Morgunblaðið - 07.09.1990, Blaðsíða 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990
Hann var um margt einstakur
maður. Kynni okkar stóðu í 30 ár,
þótt fyrr hefði ég heyrt hans getið
og raunar séð til hans. Samstarf
okkar var eðlilega misnáið á þessum
tíma. Ég þykist þó eiga af honum
rétta mynd. Þá mynd má draga upp
í löngu máli. Það má einnig gera
með því að segja, að hann hafi ver-
ið drengskaparmaður, og láta það
nægja. Fleira verður þó að fylgja.
Orð hans stóðu, og honum var
umhugað að það vissu menn. Þetta
Geir Hallgrímsson tók við starfí seðlabankastjóra á árinu 1986. Hér er hann með samstarfsmönnum sínum í bankastjórninni, þeim Tóm-
asi Arnasyni (til vinstri) og Jóhannesi Nordal.
Með Geir Hallgrímssyni er horf-
inn af vettvangi merkur stjórnmála-
foringi og mikill mannkostamaður.
Honum var falinn meiri trúnaður
en flestum öðrum mönnum og hann
fékk tækifæri til þess að móta
samtíð sína öðrum fremur. Þessu
trausti brást Geir ekki. Verka hans
sér víða stað, ekki síst í Reykjavík,
þar sem hann var borgarstjóri í 13
ár við miklar og almennar vinsæld-
ir, enda voru þau ár tími fram-
kvæmda í borginni. Hann gegndi
æðstu trúnaðarstörfum í ríkisstjórn
Islands og ávann sér virðingu
manna innanlands sem utan. Efast
ég um að aðrir menn sem gegnt
hafa starfi utanríkisráðherra á ís-
landi hafi notið meiri virðingar og
trausts en Geir gerði á meðal for-
ystumanna hins lýðfrjálsa heims.
Geir var foringi sjálfstæðis-
manna á mikium umbrotatímum í
Sjálfstæðisflokknum. Þá fékk hann
að reyna meiri mótbyr innan flokks-
ins en aðrir er gegnt höfðu því
starfi á undan honum. En þá komu
best í ljós þeir eiginleikar Geirs, sem
öðru fremur einkenndu hann, stað-
festan, kjarkurinn, prúðmennskan
og drenglyndið, enda stóð hann af
sér alla erfiðleika og skilaði í ann-
arra hendur forystu samhuga
flokks. Þegar Geir hætti stjórn-
málaafskiptum á árinu 1986 tók
hann við stöðu bankastjóra Seðla-
banka íslands.
Ég átti því láni að fagna að
starfa með Geir Hallgrímssyni á
ýmsum vettvangi sl. 20 ár, í borgar-
stjórn og borgarráði, innan Sjálf-
stæðisflokksins og nú síðast í
bankaráði Seðlabankans. Öll við-
kynning okkar var á þann veg að
í stjórnmálaátökunum átti ég auð-
velt með að skipa mér í hans sveit
og ég gat alltaf rætt við hann af
hreinskilni, hvert það mál sem
umræðu þarfnaðist. Vináttu hans
mat ég mikils og fyrir hana þökkum
við hjónin af alhug sem og allar
þær ánægjustundir sem við áttum
með Ernu og Geir.
Geir kom að Seðlabanka íslands
með mikla reynslu og þekkingu,
sem nýttist vel á þeim vettvangi.
Arin þar urðu því miður færri en
við höfðum vænst. Við bankaráðs-
menn söknum nú vinar og sam-
starfsmanns, sem á fundum okkar
Iagði ætíð það til málanna sem vert
var til umhugsunar og mótað gat
afstöðu.
Seðlabanki íslands sér nú á bak
mikilhæfum forystumanni og þjóðin
kveður einn sinna bestu sona. Fyrir
hönd bankaráðs Seðlabanka íslands
flyt ég ástvinum Geirs Hallgríms-
sonar innilegar samúðarkveðjur.
Ólafur B. Thors
Ríkisráðsfundur 24. janúar 1986, en þá lét Geir Hallgrímsson af starfí utanríkisráðherra í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar og Matt-
hías Á. Mathiesen tók við embættinu. Frá vinstri: Albert Guðmundsson, Halldór Ásgrímsson, Jón Helgason, Alexander Stefánsson, Steingrímur
Hermannsson, Vigdís Finnbogadóttir, Geir Hallgrímsson, Þorsteinn Pálsson, Matthías Bjarnason, Ragnhildur Helgadóttir og Sverrir Her-
mannsson.
forystu af ungum sjálfstæðismönn-
um og síðar kjörinn formaður Sjálf-
stæðisflokksins. Hann varð borgar-
fulltrúi í Reykjavík og athafnamik-
ili borgarstjóri Reykvíkinga. Kjör-
inn alþingismaður og gegndi emb-
ætti forsætisráðherra og utanríkis-
ráðherra en síðustu árin störfum
Seðlabankastjóra.
Það er því víða sem Geir Hall-
grímsson markaði spor í samtíð sína
og hafði áhrif og forystu um þýð-
ingarmiklar ákvarðanir. Ber þar
einna hæst lokasigur í landhelgis-
málinu, þegar Islendingum var
tryggð 200 mflna efnahagslögsaga.
Þeir eru fjölmargir sem áttu við
hann samstarf og nutu forystu
^hans, sem að leiðarlokum er þökk-
uð. Þar í hópi eru sjálfstæðismenn
og reyndar fjölmargir í Reykjanes-
kjördæmi.
Eins og veganesti foreldrahús-
anna reyndist Geir Hallgrímssyni
vel, átti hann heimili og fjölskyldu,
eiginkonu og fjögur börn, sem gáfu
honum mikið og reyndust honum
með þeim hætti, sem slíkum for-
ystumanni er þörf.
Skólasystir Geirs og síðar eigin-
kona, frú Erna Finnsdóttir, hefur
ætíð staðið við hlið hans traust og
örugg og til hennar sótti hann mik-
inn styrk til hins síðasta.
Þegar Geir Hallgrímsson er allur
minnist ég samstarfs og vináttu
-sem nú er þökkuð um leið og við
Sigrún sendum frú Ernu og fjöl-
skyldu hennar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Geirs Hall-
grímssonar.
Matthías Á. Mathiesen
er svo sem sjálfsagður eiginleiki,
en finnst ekki í fari allra.
Hann fór ekki með fláttskap.
Hann var hreinn og beinn, allir vissu
hvar þeir höfðu hann, eins og sagt
er. Sumir töldu þetta ljóð á ráði
hans sem stjórnmálaforingja, þar
sem refsháttur gagnar stundum,
en aldrei til langframa.
Hann var skýr í hugsun og stál-
minnugur, eiginleikar sem spegluð-
ust í ræðum hans, mæltum fram á
góðri íslenzku, án allra málaleng-
inga eða endurtekninga. Að því leyti
var hann mælskumaður, þótt hann
væri ekki flugmælskur. Slíkt orða-
flóð dá margir, þótt enginn muni á
eftir hvað sagt var.
Hann var hógvær maður, en þó
svo fastur fyrir sem nauðsyn krafði
um mann, sem gegndi slíkum for-
ystustörfum sem hann, þar sem
ábyrgðinni varð að lokum ekki deilt
með öðrum.
Hann var kominn af vönduðu og
góðu fólki. Faðir hans var athafna-
maður, bæjarfulltrúi í Reykjavík og
alþingismaður, svo sem varð sonur-
inn. Geir var alinn upp í því um-
hverfi og v.ið slíkar aðstæður, að
hann ofmetnaðist ekki af þeim trún-
aði, sem honum var síðar sýndur
eða því valdi sem hann fór með.
Þetta umhverfi á uppvaxtarárum,
ásamt eðlislægri staðfestu hlýtur
einnig að hafa hjálpað honum til
að standast það álag og það um-
tal, sem hann mátti þola á löngum
stjórnmálaferii.
Samskipti okkar voru nánust
þegar erfiðleikar í starfi Sjálfstæð-
‘isflokksins voru hvað mestir. Þá
fann ég best hvern mann hann
hafði að geyma. En sú saga verður
ekki rakin hér.
Vinsældir hans voru einstakar
meðan hann gegndi starfi borgar-
stjóra. Á þingferlinum varð hann
fyrir ýmsu mótlæti, en leiddi þó
flokk sinn til hins mesta kosninga-
sigurs árið 1974. Við leiðarlok var
hann virtur af öllum, líka þeim sem
á tímabili töldu sig hafa efni á að
láta hann ekki njóta sannmælis.
I eigin nafni þakka ég fyrir að
hafa átt þess kost að starfa með
Geir Hallgrímssyni. Þingflokkur
sjálfstæðismanna þakkar einstakt
framlag í þágu flokks og þjóðar.
Eiginkonu hans, börnum og að-
standendum öllum vottum við
dýpstu samuð.
Ólafur G. Einarsson