Morgunblaðið - 08.09.1990, Page 23

Morgunblaðið - 08.09.1990, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990 23 ■*- i ~r Þorsteinn Pálsson hylltur af þjóðþingi Litháens, eftir að hann ávarpaði þingið á setningardegi þess síðastliðinn þriðjudag. ens og Þorsteinn Pálsson. til sem látan janna í alþj óðavettvangi listlandi. að ég teldi eðlilegt að þeir fengju einhvers konar áheyrnaraðild að Norðurlandaráði og tel rétt að þeim verði boðið að koma á næsta fund Norðurlandaráðs og flytja þar sitt mál.“ Frá leiksýningnm til þjóðþinga Þorsteinn segir að nú sé staða Eystrasaltsþjóðanna sú, að verið sé að undirbúa samningaviðræður við Sovétríkin um sjálfstæði þjóð- anna og lögð hafi verið fram drög að viðræðugrundvelli. „En Gorb- atsjov hefur bara lagt fram þessar nýju tillögur um einingu Sovétríkj- anna sem fela í raun og veru í sér aukið miðstjórnarvald að þeirra mati. Þeir eru líka í viðræðum við Jeltsín um efnahagsmál og reyna að ná samkomulagi við hann um þau efni. Inn á við eru þeir svo að byija að undirbúa þessar breytingar. Gömlu þingin eru að breytast úr eins konar leiksýningum þar sem haldnir voru þingfundir tvisvar á ári, einn dag í hvort skipti, yfir í raunverulegt íjölflokka þingræði. Þessar breytingar eru allar að gerast, stjórnmálaflokkarnir eru að myndast. Svo eru þeir að byija að ræða um nýskipan efnahags- mála. Við fylgdumst með utnræð- um sem byijuðu strax á fyrsta þingdegi í Litháen um möguleika á því að stofna sérstakan banka, sem gæti tekið upp alþjóðleg við- skipti, og rofið peningatengslin við Sovétríkin. Líkt og kosningabarátta á síðasta snúningi Þetta er óskaplega flókið og margbreytilegt, en ástandið er líka sérkennilegt, maður hefur það á tilfmningunni að maður sé að koma inn í kosningabaráttu á síðasta snúningi, það er allt á svo mikilli fleygiferð og kerfíð er svo óundirbúið. Þegar eistneski ráð- herrann, Lippmaa, kom til að kveðja okkur í morgun, þá var hann nýkominn frá því að keyra son sinn niður á höfn, af því að hann þurfti'að láta strákinn fara yfir til Helsinki til að koma stjórn- arpósti áleiðis. Þeir treysta ekki og geta ekki treyst póstkerfinu heima. Það virkar einfaldlega ekki eða þá of seint. Svona er þetta allt í mikilli geijun.“ Ríkisstjórnin viðurkenni strax sjálfstæði Eystrasaltsþjóðanna Þorsteinn segist munu flytja til- lögu á Alþingi strax í haust um viðurkenningu á fullveldi Litháen, ef þörf krefji. „Ég vona auðvitað að um það geti orðið samkomulag fyrr, að ríkisstjórnin fallist á að .viðurkenna fullveldi og sjálfstæði allra Eystrasaltsríkjanna þriggja. Ég tel að það væri lang skynsam- legast að slík ákvörðun yrði tekin strax og að ríkisstjórnin gerði það óg dragi ekki lengur, því að þetta .er líka spurning um tYma fýrir Eystrasaltsríkin. En ef ekkert verður af því, þá mun ég taka málið upp á þinginu.“ En þeir tóku fram að þeir væru ánægðir með viðbröögð utanríkisráðherra Jóns Baldvins að því er varðar óskina um áheyrnaraðild að ráðstefnunni um öryggi og samvinnu í Evrópu. Þorsteinn kveðst sjá fyrir sér aukin samskipti íslands og Eystra- saltsríkjanna og vill að við stuðlum að því. „Til að mynda eigum við að bjóða hingað þingmönnum frá þessum ríkjum og ég held að það sé eðlilegt að stuðla að menning- arsamskiptum þarna á milli. í Lit- háen eiga þeir nokkurn jarðhita og þeir spurðu mikið um það hvort þeir gætu fengið héðan sérfræð- iaðstoð í þeim efnum varðandi hugsanlega nýtingu. Ég held að það fari þannig ekki á milli mála að hægt er að koma á tengslum á mörgum sviðum. Réttlátur málstaður Þeir eru með réttlátan málstað og að mínu mati ber okkur skylda til, sem smáþjóð, að styðja þann málstað. Því er ekki að leyna að stóru ríkin í Atlantshafsbandalag- inu, Bandaríkin, Bretland og Frakkland, hafa tekið Þýskalands- málið fram yfir öll önnur mál og látið málefni þessara ríkja sitja á hakanum. Maður finnur ákveðna gremju í garð þessara stóru lýð- ræðisríkja, hvernig þau hafa gleymt Eystrasaltsríkjunum, þeir spyija núna: Af hveiju er brugðist svona skjótt við í Kúvæt, en það vilja allir gleyma okkur? Mér finnst þetta vera skýr rök og skýr skila- boð til þessara ríkja og við eigum ekki að láta Bandaríkjamenn eða Breta stjóma afstöðu okkar í þessu efni, við eigum að taka sjálfstæða ákvörðun og sjálfstæða afstöðu.“ Eiga íslendingar þá að halda á loft málflutningi innan NATO? „Hvarvetna eigum við að gera það,“ segir Þorsteinn. „Á þeim vettvangi eigum við að gera grein fyrir okkar afstöðu og leggja áherslu á að vestrænar þjóðir styðji sjálfstæðisbaráttu þessara ríkja. Ég held að við höfum þarna tækifæri til þess að láta gott af okkur leiða. Það verður mikils metið og það mun hafa áhrif. Við höfum tækifæri til þess að láta gott af okkur leiða og hafa raun- veruleg áhrif á alþjóðavettvangi með því að taka myndarlega og einarðlega á þessu máli á grund- velli þeirra miklu þjóðahagsmuna sem þarna eru í húfí og þess rétt- ar sem þessar þjóðir byggja á. Þær hafa alveg ótvíræðan rétt að al- þjóðalögum til þess að endurreisa sjálfstæði sitt.“ Eining um sjálfstæðismálið Stjórnmálaflokkar eru þegar orðnir margir í Eystrasaltsríkjun- um og þeim fjölgar ört. „Það var mjög fróðlegt að hitta og ræða við fulltrúa og forystumenn allra þessara nýju flokka sem eru að mótast. Þeir eru sammála í öllum grundvallaratriðum í sjálfstæðis- málinu, en leggja auðvitað mis- munandi áherslur á stjórn efna- hagsmála eins og gerist og gengur í vestrænum ríkjum, en mér virð- ist vera almennur og mikill meiri- hlutastuðningur við að taka upp markaðskerfi. Þeir hafa jafnvel Kvennalista í Litháen, þeir eiga allavega það sameiginlegt með okkur.“ Næturlestur á laun Þorsteinn segir flokkana eiga sér ákaflega fjölskrúðugan bak- grunn og sumir hveijir eiga rætur langt aftur í tímann. „Á kúgun- artímabilinu hafa þeir viðhaldið menningarsamtökum af ýmsu tagi, þar sem sjálfstæðisbaráttan blómstraði. Þessi samtök útdeildu bókum á laun og einn forystumað- ur þeirra sagði við mig: Svo skaltu muna það, að menn gleyma miklu síður því sem þeir lesa, og þurfa að lesa, að næturlagi á laun. Þann- ig hafa þeir viðhaldið þjóðarvit- undinni. Þetta eru einkum menntamenn, vísindamenn, sem eru að taka forystu í þessum sam- tökum. Þeir virðast víðast hvar vera í forystu fyrir nýjum samtök- um og flokkum. En, allt er þetta í mótun ennþá og á vafalaust eft- ir að taka miklum breytingum. Ég sagði þeim að það hefði nú tekið býsna langan tíma að móta flokkakerfið á Islandi, þannig að þeir þyrftu nú ekki að hafa miklar áhyggjur þótt það gerðist ekki allt á nokkrum mánuðum,“ sagði Þorsteinn Pálsson. Jóhanna Bogadóttir sýnir í SPRON SPARISJÓÐUR Reykjavíkur og nágrennis opnar niyndlistarsýn- ingn í útibúinu Álfabakka 14, Breiðholti, sunnudagin 9. septem- ber klukkan 14-17. Sýnd verða verk eftir Jóhönnu Bogadóttur. Sýnd verða um 20 myndverk, málverk og oliukrítarteikningar og grafík með blandaðri tækni. Jóhanna er fædd í Vestmannaeyj- um árið 1944. Hún var við listnám í listaháskólanum í París, Stokkhólmi og víðar. Jóhanna hefur haldið fjölda einka: sýningar hér á landi sem erlendis: í Unuhúsi 1968 og 1971. Gallerí SÚM 1976, í Norræna húsinu 1983, 1985 og 1986. Einnig á Kjarvalsstöðum 1989, í Svíþjóð í Örebro árið 1979, á Öland 1983, í Taidegraafikotgall- erí, Helsinki Konsthall Studio árið 1982 og í Gallerí Duetto' Helsinki 1989. Verk Jóhönnu eru í eigu ýmissa safna erlendis sem innanlands auk einkaaðila. Sýningin að Álfabakka 14 mun standa yfir til 30. október nk. og verður opin frá mánudegi til föstudags, frá kl. 9.15-16.00, þ.e. á opnunartíma útibússins. Sýningin er sölusýning. i IfSa > i ' Eitt af verkum Huldu Hrannar. Opnar sýn- ingu í Gall- erí einn einn HULDA Hrönn Ágústsdóttir opn- ar sýningu sína í Gallerí einn einn, Skólavörðustíg 4a, laugardaginn 8. september klukkan 15. Hulda er fædd í Reykjavík árið 1965, en hún útskrifaðist úr Fjöltæk- nideild Myndlista- og handíðaskóla íslands vorið 1990. Sýningin stendur til 20. september og er opið daglega frá klukkan 14-18. Svanhvít Egilsdóttir. Lokatónleikar söngnámskeiðs Lokatónleikar söngnámskeiðs Svanhvítar Egilsdóttur, Olafs Vignis Albertssonar og Hólmfríðar Sigurð- ardóttur verða í Menningar- og lista- stofnuninni Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði, í dag laugardaginn 8. september klukkan 18. Á aðaltorginu í Tallinn, höfuðborg Eistlands. Þar eru daglega útifund- ir þar sem heitar umræður fara fram um stjórnmál, jafnt milli manna á torginu sem í kassaræðum mælskumanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.