Morgunblaðið - 05.09.1990, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.09.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ VIÐTAL MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990 B 11 TOGARAR SKAGSTRENDINGS ÖRVAR var fyrsta frysti- skipið í flotanum, skipið var smíðað hjá Slippstöð- inni á Akureyri og kom til Skagastrandar árið 1982. ARNAR er hins vegar með- al elztu skuttogaranna, keyptur frá Japan árið 1973. Morgunblaðið/Snorri Snorrason HÖFÐAKAUPSTAÐUR HLAUT AÐ VERA MYIVIDARLEGUR STAÐUR Sveinn Ingólfsson er 49 ára að aldri, borinn og barnfæddur Reykvík- ingur og tilviljun réði því að hann fluttist til Skagastrandar árið 1960. Þar hefur hann búið í 30 ár og er kvæntur Helgu Jóhannesdótt- ur frá Skagaströnd og eiga þau þrjú börn, Ingólf, Jóhannes og Jó- hönnu Viktoríu. Sveinn var spurður hvers vegna Skagaströnd hefði orð- ið fyrir valinu. „Eftir að ég útskrifaðist úr Samvinnuskólanum vorið 1960 fór ég á síld um sumarið og svo var hugmyndin að fara í siglingar. Ég og félagi minn þurftum að bíða eftir plássi, en vorum orðnir leiðir á biðinni og 20. október fannst okkur nóg komið. Þá stakk einhver bráðfyndinn maður upp á því að við færum að kenna. Okkur fannst þetta í rauninni fráleit hugmynd, en við löbbuðum samt niður á Fræðsluskrifstofu, meira í gamni en alvöru. Svo fór þó að tveimur dögum seinna vorum við komnir norður, hann á Hvammstanga og ég á Skagaströnd. Ég mundi það úr gömlu landafræðinni úr barnaskóla að kaupstaðir voru allir með 2.000 íbúa eða meira að Seyðisfirði undanskildum. Ég sá nafnið Höfðakaupstaður á landakortinu og pláss með slíkt nafn hlaut að vera myndarlegur staður með minnst 2 þúsund íbúa. Þar með var teningunum kastað. Ég kenndi á Skagaströnd í þrjú ár og fór svo í tveggja ára nám í Kennaraskólanum og lauk kennaraprófi. Síðan ' var ég við kennslu til 1975, samhliða útgerðinni sex síð- ustu árin, en þá var þetta orðið of mikið og ég hætti að kenna. Ég er svo heppinn að hvorki kennslan né útgerðin er í rauninni nokkurt starf, það er svo gaman að þessu.“ Sveinn hefur komið víða við á Skagaströnd, verið í hreppsnefnd sem oddviti í 8 ár, tekið þátt í starfi Sjálfstæð- isflokksins á Norðurlandi vestra, verið formaður Ung- mennafélagsins Fram og fleira mætti nefna. Hann hefur ekki mörg orð um það, segir aðeins að á litlum stað eins og Skagaströnd sé reynt að nýta þá sem nenni og vilji láta_bera á sér. „Ég hef hins vegar sagt það til gamans, að ég hef ekki f'engið þær stöður á Skagaströnd, sem ég hef sótt um. Ég ætlaði að verða skólastjóri en Gylfi Þ. taldi mig ekki hæfan og ég ætlaði í frystihúsið en var hafnað. Svo fæ ég yfirleitt það sem ég vil ekki eða ætla mér ekki,“ segir Sveinn Ingólfsson tíðina.“ — Ekki hefur frystiskipið skapað atvinnu heimafyrir eins og stefnan var með stofnun fyrirtækisins í upp- hafi. „Það er alls ekki rétt því um 40 fjölskyldur hafa lifibrauð af þessu skipi og útgerð Örvars hefur gífur- lega þýðingu fyrir staðinn. .Skattar og skyldur renna til Skagastrandar og við hjá fyrirtækinu borgum yfir 50% af öllum útsvörum og aðstöðu- gjöldum hreppsins. Stöðugildin hjá fyrirtækinu eru þó ekki nema 57 ef við mælum í heils árs störfum, en miklu fleiri eru við þetta. 24 skipveijar eru á Örvari hverju sinni, en skipt er um 10-12 menn í áhöfn- inni eftir hvern túr. Á Arnari eru ekki nema 13 manns núna, en þar eru í raun 18 manns fastir. — Skagstrendingur hefur undan- farin ár verið eitt þeirra fyrirtækja, sem greiða hvað hæst laun að með- altali. „Það helgast náttúrulega af því að hjá fyrirtækinu eru nánast ein- göngu sjómenn. Ekki nema 4-6 manns í landi, sem sjá um veiðar- færi og skrifstofu. Frystiskipin voru umdeild á sínum tíma, m.a. vegna sjónarmiða um að þau sköpuðu ekki atvinnu í landi, en þau hafa sannað gildi sitt og fært mönnum miklar tekjur. Við eigum ekki alltaf að vera að skapa láglaunastörf og við erum stoltir yfir því að geta boðið störf, sem eru vel launuð.“ — Og framkvæmdastjórinn er skattakóngur Norðurlands vestra. „Það er svo sem rétt, en líka at- hyglisvert að skattakóngur þessa umdæmis kæmist ekki á blað í öðr- um skattaumdæmum." Að eyða hundruðum milljóna króna til að spara nokkrar — í kjölfar olíuverðshækkunar síðustu vikur hafa vaknað spurning- ar um aukna olíunotkun á fiskiskipa- flotanum síðustu tvo áratugi. Hafa útgerðarmenn verið nægilega vak- andi í þessum efnum? „Ég held tvímælalaust að svo sé og hvað okkur varðar hjá Skag- strendingi þá fylgjumst við mjög nákvæmlega með olíunotkuninni og reynum að finna leiðir til sparnaðar. Ég get nefnt lítið dæmi. Ef skip- stjóri kemur inn klukkan- 6 að morgni, en löndun á ekki að hefjast fyrr en klukkan 7 fær hann ákúrur fyrir að hafa ekki siglt svo sem hálfri mílu hægar á heimstíminu til að spara olíu. Frá því að við hófum útgerð togaranna höfum við skráð nákvæmlega verð olíu og notkun um borð í skipunum. Á sínum tíma fóru átta af Japans- togurunum í vélaskipti og lengingu og nýju vélarnar brenna 20% minna af olíu þannig að því fylgdi sparnað- ur í rekstri. Við höfðum hins vegar ekki áhuga á svo viðamiklum breyt- ingum og þegar á heildina er litið sé ég ekki gróðann af þessu. Vélin og skipið sjálft eru í góðu lagi og Arnari hefur verið vel við haldið. Það var enginn tilgangur i því að stækka skipið og auka afkastagetu þess því frystihúsið annar ekki meiri afla í einu en nú berst. Eðlileg afköst í húsinu eru 20 tonn á dag og þó þeir hafi farið upp í 30 tonn þá er það ekki eftirsóknarvert og aðeins vinnsla í ódýrustu pakkning- ar.' Það kostar yfir 200 millljónir að skipta um vél í skipinu og lengja það og það þarf dágóða olíuhækkun til að mæta því. Hins vegar hagnast þeir útgerðarmenn sem fóru út í þessar breytingar ef olíuverð heldur áfram að hækka og verðið verður hátt áfram. Fyrir nokkrum árum sá ég ekki hagnaðifin af því að eyða hundruðum milljóna til að spara 4-5 milljónir." — Nú er Arnar tæplega 20 ára gamalt skip, hafið þið hugað að endurnýjun? „Við fylgjumst vel með og ef upp i hendur okkar koma góð tækifæri þá erum við reiðubúnir, en það er ekki á döfinni hjá okkur að láta smíða nýtt skip. Áhöfnin á Arnari hefur nær alltaf verið frá Skaga- strönd og skipveijar hafa hugsað um þennan vinnustað eins og hann væri þeirra eign. Við höfum á móti reynt að hafa aðbúnað eins góðan og við höfum framast getað, t.d. var útvarp og segulband í hveijum klefa frá upphafi, sem þá var óþekkt. Einnig voru sett myndbandstæki um borð í Arnar á undan öðrum skipum. Skagstrendingur varð fyrsta fyrir- tækið til að setja björgunarbúninga í skipin og ég vil nefna að skipveij- ar hafa fengið viðurkenningar fyrir að standa í fararbroddi í björgunar- málum.Við höfum reynt að iauna mannskapnum góða umgengni' og haldið skipinu vel við.“ — Hvernig gengur áð halda jafn- vægi á milli áhafna' á annars vegar einum af elstu ísfisktogurunum og hins vegar frystiskipinu, sem er eitt af tekjuhæstu skipunum í flotanum? „Skipveijar á Árnari eru 13, en ekki 15 eins og algengast er á skut- togurunum. Þessir tveir hlutir sem munar renna beint til mannanna sjálfra. Eftir að hinum Japanstogur- unum var breytt höfum við borgað 10% meira fyrir aflann og réttlætum það með því að við höfum ekki farið út í þessar kostnaðarsömu breytingar. Þá settum við frystitæki í Arnar og heilfrystum allan undir- málsfisk þannig að fyrir hann fást um 65 krónur fyrir kilóið í staðinn fyrir 10 krónur þegar fiskurinn fer til frystihússins. Það munar um slíkt þegar allt að 10 tonnum af smáfiski eru fryst í hveijum túr. Ég held ég geti sagt að okkur hafi tekizt bæri- lega að ná jafnvægi milli Arnars og Öt-vars og á skipunum hefur nánast verið sami mannskapur síðan Örvar kom.“ Marska á réttri leið Skagstrendingur á fyrirtækið Marska á Skagaströnd. Undanfarna mánuði hefur Marska framleitt salt- fiskrúllur fyrir Frakklandsmarkað í samvinnu við Sölusamband ís- lenzkra fiskframleiðenda. Ráða- rnenn fyrirtækisins gera sér vonir um að með þeirri framleiðslu séu bjartari tímar framundan eftir nokkra erfiðleika undanfarin ár. Marska hefur í ár framleitt og selt 20 tonn af saltfiskrúllum til Frakk- lands og fást um 300 krónur fyrir kílóið. Búið er að semja um sölu á 40 tonnum til viðbótar sem fram- leidd verða það sem eftir er ársins og er þá núverandi framleiðslugeta fyrirtækisins fullnýtt. Utlit er fyrir að auka megi söluna til Frakklands á næsta ári og Sveinn Ingólfsson segir að mjög spennandi markaður sé í Barcelona og víðar á Spáni fyrir þessa vöru. Selt á hærra verði en aðrir Skagstrendingur hefur alla tíð verið utan sölusamtaka í sjávarút- vegi og flutt þann fisk sem frystur hefur verið um borð í Örvari til Englands í samvinnu við Asiaco. Sveinn Ingólfsson var spurður um ástæður þessa. „Við vorum ekki spenntir fyrir að selja í gegnum Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna eða Sjávarafurðadeild Sambandsins auk þess sem menn þar virtust ekki bjartsýnir á að þetta gengi. Isfiskurinn okkar fer beint til frystihússins og við höfum ekkert með söluna á honum að gera. Þegar við byijuðum með frystitogarann fórum við Kjartan Jóhannsson í Asíufélaginu til Eng- lands til að leita að fyrirtæki til að selja fyrir okkur. Eftir að hafa rætt við 10 fyrirtæki völdum við lítið, traust fyrirtæki, sem hafði meðal annars verslað við Norðmenn og þeir áttu reyndar hlut í fyrirtækinu. Samstarfið við þetta fyrirtæki hefur gengið mjög vel og við höfum nán- ast selt öll okkar flök þangað.“ SH var reyndar tilbúin að selja fyrir okkur og vildi borga 5% flatt ofan á verðið til frystihúsanna. Við þökkuðum þeim áhugann og ákváð- um að taka ekki tilboði þeirra. Ári seinna sendu þeir mér skilaboð, töluðu ekki við mig sjálfir, um að þeir skyldu borga okkur 10% hærra verð. Ég sinnti þessu að sjálfsögðu ekki því við vorum þá að selja fyrir 13% hærra verð. Okkur hefur tekist að afla okkur mikillar reynsiu og erum ineð frábæran mannskap, skipstjóra og alla áhöfn. Það er stað- reynd að okkar vara er seld á hærra verði en annarra. Nemendur í Tækniskólanum gerðu í fyrravor könnun miðað við árið 1988 á verði fyrir sjófryst flök á Bretlandsmark- aði. Niðurstöðurnar sýna ótvírætt að við höfum hagnast verulega á því að vera sjálfstæðir og það bygg- ist á því að við erum með vandaða og góða vöru. Þijú skip voru í þess- ari könnun, sem er trúnaðarmál, eitt Sambandsskip og eitt skip frá SH-fyrirtæki auk Öi-vars.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.