Morgunblaðið - 08.09.1990, Side 18

Morgunblaðið - 08.09.1990, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990 18 Opið hús VÍB um helgina: „Fjármálin fylgja okkur alla ævina“ ÁHUGI almennings á því að skipuleggja einka- og fjölskylduijármálin hefur aukist umtalsvert á undanförnum árum. Margir hafa takmarkað- an tíma á virkum dögum til að leita sér ráðgjafar á þessu sviði og því hefur Verðbréfamarkaður íslandsbanka, Armúla 13a, ákveðið að hafa „opið hús“ fyrir almenning nú um helgina, 8. og 9. september, undir kjörorðinu „Fjármálin fylgja okkur alla ævina“. Fólk getur t.d. kynnt sér sérstak- lega: fjármálaráðgjöf, reglulegan sparnað, verðbréfasjóði og hluta- bréfaviðskipti. Á hveiju sviði verða ráðgjafar til þess að útskýra hina ýmsu þætti og svara spurningum. Auk þess verða flutt fræðsluerindi á laugardag og sunnudag um eftirla- unamál, ávöxtun fjármagns á verð- bréfamarkaði, skattamál, hlutabréf, húsnæðismál og um fjármálin sem fylgja okkur alla ævina. Boðið verður upp á einfaldan spumingaleik fyrir þá sem heim- sækja VÍB og dregið verður úr rétt- um svörum. Þrenn verðlaun verða veitt, fyrstu verðlaun eru Sjóðsbréf VÍB að eigin vali fyrir 50 þúsund krónur en önnur og þriðju verðlaun eru Sjóðsbréf að upphæð krónur 25 þúsund hvort um sig. Erla Rut Harðardóttir sem sér um barnatímann á Stöð 2 verður á staðn- um til að spjalla við börnin meðan foreldramir kynna sér fjármálin. Á laugardaginn verður opið í VÍB, Ármúla 13a, frá kl. 12.00 til 17.00 og á sunnudaginn frá kl. 13.00 til kl. 17.00. (Fréttatilkynning) Leikarar Þjóðleikhússins, sem lesa upp í Iðnó. Morgunblaðið/Júlíus Frá kynningarfundi ráðherra og nefndar um barnamenningu í gær. Menntamálaráðuneytið; Átak í að auka menningar- og listsköpun meðal skólabarna MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ er nú að hrinda af stað átaki í að auka þátt sköpunar og lista í starfi grunnskólanna. Markmiðið er að vekja áhuga á menningar- og listsköpun meðal skólabarna. í þessum tilgangi er ætlunin að auka tengsl lista- og uppeldisstétta á landinu, og hefst átakið með „Degi læsis“ sem efnt er til í dag í tengslum við ár læsis. Dagur læsis er í dag DAGUR læsis verður haldinn hátíðlegur í dag, 8. september, og er hann liður í Ári læsis 1990. Markmiðið með deginum er að vekja athygli fólks á mikilvægi þess að vera læs. Menntamálaráðherra og nefnd um barnamenningu, sem unnið hefur að þessu átaki, boðuðu í gær til blaða- mannafundar um málið. Þar kom fram að í allan vetur verður unnið markvisst að því að auka hlut menn- ingar og listsköpunar í skóla- tóm- stundastarfí skólabama. í tengslum við þetta hefur verið samið við Bandalag íslenskra listamanna, og munu listamenn heimsækja skóla í vetur og kynna nemendum starf sitt. í vor er svo ætlunin að efna til „Lista- hátíðar bama,“ þar sem börnum verður gefinn kostur á að kynna al- menningi listsköpun sína. Víða verður brugðið á leik á Degi læsis. Maraþonlestur verður í Iðnó þar sem leikarar Þjóðleikhúss- ins lesa upp úr ýmsum bókmennta- verkum. Lesið er allan daginn og hefst lesturinn klukkan 10 um morguninn og stendur fram til klukkan 22.30 að kvöldi. Hlé verður gert á lestrinum milli klukkan 12 og 13.30. Dagskránni er skipt upp í klukkustundar löng atriði. Fyrir hádegi eru tvö atriði ætluð yngstu börnunum og þau endurtekin eftir hádegið milli klukkan 13.30 og 15.30. Þá hefst unglingadagskrá og síðan um klukkan 16.30 verða lesnir kaflar úr Fjallkirkjunni og stendur sá lestur til klukkan 18 þegar unglingaefnið er endurtekið. Klukkan 20 hefst lestur á ljóðabók- um og klukkan 21 dagskrá sem nefnist „Gluggað í bókaskápinn". Þar á að lesa úr íslenskum bók- menntum þessarar aldar. Aðgangur er ókeypis. Leikarar Þjóðleikhússins munu síðan fara með eitthvað af því efni sem lesið verður í Iðnó inn á sjúkrastofnanir á Reykjavíkur- svæðinu. Á Lækjartorgi hefst dagskrá helguð þessúm degi klukkan 13.30. Valgeir Guðjónsson ætlar að spila og syngja fyrir áhorfendur, sýnt verður brot úr leikriti Litla leikhúss- ins Trölið týnda, börn úr Æfinga- og tilraunaskóla KHÍ koma fram og Einar Áskell mun heilsa upp á mannskapinn. Hornaflokkur Kópa- vogs, „stultuhópurinn“ og Einar Áskell verða í fararbroddi skrúð- göngu sem fara mun frá skemmti- pallinum á Lækartorgi að Iðnó. Á Landsbókasafni Islands verður í tilefni Árs læsis bráðlega stafrófs- kverasýning í anddyri safnsins. Menntamálaráðuneytið hvetur landsmenn unga sem aldna til að leggja rækt við þá íþrótt að lesa sér til fróðleiks og skemmtunar, segir í frétt fr'a ráðuneytinu. Stafrófs- kverasýn- ing í Lands- bókasafni LANDSBÓKASAFN efnir þessa dagana í tilefni af ári læsis til sýningar á íslenskum stafrófs- kverum. Fyrsta stafrófskverið kom út á Hólum 1695, annað 1745, endur- prentað 1753, þriðja í Kaupmanna- höfn 1773, fjórða á Hólum 1776, endurprentað með viðaukum 1779 og 1782. Það sama ár (1782) kom út í Hrappsey og án atbeina kirkju- yfirvalda fýrsta stafrófskverið á nútíma vísu, Lítið ungt stöfunar- barn og var höfundur þess sr. Gunn- ar Pálsson í Hjarðarholti, kunnur lærdómsmaður á sinni tíð. Bókaútgáfan Iðunn hefur nú gef- ið þetta kver út ljósprentað í sam- vinnu við Landsbókasafnið og ritar Gunnar Sveinsson magister ítarleg- an formála fyrir því. Kverið er 4. bindi í ritröð er nefist íslensk rit í frumgerð. Yngstu stafrófskverin á sýning- unni eru frá byijun þessarar aldar. Sýningin er opin á opnunartíma safnsins mánudaga til föstudaga klukkan 9-19 og laugardaga klukk- an 9-12. Landsbókasafn efnir þessa dag- ana til sýningar á íslenskum staf- rófskverum. íslandsþing: Ungu skákmennimir í stórsókn Skák Bragi Kristjánsson NÍUNDA umferð í landsliðs- flokki á Skákþingi íslands var tefld á Hótel Höfn á fimmtu- dagskvöld. Héðinn Steingríms- son hélt vinningsforskoti á aðra keppendur með því að vinna öruggan sigur á Halldóri Grét- ari Einarssyni. Helstu keppina- utar hans unnu einnig sínar skákir, Margeir Pétursson vann Snorra Bergsson, Jón L. Árna- son vann Sigurð Daða Sigfús- son og Björgvin Jónsson vann Árna Ármann Árnason. Sigur Björgvins var öruggur, en Snorri og Sigurður Daði áttu góða stöðu, þar til þeir lentu í tímahraki. Önnur úrslit: Þröstur Þ. — Hannes Hlífar Stefánsson, ‘A; Tómas Bjömsson — Þröstur Árna- son, biðskák, betri hjá Þresti. Staða efstu manna, þegar tveim umferðum er ólokið: 1. Héðinn, 7 v., 2.-3. Margeir og Björgvin, 6 v., 4. Jón L. og Þröstur Þ., 5 v., 5. Þröstur Árnason, 4 'A v. og bið- skák; 6. Hannes Hlífar, 4 'A v. Héðinn þarf nú aðeins 1 vinning úr tveim síðustu skákunum til að tryggja sér a.m.k. aukakeppni um íslandsmeistaratitilinn. Hann hef- ur að auki tryggt sér áfanga að titli alþjóðlegs skákmeistara. Sannarlega glæsileg frammistaða hjá 15 ára pilti í svo sterku móti. Björgvin hefur einnig staðið sig frábærlega vel. Hann þarf aðeins 1 vinning í tveim síðustu umferð- unum til að ná áfanga að alþjóð- legum meistaratitli. Ef það tekst, er líklegt að hann hafí uppyllt „kvóta“ þann, sem þarf til að hljóta titilinn. Stórmeistararnir Margeir og Jón L. hafa fengið óvenjumikla mótstöðu „óbreyttra" íslenskra skákmanna í þessu móti. Það sýn- ir enn einu sinni, hve ungu skák- mennirnir okkar eru að verða sterkir. Stórmeistarakandídatinn, Hannes Hlífar, hefur verið óþekkj- anlegur í þessu móti, og Þröstur Þórhallsson átti í mestu vandræð- um í byijun mótsins, þótt hann hafi sótt í sig veðrið. Loks er vert að geta góðrar frammistöðu Þrastar Árnasonar. Hvítt: Héðinn Steingrímsson Svart: Halldór G. Einarsson Grunfelds-vörn 1. d4 - Rf6, 2. c4 - g6, 3. Rc3 - d5, 4. Bf4 - Bg7, 5. e3 - c6, 6. Rf3 - 0-0, 7. Hcl - Da5 Til greina kemur 7. — Bg4, t.d. 8. h3 - Bxf3, 9. Dxf3 - Da5, 10. Bd3 - Rbd7, 11. 0-0 - dxc4, 12. Bxc4 — e5 með jöfnu tafli. 8. Rd2! Héðinn teflir eftir gamalli upp- skrift Boleslavskíjs, sem lítur bet- ur út en skákfræðin í dag: 8. Dd2 — Be6, 9. cxd5 — Rxd5, 10. Rxd5 - Dxd2+, 11. Kxd2 - Bxd5, 12. Bc4 — Bxf3, 13. gxf3 — Rd7, 14. Ke2 — e5, 15. dxe5 — Rxe5 með lítið eitt betra tafli fyrir hvítan. 8. - Rh5?! Vafasamur leikur. Best er líklega 8. — Bg4, 9. Db3 — Db6, 10. cxd5 - Dxb3, 11. Rxb3 - cxd5. með litlum, en varanlegum yfirburðum hvíts. Til greina kem- ur einnig 8. — Rbd7, 9. Rb3 — Dd8, 10. cxd5 — Rxd5, 11. Rxd5 — cxd5 o.s.frv. 9. Bg5 - He8? Afleikur. Líklega er 9. — Bf6! skársti leikurinn. 10. cxd5 - cxdö, 11. Rb3 - Dd8, 12. Df3! - Be6 Reynandi var 12. — Bf6. 13. Rc5 - Rd7,14. Rxe6 - fxe6, 15. Bb5 - a6, 16. Ba4 - b5, 17. Bb3 - Rb6,18. Dh3 - Dd7? Svarti yfírsést næsti leikur hvíts. Hann hefði betur leikið 18. - Dd6. og vinnur. 20. Rc5 - Dc6, 21. 0-0 - Bf6?! 22. Dxe6+ — Dxe6, 23. Rxe6 — Rc4, 24. h4 - Rg7, 25. Rc5 - Bxg5, 26. hxg5 — e5? Nú fellur peð eða skiptamunur til viðbótar. 27. Bxc4 - bxc4, 28. Rd7 - exd4, 29. Rf6+ - Kf7, 30. Rxe8 — Hxe8, 31. exd4 — He4, 32. b3 - Re6, 33. Hfel - Hxd4, 34. bxc4 - dxc4, 35. He3 - Rf4, 36. Hbl - Hd7? 37. Hf3 og svartur gafst upp, því hann tapar riddaranum á f4 til viðbótar við fyrri hörmungar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.