Morgunblaðið - 08.09.1990, Side 2

Morgunblaðið - 08.09.1990, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990 GEIR Hallgrímsson, seðlabankastjóri og fyrrverandi forsætisráð- herra, var til grafar borinn frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Mikið fjölmenni var viðstatt athöfnina, hvert sæti í kirkjunni skipað og staðið þar sem rúm var. Hópur fólks varð að standa utan dyra, en þar hafði verið komið fyrir hátölurum. Fjöldi blómaskreytinga og kransa, með kveðjum frá vinum Geirs og samherjum, opinberum aðilum og erlendum ríkisstjóm- um, fyllti gólfið við kórtröppur Dómkirkjunnai' og kórinn. Þá voru kveðjukransar festir framan á svalir kirkjunnar. Sr. Árni Bergur Sigurbjörns- son, sóknarprestur í Áskirkju, jarðsöng. Tónlistarflutning önn- uðust Marteinn H. Friðriksson, dómorganisti, Kammersveit Reykjavfkur undir stjórn Rutar Ingólfsdóttur og félagar úr Karla- kórnum Fóstbræðrum. Kammer- sveitin flutti, ásamt Marteini, Adagio eftir Albinoni og Air úr svítu í D-dúr eftir J. S. Bach. Er kista Geirs var borin úr kirkju var leikin á orgelið Prelúdía í Es-dúr eftir Bach. Sungnir voru sálmamir Á hend- ur fel þú honum, Ég lifi og ég veit, Hver á sér fegra föðurland, Son Guðs ertu með sanni og Ég lifi í Jesú nafni. Lögregla stóð heiðursvörð er kista Geirs var borin úr kirkju. Samband ungra sjálfstæðismanna gekkst fyrir því að ungt sjálfstæð- isfólk myndaði fánaborg meðfram öllum Fríkirkjuvegi er líkfylgdin ók þar um á leið frá kirkjunni. Geir Hallgrímsson var jarðsettur í Fossvogskirkjugarði. Héðinn Steingrímsson. Skákþing íslands; VerðurHéðinn yngsti íslands- meistarinn? FYRIR 11. og síðustu umferð á Skákþingi íslands, sem tefld verð- ur klukkan 13 I dag á Hótel Höfn, er Héðinn Steingrímsson einn í efsta sæti með 8 vinninga og hef- ur vinnings forskot á Björgvin Jónsson, sem er í öðru sæti. Geri Héðinn jafntefli í dag við Margeir Pétursson hefur hann tryggt sér sigurinn og Islandsmeistaratitil. Héðinn Steingrímsson, sem er 15 ára, yrði yngsti íslandsmeistarinn í skák frá upphafl. Að sögn Ólafs Ásgrímssonar skáksljóra slægi hann við Jóni L. Árnasyni sem varð meistari 1977 þá 16 ára. í tíundu umferð Skákþingsins í gær vann Héðinn Snorra Bergsson, Björgvin Jónsson vann Tómas Bjömsson, Þröstur Ámason vann Margeir Pétursson og Hannes Hlífar Stefánsson vann Sigurð Daða Sig- fússon. Jafntefli gerðu Halldór G. Einarsson og Þröstur Þórhallsson og Jón L. Ámason og Ámi Ármann Árnason. Að sögn Ólafs Ásgrímssonar er nú Ijóst að auk stórmeistaranna fjog- urra, Helga, Jóhanns, Margeirs og Jóns L., verður Ólympíusveit íslands í skák skipuð Héðni Steingrímssyni og Björgvin Jónssyni eða Þresti Ámasyni, en alþjóðlegu meistararnir, Hannes Hlífar og Þröstur Þórhalls- son, hafa misst af lestinni. Þriðji al- þjóðlegi meistarinn, Karl Þorsteins, gaf hins vegar ekki kost á sér vegna annríkis. Sjá skákþátt á bls. 18. Morgunblaðið/Þorkell Um 100 ungir sjálfstæðismenn mynduðu fánaborg meðfram Fríkirkjuvegi þegar líkfylgdin ók þar um. Morgunblaðið/Bjarni Kista Geirs borin úr kirkju. Líkmenn eru frá vinstri: Björn Bjarnason, Ólafur B. Thors, Jóhannes Nordal, Þorsteinn Pálsson, Davíð Oddsson, Haraldur Sveinsson, Matthías Johannessen og Styrmir Gunnarsson. Á eftir kistunni gengur Erna Finns- dóttir, eiginkona Geirs, og henni sitt til hvorrar handar börn þeirra, Hallgrímur og Áslaug. XJtför Geirs Hallgrímssonar gerð með viðhöfn Jón Hjaltalín Magnússon formaður HSI: IHF hefur ekki breytt kröf- um sínum varðandi íþróttahús JÓN Hjaltalín Magnússon, formaður Handknattleikssambands ís- lands, segir að engar breytingar hafí orðið á þeim kröfúm sem Al- þjóðahandknattleikssambandið (IHF) geri til íþróttahallar og ef hún hýsi ekki tilkskilinn fjölda áhorfenda, sjö þúsund manns, hljóti skýr- ingin að felast í því að Kópavogsbær hafi gert breytingar á kröfum sínum til stærðar og gerðar sæta í húsinu. Jón Hjaltalín sagði að IHF hefði sett fram kröfu um íþróttahús sem tæki sjö þúsund manns í sæti að meðtöldum blaðamönnum, kepp- endum, starfsfólki og gestum. „Við sáum ekki ástæðu til þess að telja sætin eða bekkjaraðimar á þeim teiknirigum sem okkur voru sýndar, enda hafa viðkomandi arkitektar teiknað önnur íþróttahús hér á ís- landi sem við höfum verið mjög ánægðir með. Við lýstum yfir á sínum tíma að handknattleikssam- bandið gerði engar sérstakar kröfur um stærð eða gæði sætanna, enda að sjálfsögðu gengið út frá því að þau uppfylli íslenska staðla sem og kröfur Brunamálastofnunar," sagði Jón Hjaltalín. Hann sagði að á fundi hans og forseta IHF með forsvarsmönnum Kópavogsbæjar að morgni fimmtu- dagsins hefðu þeir síðarnefndu leit- að hófanna um hvort mögulegt væri að IHF samþykkti að húsið tæki færri áhorfendur eða allt niður í fímm þúsund, en forseti IHF hefði hafnað því. Varðandi stærð og gæði sæta hefði hann sagt að IHF gerði engar sérstakar kröfur varð- andi þau, enda giltu mismunandi reglur í mismunandi löndum. Hins vegar væri æskilegt að vel færi um blaðamenn og heiðursgesti. Jón Hjaltalín minnti einnig á að þó að gert væri ráð fyrir að húsið tæki 7000 manns í sæti meðan á keppni stæði þá væri fyrirhugað að breyta húsinu eftir keppnina þannig að það tæki einungis 4000 í sæti. Þama væri því um að ræða 3000 bráða- birgðasæti sem ekki þyrftu að vera jafnvönduð og þau sæti sem yrðu áfram í húsinu. „Ef það hefur nú komið í ljós að sú bygging sem teiknuð hefur verið rúmi ekki þessa sjö þúsund áhorf- endur, þá er það okkar spurning hvort Kópavogsbær hafi gert ein- hveijar nýjar kröfur um stærð og gæði sætanna, en það leiðir að sjálf- sögðu af sér að húsið þyrfti að vera stærra. Við höfum ekki séð neinar nýjar teikningar eða skýrslur varð- andi þetta frá Kópavogsbæ, en ger- um ráð fyrir að fá að sjá þær mjög fljótlega," sagði Jón Hjaltalín. Jón Hjaltalín sagði að stjóm HSÍ hefði hins vegar lýst því yfir að það væri mjög skynsamlegt og áhuga- vert að endurskoða þær teikningar sem legið hefðu fyrir með tilliti til þess hvernig hagkvæmast væri að byggja húsið og einnig hvað varð- aði framtíðarrekstur þess. „Okkar samstarf við Kópavogs- menn hefur verið mjög gott og við erum mjög áhugasamir um að svo verði áfram. Við emm mjög ánægð- ir með það sem fram kom á þessum fundi að það er fullur einhugur hjá Kópavogsbæ að halda þessu verki áfram,“ sagði hann. Sauðárkrókur: Melrakki gjaldþrota að kröfii Osta- og smjörsölu Sauðárkróki. FÓÐURSTÖÐIN Melrakki á Sauð- árkróki var úrskurðuð gjaldþrota í gærmorgun. Greiðslustöðvun sem fyrirtækið fékk og stóð í fímm mánuði, rann út þann 31. júlí síðastliðinn. Á þeim tíma sem liðinn er síðan hefur ekki tekist að endurskipuleggja rekstur stöðvarinnar, eða ná samn- Álver á Keilisnesi: Þingmenn og sveitarstjórnir fái skýrslu Byggðasto fnunar MATTHÍAS A. Mathiesen, alþingismaður, hefur sent. Steingrími Hermannssyni, forsætisráðherra, bréf þar sem hann fer fram á að þingmönnum og sveitarstjórnarmönnum á Reykjanesi og í Reykjavík verði send skýrsla Byggðastofnunar um áhrif álvers á Keilisnesi á vinnumarkaðinn. Bréf Matthíasar hljóðar svo: sætisráðuneytið skýrslu um áhrif „Fram hefur komið í fréttum að álvers á Keilisnesi á vinnumarkað- Byggðastofnun hafí gert fyrir for- Óska eftir því að umrædd skýrsla Byggðastofnunar verði send í dag öllum þingmönnum Reykjanes- og Reykjavíkurkjördæma, auk þess öllum sveitarstjórnum í Reykjanes- kjördæmi og borgarstjóranum í Reykjavík.“ mn. ingum við lánardrottna sem nægðu til þess að tryggja rekstur fyrirtækis- ins, að sögn Arna Guðmundssonar stjómarformanns, sem segir að gjaldþrotinu fylgi alvarleg staða við- skiptamanna stöðvarinnar og bú- stofns þeirra. Einn lánardrottnanna, Osta- og smjörsalan, krafðist gjaldþrotaskipta á grundvelli árangurslauss fjárnáms frá þvi í sumar og búvörudeild SÍS sem gert hafði fjárnám í tækjum og búnaði á síðastliðnu hausti, nýtti sér heimild til vörslusviptingar á bifreið, lyfturum, tölvum og öðrum skrif- stofubúnaði og voru þessir hlutir fluttir til geymslu hjá Kaupfélagi Skagfírðinga á fimmtudagskvöld og þar með voru ekki möguleikar á frek- ari fóðurframleiðslu í stöðinni. Fyrir- tækið var síðan úrskurðað gjaldþrota á grundvelli kröfu Osta- og smjörsöl- unnar í gærmorgun í skiptarétti Sauðárkróks og skiptaráðandi tók lykla að fyrirtækinu í sína vörslu. Árni Guðmundsson kvaðst telja lokun stöðvarinnar koma á versta tíma, þar sem stutt er í pelsun, sem hefst í október, og líkur eru nú’tald- ar á að skinnaverð fari hækkandi þegar í byrjun næsta árs. -BB

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.