Morgunblaðið - 07.09.1990, Síða 10

Morgunblaðið - 07.09.1990, Síða 10
] 10 B MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990 'æru gerðar miklar kröfur, ábyrgð- n hvíldi á honum og engin ástæða il að treysta öðrum fyrir flokknum ívað sem yrði. Það fór ekki á milli mála að íeir Hallgrímsson setti hagsmuni ijálfstæðisflokksins ofar öðru og >á ekki sízt ofar eigin persónu og íann sagðist mundu endurskoða töðu sína í flokknum ef hann teldi ið hann yrði dragbítur á flokknum. ig vil vera honum til framdráttar, agði hann, það er mitt hlutverk. Cg hef ekki hvikað við erfiðar að- tæður og mun ekki gera. Bjarni lenediktsson þurfti að berjast við •rfiðan andbyr, ekki sízt hefði hann egið undir alvarlegri . gagnrýni ijálfstæðismanna 1967, en þó væru íosningaúrslitin nú Geir mun ■ikeinuhættari en gagnrýnin sem 3jarni hefði orðið að hrista af sér i sínum tíma. Þannig lauk þessu samtali okkar. 'að varð mér minnisstætt og ég leld okkur Styrmi báðum. En ég hef rakið það hér og nú ægna þess að það gefur nokkra íugmynd um hversu einlæg og op- nská samtöl okkar voru. Það voru afningjar sem töluðust við, menn iem sóttu afl og styrk hver í annan ■>g orkan var sótt í jákvæða itrauma, drengskap og heilindi sem )oldu gagniýni og efasemdir og imfram allt miskunnarlausan og íakinn sannleika ef því var að ■ikipta. Slík samtöl heyra nú sög- inni til. Tengslin við forystu Sjálf- .tæðisflokksins eru önnur og minni ■n áður. Tímarnir breytast og er oað vel. En sjálfstæðismenn eiga ;ér griðland í Morgunblaðinu þegar •iel er að verki staðið. Við eigum •.ameiginlega hugsjón sem Geir lýsti n.a. í samtali okkar fyrir borgar- Tjórnarkosningar 1966, en þar seg- r að hann hafi að íhuguðu máli .annfærzt ungur um gildi sjálfstæð- sstefnunnar, „en ég verð að viður- ;enna að á tímabili var ég mjög jeggja átta“. Og hann bætti við; Ef ég ætti að nefna eitthvað sem iggur þessari sannfæringu til ;rundvallar öðru fremur, þá er það ’irðingin fyrir manninum, einstakl- ngnum, sem ég tel að sé kjarni ;jálfstæðisstefnunnar.“ Að vísu lantar einstaklinginn í samtalið •ins og það er prentað í Morgun- úaðinu, en það eru mín pennaglöp oví ég man hann tók svo til orða 'g bæti nú úr þessum mistökum nínum, en blaðamennska er jafnan larðvítug barátta við miskunnar- ausan tíma. Hún er sem sagt harð- ir húsbóndi. Og í nábýli við hana getur sumt farið úrskeiðis. Það ;kildi Geir Hallgrímsson manna -^iezt, enda hafði hann sjálfur um ‘itt skeið skrifað þingfréttir í Morg- inblaðið. Auk þess var hann alinn ipp á heimili sem var í sterkum engslum við blaðið því að Hallgrím- ir faðir hans var í stjórn þess. Þar ékk hann einnig að sjálfsögðu góð- in skammt af sjálfstæðisstefnunni, )ótt það réði engum úrslitum um lólitíska afstöðu hans sjálfs. Vin- itta okkar átti sér djúpar rætur því ið faðir minn starfaði ungur á skrif- ítofu Hallgríms Benediktssonar og ókst með þeim góð vinátta sem við ■rfðum, en þá ekki síður með Inorru föðursystur Geirs og for- ddium mínum. í fyrrnefndu samtali sem birtist í Morgunblaðinu laugardaginn 21. maí 1966, eða daginn fyrir kosning- ar, segir Geir ennfremur „að eitt af því sem mér þykir skemmtileg- ast við að vera borgarstjóri eru þau tækifæri sem ég hef til að hitta fólk og tala við það“ — og má hafa þau orð í huga og til samanburðar við fyrrnefnt samtal okkar eftir þingkosningarnar 1978. I samtalinu frá 1966 segir enn- fremur — og tel ég nú ástæðu til að minna á það því við vorum sakað- ir um persónudýrkun fyrir þessar kosningar! „Þegar talað er um per- sónulegan áróður fyrir mig í þess- ari kosningabaráttu langar mig að segja þetta: Fyrst var minnzt á persónudýrkun af hálfu andstæð- inganna í sambandi við fundina sem ég efndi til um borgina, en ég hef ekki skilið, að um persónudýrkun geti verið að ræða, þó borgarstjóri haldi fundi með borgarbúum, til þess að heyra álit þeirra og svara margvíslegum fyrirspurnum. Geri ég ekki heldur ráð fyrir, að neinn þeirra sem fundi þessa sóttu, hafi litið svo á að hann væri að koma á fundina til að iðka persónudýrk- un, heldur í því skyni að miðla öðr- um af skoðunum sínum og hlusta á skoðanir annarra. Annars verð ég að segja að ég hef ekki orðið var við þessa per- sónudýrkun hjá fylgismönnum mínum, en hitt er augljóst að and- stæðingarnir hafa óneitanlega haft mig á oddinum, birt af mér myndir á forsíðum og baksíðum dag eftir dag, og gert allt til að auglýsa mig, eins og sagt er — og hef ég auðvitað enga ástæðu til að fetta fingur út í það. En ef um persónu- dýrkun er að ræða, þá er hún fyrst og fremst komin frá andstæðinga- blöðunum." Og loks segir þar: „En kynntist þú eldri borgarstjórum eins og Pétri Halldórssyni?“ „Nei. Eg var níu ára, þegar Jón Þorláksson dó og man, hve mikið áfall það þótti á mínu heimili. Ég þekkti Jón Þorláksson og Pétur Halldórsson í sjón, en ég hitti Knud Zimsen, því hann kom stundum á heimili foreldra minna." Andstæðingar Geirs Hallgríms- sonar klifa oftlega á því, segir enn í samtalinu, að hann sé of efnum búinn. Ég ympraði á þessu við hann og minnti hann á orð Ólafs Thors, sem hann viðhafði í Morgunblaðinu fyrir kosningarnar á undan, en þá var einnig deilt á Geir fyrir að hann væri of efnaður. Hann hafði þá lagt fram stórhuga áætlanir um gatna- gerð_ sem andstæðingarnir gagn- rýndu — og af því tilefni sagði Ólaf- ur Thors orðrétt: „Geir borgarstjóri hafði getið sér góðan orðstír, einnig á athafnasvið- inu. En stjórnmálin kölluðu, og því kalli hlýddi hann. Hann kaus frem- ur að leggja götur fyrir þúsund milljónir en safna sjálfur milljón, fremur að fást við hin miklu mál allra höfuðstaðarbúa en eigin mál.“ Og um efnahaginn sagði Ólafur Thors: „En ég segi bara — gott ef satt er. Það er ágætt að borgarstjór- inn þurfi ekki að segja sig til sveit- ar.“ Af sömu ástæðu og ég hef rifjað upp fyrrnefnd samtöl finn ég hvöt hjá mér til að minnast hér í lokin á annað samtal, óbirt, sem festist rækilega í minni mínu, svo eftir- minnilegt sem það var, um leið og ég þakka vináttu Geirs Hallgríms- sonar og langt samstarf sem aldrei bar neinn skugga á. í mínum huga var hann einstæður, einn þeirra fáu sem hafði atgervi til að vera ávallt hann sjálfur en til þess þarf meira þrek en þeir hafa sem helzt hafa ekki áhuga á öðrum vini en viðhlæj- andi almenningsáliti. Ekkert er þó hverfulla en þessi goluþytur í þjóðlífinu. Það er 27. maí 1973. Við Geir Hallgrímsson tölum saman, að venju. Ég hafði nýverið heyrt í út- vaipinu samtal við fólk á förnum vegi sem spurt var, hvort rétt hefði verið af Ægi að skjóta á Everton. Yfirgnæfandi meirihhiti lýsir ánægju sinni yfir því. Ég segi við Geir: Ég er hættur að skilja þetta, Islendingar skjóta á óvopnað fiski- skip og sökkva því næstum og allir standa á öndinni af ánægju. Þetta er einhver önnur þjóð en sú sem Ólafur Thors og Bjarni Benedikts- son stjórnuðu. Geir svaraði, óvenju ákveðinn: „Þá vil ég ekki vera leið- togi hennar.“ Geir átti samt eftir að verða leið- togi þessarar þjóðar og hann stjórn- aði siglingu hennar án þess hún ærðist af skotgleði. Þannig hverfur þessi óvenjuvandaði og drenglyndi stjórnmálamaður inní söguna; háv- aðalaust með þeirri virðingu og reisn sem var rótgróinni kurteisi hans og eðlislægri ábyrgðaitilfinn- ingu samboðin. Nú sjáum við har.n allan, fríðan foringja, tákngerving borgaralegrar mannúðar; lýðræðis- sinnan farsæla — og hann hverfur okkur sjónum, ekki í öldudal, heldur á öldufaldí sem snertir himininn sjálfan. Matthías Johannessen ískjóli Geirs Síðasta sameiginlega samtal okkar ritstjóra Morgunblaðsins við Geir Hallgrímsson fór fram hinn 5. júní sl. Matthías hitti hann stutta stund nokkrum vikum seinna á Landakotsspítala. í vetur og vor höfðu kviknað vonir hjá vinum og samstarfs- mönnum Geirs um, að hið ótrúlega væri að gerast. Hann var að hress- ast og ná sér á strik. Síðla vetrar sat hann langan kvöldfund, sem við ritstjórar áttum með stjórn Arvakurs hf. og fjallaði um grund- vallarmál í útgáfu blaðsins. Um- ræður voru liflegar og hreinskilnar og Geir tók virkan þátt í þeim. í maí kvaddi hann sér hljóðs í aðal- fundarhófi Árvakurs og flutti áhrifamikla ræðu, sem verður minnisstæð öllum, sem á hlýddu. Snemma í vor átti ég við hann tvö löng samtöl í síma, sinn hvorn daginn. Þau snerust um grundvall- arstefnur í stjórnmálum. Ég þurfti að einbeita mér mjög til þess að halda mínum hlut og sagði við hann í lok hins síðara, að þetta væru svo átakamikil samtöl, að ég væri dauðþreyttur eftir tilraun- ir til þess að halda til jafns við hann í málefnalegum rökræðum. Hann hló og sagði: Fyrir mig er þetta lífsins elexír! Þar sem við sátum í húsakynn- um Seðlabankans við Ægissíðu þennan júnídag beindi Geir sam- tali okkar nær eingöngu að Morg- unblaðinu og framtíð þess. Hann sagði, að vinátta okkar þriggja væri svo sterk, að hann gæti sagt við okkur án þess að misskilningi gæti valdið, að tímabært væri orð- ið að huga að því, hveijir gætu orðið arftakar okkar Matthíasar, þegar til lengri framtíðar væri lit- ið. Um þetta ræddum við fram og aftur, samhliða snörpum orða- sennum inn í milli um ýmsa þætti í ritstjórn blaðsins, sem Geir hafði lengi gagnrýnt. Þegar við kvödd- umst grunaði mig ekki, að þetta væri í síðasta sinn, sem ég sæi Geir Hallgrímsson. Þegar Geir hætti stjórnmálaaf- skiptum og tók við embætti Seðla- bankastjóra hófst nýr kafli í sam- skiptum hans við Morgunblaðið. Hann lét af störfum, sem formað- ur Árvakursstjórnar. En í sam- tölum okkar veitti hann blaðinu gagnrýnið og málefnalegt aðhald, sem var ómetanlegt vegna þess, að við vissum, að fyrir honum ■vakti ekkert annað en velferð blaðsins. Fyrir tæpu ári komu saman að Ægissíðu nokkrir gamlir sam- starfsmenn Geirs. Þar voru Eyjólf- ur Konráð, sem var nánasti pólitíski samheiji Geirs í fjóra ára- tugi, Höskuldur Ólafsson, Baldvin Tryggvason og við Morgunblaðs- ritstjórar. Við ræddum um málefni líðandi stundar og við Matthías og Geir deildum hart um fram- vindu stjórnmálanna og vorum alls ekki sammála. Þetta kom þeim Höskuldi og Baldvin á óvart og báðir höfðu orð á því við mig dag- inn eftir, að þeir hefðu ekki gert sér grein fyrir, hversu líflegar pólitískar umræður færu fram á milli okkar Morgunblaðsmanna og Geirs. En þannig voru samskipti okkar við Geir Hallgrímsson. Opin, hrein- skilin og talað út um alla hluti. Aldrei eftirmál. Á árum áður, þegar erfiðleikar Geirs í stjómmálabaráttunni voru mestir var stundum um það talað, að hann hefði mikinn stuðning af Morgunblaðinu. Eftir að Geir hætti afskiptum af stjórnmálum, varð mér smátt og smátt ljóst, að við ritstjórar Morgunblaðsins höfðum haft meira skjól af Geir Hallgrímssyni en við þá gerðum okkur grein fyrir. Á þeim tíma, sem hann var formaður Sjálfstæð- isflokksins veitti hann okkur þann stuðning, sem við þurftum til þess að herða á þeirri þróun blaðsins, sem hófst fyrir meira en þremur áratugum og fólst í því að losa um þau nánu tengsl, sem verið höfðu milli Morgunblaðsins og Sjálfstæðisflokksins. Eftir að Geir hætti stjórnmálaafskiptum höfum við staðið á meiri berangri. Geir Hallgrímsson hafði notið mikillar velgengni í stjómmálum um þriggja áratuga skeið, þegar kom fram á veturinn og vorið 1978. Vinsæll borgarstjóri í 13 ár, varaformaður Sjálfstæðisfiokks, formaður flokksins og forsætis- ráðherra. Útfærsla í 200 mílur og sigur í landhelgisdeilunni 1976. Svo kom veturinn og vorið 1978 og þá og næstu árin á eftir kynnt- ist ég Geir bezt og mat hann mest. Eftir samfellda pólitíska velgengni í nær 30 ár tóku við ár ósigra og erfíðleika. Hann var er- lendis í embættiserindum nóttina, sem talið var upp úr kjörkössunum til borgarstjórnar Reykjavikur. Ég var í stöðugu sambandi við hann alla nóttina. Hann tók falli Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík með stillingu. Honum var ljóst þá þeg- ar, að honum yrði kennt um þessi kosningaúrslit. Eftir ófarir Sjálf- stæðisflokksins í þingkosningum mánuði síðar gerði hann sér glögga grein fyrir því, að pólitísk- ur aðsúgur yrði gerður að honum innan flokksins sem og varð. Hann stóð af sér fyrstu atlög- una, þegar Albert Guðmundsson bauð sig fram gegn honum í for- mannsembætti á landsfundi 1979. Hann hélt þannig á málum gagn- vart Albert, að á landsfundi 1981 má segja, að Albert hafi veitt hon- um stuðning með þögninni. Mesta stjómmálaafrek Geirs Hallgrímssonar á öllum stjórn- málaferli hans var að mínum dómi stjórn hans á Sjálfstæðisflokknum eftir að Gunnar Thoroddsen mynd- aði ríkisstjórn sína í febrúar 1980. Þá gerðist atburður, sem var í raun óhugsandi, að gæti gerzt, þegar litið var til sögu Sjálfstæðis- flokksins. Aðeins eitt skipti máli í huga Geirs Hallgrímssonar — að koma í veg fyrir varanlegan klofn- ing Sjálfstæðisflokksins. Og það tókst. Á eftirminnilegum landsfundi 1981 fór fram hart, málefnalegt uppgjör við Gunnar Thoroddsen og fylgismenn hans en Sjálfstæð- isflokkurinn gekk sameinaður til kosninga vorið 1983 undir forystu Geirs. Þetta er mikil saga og að mestu ósögð. í þágu fiokkseiningar lét Geir Hallgrímsson margt yfir sig ganga ogtók með ótrúlegu jafnað- argeði einhveijum mestu pólitísku árásum, sem gerðar hafa verið á íslenzkan stjórnmálamann á síðari tímum. Hann neitaði sér um að láta hart mæta hörðu og tók hveiju pólitísku áfalli á fætur öðru af karlmennsku. Þetta stríð kostaði sitt. í próf- kjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík vegna komandi alþing- iskosninga féll Geir Hallgrímsson niður í 7. sæti á listanum í Reykjavík. Þau úrslit lágu fyrir aðfaranótt 30. nóvember 1982. Geir var í fjölskyldusamkvæmi hjá Birni bróður sínum, þegar honum bárust fréttir um úrslitin. Engin svipbrigði sáust á Geir, þegar hann fékk tölumar í hendur. Fyrstu viðbrögð Geirs Hall- ■grímssonar við þessum úrslitum voru afar skýr. Hann kvaðst um nóttina mundi kalla saman mið- stjórnarfund þegar í stað, óska eftir því að landsfundur yrði boð- aður í febrúar, þar sem hann mundi láta af formennsku. Þessi afstaða var óbreytt fyrri hluta næsta dags, en þegar leið á daginn linnti ekki símhringingum og skeytasendingum til Geirs frá flokksmönnum, sem lögðu hart að honum að taka sæti á framboðs- listanum og gegna formennsku flokksins út kjörtímabilið. Á flokksráðsfundi nokkrum dögum síðar tilkynnti Geir svo þá ákvörð- un sína að leiða Sjálfstæðisflokk- inn í gegnum næstu kosningar og skipa það sæti á framboðslistanum í Reykjavík, sem hann hafði verið kosinn til. Sjálfstæðisflokkurinn gekk sameinaður til kosninga undir for- ystu Geirs Hallgrímssonar vorið 1983 og náði góðum árangri. Sjálfur náði Geir ekki kjöri til Al- þingis en stjórnarmyndunin þá um vorið var fyrst og fremst hans verk, þótt forsætisráðuneytið kæmi í hlut Steingríms Hermanns- sonar. Þessum erfiða kapítula í sögu Sjálfstæðisflokksins var enn ekki lokið. Miðvikudaginn 25. maí 1983 voru samningaviðræður um mynd- un rikisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í höfn. Geir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.