Morgunblaðið - 05.09.1990, Blaðsíða 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐTAL MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990
HÖHIM HAGNAST
VERULEGA Á ÞVÍ AÐ
VERA SJÁLFSTÆÐIR
Rætt við Svein Ingólfsson
ft’amkvæmdastjóra Skagstrendings
á Skagaströnd
EFTIR mögur ár og erfiðleika í atvinnulífi á
Skagaströnd var lyft Grettistaki með stofnun
útgerðarfélagsins Skagstrendings hf. fyrir
rúmum 20 árum. Maðurinn á bak við stofnun
þessa fyrirtækis var barnakennari á staðnum,
Sveinn Ingólfsson. Sveinn og samstarfsmenn
hans hjá Skagstrendingi hafa ekki alltaf farið
troðnar slóðir, en árangurinn verið góður og
fyrirtækið hefur vaxið með hverju árinu. Hann
telur að fækka beri fyrirtækjum í sjávarútvegi
verulega og að kvótakerfið sé smám saman
að skila aukinni hagræðingu. Sveinn er ekki
í nokkrum vafa um að sjálfstæði Skagstrend-
ings í sölu afurða og flutningum hafi skilað
fyrirtækinu miklu og hann þakkar sínum sæla
fyrir að hafa ekki alltaf farið að ráðum sér-
fræðinga.
Margar tilraunir höfðu verið
gerðar til að treysta undir
stöður atvinnulífs á Skagaströnd en
með litlum árangri og þar var við-
varandi atvinnuleysi
eftir eins og Sveinn Ing-
Ágúst Inga ólfsson orðar það.
Jónsson Nokkrir minni bátar
vom gerðir út frá
staðnum, en þeir lönduðu ekki heima
nema í 2-3 mánuði á haustin. Þá
voru þeir á línu fyrir Norðurlandi.
Annars var það síldin fyrir austan
á sumrin og vertíð, yfirleitt frá
Grindavík, á útmánuðum. Veturinn
1965 taldi Sveinn 102 Skagstrend-
inga við vinnu á vertíð í Grindavík
og mest af verbúðahúsnæðinu, sem
boðið var upp á var hreinasta hörm-
ung eins og Sveinn orðar það.
„Ég var oddviti á Skagaströnd
1968 og fékk umboð hreppsnefndar
til að kanna hug manna til stofnun-
ar útgerðarfélags á staðnum," segir
Sveinn Ingólfsson. „Undirbúnings-
nefnd var stofnuð og við sem í
henni vorum skiptum heimilum á
Skagaströnd á milli okkar og geng-
um hús úr húsi til að safna hlutafé.
Nánast hver einasta fjölskylda á
staðnum „gaf“ í þetta, eins og það
var orðað, og stofnfundur Skag-
strendings hf. var haldinn í desemb-
ermánuði 1968. Árangurinn af
hlutaflársöfnun heima fyrir varð sá
að við höfðum um helming upp í
útborgun á 200 tonna síldarbát, sem
hét Arnar og við höfum haldið því
nafni á skipum okkar. Frá upphafi
var ætlun okkar að gera skipið út
að heiman og efla atvinnulíf á staðn-
um.
Útgerðin gekk vel og tæpum
tveimur árum seinna, á annan jóla-
dag 1970, bættist annar togbátur
við, Örvar, sem við keyptum þriggja
ára gamlan í Noregi. Þá var búið
að ganga frá kaupum á notuðum
skuttogurum til Neskaupstaðar,
Eskiijarðar og Sauðárkróks, en við
höfðum mikinn hug á að láta smíða
fyrir okkur skuttogara hérlendis.
Þegar verðið var hins vegar komið
upp í 55 milljónir hjá Slippstöðinni
h.f. á Akureyri var gjörsamlega úti-
lokað að við réðum við það.
í desember 1972 skrifuðum við
undir samning um kaup á japönsk-
um togara, einum af 10_ togurum
sem smíðaðir voru fyrir íslendinga
í Japan. Við áttum reyndar ekki að
fá togara. Við þóttum of litlir. Tog-
arinn Arnar kom til Skagastrandar
árið 1973 og þá má segja að við
höfum verið búnir að ná þeim mark-
miðum að tryggja vinnu á Skaga-
strönd allan ársins hring.“
Stoltir yfir því að geta
boðið vel launuð störf
Áður voru tvö frystihús á Skaga-
strönd, annað í eigu kaupfélagsins,
en hitt í eigu einstaklinga. Bæði
höfðu átt í rekstrarerfiðleikum. Hús-
in voru síðar sameinuð í hraðfrysti-
húsinu Hólanesi og kaupfélagið
hætti rekstri á Skagaströnd. Hóla-
nes er um 40 ára gamalt fyrirtæki
og er í eigu einstaklinga og hrepps-
félagsins, sem á 40% hlutaijár.
Höfðahreppur á einnig 40% í Skag-
strendingi.
Fyrir 30 árum, árið 1960, voru
630 íbúar á Skagaströnd. í árslok
1968 þegar Skagstrendingur var
stofnaður var íbúatalan komin niður
í 501. Með komu fyrsta Arnars til
Skagastrandar ijölgaði strax um 50
manns á staðnum. Fjölgun hefur
ekki orðið ýkja mikil síðan, en nú
búa um 700 manns á Skagaströnd.
— Með ísfisktogaranum voruð
þið búnir að tryggja örugga atvinnu
í landi, en síðan varð stórt stökk
þegar frystiskipið kom tíu árum síð-
ar.
„Útgerð Arnars hafði gengið
ágætlega og við vorum farnir að
tala um að láta smíða nýtt skip sem
legði upp hjá frystihúsinu. Þá kom
í ljós að frystihúsið fékk ekki leyfi
til að stækka við sig. Því var farið
að athuga með aðrar leiðir og niður-
staðan varð sú að láta nýja skipið
frysta aflann um borð. Örvar var
smíðaður á Akureyri og kom til
Skagastrandar í apríl 1982 og var
fyrsta frystiskipið i flotanum.
Við vorum svo heppnir að taka
ekki mark á sérfræðingunum þegar
við keyptum frystiskipið. Fyrirtækið
tók lán í svissneskum frönkum en
ekki í dollurum eins og sérfræðingar
Landsbankans ráðlögðu okkur. Okk-
ur hefur lærst að setja spurningar-
merki við ráð sérfræðinga í gegnum
Sveinn Ingólfsson hugar að trollinu um borð í Arnari HU 1.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson