Morgunblaðið - 05.09.1990, Blaðsíða 15
5 * ' : ' ' 7 7 ’í : ‘ '
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990
B 15
Kappsmál að
koma trollinu
aftur í sjóinn
ÍSAFIRÐI - „ÞAÐ ERU mikil verðmæti í húfi og kappsmál
allra að koma trollinu aftur í sjóinn,“ sagði Valgeir Jónasson yfirvél-
stjóri á skuttogaranum Bessa frá Súðavík. Hann ásamt öðrum véla-
mönnum og skipverjum skipsins gerðu við alvarlega bilun á aðalvél
fyir rúmri viku á meðan skipið rak fyrir veðrum og vindi.
„Ég varð var við einhvern skark-
ala, en hélt fyrst að verið væri að
draga bobbinga eða eitthvað annað
til á dekkinu, fór samt að svipast
um og sá þá að leguhús
sem heldur utanum
endann á kambásnum
hafði losnað. Það var
ekki um annað að gera
en drepa á vélinni með
neyðarstoppinu. Við
fyrstu skoðun kom í ljós
að boltamir sem halda
lúgunni höfðu hrein-
lega sprautast út á
gólf. Við opnuðum fleiri
lúgur og sáum að tann-
hjól í tímahjóli milli
sveifaráss og kambáss
höfðu brotnað svo og
tannkrans á sveifarási
sem drífur kælidæluna
við aðalvél.
Skipið er byggt samkvæmt flokk-
unarreglum Norsk Veritas og'þar
eru gerðar kröfur um að ákveðinn
varahlutalager sé til um borð. Auk
þess er skipið með mjög vel búið
vélaverkstæði og þegar tilmæli
komu um það úr landi að gera við
ef þess væri kostur, taldi ég fulla
ástæðu til að reyna enda var ekki
að sjá að um aðrar skemmdir væri
að ræða. Ég áætlaði að vinnan
tæki 15—20 tíma, en þótt allir
héldu sig vel að verki þá fóru samt
í þetta um 40 tímar. Það þurfti að
rífa nokkuð mikið aftan af vélinni
til að komast að þessu, síðan að
ná tannkrönsunum af sveifarásun-
um, en til þess þarf að snúa sveifar-
ásnum í áföngum. Við höfðum ekki
nema eitt tímahjól, svo við létum
það við kambásinn, en útbjuggum
svo kælivatnsdælingu með raf-
magnsdælu sem við höfðum í véla-
rúminu. Það tafði auðvitað fyrir að
skipið valt allan tímann, þó fannst
mér alveg ótrúlegt hvað það var
stöðugt, því í um hálfan sólarhring
voru um 8 vindstig á þessum slóð-
um.“
Vélin í Bessa er 3.600 hestafla
MAK frá Þýskalandi og því ekkert
léttaverk að meðhöndla varahlut-
ina. Á meðan gert var við rak skip-
ið 74 mílur yfir dýpsta álinn milli
íslands og Grænlands og var farið
að giynnast Grænlandsmegin þegar
vélin komst í gang. Aðspurðui'
sagði yalgeir að hann og 1. vél-
stjóri, Ólafur Prebenson, hefðu sof-
ið uppundir 6 tíma hvor á meðan á
viðgerðinni stóð.
Valgeir með yngsta soninn Svein Inga.
Vinyl glófinn
- og aðrar gerðir
Sími 11520 - 12200
Póstur og sími selur aðeins það besta og
vandaðasta og er jafnframt ávallt til taks
þegar þú þarft á þjónustu að halda. Nýi
farsíminn og myndsenditækin frá Pósti og
síma eru frábrugðin öðrum tækjum, bæði í
útliti og tæknilegum eiginleikum og svo er
verðið alveg ótrúlegt.
CETELCO er farsími sem með ótal
Samkvcemt gengi’ 20.04/90
nýjungum sannar yfirburði sína á flestum
sviðum. CETELCO farsímann er einnig
hægt að nota sem venjulegan borðsíma.
NEFAX myndsenditækin fást í tveimur
mismunandi stærðum og bjóða upp á
fjölmarga tæknilega möguleika sem flest
önnur myndsenditæki geta ekki státað af
eins og innbyggðum símsvara.
Komdu og kynntu þér þessi harðskeyttu
hörkutól nánar. Pað á margt eftir að koma
þér á óvart.
PÓSTUR OG SÍMI
Póst- og símstöðvar um land allt og söludeildir
Kringlunni, Kirkjustræti og Ármúla 27
Ný hörhutól
með traustan
bukhjorl
íslenskar
notendaleiðbeiningar
íslenskur
texti á skjá
íslenskur
texti á lyklaborði
myndsenditækja
Farsími:
Verð frá 113.402 kr. stgr.*
Nefax:
Verð frá 99.703 kr. stgr.*