Morgunblaðið - 08.09.1990, Page 15

Morgunblaðið - 08.09.1990, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990 15 verður 121. sálmur Davíðs úr Elía eftir F. Mendelsohn fyrir 3 kven- raddir. Orgelleikari Ronals V. Turner. Heitt á könnunni eftir messu. Fimmtudag: Kyrrðarstnd í hádeginu. Orgelleikur, fyrirbæn- ir, altarisganga. Léttur hádegis- verður eftir stundina. Sóknar- prestur. NESKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Frank M. Halldórsson. Organisti Reynir Jónasson. Miðvikudag: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. SEUAKIRKJA: Fermingarguðs- þjónusta kl. 14. Fermd verður Rúna Petersen, Kambaseli 29. Altarisganga. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Lárus Sveinsson leikurein- leik á trompet. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Molasopi eftir guðsþjónustuna. Sóknarprestur. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Gyða Halldórsdóttir. Sr. Guðmundur Örn Ragnarsson. SAFNKIRKJAN ÁRBÆ: Guðs- þjónusta kl. 14. Prestur sr. Krist- inn Ágúst Friðfinnsson. Organisti Jón Mýrdal. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Guðs- þjónusta kl. 14.00. Miðvikudag 12. september, morgunandakt kl. 7.30. Cecil Haraldsson. KRISTSKIRKJAN Landakoti: Lágmessa kl. 8.30, stundum lesin á ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág- messa kl. 14. Rúmhelga daga lágmessa kl. 18, nema á laugar- dögum, þá kl. 14. Á laugardögum er ensk messa kl. 20. MARÍUKIRKJAN Breiðholti: Há- messa kl. 11. Rúmhelga daga lágmessa kl. 18 nema á fimmtu- dögum, þá kl. 19.30. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíla- delfia: Safnaðarsamkoma kl. 11. Ræðumaður Hafliði Kristinsson. Almenn samkoma kl. 20. Ræðu- maður Sam Daniel Glad. Barna- gæsla. HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálp- ræðissamkoma kl. 20.30. Ingi- björg og Óskar sjá um samko- muna. MOSFELLSPRESTAKALL: Messa í Lágafellskirkju kl. 14. Organisti Guðmundur Ómar Óskarsson. Aðalsafnaðarfundur verður í safnaðarheimilinu Þver- holti 3 að lokinni messu. Sr. Jón Þorsteinsson. GARÐAKIRKJA: Messa kl. 11. Hljómeyki syngur. Organísti Ut- assy Ferenc. Prestarnir. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14. Kór Víðistaðasóknar syngur. Organisti Úlrik Ólason. Sr. Sigurður Helgi Guðmunds- son. • HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 14. Altarisganga. Org- anisti Helgi Bragason. Sr. Gunn- þór Ingason. KAPELLAN St. Jósefsspítala: Hámessa kl. 10.30. Rúmhelga daga lágmessa kl. 18. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30. Rúmhelga daga messa k| Q KÁLFATJARNARKIRKJA: Guðs- þjónusta kl. 14. Stóruvogaskóli settur. Organisti Frank Herluf- sen. Sr. Bragi Friðriksson. YTRI-Njarðvíkurkirkja: Messa kl. 11. Organisti Gróa Hreinsdóttir. Sr. Þorvaldur Karl Helgason. KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Kór Keflavíkurkirkju syngur sálma eftir Grundtvig og sálmaskáldsins verður minnst. Sverrir Guðmundsson syngur einsöng. Organisti og stjórnandi Einar Örn Einarsson. Sóknar- prestur. KAÞÓLSKA kapellan, Hafnar- götu 17, Keflavík: Messa á sunnudögum kl. 16. GAU LVERJ ARBÆJ ARKIRKJA: Messa kl. 14. Sóknarprestur. ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14. Organleikari Einar Sigurðsson. Sóknarprestar. AKRANESKIRKJA: Messa kl. 11. Fyrirbænaguðsþjónusta nk. fimmtudag kl. 18.30. Ath. breytta dagsetningu. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Björn Jónsson. BORGARPRESTAKALL: Messa í Borgarneskirkju. Sóknarprestur. haft næmt nef, því hann svínaði hjartadrottingunni af Jóni og vann sitt spil, 420. Vestur Norður Austur Suður v.s. s.v. pass 2 lyörtu 2 spaðar 4 hjörtu dobl pass 5 lauf dobl 5 spaðar pass pass dobl pass pass Vestur stóðst ekki freistinguna og sagði 2 spaða. Þegar austur doblaði 4 hjörtu var Valur tilbúinn með redoblið en suður missti kjark- inn. Það kostaði hann 1.400 og 14 impa tap. Garozzo heimsmeistari í þrautabrids í Genf var 20 heimskunnum bridsmeisturum boðið til nýstár- legrar keppni. Þeir voru settir fyrir framan tölvuskerm þar sem birtust 16 svínslegar spilaþrautir sem Svisslendingurinn Pietro Bernas- coni hafði búið til. Hámark stiga fyrir hveija þraut var 1.000, sem þó var ekki hægt að fá öll því fyrir hveija mínútu sem tók að leysa þrautina dró tölvan 5 stig frá. Og fyrir hver mistök fuku 250 stig. Einnig voru sektir ef spilarar vildu sjá síðasta slag o.s.frv. Italinn Benito Garozzo, sem eitt sinn þótti óumdeilanlega besti spil- ari heims, sýndi að hann kann enn sitthvað fyrir sér, og vann þetta mót léttilega, fékk 7.285 stig. Næstur kom Bob Hamman frá Bandaríkjunum með 6.045 stig, gamli franski meistarinn Pierre Ghestem varð í 3. sæti, Chip Mart- el frá Bandaríkjunum varð í 4. sæti, Andy Robson og Tony Forr- ester frá Bretlandi urðu í 5. og 6. sæti og svona má lengi telja. Hér er sýnishom af þrautunum sem spilaramir þurftu að leysa. Þetta vom allt úrspilsþrautir, þar sem stáldrað er við öðm hvoru og spurt hvemig ætti að bregðast við ákveðnum aðstæðum. Sennilega hefur þessi verið ein sú léttasta, en spilið er samt talsvert flóknara en virðist við fyrstu sýn. Þeir sem vilja glíma við þrautina ættu að halda fýrir hendur AV. Vestur ♦ K9873 ¥- ♦ KD76 ♦ Á1076 Norður ♦ ÁD652 V 9742 ♦ 52 + KG Austur ♦ - ¥G653 ♦ G10983 + 9543 Suður ♦ G104 ¥ ÁKD108 ♦ Á4 ♦ D82 Vestur opnar á 1 spaða sem sýn- ir 5-lit, og suður endar í 4 hjörtu Vestur spilar út tígulkóng. Hver er fyrsta áætlunin? Þú verður að drepa fyrsta slag- inn. Annars spilar vestur spaða, sem austur trompar, spilar vestri inn á laufás og trompar aftur spaða. Eftir að hafa tekið fyrsta slaginn með tígulás tekur þú hjartaásinn og vestur hendir tígli. Hvað nú? Það þýðir ekki að reyna að kom- ast inn í blindan á lauf, til að svína hjarta. Vestur fer upp með ásinn og gefur austri spaðastungu og kemst svo inn á tíguldrottningu til að gefa austri aðra stungu. Rétta framhaldið er að taka KD í hjarta en hvað svo? Þú verður að spila spaðagosanum og hlejrpa honum. Besta vörn aust- urs er að henda laufi eða tígli. Nú spilar þú - spaðatíunni, kóngur og ás, og austur hendir aftur. Þú spil- ar spaðadrottningu og austur hend- ir enn. Nú er síðasta hindrunin eft- ir. Kemstu yfir hana eða detturðu? í lokastöðinni verður þú að spila spaða úr borði og henda tígulfjark- anum heima. Þetta er kallað skæra- bragð. Vestur á slaginn en vörnin fær nú aðeins tvo slagi í viðbót, á hjartagosann og laufaásinn. «• Morgunblaðið/Sverrir Alpa- þyrnir - Eryngium alpinum 181. þáttur Blóm vlkunnar Umsjón:Ágústa Björnsdóttir Ef litið er um öxl svosem um áratug má segja að sú eftirsótta jurt alpaþymir - Eryngium alpin- um - hafi þá verið næsta fágæt hér á suðvesturhorninu, en rækt- un hennar hefur mjög aukist á síðustu árum. Norðanlands var hann algengari og er t.d. getið á plöntuskrá gróðrarstöðvarinnar Sólvangs á Akureyri árið 1937. Á næstu tveim áratugum nær hann að komast í eigu áhugasömustu plöntusafnara á Reykjavíkur- svæðinu, en lítið meira því enn líða mörg ár þar til hann fer að dreifast hér um garða svo nokkru nemi og nú loks þegar síðasti ára- tugur aldarinnar er að hefjast er svo komið að hann prýði hér fjöl- marga garða, það hafa félagar G.í. getað sannfærst um í síðustu garðaskoðunum. Hversu hæg út- breiðsla jurtarinnar hefur verið má að líkindum rekja til þess m.a. að fræið spírar misvel og jafnvel getur reynst býsna erfitt að koma til græðlingum. í Skrúðgarðabók og fleirum íslenskum garðyrkjubókum er ættkvíslin Eryngium nefnd einu nafni sveipþyrnir en einstök rækt- unarafbrigði einkennd nánar eftir atvikum t.d. Eryngium alpinum = alpaþyrnir og bendir til þess að jurtin vaxi upp til fjalla og nær þá allmikilli hæð, 60-90 sm en aftur á móti vex Eryngium marit- imum = marþyrnir við sjávarsíðu og verður ekki hærri en 30 sm. Hann vex villtur víða um Norður- lönd t.d. við strendur í Danmörku. En það er fyrst og fremst alpa- þyrnir sem hér verður rætt um og ber því að lýsa nokkru nánar. Stönglar eru bláleitir, allmikið greindir, þeir eru vel stinnir full- vaxnir og hvort við fáum beina og tígulega leggi til að þurrka ræðst mikið á því við hvaða að- stæður jurtin býr. Ef mögulegt Alpaþyrnir er að veija hana miklum hvass- viðrum á meðan hún er að styrkj- ast og ná fullri hæð er það mikils vert því í uppvextinum eru legg- irnir meyrir og mjúkir og hættir til að sveigjast sitt á hvað í stormi og ná þá ekki að rétta úr kútnum aftur og ber því brýna nauðsyn til að fylgjast með því sem fram vindur. Blöðin, blámenguð, sitja all þétt á stönglinum, eru þau með hvassar og þyrnóttar brúnir og er þá komið að minnast á reifa- blöð blómskipunarinnar en þau eru aðalskraut jurtarinnar með geislandi silfurbláan lit og sitja þétt utan um nær svartan blóm- koljinn. í þokkalegu árferði hefst blómgun jafnan uppúr miðjum júlí og stendur oftar en ekki yfír í um það bil mánaðartíma. Ef þurrka á blómstönglana þarf að taka þá áður en jurtin fer að sölna og gott er að láta þá snúa ýmist upp eða niður meðan á þurrkun stendur. Blómin þurrkuð geta ver- ið skemmtileg til margra hluta t.d. í jólaskreytingar, má þá gjam- an spreyja þau aðeins með silf- urbronsi einkum hafi þau verið búin að missa mesta glansinn þegar þau voru tekin. Rótarkerfí alpaþyrnisins er mikið en svo viðkvænit að jurtin þolir illa flutning. Þó getur, ef varlega er að farið, heppnast að skipta henni sé það gert snemma vors. Fyrr á öldum var því trúað að jurtin byggi yfir lækninga- mætti. í Danmörku hefur hún gengið undir nafninu Mandstro frá fornu fari og hefur lauslegri þýðingu karlmannstryggð heyrst bregða hér fyrir. Alpaþyrnir þroskar vel fræ hér á landi þótt misvel gangi að láta það spíra og um langt árabij hef- ur það verið á frælista G.í. Þá hafa plöntur verið fáanlega í hin- um ýmsu gróðarstöðvum, oftast aldar þar upp af fræi, en þó hafa einhver brögð verið að innflutn- ingi. Skagaströnd; Hallbjörn kántrýkóngur með nýja bók o g nýja plötu Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Hallbjörn Hjartarson og Páll Ásgeirsson spjalla saman á heimili Hallbjarnar yfír próförkum að nýju bókinni. NÝ hljómplata Hallbjörns Hjart- arsonar, Kántrý 6, I Nashville, kemur út um mánaðamótin sept- ember/október. Bók um Hall- björn er síðan væntanleg á jóla- markaðinn. Á Kántrý 6, í Nashville eru 11 ný lög eftir Hallbjörn og eitt gam- alt í nýrri útsetningu. Platan var tekin upp í háborg sveitatónlistar- innar, Nashville, Tennessee og á henni leika nokkrir þekktustu hljóð- færaleikarar sveitatónlistarinnar í Bandaríkjunum. Textahöfundar plötunnar eru þeir sömu ogáður háfa starfað með Hallbirni. Á plöt- unni viðheldur Hallbjörn því, sem hann tók upp á síðustu plötu, að fjalla um íslenska stjórnmálamenn í lögum sínum því eitt laga plötunn- ar ijallar um Davíð Oddsson borgar- stjóra. Hallbjörn gefur nýju plötuna út sjálfur eins og hann hefur gert með síðustu plötur sínar. Ætla má að Hallbjörn verði nokk- uð í sviðsljósinu seinni hluta ársins því auk plötunnar kemur út bók um hann nú fyrir jólin. Það er bóka- útgáfan ísprent hf. á ísafirði sem gefur bókina út. Páll Ásgeirsson blaðamaður skrifar bókina og er- hann um það bil að ljúka verkinu þessa dagana. Ekki er þó komið nafn á bókina enn sem komið er. í samtali við Morgunblaðið sagði Páll að vinnan við ritun bókarinnar og samstarfíð við Hallbjörn hefði hvort tveggja verið mjög ánægju- legt. Hefði það reyndar ekki komið sér á óvart því að Hallbjörn væri skemmtilegur og skapandi maður. - ÓB.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.