Morgunblaðið - 05.09.1990, Síða 16

Morgunblaðið - 05.09.1990, Síða 16
\góf cnftgjr r g 16 Ef MORGUNBLAÐIÐ MARKAÐIR MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1990 Fiskverö ytra kr/kg Meira var selt af þorski í gámum á Bretlandi í síöustu viku en úr skipum. Hins vegar fékkst minna fyrir gáma- fiskinn, en meöalverö var 131,16 kr/kg á móti 135 kr/kg úr skipum. ; Fiskverö á Bretlandi hefur nú lækkaö nokkuö eftir aö hámarkinu var náö fyrir skömmu. Jafnvægi er aö nást milli framboös og eftirspurnar. LOÐIMULÝSI Fiskskortur hækkar verð á mörkuðunum SKORTUR á öllum fisktegundum einnkennir nú verð á fiski á íslenzku uppboðsmörkuðunum. Þorskverð hefur hæst farið hér heima í 135 krónur kílóið og virðist sem ábati fískverkenda á markaðssvæðunum vegna hækkunar á afurðaverði erlendis fari allur í samkeppnina um fiskinn á suðvesturhorni landsins. Fiskur kemur mjög víða að á markaðina, mikið frá Snæfellsnesi, einnig frá Barðaströnd og sunnanverð- um Vestfjörðum með tilkomu hins nýja Baldurs og jafnvel frá Djúpuvík á Ströndum. Bæði kaupendur og seljendur eru þeirrar skoðunar, að verðið sé í raun of hátt og verði engum til góðs, haldist það hátt áfram. Telja menn að um 80 krónur sé það, sem fiskverkendur ráði við með þokka- legu móti. Upplýsingar um framboð berast seint Ólafur E. Ólafsson, verkstjóri á Faxamarkaðnum, segir að nú ( vanti allar fisktegundir. Líklega valdi þar mestu léleg aflabrögð og eins það, að margir togarar hafi farið í klössun í upphafi ágústmánaðar og séu ekki farnir að skla sér af fullum krafti inn í veiðarnar. Sala á Faxamarkaðn- um í síðastliðnum mánuði varð mun lakari en í fyrra. Markaðarn- ir hafa hvergi fengið það magn, sem þeir telja sig þurfa, eða allt að 2.400 tonnum á viku á markað- ina á Suðurnesjum, Hafnarfirði og í Reykjavík til að anna eftir- spUrn. Þá ber á því að fiskmarkað- arnir hér heima fái ekki vitneskju um væntanlegt framboð með nægilegum fyrirvara. Fyrst virð- ast menn sækja um hjá Aflamiðl- un og að lokinni úthlutun þar á föstudögum vita þeir hve mikið þeir fá að flytja utan til sölu rúmri viku síðar. Það, sem þeir afla umfram það, setja þeir þá í einhveijum mæli á markað. Ákvarðanir um það eru sjaldnast teknar fyrr en í vikunni, sem selja á. Þegar ekki liggur fyrir með meiri fyrirvara hvert fram- boðið er, gengur kaupendum verr en ella að skipuleggja vinnsluna. Þessu er alveg öfugt farið við útflutning, þar sem siglingar skip- anna eru ákveðnar með margra mánaða fyrirvara og útfiutningur í gámum með um tveggja vikna fyrirvara. Verðið of hátt Grétar Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Fiskmarkaðarins í Hafnarfirði, segir verðið nú of hátt. Eðlilegt megi teljast, að verð á þorski sé um 80 krónur. Við það ráði kaupendur þokkalega og því komi öllum málsaðilum bezt, að framboðið sé sem jafnast, því menn geti ekki lengi unnið á þorskverði yfir 100 krónur. Þ.ví sé hætta á bakslagi í seglin haldi svo fram sem horfir. Ásamatímaoghlutifiskverknda greiðir um ogyfir 100 krónurfyrir þorskkílóið á fiskmörkuðunum, kaupir vinnsla úti á landi þorskinn af eigin skipum á um 60 krónur. Hráefniskostnaður er því minni en hjá þeim sem eru háðir mörkuðun- um og því skilar hækkun á afurða- verði erlendis sér betur til fiskverk- enda í dreifbýlinu en útgerðar og sjómanna,þarsemselterámörkuð- m. Minna flutt utan Verð á mörkuðunum í Bretlandi er einnig mjög hátt, enda hefur framboð á þá verið takmarkað nokkuð jafnframt því, að framboð af heimabátum hefur verið með minna móti. Miklir hitar hafa ekki einu sinni haft teljandi áhrif, en við slíkar aðstæður minnkar eftir- spurn eftir fiski venjulega. Allt síðasta ár voru flutt út 92.868 tonn af ísuðum og slægð- um físki, að meðaltali 1.786 tonn á viku. Fyrstu 7 mánuði þessa árs nemur útflutningurinn 50.714 tonnum, eða 1.668 tonnum á viku. í heildina er vikulegur út- flutningur 93,4% af því, sem var í fyrra og er mestur samdráttur í ufsa, en útflutningur á ýsu er nær sá sami. Allt síðasta ár voru flutt utan 8.200 tonn af ferskum flökum og flöttum ferskum fiski, eða 158 tonn á viku að meðaltali. Á starfstíma Aflamiðlunar á þessu ári nemur þessi útflutningur nú 5.086 tonnum eða 310 tonn að meðaltali, sem er um helmingi meira en í fyrra. Lækkun á mörkuðum BRUSSEL -FYRSTU 7 mánuði þessa árs fékkst að meðaltali 17 krónum minna en á sama tíma í fyrra fyrir kíló af fiski á fiskmörk- uðunum í Belgíu. Mestu munar um verðlækkun á flat- físki, sem var að jafnaði 165 krónur á kíló, én fór hæst í 262 krónur. í heildina jókst framboðið á mörkuðunum um 285 tonn, en söluverðmæti aflans lækkaði um tæplega 250 milljónir króna. Miklir sumarhitar og meira framboð eru að sögn heimildar- manna Morgunblaðsins helztu or- sakir þessa verðfalls. Taldar eru góðar líkur á því, að með kóln- andi veðri jafni markaðurinn sig á ný. Misjafnt verð á ísaða fiskinum Fram til þessa hafa verið seld rúmlega 500 tonn af ísuð- um gámafiski frá íslandi á fisk- markaðnum í Zeebrugge eða að jafnaði innihald tveggja gáma á viku. Stjórnendur markaðsins- gera ráð fyrir því að bæta við þriðja gámnum á næstunni. Verð á íslenzka fiskinum hefur verið mjög misjafnt. Hæsta verð fyrir karfa hefur verið 145 krónur, lægst 51, fyrir steinbít hafa mest fengizt 315 krónur, 96 fyrir ufsa, 735 fyrir lúðu og 131 fyrir ýsu. fyrirfram VERÐ á loðnuafurðum er nú fremur lágt. Töluverðar birðg- ir af lýsi og mjöli eru til í heim- inum og hér heima halda menn að sér höndum hvað varða fyr- irframsölu vegna óvissu með veiðar. Líklega heíjast þær ekki fyrr en undir næstu mán- aðamót. VERÐ á mjöli er nú um 10% lægra talið í finnskum mörkum og pundum, en svipað talið í doll- urum. Vegna gengislækkunar dollarsins, er verð í þeim gjald- miðli í raun töluvert lægra en í fyrrá. Verð á lýsislestinni er nú um 300 dollarar, 17.100 krónur og á mjöli 8 dollarar próteineining eða um 32.000 krónur. Verðið er held- ur hærra en við vertíðarlok í vet- ur, en lægra en það var síðasta haust. Verð á íslenzku mjöli og lýsi er að jafnaði nokkru hærra en heimsmarkaðsverð. Skýringin liggur í vaxandi gæðum á þessum afurðum héðan, en einnig eru taldar minni líkur á salmonellu í mjöli héðan en frá suðrænum löndum. Til dæmis eru Finnar, sem kaupa mikið af loðnumjöli, lítið gefnir fyrir fiskimjöl frá Suð- ur-Ameríku. Fiskverð og birgðir á Bandaríkja- markaði sept. ’87 til ág. ’90 Verð á íslenskum þorskflökum er að öllu jöfnu töluvert hærra en á kanadískum flökum og ráöa því gæöin. Breytingar á framboði (birgðir) hafa mun meiri áhrif á lakari flökin, en stöðugleiki einkennir verðiö á íslensku flökunum. íslensk þorskflök í 5 punda pakkningum Kanadísk þorskflök í 5 punda pakkningum BIRGÐIR 2,50 Dollarar hverl pund 2,00 (454g) 18 þúsund tonn 14 12 10 8 6 4 2 S'87 N D J'88 MAMJJÁSOND J'89 MAMJJASOND J'90 M A M J J A Frá Kristófer Má Kristinssyni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.