Morgunblaðið - 08.09.1990, Síða 21

Morgunblaðið - 08.09.1990, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990 Flóttamannavandamálið: Hjálparstoftianir biðja um flugvélar o g fjármag’n Bagdad, Amman, Nýju Dehlí, Róm, París, Port Rashid. Reutor. Reuter Frá flóttamannabúðum á einskismannslandi milli íraks og Jórdaníu. Asíumaður, sem starfað hefur í Kúvæt, með eigxir sínar á bakinu. ÚTLÆGUR forsætisráðherra Kúvæts, Saad al-Abdulla al- Sabah, lofaði á föstudag að gera allt sem hann gæti til að hjálpa fólki sem flúið hefur Kúvæt og Irak og hefst við í flóttamanna- búðum á einskismannslandií eyð- imörk milli Jórdaníu og Iraks. Þar eru nú í þrennum búðum 105.000 flóttamenn, þar af um 86.000 Asíubúar, og bætast um 10.000 manns við á degi hverjum. Al-Sabah kenndi einum manni um hvernig komið væri: Saddam Hussein, forseta Iraks. Talsmenn hjálparstofnana segja að til að koma flóttamönnum frá Jórd- aníu til heimalanda þeirra þurfi tvöfalt fleiri flugvélar en þær 72 sem fyrirhugað er að fljúgi með flóttamenn þaðan á næstu tveim- ur vikum. Hassan, ríkiserfmgi Jórdaníu, hvatti alþjóðlegar hjálparstofnanir til að flýta brottflutningi flótta- manna frá Jórdaníu. Hann sagði að Jórdanir, sem eiga við gífurlegan efnahagsvanda að etja, m.a. vegna erlendra skulda, hefðu nú þegar varið 40 milljónum Bandaríkjadala (yfir tveim milljörðum ÍSK) til hjálp- ar flóttamönnunum. Þá sakaði hann stjómvöld á Vesturlöndum um að loka augunum fyrir ástandinu í flóttamannabúðunum, og einblína um of á mun færri Vesturlandabúa í Kúvæt og írak. Japanskur sendi- ráðstalsmaður tilkynnti í gær að Japanir ætluðu að veija 12 milljón- um Bandaríkjadala (um 600 millj- ónum ÍSK) til koma asískum flótta- mönnum til síns heima. íranir fóru í gær fram á aðstoð alþjóðlegra hjálparstofnana til að annast um hálfa milljón flótta- manna frá írak og Kúvæt sem vilja fara um íran á leið heim. Yfirvöld í Indlandi hafa reiðst því að fá ekki leyfi Sameinuðu þjóðanna til að senda mat til 167.p00 Ind- veija í Kúvæt og 10.000 í írak. Þau hvöttu á föstudag til alþjóðlegs átaks til hjálpar flóttafólkinu. Ut- anríkisráðherra Indlands, Kumar Gujral, hefur staðfest að írakar hafí tilkynnt að þeir muni ekki leyfa Indveijum að senda flugvélar eða fleiri skip eftir Indveijunum, sem eru í írak og Kúvæt, nema þeir sendi mat þangað í staðinn. Fyrstu flóttamennirnir sem fara sjó- leiðis frá Kúvæt — nokkur hundruð Indveijar, aðframkomnir af hungri og þorsta — komu til Dubai í gær. Fljúga átti með fólkið í íraskri leigu- vél til Indlands í gær og í dag. írosk flugvél, sem Bandaríkja- menn tóku á leigu, fór frá Bagdad til Amman í gær með 166 Banda- ríkjamenn, aðallega konur og börn. írösk leiguflugvél flutti einnig hóp Kanadamanna frá ' Kúvæt til Bagdad á fímmtudag og flaug síðan með fólkið áfram til Tyrklands. Áhugamenn um andleg mál ogheimspeki athugið! Námskeið samhliða leshring verða haldin vikulega á vegum áhugamanna um heimspeki. Viðfangsefnið erþróunarheimspeki ogsálarheimspeki. Byrjað verður á bókinni Bréf um dulfræðiiega hugleiðingu eftir Alice A. Bailey og tíbetska ábótann Djwhal Khul. Þátttökugjald er kr. 1.500,- á mánuði. Upplýsingar í síma 91-79763. Samtök áhugamanna um heimspeki. U0SHEIMAR N0RRÆNIHEILUNARSKÓLINN Norræni heilunarskólinn hefst 22. september. Kennt verður í tveimur óföngum. 1. ófangi: Innri líkami mannsins, óran og orkustöðvar. Hugleiðslutækni og sjólfsvernd. 2. ófangi: Andleg uppbygging og þróun mannsins, karma og endurholdgun. Hin sjö svið, geislarnir, vatnsberaöldin, meistarar, tívar, geimverur o.fl. Ennfremur hugleiðslu-, orku- og heilunaræfingar. Kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 1 3. september kl. 20.00 ó Laugavegi 163. Innritun í símum 674373 og 74074. íslenska heilunarfélagió Herkostnaður Bandaríkjamanna: Saudi-Arabar leggja fram milljarða dala Washington^ Taif í Saudi-Arabíu. dpa. STJÓRNVÖLD í Saudi-Arabíu hafa lýst sig reiðubúin að taka þátt í kostnaði Bandaríkjamanna vegna viðbúnaðarins við Persaflóa og munu leggja fram milljarða Bandaríkjadala í þessu skyni. Var þessi niðurstaða kunngerð eftir fund'þeirra James Bakers, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, og Fahds, konungs Saudi-Arabíu, á fimmtu- dagskvöld. Fundur þeirra Bakers og Fahds konungs fór fram í höll konungsins í Jeddah og stóð hann í rúma klukkustund. Háttsettur saudi- arabískur embættismaður sagði að enginn ágreiningur hefði komið upp á fundinum og að full samstaða hefði náðst um framlag Saudi- Araba. Embættis- menn sögðu Fahd hafa heitið því að láta hluta af gríðarleg- um olíutekj- um ríkisins af hendi í þessu skyni og væri um milljarða dala að ræða. Óstaðfestar fréttir hermdu að samið hefði verið um að Saudi-Arabar legðu fram allt það vatn og eldsneyti sem herlið Banda- ríkjamanna notaði í landinu auk þess sem konungurinn hefði heitið því að greiða kostnaðinn við að senda herliðið til Saudi-Arabíu að fullu. Bandaríkjamenn hyggjast auka enn frekar viðbúnaðinn við Persaflóa a.m.k. fram til áramóta. Er talið að kostnaðurinn við að senda það viðbótarherlið sem ætlað er að treysta enn frekar varnir Saudi-Arabíu verði ekki undir sex milljörðum Bandaríkjadala (rúmum 330 milljörðum ÍSK). Þá er talið að herkostnaðurinn í mánuði hveij- um nemi einum milljarði dala,-hið minnsta. Ónefndur bandarískur embættis- maður sagði ástæðu til að ætla að framlag Saudi-Araba ásamt loforð- um um fjárstuðning bæði frá Evr- ópu og Japan færi nærri því að greiða herkostnaðinn fram til ára- móta að fullu. Bandaríski utanríkisráðherrann átti einnig fund með furstanum í Kúvæt, Jaber al-Ahmad al-Sabah, sem dvelst í útlegð í Saudi-Arabíu. Lýsti furstinn sig reiðubúinn til að taka þátt í kostnaðinum vegna Persaflóadeilunnar. Reuter James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi með Fahd, konungi Saudi-Arabíu, í höll Fahds í borginni Jeddah. GEBA innréttingar frá Vestur- Þýskalandi, viðurkenndar fyrir góða hönnun. BIGA innréttingar frá Danmörku. 600 litir til að velja úr ásamt mörgu öðru. PROFIL innréttingarfrá Danmörku. Stuttur afgreiðslufrestur og frábært verð. SEPTEMBER tilboðið okkar er frá PROFIL. Kynnið ykkur verð og gæði. nú um helgina. OPIÐ LAUGARDAG KL. 11-15 OPIÐ SUNNUDAG ÍWVAL OPIÐ LAUGARDAG KL. 11-15 OPIÐ SUNNUDAG KL. 13-16 Nýbýlavegi 12200 Kópavogur Sfmi 44011. Pósthótf 167. Það er opið hús hjá Innvali um helgina. Við bjóðum alla velkomna til að kynna sér...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.