Morgunblaðið - 08.09.1990, Síða 12

Morgunblaðið - 08.09.1990, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990 AR LÆSIS Lestrarörðugleikar á ári læsis m eftir Arthur Morthensen Þeir eru ófáir skólamennirnir er telja að lestur sé eitt flóknasta námsferlið í grunnskólanum og jafnvel í skólakerfmu öllu. Hér á landi hefur því ætíð verið slegið föstu, að allir væru læsnir og rúm- lega það. Samfélagið hefur aldrei viljað gangast við því, að einhverjir ættu í erfiðleikum í hinni hörðu glímu við hið skrifaða orð. Vissulega má til sanns vegar færa, að ísland sé ásamt öðrum Norðurlandaþjóðum í fremstu röð hvað læsi varðar. Þó má öllum vera ljóst, að misskipt er auðnum í lestr- armalnum góða. Kennarar hafa löngum séð að ekki ná allir nemendur þeirra sömu tökum á lestrinum. Við sér- kennsluáætlun skólanna í Reykjavík á síðastliðnu ári þurftu um 1200 nemendur á sérkennslu að halda vegna örðugleika í lestri, mismikla einsog gengur og gerist, en þó það mikla að kennarar töldu fulla ástæðu til að viðkomandi nem- endur þyrftu á sérstakri viðbótar kennslu að halda. Allt að 10% bamanna lenda í erfiðleikum í glímunni við stafina og hljóðin. Framfarir í lestrinum eru hægar og þanþol þolinmæðinn- ar er oft við að bresta bæði í skólan- um og heima fyrir. Grátinn setur að mörgu baminu sem finnur að textinn er torfæra sem erfitt er að sigjast á, þrátt fyrir.fullan vilja. Af hveiju? Þótt hartnær öld sé nú um liðin síðan rannsóknir hófust á lestrar- örðugleikum, hafa fræðimenn enn ekki komist að því, með fullri vissu, af hveiju þeir stafa. Fræðimenn eru þó sammála um að orsakanna sé að leita í nokkrum þáttum. Rann- sóknir hafa m.a. beinst að vinstra heilahveli þar sem talstöðvar og málstöðvar liggja. Fræðimenn, eins og Norðmaður- inn H.J. Gjessing og Svíinn Ingvar Lundberg beiria spjótum sínum að málumhverfi bamsins, uppvaxtar- skilyrðum þess, ásamt kennslu og námsferlinu í lestri. Jafnframt því sem þeir benda á að ófullnægjandi málumhverfi barnsins geti leitt af sér lítinn orðaforða og slakan mál- þroska, telja þeir að rekja megi lestrarörðugleika til truflana, á ann- aðhvort heyrn eða sjón. Eðlileg skráning orða við lestur feli í sér lipurt samspil hljóðrænna og sjón- rænna þátta. Skólinn í dag ætti skólinn að vera betur undir það búinn, en nokkru sinni fyrr, að veita öllum nemendum sínum góða lestrarkennslu. Kennaramenntun er hér góð, menntun sérkennara hefur verið komið á fót hér á landi, lesver hafa verið byggð upp við stærri skóla og útgáfa léttlestrarbóka er nokk- ur. Eigi að síður er ljóst, að ómark- viss lestrarkennsla getur dregið HESTHUS Á HEIMSENDA Til sölu ný og glæsileg hesthús á Heimsenda, í hesthúsabyggð sem liggur á milli Kjóavalla og Víðidals. Hér er um að ræða nýja hönnun hesthúsa þar sem séð er fyrir þörfum jafnt hesta sem hestamanna. Til sölu eru: 6 - 7 hestahús 10-12 hestahús 22 - 24 hesta hús Verð: Hagstætt verð, eða frá kr. 209.000 básinn. Greiðslukjörvið allra hæfi. Húsin seljast fullfrágengin að utan og ýmist ófrágengin eða fullbúin að innan. HEIMSENDI -þú kemst ekki öllu lengra Allar upplýsingar ásamtteikningum: SH VERICTAKAR Sfapahrauni 4, Hafnarfirði, S: 652221 I stórlega úr möguleikum nemandans til að þroska lestrarhæfileika sína og því verður vandinn æ alvarlegri eftir því sem ofar dregur í skólan- um, ef ekki tekst að leysa vandann snemma. Samfélagsþróunin hefur ekki verið hagstæð lestri barna. I könn- un Þorbjamar Broddasonar, á bók- lestri bama og unglinga, kemur í ljós að sjónvarps- og myndbanda- notkun nemenda í 4.-9. bekk hefur tvöfaldast á ámnum 1979—1988, á meðan verulega hefur dregið úr bóklestri. Ingvar Lundberg behdir á að lestrarörðugleikar stafí af ónógum lestramndirbúningi og lestrar- reynslu bama og unglinga. Skólinn er ekki eyland óháð þjóð- félagsþróuninni. Því er ljóst að efla verður faglega færni skólans, enn frekar en nú er, til þess að taka á hinu flókna ferli lestursins. Lestrarmiðstöð Áratugum saman hafa ná- grannaþjóðir okkar varið miklum fjármunum í rannsóknir á sviði lestrarörðugleika. Rannsóknarþátt- urinn hér á landi er vægast sagt rýr, þrátt fyrir að einstaka kennar- ar hafi þróað kennsluaðferðir og stundað stöku rannsóknir, emm við miklir eftirbátar annarra Norður- landaþjóða. Brýna nauðsyn ber til að efla stórlega rannsóknir tengdar bættum kennsluaðferðum. Stofnun lestrarmiðstöðvar, er hefur kennslu og rannsóknar- skyldu, er liður í að styrkja skóla- starfið. Slík lestrarmiðstöð, er gæti bæði sinnt sérstakri lestrarkennslu fyrir börn og unglinga, þyrfti jafn- Arthur Morthensen framt að geta þjónað lestrarkennslu fullorðinna og styrkt þannig sjálf- sögð mannréttindi. Eðlilegt er að starfsemi slíkrar lestrarmiðstöðvar sé tengd Kennaraháskóla íslands og staðsett við Æfinga- og tilrauna- skólann. Tækjabúnaður hefur þegar verið keyptur til þessarar starf- semi, sérmenntaðir kennarar bíða í startholunum, gott húsnæði hefur verið boðið til kaups fyrir litlar 5 milljónir, er tregðan í kerfinu lætur ekki að sér hæða. Besta gjöfín sem stjómvöld geta gefíð börnum á árTlæsis er lestrar- miðstöð, sem þjónar þeim er eiga við að glíma erfíðleika í Iestri, þeir em fleiri en nokkurn gmnar. Höfundur er sérkennslufulltrúi Fræðsluskrifstofu Reykja víkurumdæmis. Fundur norrænnajafnréttisráðherra: Norrænt kvenna- þingárið 1994 RÁÐHERRAR jafnréttismála á Norðurlöndum héldu fund í Kaup- mannahöfn í dag. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sat fundinn af hálfu Islands. Á ráðherrafundinum var meðal annars rædd- ur undirbúningur fyrir norrænt kvennaþing sem haldið verður árið 1994. Um er að ræða hliðstætt þing og haldið var í Ósló árið 1988. Á fundinum var samþykkt að kjörorð kvennaþingsins verði Líf og starf kvenna. Ráðherramir leggja til að þingið ijalli um eftirtalin atriði: — framvindum á sviði jafnréttis- mála frá kvennaþinginu í Ósló árið 1988. — nýjar leiðir fyrir alla sem starfa að jafnréttismálum og hugmyndir um ný verkefni. — hvemig treysta megi almennan áhuga á jafnréttismálum og virkja nýja hópa í löndunum sem og á norrænum vettvangi, eink- um yngra fólk. — undirbúning þátttöku Norður- landa í kvennaráðstefnu Samein- uðu þjóðanna árið 1995. — tækifæri til samskipta við konur og samtök þeirra á Norðurlönd- unum og í nágrannaríkjum þeirra, t.d. í Austur-Evrópu (Sov- étríkjunum, Eystrasaltslöndun- um og Póllandi). — hugmyndir karla og kvenna um þjóðfélag jafnréttis árið 2000. Þess skal getið að Norðurlandaráð hefur samþykkt að kvennaþingið árið 1994 skuli fjalla um tengsl íjöl- skyldulífs og þátttöku á vinnumark- aðinum. í því felst að varpað er ljósi á mörg önnur viðfangsefni, t.d. nýtt hlutverk karla, stöðu barna og jöfn laun kynjanna. I framhaldi af fundi ráðherranna verður sérstakri skipulagsnefnd falið að vinna að frekari undirbúningi þingsins. í nefndinni sitja fulltrúar kvennasamtakanna, samtaka aðila vinnumarkaðarins og æskulýðssam- taka. Auk Jóhönnu Sigurðardóttur fé- lagsmálaráðherra sátu fundinn af hálfu íslands Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðu- neytinu, og Elsa Þorkelsdóttir, fram- kvæmdastjóri Jafnréttisráðs. (Fróttatilkynning.) sís lASTl DAG iUR mm SNORRABRAUT 56 ARÍKI SÍMI 13505 "14303 O' rSÖLUNNA Enn frekari verdlækkun Opió fró kl. 10 til 16 í dag lR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.