Morgunblaðið - 05.09.1990, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.09.1990, Blaðsíða 20
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990 Farbann sett á 37 báta á árinu ÞAÐ sem af er þessu ári hefur Sigl- ingamálastofnun ríkisins sett 37 báta og skip í farbann þar sem þau hafa ekki verið skoðuð á tilsettum tíma og fengið haffærisskírteini. Allt síðasta ár setti Siglingamála- stofnun samtals 24 skip í slíkt bann. Einkum eru það trillur og minni bátar, sem uppfylla ekki kröfur stofnunarinnar. „Við höfum í vaxandi mæli þurft að beita harkalegum aðgerðum og með aukinni notkun smábáta hafa verið aukin brögð að því, að menn sinni ekki skoðunarskyldu," sagði Roð af hlýra og steinbít f rá Flateyri AÐ VERKA steinbítsroð og nota í tízkuvarning er ekki ný hugmynd og m.a. var roð af steinbít og hlýra flutt út frá Flateyri á árunum fyrir seinna stríð. Frá því var greint fyrir nokkru, að framleiðsla á hafmeyjarbolum, axlaböndum og kúrekastígvélum úr fiskroði væri ýmist hafin í Bandaríkj- unum eða á teikniborði tískuhönnuða. *l-15 dollarar eiga að fást fyrir gott fiskroð. Ebeneser Ásgeirsson, forstjóri í Reykjavík, starfaði sem ungur maður í frystihúsinu á Flateyri og um 1938-1939 var gerð tilraun til að taka roð af hlýra og steinbít og flytja út. Frumkvöðull að þessum útflutningi var Elínmundur Ólafsson, kaupmaður í Reykjavík. Því miður hefði þetta endað þannig að mikið af roðinu hefði orðið eftir á Flateyri og sterk lyktin verið tízkufrömuðum erfið viðureign- ar. Magnús Jóhannesson, siglingamála- stjóri. Ein ástæða þessa kann að vera sú að á minni bátum þarf ekki að lög- skrá skipveija. Ekki er skráð á bát, sem ekki hefur haffærisskírteini og eru stærri bátar því yfirleitt færðir til skoðunar. „Til að fylgjast með því hvort bátar eru á sjó án þess að hafa verið skoðað- ir og fengið haffærisskírteini höfum við í æ ríkari mæli snúið okkur til Landhelgisgæzlu og lögregluyfir- valda. Bæði lögregla og hafnarstarfs- menn hafa ríkar skyldur í þessum efnum samkvæmt lögum um eftirlit með skipum. Auðvitað er það ærið verkefni að fylgjast með öllum bátum, sem gerðir eru út, en í fyrra voru 2.700 skip skráð í flotanum. Það er hins vegar of mikið í húfi til að menn séu skeytingarlausir um eigið öryggi og annarra. Þá hafa fólksflutningar á minni skipum einnig færst í vöxt á síðustu árum og því miður hefur orðið nokkur misbrestur á að eigendur þeirra upp- fylli allar kröfur, sem gerðar eru til báta sem notaðir eru til fólksflutn- inga. Það sem af er þessu ári höfum við þurft að stöðva þrjá slíka báta tímabundið,“ sagði Magnús Jóhannes- son. HNÍSA Á STEINI fSAFJÖRÐUR - EKKI ER VITAÐ hvað varð þessari ungu hnísu að aldurtila, en ferðamaður á Ieið um Hestfjarðarbotn við fsaljarðardjúp kom henni fyrir á steini í fjörunni. Kannski var hugmyndin að draga athyglina frá vel grónuin hliðum fjarðarins þar sem fólk hamaðist við að tína aðalbláber. Samkvæmt nýjustu skilgreiningu innheimtumanna, er slík iðja virðisaukaskattskyld samkvæmt bókstafnum. FOLK Starfa hjá Unipeche ■ TVÆR íslenskar stúlkur starfa nú hjá franska umboðs- og uppboðsfyrirtækinu Unipeche í Boulogne-sur- Mer í Frakklandi en það hef- ur séð um sölur á íslenskum gámafiski á markaðnum þar. Heita þær Rannveig Sigur- geirsdóttir og Elísabet Oskarsdóttir og störfuðu áð- ur báðar að útflutningsmálum hér heima. Saltnesið í Höfðaborg ■ SALTNESIÐ, flutn- ingaskip Nesskipa hf., var ígærvæntanlegttil Höfðaborgar í Suður-Afr- íku á leið til Ástralíu, en ferðin hófst í Noregi. Skipið hélt frá Noregi 5. ágúst og hefur því verið um réttan mánuð á leið- inni, þegar það kemur til Höfðaborgar. Undir næstu ínánaðamót er áætlað að skipið verði komið til Ad- elaide í Ástralíu og 4. októ- ber verði það í Kembla í sömu álfu. Skipstjóri á Saltnesinu er Gunnar Magnússon. ■ ÍSKÝRSLU, sem forsæt- isráðherra lagði fyrir Alþingi í vor, um fjárfestingar erlendra aðila hérlendis, kom fram, að útlendingar áttu þá verulega eignaraðild að tveimur fisk- vinnslufyrirtækjum, íslensk- um gæðafiski hf. og Sjóvík hf. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var það fyrir- tækið SIBA, sem átti 45% hlutafjár í Sjóvík og vakti það fyrir eigendum þess að koma inn skipi til veiða hér við land. Það reyndist hins vegar óger- legt og var fyrirtækinu slitið fyrir 3-4 mánuðum. Stofnar fyrirtæki í ■ INGÓLFUR Skúlason hefur nú stofnað eigið fyrir- tæki, Black Tiger Seafoods Ltd., í Bretlandi. Ingólfur var um nokkurt skeið fram- kvæmdastjóri Icelandic Freezing Plants Ltd. í Grimsby, dótturfyrirtækis Sölumiðstöðvar hraðfi-ysti- húsanna. Fyrirtæki Ingólfs leggur megináherzlu á verzlun með heitsjávarrækju, en stundar einnig ýmsa aðra verzlun með fisk og fiskafurðir. Afurðirnar eru keyptar frá Asíulöndum svo og fiskveiðiþjóðum við Norður-Atlantshafið og seldar í Bretlandi og víðar. Framleiðsla á rækju á vegum fyrirtækis Ingólfs og annars brezks, Bluewater Seafood, mun hefjast innan fárra vikna. Verður þar um að ræða laus- frystingu og suðu og verður hlutverk Black Tiger Sea- food meðal annars að sjá um markaðsmálin, en Bluewater sér um vinnsluna. Ari tekur við starf i Elvars ■ ARI Þorsteinsson, sjávar- útvegsverkfræðingur, hefur verið ráðinn forstöðumaður sjávarafurðasviðs KASK á Höfn í Hornafirði. Ari tekur við starfinu af Elvari Einars- syni, sem nú hefur verið ráð- inn til Iceland Seafood Corp., dótturfyrirtækis Sam- bandsins í Bandaríkjunum. Ari Þorsteinsson er 32 ára, sj ávarútvegsverkfræðingur frá Háskólanum í Álaborg í Danmörku. Hann hóf störf hjá KASK að loknu námi fyrir um þremur árum og hefur síð- an verið deildarstjóri þróun- ardeildar. Ari Elvar Þorsteinsson Einarsson Elvar Einarsson er 30 ára, útgerðartæknir að mennt og hefur verið forstöðumaður sjávarafurðasviðs KASK í 5 ár. Þar áður var hann fram- leiðslustjóri Hraðfrystihúss Eyrarbakka. HSKMARKAflURINNHF. VIÐ FORNUBUÐIR • POSTH 383 • 222 HAFNARFIROI SIMI 651888 • TELEX 3000 ..Fiskur Fiskmarkaðurinn í Hafnarfirði hefur til umráða nýlegt 4.000 fm markaðshús við Óseyrarbryggju í Hafnarfirði, sem er í góðum tengslum við umferðaæðar á sjó og landi. Veitum seljendum og kaupendum lipra og góða þjónustu. Verið velkomin og reynið þjónustuna! STARFSMENN FMH.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.