Morgunblaðið - 08.09.1990, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990
19
Níunda bók RIM komin út:
Egill var ekki hreysti-
menni heldur skepna
- segir Einar Pálsson um helstu niðurstöður
EGILS saga og úlfar tveir, níunda hefti bókaflokksins Rætur íslenskr-
ar menningar eftir Einar Pálsson er nú komið út. Einar segir í sam-
tali við Morgunblaðið, að rannsóknir hans á goðsögnum og launsögn-
um í Egils sögu, sem er meginviðfangsefni bókarinnar, leiði til niður-
stöðu sem gangi þvert á niðurstöður annarra. Hann segir Snorra
Sturluson hafa skrifað Eglu, ekki til þess að hampa hreysti Egils
Skallagrímssonar, heldur hið gagnstæða, til þess að sýna skepnu-
skap hans og tvíeðli Mýramanna.
Sinfóníuhljómsveitin;
Námskeið hjá
hljóðfæraleikurum
Viðfangsefni bókarinnar er Egils
saga Skallagrímssonar og land-
námsbaugur Vesturlands. Einar
Pálsson kveðst leitast við að svara
spurningunni hvers vegna var Egils
saga skrifuð og hvað býr að baki
sögunni, sömuleiðis rýnir hann í
helstu stef Snorra Eddu um úlfana
tvo og greinir frá ýmsum miðalda-
fræðum um hliðstæð efni.
„Menn hafa talið að Egils saga
væri skrifuð tii þess að hlaða undir
Mýramenn, til þess að hrósa Agli
sem kempu og hreystimenni. Mín
niðurstaða er sú, að sagan er hrein
miðaldalaunsögn, eða_ allegóría,
kannski sú hreinasta sem við eigum,
og hún er skrifuð í lærdómsskyni
til að sýna Mýramönnum framan í
sitt eigið eðli, tvíeðli. Það er alltaf
sett upp sem tvennd, annars vegar
sem tungl og hins vegar sem sól.
Sólskinið býr í Þórólfunum, tungl-
seðlið býr síðan í Agli og Skalla-
grími. Þetta er miðaldatvennd sem
kallað er og bók mín er sett upp
þannig að tvenndirnar eru raktar
alveg, þess vegna heitir hún Úlfar
tveir. Annar úlfurinn í goðsögninni
étur tungl og hinn sól. Niðurstaðan
er sem sagt þveröfug við það sem
til dæmis Sigurður Nordal og þeir
héldu hér áður, að Egils saga væri
til þess að hampa hreysti Egils
Skallagrímssonar. Það er þveröf-
ugt. Þetta er lærdómsför sálar um
einstigu lífsins sem býr á bak við
þessa sögu. Egill var ekki hreysti-
menni, heldur skepna,“ segir Einar.
„Þeir hafa talið, þegar Egill er
að krækja út auga á Ármóði skegg
og þegar hann er að æla í andlit
mönnum og hlaða búkum í borgar-
hliðum, að verið væri að hossa
Mýramönnum fyrir hreysti, en það
er alveg þveröfugt samkvæmt
minni niðurstöðu um launsögnina,"
segir hann.
Einar segir Snorra hafa skrifað
Eglu dulið með þessari launsögn.
Hann segir samtímamenn Snorra
hafa skilið þetta launsagnamál.
„Þetta hefur skilist í því sem kall-
ast gildi. Við eigum í Þorgils sögu
og Hafliða frásögn af gildinu á
Reykjahólum 1119 og þar er ein-
mitt sagt frá því að þar hafi farið
fram sagnaskemmtan. Gildi er eig-
inlega það sem hét í heiðnum sið
launhelgar. Þar er geymd forn laun-
helg þekking."
I fyrsta kafla bókarinnar segir
Einar Pálsson.
Einar frá því, að honum hafi reynst
erfitt að sjá goðsögnina í Egils
sögu, þar til hann las vísindaþátt
tímaritsins Time 3. júlí 1989. „Ég
skildi lengi vel ekki goðsögnina sem
gæti verið að baki launsögn Egils
sögu, af því að tölurnar voru svo
einkennilegar, af hveiju úlfarnir eru
alltaf tengdir við töluna 11 og ann-
ar þeirra er alltaf að éta sólu. Síðan
kemur í ljós samkvæmt nýjustu
vísindalegum rannsóknum, að sólin
gengur alltaf í 11 ára bylgjum, sól-
blettirnir, þannig að á 11 ára fresti
minnkar alltaf máttur hennar og
eykst svo aftur. Þetta eru tölurnar
sem alltaf eru notaðar um úlfinn
sem alltaf nagar sól.“
í bókarlok eru raktar niðurstöður
Einars, ennfremur er þar sagt frá
helstu niðurstöðum annarra um
Egils sögu. Úlfar tveir er 357 blaðs-
íður, Halldór Jónsson cand. mag.
gerði nafnaskrá og las prófarkir.
Bókin er prentuð í Odda, útgefandi
er Mímir.
UNDANFARNAR tvær vikur hafa
hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar verið á árlegu nám-
skeið, sem haldin eru í upphafi
starfsársins. Kennarar á nám-
skeiðinu hafa verið tveir. Fyrir
strengjasveitina var það Leon
Spierer, konsertmeistari Fíharm-
Brunamálastofnun:
Námstefna
um upptök
eldsvoða á
Hótel Sögu
BRUNAMÁLASTOFNUN stendur
nú fyrir námstefnu á Hótel Sögu
um brunarannsóknir, einkum að
því er varðar upptök bruna. Um
50 manns sitja námstefnuna.
Að sögn Bergsteins Gizurarsonar,
brunamálastjóra, hefur starf Bruna-
málastofnunar að miklu leyti beinst
að brunavömum og rannsóknum á
því hvernig eldur hefur breiðst út. Á
námstefnunni væri hins vegar at-
hyglinni fyrst og fremst beint að
rannsóknum á upptökum bruna og
bandarískur sérfræðingur á því sviði,
Herbert C. Redfield, hefði verið feng-
’inn til að halda fyrirlestur um það
efni.
Á námstefnunni eru um 50 manns,
lögregluþjónar, slökkviliðsstjórar og
fulltrúar tryggingafélaga. Berg-
steinn segir að fleiri hafi tekið þátt
í störfum hennar en menn hafi átt
von á og sýni það mikinn áhuga hér
á landi á þessu efni.
óníusveitar Berlínar og fyrir blás-
ara Anthony Hallstead, sem er
talinn einn fremsti hornleikari
Breta. Námskeiðin hafa verið
haldin í Háskólabiói og í húsnæði
Félags íslenskra hljóðfæraleikara.
í framhaldi af námskeiðinu verða
haldnir tónleikar á laugardaginn 8.
september í Háskólabíói og hefjast
þeir klukkan 14. Á efnisskrá verða
verk og stuttir kaflar úr ýmsum átt-
um. Miðaverð er krónur 500. Þessir
tónleikar verða haldnir í sal 2 í Há-
skólabíói og eru það fyrstu tónleik-
arnir sem haldnir verða í þessum sal.
LOKSINS ER HANN KOMINN:
FJÖGURRA DYRA BIAZER
Nýi fjögurra dyra Blazerinn verður til sýnis ísýningarsal okkar að Höfðabakka 9 í Reykjavík,
klukkan 13-17 ídag, laugardag, og á morgun, sunnudag. Komdu og skoðaðu
þennan g/œsilega bíl og aktu honum til reynslu. _ _______
Margir aðrir bílar til sýnis á sfoðnum.
ISUZU GEMINI
OPELKADETT
ISUZUPICUP
OPEL VEC TRA
GMC PICKUP
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000 OG 674300