri dýrs- ins. Nefndin borgar ekki fyrir landsel í ár eins og gert hefur verið undanfarin ár./3 ----♦-♦-♦- Guðbjörgu breytt í frystiskip? ■ ÁSGEIR Guðbjartsson skipstjóri á Guðbjörgu IS 46 er ósáttur með að fá ekki að sigla með aflann. Hann segist ekki sjá annað en að stjórnvöld séu að neyða þá til að að breyta Guðbjörg- inni í frystiskip./5 Vilja stækka möskvana ■ INNAN Evrópubanda- lagsins er til umræðu að stækka möskva verulega vegna vaxandi smáfiska- dráps. Sjómenn og útgerð- arraenn í Englandi mótmæla þessu harðlega. Guðni Þor- steinsson, veiðarfærasér- fræðingur, telur þessar deil- ur sýna vel muninn á fisk- veiðistjórnun hérlendis og innan EB./6 Fleiri settir í farbann ■ ÞAÐ sem af er þessu ári hefur Siglingamálastofnun sett 37 skip í farbann, eink- um smábáta og minni báta sem notaðir eru til fólks- flutninga. Er þetta veruleg aukning frá síðasta ári. Stofnunin hefur tekið upp samstarf við lögreglu, Land- helgisgæzlu og hafnaryfir- völd til að fylgjast með að reglum sé framfylgt./20 Mismikil hækkun á flökum ■ RAUNVERULEG verð- hækkun á þorskflökum á Bandaríkjamarkaði er 5% frá því á árinu 1983 og þrátt fyrir að verð sé nú það hæsta sem um getur í dollur- um vantar enn nokkuð á að það hafi náð sama raunverði og er það varð hæst 1987. Hækkun á flökum á Bret- land er hins vegar 50% mið- að við sama tíma, þegar verð á báðum stöðum er fært yfír í SDR. Mismunurinn liggur að miklu leyti í því að gengi pundsins hefur verið styrk- ara en dollarsins. Karfaverð óstöðugt ■ VERÐ á frystum karfa hefur verið óstöðugt undan- farin ár, einkum á Japans- markaði, sem er viðkvæmur fyrir breytingum á framboði. í Sovétríkjunum hefur verð verið stöðugra, en þangað er selt í dollurum og raun- hækkanir þar því minni. Gengi jensins hefur einnig hrakað siðustu vikur./ 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.