Morgunblaðið - 08.09.1990, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 08.09.1990, Qupperneq 1
64 SIÐUR B/LESBOK STOFNAÐ 1913 203. tbl. 78. árg. LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Hálf milljón njósn- ara vann hjá STASI Austur-Berlín. DPA. HÁLF milljón manna stundaði njósnir fyrir austur-þýsku öryggislög- regluna, STASI, heima fyrir og erlendis, að sögn Giinthors Eic- horns, formanns stjórnskipaðrar nefndar sem hefur það verkefni að leysa upp lögregluna. Að sögn Eichorns voru njósnarar í fullu starfi 86.000 talsins en upp- ljóstrarar í lausamennsku eða hluta- starfi nær 500.000. „STASI var lang skipulagðasta leyniþjónusta heims,“ sagði Peter Michael Diestel, innanríkisráðherra Austur-Þýskalands í gær. Hann sagði að ekki myndi takast að ljúka upprætingu STASI fyrir samein- ingu þýsku ríkjanna, sem fyrirhug- uð er 3. október nk. vegna þess FáTékkar fyrirtæki / • /1 ••• m ijolagjof? Prag. Reuter. SALA tékkneskra ríkisfyrir- tækja verður hafin í desember nk. og gætu þeir sem vonast eft- ir óvenjulegri jólagjöf þar í landi í ár setið uppi með nýtt einkafyr- irtæki. „Þeir sem áhuga hafa gætu gef- ið fjölskyldunni fyrirtæki í jóla- gjöf,“ sagði Dusan Triska aðstöð- arfjármálaráðherra. Hann hefur stjórnað undirbúningi að sölu stórs hluta ríkisfyrirtækja landsins, en tékkneska stjórnin samþykkti áætl- un um einkavæðingu atvinnulífsins fyrr á árinu. Fyrst verða smáfyrir- tæki seld en síðar stórfyrirtæki og' er stefnt að því að þau verði gerð að almenningshlutafélögum. Eftir að kommúnistar komust ,til valda í Tékkóslóvakíu 1948 voru mörg smáfyrirtæki tekin eignar- námi og sett undir ríkisforsjá. Eftir fall kommúnistastjórnarinnar í fyrrahaust hétu nýir valdhafar fyrr- verandi eigendum smáfyrirtækja og erfingjum þeirra að þeir gætu gert tilkall til fyrirtækjanna. hversu gríðarlegt verk það væri að komast til botns í hinni flóknu og víðfeðmu starfsemi öryggislögregl- unnar. Neitaði hann því að stjórnin drægi lappirnar í málinu og sagði að njósnadeild hennar hefði verið lögð niður og njósnurum kippt af launaskrá í lok júní sl. Samkvæmt þeim tölum sem birt- ar voru í gær átti STASI 1.819 skrifstofuhús, íþrótta- og afþrey- ingamiðstöðvar, 836 íbúðarbygg- ingar með meira en 18.000 íbúðum. Einnig 13.000 bifreiðir og 5.500 önnur farartæki: Lagt hefur verið hald á 210.000 skammbyssur, 5.000 vélbyssur og sprengjuvörpur í stöðvum STASI eftir fall kommún- istastjórnarinnar í Austur-Þýska- landi. Reuter Jórdanskir andstæðingar Bandaríkjastjórnar mótmæla umsvifum íjölþjóðlegs herafla á Persaflóasvæð- inu eftir bænastund í Amman, höfuðborg Jórdaníu, í gær. írakar meina Ranða kross- inum að aðstoða útlendinga Saudi Arabar og Kúvætar heita Qárstuðningi við herkostnað Bandaríkjamanna Nikósíu. Amman. Washington. London. Reuter. ÍRAKAR hafa neitað Alþjóða Rauða krossinum um leyfí til að senda fulltrúa sína til aðstoðar þúsundum útlendinga sem eru innlyksa í írak og Kúvæt vegna innrásar íraka í Kúvæt. Cornelio Sommaruga, forseti samtakanna, sagðist hafa átt árangurslausar viðræður við ráðamenn í Bagdad sem ekki hefðu viljað viðurkenna að samkvæmt alþjóðalögum ætti hjálparstofnunin fullan rétt á að senda menn sína til aðstoðar útlendingunum. Þá hafa Sameinuðu' þjóðirnar neitað Indveijum um leyfi til að flytja matvæli og lyf til Iraks og Kúvæt þar sem um 170.000 ind- verskir þegnar eru innlyksa. írakar settu það sem skilyrði fyrir því að Indveijar fengju að senda flugvélar og skip eftir fólkinu að þau kæmu hlaðin matvælum. Munu þeir ekki hafa sett vestrænum ríkjum ámóta skilyrði fyrir brottflutningi þegna sinna. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði eftir fund með Fahd konungi Saudi-Arabíu, að málamiðlun kæmi ekki til greina Höfuðstöðvar pólska kommúnistaflokksins í Varsjá. Morgunblaðið/Ásgeir Sverrisson Flokksmiðstöð breytt í kauphöll Varsjá. Reuter. PÓLSKA sljórnin hyggst láta breyta höfuðstöðvum komm- únistaflokksins fyrrverandi í fjármálamiðstöð, að sögn Malg- orzata Niezahitowska, tals- manns stjórnarinnar. Að sögn Niezahitowska ráðgera yfirvöld að breyta hvítu marmara- höllinni í kauphöll. Verður þar starfræktur verðbréfamarkaður en stærstur hluti hússins verður boð- inn fjármálafyrirtækjum, sem þar vilja hafa skrifstofur sínar, til kaups. Niezahitowska sagði að búist væri við því að verðbréfamarkaður hefji starfsemi í Varsjá á næsta ári. Pólski kommúnistaflokkurinn missti völd í hendur Samstöðu, óháðu verkalýðssamtakanna, í fyrra og nokkru seinna samþykktu flokksmenn að leysa hann upp en úr rústum flokksins risu aðrir flokkar. vegna innrásar íraka í Kúvæt 2. ágúst sl. Ekkert annað kæmi til greina en írakar drægju heri sín'a til baka og fyrri valdhafar tækju aftur við stjórn landsins. Saudi- Arabar hétu því að leggja fram nokkra milljarða dollara til þess að mæta kostnaði Bandaríkjamanna af því að senda herlið til Persaflóa- svæðisins. Þangað eru komnir um 100.000 bandarískir hermenn og ijölgar þeim stöðugt. Þá hét furst- inn af Kúvæt í gær fimm milljarða dollara framlagi til herkostnaðarins og búist er við að Sameinuðu fursta- dæmin muni gera slíkt hið sama. Ennfremur fóru Bandaríkjamenn þess á leit við Japani i gær að þeir veittu á þriðja milljarð dollara í þessu skyni. Bandan'kjamenn fóru þess á leit við ríki Atlantshafsbandalagsins (NATO) í gær, að þau legðu til fleiri skip og flugvélar til þess að flytja vistir og hergögn til banda- rísku hersveitanna á Persaflóa- svæðinu. Utanríkisráðherrar Evrópu- bandalagsins (EB) samþykktu í gær að bandalagið mæti að hluta þeim skaða sem Jórdanir, Tyrkir og Egyptar verða fyrir vegna við- skiptabanns SÞ á írak. Miðað er við að bandalagið greiði 15% tjóns- ins sem talið er að muni nema jafn- virði 10 milljarða Bandaríkjadollara á þessu ári og því næsta. Breska þingið lýsti í gær stuðn- ingi við þá ákvörðun stjórnar Marg- áret Thatcher forsætisráðherra að senda herskíp og flugvélar til Persa- flóasvæðisins og útilpka ekki hern- aðaraðgerðir gegn írökum vegna innrásar þeirra í Kúvæt. Eftir tveggja daga umræður í neðri deild samþykkti þingið með 437 atkvæð- um gegn 35 stuðning við stefnu stjórnarinnar. Edúard Shevardnadze utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, sagðist í gærkvöldi reiðubúinn að fara til Iraks ef þörf kræfi til þess að reyna finna friðsamlega lausn á stríðsástandinu við Persaflóa. Sagð- ist hann telja að alþjóðleg ráðstefna um frið í Miðausturlöndum gæti dregið úr spennu í þessum heims- hluta. Sjá fréttir á bls. 21. Svíþjóð: Fara meira með strætó Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, frétta- ritai’a Morgunblaðsins. HÁTT bensínverð í Svíþjóð hefur valdið því að farþegum með almenningsfarartækjum hefur fjölgað í fyrsta sinn í mörg ár. Þegar fólk kom heim úr sumarfríi brugðu margir, sem áður höfðu ekið í eigin bíl til og frá vinnu, á það ráð að kaupa mánaðarkort í strætis- vagna og lestir. Kortin seldust upp í Stokkhólmi og Gaútaborg í byrjun vikunnar en ný hafa verið prentuð og er verið að dreifa þeim á útsölustaðina. Seld hafa verið 35.000 fleiri kort í Stokkhólmi fyrir sept- embermánuð en fyrir sama mánuð í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.