Morgunblaðið - 08.09.1990, Page 10

Morgunblaðið - 08.09.1990, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990 TEXTÍL í HAFNAKBORG ________Myndlist____________ EiríkurÞorláksson Fyrsta sýning haustsins í Hafn- arborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, er að þessu sinni samsýning átta listakvenna, sem allar vinná í textíl. Það er ekki til- viljun; þær hafa á þessum áratug allar lokið námi frá textíldeildum listaskóla, sex þeirra frá Myndlista- og handíðaskólánum, en tvær frá skólum í Finnlandi og Skotlandi. Auk þess reka sex þeirra sameigin- lega vinnustofu í Garðabæ, sem heitir því skemmtilega nafni „Fjórar grænar og ein svört í sófa“, en tvær vinna sjálfstætt. Öll verkin, fimmtíu og tvö talsins, eru unnin á þessu ári, og sýningin því góður vitnis- burður um núverandi viðfangsefni þessa hóps. Sýningin er björt og létt yfir henni. Þama eru þrykkt myndverk og svokölluð nytjalist (t.d. efnis- strangar til sauma) sýnd skamm- laust hlið við hlið, og benda þannig á sjálfsögðu tengsl listarinnar við tilveru mannsins; það er ekki langt frá verkunum á veggjunum og efni þeirra til fatanna sem gestir sýning- arinnar klæðast. Fiest verkin eru þrykkt og máluð á bómullarefni, og áberandi er hversu hreina og djarfa liti listakonurnar nota í verk- um sínum. Þetta gefur sýningunni samstilltan heildarsvip, þó svo hver listakona skapi auðvitað sinn eigin sjálfstæða tón, sem sést vel þegar einstök verk eru skoðuð betur. Tvö glæsileg rúmteppi frá hendi Kristrúnar Agústsdóttur skipa ótvírætt öndvegi á endavegg salar- ins; stærð þeirra dregu'r athygli að þeim og þarna eru glitrandi efni valin saman á smekklegan hátt. verk Bjarkar Magnúsdóttur eru lífleg og björt, einkum nr. 14—17, sem vinna vel saman í rýminu. Fjóla Kristín Árnadóttir notar sér skemmtilegar samsetningar forma í sínum myndum, og koma „Litríkir draumar" (nr. 25) þar best út. Helga Pálína Brynjólfsdóttir sýnir efni sem hún hefur skapað með til- vísunum í náttúruna, og verkið „Beint og óbeint“ (nr. 30) tekur af allan vafa, því þar koma þessar til- vísanir beint fram í uppsetningunni. Hrafnhildur Sigurðardóttir á flest verk á sýningunni, og koma þau næst því að vera „málverk“ í hefðbundnum skilningi orðsins; hún notar fáein form í ölum myndunum, sem hver hefur einn heilan lit- grunn, og eins konar rammi er skapaður með jaðri verkanna. Vegna þessa standa þau nokkuð sér á parti og njóta ekki efnisins á sama hátt og önnur verk á sýningunni. Ingiríður Óðinsdóttir festir örveru- heim á flauel í nokkrum myndum, en nýtir efnið þó best í þremur „Tilbrigðum“ (nr. 11—13) þar sem litbrigði þrykksins koma vel fram. Ragnhildur Ragnarsdóttir sýnir nokkra tígurlega refla; í formfestu sinni vísa þeir til aldalangra hefða, MAZDA 323 ► 3ja dyra árgerð 1989. ^ Vélastærð 1500. Með vökvastýri, útvarpi, breiðum dekkjum, snjódekkjum á felgum. Ekinn 14000 km. —■ Bíll í sérflokki. Upplýsingar í síma 52112 011KA D107H LÁRUS Þ. VALDIMARSSOM FRAMKVÆMDASTJORI L I Iww falw/u KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.loggilturfasteignasali Til sölu er að koma meðal annarra eigna: Við Safamýri - ailt sér 3ja herb. ekki stór en vel skipul. íb. í kj. í þríbhúsi. Lítið niðurgrafin. Sérhiti. Sérinng. Sérþvottahús. Góð geymsla. Ræktuð lóð. Skuldlaus. Skammt frá Háskólanum Endaíb. 3ja herb. á 4. hæð við Birkimel 81,1 fm nt. Nýtt eldhús. Sól- svalir. Risherb. fylgir með snyrtingu. Mikið útsýni. Laus strax. Göð eign á góðu verði 6 herb. íb. á tveimur hæðum í lyftuh. við Asparfell 131,8 fm nt. 4 rúmg. svefnherb. Svalir og snyrting á báðum hæðum. Sérinng. á gangsvöl- um. Sérþvottah. í íb. Bílskúr. Mikið útsýni. Eignaskipti. Sérhæð - þríbýli - stór bílskúr 4ra herb. efri hæð 106 fm nt. við Ölduslóð, Hf. Allt sér, (-inng., -hiti, -þvottah.). Skipti mögul. á einb. eða raðhúsi í nágr. í Heimunum - sérhiti - sérþvottahús 4ra herb. þakhæð 92 fm nt. (2 herb., 2 stofur). Nýl. gler og póstar. Svalir. Mikið útsýni. Skuldlaus. Laus strax. Gott verð. Á vinsælum stað á Nesinu í þrfbhúsi við Melabraut 4ra herb. mjög góð jarðhæð. Allt sér, (-hiti, -inng., -þvottah.). Ný vistgata. Gott verð. Rúmgott parhús við Norðurbrún með 6 herb. íb. á 1. hæð. Á jarðhæð 2 forstofuherb. m/snyrtingu, þvottah., geymsla, rúmg. föndurherb. og innb. bílsk. Útsýnisstaður. Skipti mögul. á sérhæð af meðalstærð nær miðborginni. 2ja herb. íbúðir m.a. við: Asparfell, Dúfnahóla, Hverfisgötu, Stelkshóla, Tryggvagötu. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga. Fjársterkir kaupendur óska eftir: 3ja herb. íb. á 1. hæð eða í lyftuhúsi. Húseign með tveimur íbúðum. 4ra-5 herb. og 2ja-3ja herb. Sérhæð 4ra-6 herb. i borginni eða á Nesinu. Skrifsthúsnæði 150-300 fm. • • • Opið í dag kl. 10-16. Fjöldi fjársterkra kaupenda. Almenna fasteignasalan sf., var stofnuð 12. júlí 1944. AIMENNA FASTEIONASALAH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 Listakonurnar við uppsetningu sýningarinnar í Hafnarborg. sem sífellt er hægt að endurnýja og bera fram á ferskan hátt. Loks skal nefna myndir Huldu Sigurðar- dóttur, sem að ýmsu leyti eru ijöl- breyttustu verk sýningarinnar. „Raðspil" (nr. 43) notar viðjeitni ungra barna í teikningunni á skemmtilegan hátt, og „1x25“ (nr. 44) sýnir dofnandi littóna í fríhang- andi þríhymingum; loks má nefna að „Fjórstrigi" (nr. 46) er áhuga- verð samsetning gegnsærra flata, en nýtur sín illa hálffalið undir stiga. I heild er hér á ferð ánægjuleg sýning á hefðbundnum textílverk- um ungra listakvenna, sem eru tæknilega vel undirbúnar til frekari afreka. Helst má fínna að því að nokkuð skorti á djörfung og að þær haldi sig að óþörfu að mestu innan hins hefðbundna textílþrykks. En þær eiga framtíðina fyrir sér til að þreifa sig áfram um þá fjölbreyttu möguleika, sem þetta listform býð- ur óneitanlega upp á. Loks má benda á að uppsetning á ýmsum sýningum í Hafnarborg er ef til vill gerð óþarflega flókin fyrir gesti; það er engin ástæða til að menn þurfí að leita sýningar- gripa í anddyri og við enda kaffí- stofu, þó ekki rúmist allt í aðalsaln- um. Komi slíkt vandamál upp á ein- faldlega að hafa færri verk á hverri sýningu. ItOaiEÍMináQ Umsjónarmaður Gísli Jónsson 554. þáttur Veikar eru þær sagnir kallað- ar í máli okkar sem eru fleir- kvæðar í þátíð. Nú er mér að vísu ekki ljóst, hver veikleiki felst í því, að sögn sé fleiri en eitt atkvæði í fyrrnefndri tíð, en látum það gott heita. Veikar sagnir greinast í fjóra flokka (skv. greiningaráráttu fræðanna). Skal nú lítillega get- ið þessara flokka: Fyrsti flokkur (Ó-beyging) einkennist af því, að þátíð sagn- arinnar endar á -aði, en nútíð á -a. Er hér miðað við framsögu- hátt. Dæmi verða þá: kalla, kallaði, kallað; flokka, flokk- aði, flokkað og svara, svaraði, svarað. Þessi þykir umsjónar- manni flötust og tilkomuminnst sagnbeyging í málinu. Af sögnum í þessum flokki er mikill siður að mynda nafnorð í kvenkyni með endingunni -un, svo sem köliun, flokkun og svörun. Annar flokkur veikra sagna ber það einkenni skýrast, að nútíð er endingarlaus í fyrstu persónu, og minnir þannig á sterkar sagnir. Þessi flokkur er stundum nefndur Ja-beyging, þar sem nafnháttur þessara sagna endar á -ja og þetta j í endingunni hefur valdið hljóð- varpi. Þess hljóðvarps gætir ekki í þátfð, þar sem ekkert var joð- ið, og kemur út úr þessu skemmtileg beyging eins og flytja, flutti, flutt, velja, valdi, valið og æja (=tefja), áði, áð. Nútíðin var sem fyrr sagði end- ingarlaus: ég flyt, ég vel og ég æ. Reyndar er mér ekki grun- laust um að einhver segi: ég ái í nútíð framsöguháttar, þá sjald- an þessi sögn er enn notuð. Margar skemmtilegar sagnir eftir þessum flokki eru nú ýmist týndar og tröllum gefnar, til að einhverjum hluta eða ummynd- aðar í líkingu við 1. flokk. Nefn- um nokkur dæmi: Þysja heyrist nú varla nema í þátíðinni þusti. Við getum enn sagt að allskonar illþýði þusti á vettvang. Og nafn- orðið þys (oft í næsta nábýli við ys) er á margra vörum. Bysja, busti, busið er víst með öllu farin forgörðum, en hún merkti að streyma. Blóð busti á eggjar í gömlum bardagavísum. Sömu- leiðis mun þyrja, þurði, þurið alglötuð, en sá sem böðlast áfram var nefndur þurs, og það orð þekkjum við mæta vel, stundum lengt i þursi. í Þrymskviðu segir um Þór: skegg nam að hrista, skör nam að dýja. Með öðrum orðum: Þór hristi skegg sitt og hár. Þarna er þá komin sögnin dýja, dúði, dúð og var í nútíð ég dý, og jörðin dýr undir fótum okkar hafa menn getað sagt. Náskylt þessu er náttúrlega nafnorðið dý. En nú hefur illa farið fyrir sögninni að dýja. Hún hefur flæmst yfir í flatneskjuna í 1. flokki, breyst í dúa, dúaði, dúað, svo að nú dúar jörðin undir fótum okkar, ef svo ber undir, en dýr því miður ekki lengur. Ekki hefur betur farið fyrir hinni ágætu sögn að spenja, spandi, spanið = teygja, lokka. Hún á sér enn beygingarhlið- stæður í venja og þenja, en álp- aðist sjálf yfir í flatneskjuna spana, spanaði, spanað, þannig að nú spana menn þann sem þeir spöndu áður. Áður sögðu menn í nútíð: ég spen eða hann spen(u)r. í vísu Egils Skalla- Grímssonar segir: Jörð spenr Engla skerðir Alfgeirs und sik halfa. En nú spenur enginrríannan til eins eða neins, en spanar hann kannski upp í einhverja vitleysu. Mörg endingarlaus nafnorð samsvara sögnum eftir 2. flokki, svo sem val og dul, en mörg eru mynduð með viðskeytinu -ing, svo sem barningur, vakn- ing og flutning(ur). Sýnist nú umsjónarmanni ráð að geyma 3. og 4. flokk veikra sagna til næsta þáttar. ★ Reis af dauða ræsir sauða ríkur að páskum. Þá var lýður Ijúfur og blíður leiddur úr háskuni. (Úr Kristbálki, gömlu helgi- kvæði, sjá 250. þátt.) ★ Jóhannes Straumland í Reykjavík er ánægður með efni það sem Steindór Steindórsson frá Hlöðum hefur lagt þættinum til undanfarið. Hann segir að um -vík horfi málið svo við frá sínu sjónarmiði: Um alla aðal- staði er sagt í -vík frá og með Vík í Mýrdal vestur, suður (svo sem í Grindavík) og norður um (dæmi í Súðavík) allt að Horni. Þá skiptir um, segir Jóhannes, og nú segja menn á -vík frá og með á Djúpuvík og austur eftir öllu Norðurlandi. Um Austfírði vill hann ekki dæma. ★ Nikulás norðan kvað: Sr. Hallbimi Grönsted frá Gáttum var gefið að ná víða háttum. Líf hans með línum var lagt býsna fínum og markað dýram og ódýrum dráttum. ★ „Edda er í senn goðafræði og um leið einskonar kennslubók í skáldskap að fomum germönsk- um hætti. Áhrif hennar með ís- lendingum urðu geysileg og eng- in ofsögn að telja að hún hafi átt sinn mikla þátt í því að Is- lendingar einir allra varð- veittu og varðveita enn forn- germanska ljóðahefð. En ef Islendingar hefðu lagt þessa fornu skáldskaparhefð fyrir róða eins og aðrir, er engan veginn víst að þeir hefðu varð- veitt fornt norrænt mál eins og þeir hafa gert, en þetta mál, málið sem vér tölum enn, er dýrasti þáttur íslenskrar menningar.11 (Leturbr. hér.) Kristján Eldjárn: Arfur Snorra Sturlusonar, 1979). ★ Og svo var það konan sem kom vestur í Dali og frétti af því, að þar væri verið að slá há. Henni varð að orði: „Ósköp eru bændumir duglegir, búnir að slá alla leið frá A til H.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.