Morgunblaðið - 07.09.1990, Síða 15

Morgunblaðið - 07.09.1990, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990 B 15 Geir Hallgrímsson forsætisráðherra flytur ávarp á Austurvelli 17. júní. Öllum að óvörum varð hann á besta aldri fórnarlamb eyðileggjandi fruma mannslíkamans. Barátta hans var eins og annað sem hann tók sér fyrir hendur háð af tak- markalausri viljafestu og einbeitni. Það kostaði mikið átak að fara til áríðandi fundar í New York á veg- um Seðlabankans sl. sumar, en þá för fór hann engu að síður, þótt ekki hefði hann getað það óstudd- ur. Erna Finnsdóttir, eiginkona hans, var honum sá styrkur sem orð fá ekki lýst sökum sálarstyrks hennar og einstæðra persónukosta. „Náðartími ævin er.“ Mér er það minnisstætt er við vorum saman í veislu hjá Agnari Klemensi Jónssyni og Ólöfu Bjarnadóttur fyrir tæpum þremur áratugum, að ég sagði við Geir vegna dauðsfalls: „Það kom í ljós að kristin trú er það eina sem dugar í dauðanum.“ Geir hvessti á mig sjónirnar. „Já, og í lífinu,“ sagði hann og lagði þunga áherslu á orð sín. Þessi er einnig arfleifð Geirs Hallgrímssonar. Þórir Kr. Þórðarson Kveðja frá Heimdalli Geir Hallgrímsson hóf ungur þátttöku í starfí samtaka ungra sjálfstæðismanna og voru honum snemma falin ýmis trúnaðarstörf á þeim vettvangi. Sat hann um ára- bil í stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, og varð formaður félagsins 1952. For- maður Sambands ungra sjálfstæð- ismanna varð hann svo 1957. A þeim tíma sem Geir var í for- ystu ungra sjálfstæðismanna háðu þeir harða hugmyndafræðilega bar- áttu við stuðningsmenn alræðis- stjórnarinnar í Sovétríkjunum. Var þá tekist á um ýmis mál, sem grund- vallarþýðingu höfðu fyrir þjóðina og fóru ungir sjálfstæðismenn með- al annars fyrir í baráttunni fyrir því að tryggja varnir og öryggi landsins og afnámi hafta og mið- stýringar í efnahags- og atvinnu- málum. í þeirri baráttu var þekking Geirs Hallgrímssonar, rökfesta hans og einurð, ómetanleg. Það fór líka svo, að þegar Geir Hallgrímsson var. kallaður til starfa á vettvangi borgarmála og síðar landsmála naut hann mikils stuðn- ings í röðum ungra sjálfstæðis- manna. Þeir vissu að þar fór mað- ur, sem tilbúinn var að fylgja eftir hugsjónum sjálfstæðismanna og lét ekki bugast þótt á móti blési. For- ysta hans í flokknum á erfiðum tímum sýndi líka að hann var trausts þeirra verður. Ungir sjálfstæðismenn í Reykjavík minnast Geirs Hallgríms- sonar með þakklæti og virðingu og senda aðstandendum hans hugheil- ar samúðarkveðjur. Birgir Ármannsson, formaður Heimdallar. Kveðja frá Sambandi ungra sjálfstæðismanna Með Geir Hallgrímssyni er mikil- hæfur foringi fallinn frá. Við andlát leiðtoga leiðir ungt fólk hugann að sögunni. Saga Geirs Hallgrímsson- ar er saga baráttu og sigra. Hann varð snemma þekktur fyrir andóf sitt gegn höftum og ofstjórn í við- skiptalífí. Hann var forsætisráð- herra er landhelgin var færð út í 200 mílur og Islendingar fengu full yfírráð fískveiðiauðlindanna. Hann stóð ávallt í eldlínunni í átök- um lýðræðissinna við alræðisöfl, sem um skeið voru sterk hér á landi. Þar var tekist á um grundvall- arskipan þjóðskipulagsins, alræði eða lýðræði. Geir Haligrímsson stóð jafnan vörð um samstöðu lýðræðis- þjóðanna og beitti sér af alefli fyrir styrkum vörnum íslands og sam- starfi þess við önnur vestræn ríki. Samband ungra sjálfstæðis- manna stendur í mikilli þakkar- skuld við Geir. Fáir hafa lagt sam- bandinu meira lið en hann, sem var formaður Heimdallar um árabil og gegndi síðar formennsku í SUS. Unga kynslóðin í Sjálfstæðisflokkn- um nýtur nú þeirra sigra, sem voru unnir í tíð Geirs sem stjórnmála- manns, bæði á vettvangi íslenskra stjórnmála og í átökum austurs og vesturs. Ungt fólk um allan heim fagnar þeirri þróun til nýrrar heims- myndar er fylgir hruni alræðisríkj- anna. Þar er fyrir að þakka mönn- um eins og Geir Hallgrímssyni. Á sextíu ára afmæli Sambands ungra sjálfstæðismanna í júní síðastliðnum óskuðum við þess að Geir yrði heiðursgestur okkar og var honum færður þakklætis- og virðingarvottur okkar fyrir baráttu hans í þágu hugsjóna frelsis og lýð- ræðis, brot úr hinum fallna Berlín- armúr. Geir gat því miður ekki ver- ið með okkur við það tækifæri vegna veikindanna, sem hann átti við að stríða. Hann sendi okkur hins vegar kveðju, sem lýkur þann- ig: „ ... Það væri glámskyggni ef við héldum að fullur sigur væri unninn fyrir hugsjónir sjálfstæðisstefnunn- ar. Enn er óþrjótandi verk að vinna fyrir samtök eins og SUS og mörg eru þau úrlausnarefni sem leysa þarf á líðandi stundu og komandi tímum. Mestu máli skiptir að virð- ingin fyrir manninum, einstaklingn- um, sé í heiðri höfð og um leið og einstaklingsframtakið tryggi hag- sæld og batnandi lífskjör þá hafí menn ávallt skilning á að vernda rétt lítilmagnans.“ Þessi orð Geirs eru okkur dýr- mæt. Megi þau verða okkur leiðar- ljós. Þau sýna hversu vel Geir fylgd- ist með starfi ungra sjálfstæðis- manna fram á síðasta dag og hver hugur hans var til samtaka okkar. Við minnumst hans með þakklæti og sendum samúðarkveðjur til eftir- lifandi konu hans og fjölskyldu. Algóður Guð styrki þau á erfíðum dögum. Fyrir hönd SUS, Davíð Stefánsson formaður. Kveðja frá Verslunarráði Islands Hugsjónir frelsis og lýðræðis voru Geir Hallgrimssyni í blóð born- ar. Heiðarleiki og drenglyndi íþróttamannsins var sú fyrirmynd sem faðir hans gaf syninum. Þetta veganesti entist Geir Hallgrímssyni alla ævi. Mönnum ber saman um að þess- ir eðlisþættir voru aðalsmerki glæsjlegs stjórnmálaferils Geirs Hallgrímssonar. Hallgrímur Benediktsson, faðir Geirs, var formaður Verslunarráðs- ins. Því hafa baráttumál ráðsins oft verið umræðuefni á heimili hans. Stefna Verslunarráðs Islands, frelsi, ábyrgð einstaklingsins og heiðarleiki í viðskiptum, áttu alltaf sterkan hljómgrunn hjá Geir Hallgrímssyni og málefni þess hug og stuðning hans vísan. c Fyrir það ber nú að þakka, þegar mikilhæfur baráttumaður er svo hart á brott kvaddur, langt um ald- ur fram. Megi menn jafnan hafa hugsjón- ir Geirs Hallgrímssonar í heiðri og berjast fyrir þeim. _ Jóhann J. Ólafsson, form. Verslunarráðs Islands. í dag kveðja Víkingar Geir Hall- grímsson í hinsta sinn. Geir var ævifélagi í Knattspymufélaginu Víkingi. Hann gekk ungur til liðs við Víking og lék knattspyrnu með félaginu í yngri flokkunum á Melun- um, þegar Víkingur hafði aðstöðu þar. Alvara lífsins tók við af leik. Geir Hallgrímsson haslaði sér völl í fremstu víglínu íslensks samfélags og Víkingur átti hauk í horni þar sem hann var. Félaginu var sniðinn þröngur stakkur í Vesturbænum og hugði á landnám. Úr varð að Víkingur flutti í Hæðargarð. Þá stóð Geir Hallgrímsson dyggilega við bakið á félaginu, — og gerði allar götur síðan. Hann fylgdist vel með gengi félagsins og gladdist þegar vel gekk, ávallt reiðubúinn að rétta hjálparhönd. Víkingar minnast Geirs Hallgrímssonar með virðingu og kveðja með eftirsjá og innilegri þökk fyrir samfylgdina. Við vottum fjölskyldu hans einlæga samúð okkar. Hallur Hallsson, formaður Víkings. Þorsteinn Pálsson, eftirmaður Geirs í embætti flokksformanns, tekur við lyklunum að formannsskrifstofunni í ValhöII árið 1983.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.