Morgunblaðið - 08.09.1990, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 08.09.1990, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990 25 Minning: Kristinn Fríðriks- son — Stykkishólmi Föstudaginn 31.ágúst síðastlið- inn lést vinur minn Kristinn Frið- riksson. Osjálfrátt leitar hugur minn til baka. Fyrstu kynni mín af Kristni voru fyrir 18 árum við spilaborðið á spila- kvöldi í Bridsfélagi Stykkishólms en hann var einn af stofnendum félagins. Er árin liðu urðu samskiptin meiri og var oft tekið í spil á heim- ili þeirra Kristins og Þóru og notið gestrisni þeirra og höfðingsskapar sem seint gleymist. Ófá voru þau bridsmótin sem Kristinn og meðspilarar hans unnu, en lengst var sonur hans Ellert hans makker. Kristinn var án efa besti brids- spilari okkar, og það kom því ekki ekki á óvart að hann skyldi verá valinn bridsmaður ársins á Snæ- fellsnesi í fyrsta skipti sem sú út- nefning var gerð síðastliðið vor. Vandaður brids var hans aðals- merki og voru spilin látin tala, þótt oft væri gaman að gantast og sleg- ið á létta strengi. Kristinn var mikill keppnismaður og ef spilamennskan dróst fram yfir miðnætti vildi hann ógjarnan, fara heim fyrr en úrslit lágu fyrir. Við félagarnir í bridsfélagi Stykkis- hólms munum sakna hans mikið og skarð hans við spilaborðið verður seint fyllt. Annað áhugamál sem við áttum sameiginlegt var knattspyrnan. Á leiki Snæfells lét Kristinn sig ekki vanta sama hvort það var meistara- flokkur eða yngri flokkar að keppa. Þar var hann, mættur til að hvetja sitt lið til dáða, slíkir stuðningsmnn eru ómetanlegir fyrir lítið félag eins og Snæfell. Með þessum fátæklegu orðum vil ég minnast hans Kristins. Þar er genginn hjartahlýr og góður drengur. Þóra mín, Ellert, Marinó, Friðrik, Jón Steinar.-tengdadætur og barna- böm. Ég og fjölskylda mín vottum ykkur innilega samúð okkar. Guð veiti ykkur styrk í sorg ykk- ar. Minningin um góðan dreng lifir. Eggert Sigurðsson Gott, þú góði og trúi þjónn. Yfír litlu varstu trúr, yfír mikið mun ég setja þig. Gakk inn í fógnuð herra þíns. (Matt. 25,21.) Þessi orð heilagrar ritningar flugu mér í hug er ég frétti að Kiddi frændi hefði orðið bráðkvaddur á vinnustað sínum. Samviskusamari mann gagnvart því sem honum var trúað fyrir er vandfundinn. Ungur tók hann að sér verkstjórn yfir hópi fólks sem vann að sköpun verð- mæta til bættra lífskjara. Því starfí gegndi hann hátt í hálfa öld, með þeim hætti að oft mun verða til þess vitnað. Sú aðferð sem Kristinn notaði til að laða fram starfsgleði og vinnuafköst hjá mönnum sínum verður ekki lærð af bókum, heldur með ræktarsemi við þá mannlegu eiginleika sem Guð færir hverjum og einum í vöggugjöf. Víst er að á löngum ferli sem verkstjóri hefur hann komið mörgum í skilning um að vinnan göfgar manninn. Kiddi var til í mínum fyrstu minn- ingum. Hann og pabbi höfðu byggt sér hús saman og var innangengt á milli íbúða. Okkur krökkunum þótti það eftirsóknarvert að hlusta á Kidda segja skopsögur úr daglega lífinu. Hann var sérdeilis næmur á hinar spaugilegustu hliðar hvers- dagsins. Allt var þetta græskulaust gaman sem engan meiddi. En al- vara lífsins var skammt undan. Slæpingsháttur og agaleysi voru eitur í beinum Kristins og hann fór ekki dult með það álit sitt að heim- ur versnandi fer. Var ekki laust við að mörgum þætti hann stundum fullur svartsýni. Þess ber þó að gæta, að þeir eru fáir núorðið sem standast þær kröfur sem Kiddi gerði til sjálfs síns hvað þetta varð- ar. Allt sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér. (Matt. 25, 40) Kristinn bar sérstaka umhyggju fyrir þeim sem minna máttu sín. Bernskuminningarnar geyma marga þá sem komu í heimsókn til Kidda og Þóru. Mörgum lítilmagn- anum hefði ævin orðið erfíðari ef Kiddi hefði ekki orðið á vegi þeirra. Sökum eiginleika sinna varð ekki hjá því komist að Kristinn hefði áhrif á þá sem nutu hans samfylgd- ar. Oft hefur mér verið hugsað til hans, þegar minnt er á hið eftir- sóknarverða í lífinu og svo mun verða áfram. Ég kveð kæran frænda minn með söknuði en þakk- látum huga. Elsku Þóra. Drottinn styrki þig of fjölskylduna alla í þeirri miklu sorg sem þið hafið mætt. Halldór Árnason Nú þegar ég sest niður við að rita minningar og þakklætisorð til míns góða frænda og vinar, fínnst mér erfiðast að trúa því, að hann sé ekki lengur á meðal okkar. Ég vissi að hann var orðinn þreyttur, því hann unni sér aldrei hvíldar, en verkstjórn hans og vinnubrögð voru slík að ég sá aldrei neina uppgjöf. Kristinn fæddist á Eskifírði 14. febr. 1922. Hann var 3. barn þeirra Elínborgar Þorláksdóttur og Frið- riks Ámasonar, síðar hreppstjóra. Vorum við þannig systkinabörn í báðar ættir. Hann var ekki gamall þegar hann var heimilinu liðsauki og viljinn ódrepandi. Þegar hann ' óx úr grasi voru honum flestar leið- ir til vinnu opnar, jafnvel á hinum alræmdu kreppuárum. Gat hann því lagt búi fóreldra sinna lið sem var bæði stórt og gestkvæmt. Alls voru systkini hans 8. Hann vann bæði heima og á vertíð í Sandgerði, meðal annars með þeim kunna skip- stjóra Sigurði Magnússyni, sem mat Kristin vel og hóldu þeir vináttu alla stund og eftir lát Sigurðar, hélt kona hans jafnan vináttusam- bandi við Kristin. Árið 1945 vantaði Sigurð Ágústsson frystihússtjóra og fyrir tilmæli mín, réðst Kristinn í starfið. Hann kom hingað 19. nóv. 1945. Og hér varð hans starfsvettvangur alla tíð. Vel gekk honum að um- gangast og halda starfsfólki og jafnvel hafa sumir starfað með hon- um allan tímann. Og eitt sem ekki má gleymast. Þeir sem minnimáttar voru áttu gott skjól hjá honum. Þeim reyndist hann sem besti faðir. Ekki voru þau mörg fríin sem Krist- inn tók um dagana. Starfið var hluti af sál hans og það sat fyrir. Hann var alltaf á sínum stað. Gætti alls vei og það kunnu húsbændur hans að meta. Nokkru eftir komu sina hitti hann Þóru Sigurðardóttur sem varð hans trausti lífsförunautur. Á þessum tíma vorum við Ingibjörg ákveðin að rugla saman reitum, en ekkert húsnæði var til staðar. Það varð því að byggja. Og við ákváðum því að byggja hús í sameiningu og vorum svo heppin að fá hinn mæta mann Óskar Ölafsson byggingar- meistara til að standa fyrir smíði hússins. Við hófum því að byggja vorið 1947, en þá var mjög erfitt að fá byggingarefni og það sem þurfti til búskapar. Ekkert fékkst nema gegn skömmtunarmiðum sem ekki voru stórir þá. Lóð fengum við fram á klettum og þurfti mikið að sprengja. Þá var hann Pétur í Viðvík okkur betri en enginn. En húsið komst upp. Já, og hann Kristinn var duglegur og man ég ekki til þess að öll hans vinna hafi verið færð á byggingarreikning. En án- ægja erfiðisins var stór. Fyrri hluta 1948 var húsið „tilbúið“ og á þessu ári giftum við Kristinn okkur og fluttum inn. í þessu húsi bjuggum við hlið við hlið í 18 ár er ég flutti í hús Pósts og síma. Aldrei man ég til þess að skuggi félli á þetta sambýli eða með börnum okkar. Þau voru alltaf leiksystkin. Öll fædd í þessu húsi. Og jafnvel þótt við Ingibjörg flyttum í annað húsnæði, var ein- ingin sú hin sama. Þau Þóra og Kristinn eignuðust 4 syni, Ellert, viðskiptafræðing og framkvæmda- stjóra hjá Sig. Ágústsson. Kona hans er Jóhanna Bjarnadóttir og eiga þau heima í Stykkishólmi, og eiga 3 syni. Marinó, tölvufræðing, maki Margrét Halldórsdóttir, búsett í Garðabæ, Friðrik Sæmund, söng- kennara. Kona hans Þórdís Helga- dóttir hárgreiðslumeistari, eiga dóttur og búsett í Reykjavík og Jón Steinar, maki Sigrún Hansdóttir og eiga þau einn dreng. Þau eru bú- sett í Stykkishólmi. í 65 ár fylgdumst við Kristinn að, leituðum hvor til annars. Hann tók dýrmætan arf úr foreldrahúsum og varðveitti. Þeim arfí deildi hann með samborgurum sínum. Hjálp- semi Kristins munu margir minn- ast. Kristinn var söngmaður góður eins og hann átti kyn til, en því var ekki flíkað um of. Eitt af hans mestu hugðarefnum var að spila bridds og þar var hann fær. Hann var reglusamur alla ævi og mikill heimilismaður. Og það var hljóður bær hér, þegar fréttin um andlát hans barst eins og reiðarslag út um bæinn. Fólkið fann að það hafði misst góðan samferðamann og bærinn nýtan ogtraustan borgara. Megi landið okkar eignast marga slíka. Blessuð sé minning hans og inni- leg samúð til allra ástvina. Ingibjörg og Árni Helgason Kristinn Friðriksson, frystihús- stjóri, Stykkishólmi, varð bráð- kvaddur á vinnustað sínum 31. ágúst sl. Með Kristni er genginn samviskusamur atorkumaður, sem átti fáa sína líka. Kristinn fæddist á Eskifirði 14. febrúar 1922, sonur hjónanna Elín- borgar Þorláksdóttur og Friðriks Árnasonar, hreppstjóra, sem lést í hárri elli 26. júlí sl. Til Stykkishólms flutti Kristinn haustið 1945. Var hann þá ráðinn til starfa hjá fyrirtæki Sigurðar Ágústssonar, útgerðarmanns. Allar götur síðan, í 45 ár, helgaði Krist- inn þessu fyrirtæki starfskrafta sína. Kristinn var ómetaniegur starfs- maður. Hann var dugnaðarforkur, ósérhlífinn og einstaklega trúverð- ugur. Hann var vakandi og sofandi yfir velferð fyrirtækisins og eigum við velgengni þess ekki síst honum að þakka. Slíkra manna er gott að minnast. Og af slíkum mönnum er margt hægt að læra. Mikil mannaforráð hafði Krist- inn, sem stjórnandi á stórum vinnu- stað áratugum saman. Og þótt hann á stundum gæti virst hijúfur vissu allir að grunnt var á góðmennsk- unni, kímninni og að hann mátti ekkert aumt sjá. Kristinn var einstaklega barn- góður maður og margan unglinginn í Hólminum hefur hann leitt fyretu sporin í átt til dugnandi þegns í okkar litla byggðarlagi. Þótt Kristinn væri á yfirborðinu alvörumaður var hann mikill „húm- oristi“ og á góðum stundum gat hann verið hrókur alls fagnaðar. Hann var góður bridsspilari og við spilaborðið naut hann sín vel. Kristinn var hamingjumaður í einkalífí sínu. Hann var kvæntur Þóru Sigurðardóttur, sem er' frá Stykkishólmi. Þau eignuðust 4 syni. Þeir eru: Ellert, framkvæmdastjóri hjá Sigurði Ágústssyni hf., maki Jóhanna Bjarnadóttir. Marinó, bú- settur í Reykjavík, maki Margrét Halldóredóttir. Friðrik, búsettur í Reykjavík, maki Þórdís Helgadóttir. Jón Steinar, starfsmaður hjá Sig- urði Ágústssyni hf., maki Sigrún Hansdóttir. Þegar við nú kveðjum vin okkar og samstarfsmann, er okkur eig- endum Sigurðar Ágústssonar hf. og starfsfólki fyrirtækisins til lands og sjávar efst í huga þakklæti fyrir tryggð hans og góðvild alla tíð. Guð blessi minningu hans. Rakel og Ágúst í dag laugardaginn 8. september verður til moldar borinn frá Stykk- ishólmskirkju Kristinn Friðriksson verkstjóri í Stykkishólmi. Kristinn lést við vinnu sína föstudaginn 31. ágúst sl. Kristinn var fæddur á Eskifirði 14. febrúar 1922, sonur hjónanna Friðriks Árnasonar hreppstjóra þar og Elínborgar Þorláksdóttur. Krist- inn ólst upp í foreldrahúsum á Eski- fírði og hóf strax við fermingu að vinna við sjómennsku og öll þau störf sem tengjast útgerð og físk- vinnslu. Lengst af var Kristinn á aflaskipinu Víði frá Eskifirði sem m.a. var við síldveiðar. Þess tíma minntist Kristinn með ánægju og þeirra sjómanna sem þar störfuðu með honum. Árið 1945 urðu þáttaskil hjá Kristni er hann fluttist frá fæðing- arbænum til Stykkishólms og réðist sem matsmaður og verkstjóri til Hraðfrystihúss Sigurðar Ágústs- sonar. Hjá því fyrirtæki starfaði hann allt til dauðádags af einstakri trúmennsku og ósérhlifni. Árið 1948 kvæntist Kristinn eft- irlifandi eiginkonu sinni Þóru dóttur hjónanna Sigurðar Marinós Jó- hannssonar verkamanns og Hansínu Jóhannesdóttur sem lifír í hárrri elli í Stykkishólmi. Börn þeirra Kristins og Þóru eru: Ellert, framkvæmdastjóri og forseti bæjarstjórnar, í Stykkishólmi kvæntur Jóhönnu Bjarnadóttur og eiga þau synina Bjarna Sveinbjörii, Kristin Þór og Hannes Marinó; Marinó, starfsmaður hjá Skýrr í Reykjavík, sambýliskona hans er Margrét Halldórsdóttir; Friðrik Sæmundur, tónlistarkennari í Kópavogi, kvæntur Þórdísi Helga- " dóttur og eiga þau dótturina Þóru Sif; Jón Steinar starfsmaður hjá Sigurði Ágústssyni hf. Stykkis- hólmi sambýliskona hans ér Sigrún Hansdóttir og eiga soninn Garðar Þór. Starfsvettvangur Kristins var við fiskvinnslu í Stykkishólmi í fjörutíu og fimm ár. Starfíð átti hug hans-* allan og hefur hann fylgst vel með og verið áhugasamur þátttakandi í þeirri þróun, sem hefur orðið í með- ferð og vinnslu sjávarafurða ekki síst við skelvinnsluna. Var hann vakandi og sofandi með hugann við framleiðsluna og afkomu vinnsl- unnar allt frá því fískurinn kom á land til þess að framleiðslan var kominn á markaðinn. En Kristinn átti sér einnig áhugamál sem hann stundaði af kappi líkt og flest sem hann tók sér fyrir hendur. Brids var honum ekki aðeins tómstundagaman held- ur heilagt viðfangsefni sem hann hóf kornungur að fást við og naufy __ þess mjög að spila. íþróttir voru* honum einnig mikið áhugamál og þá aðallega knattspyrnan sem hann ■ iðkaði á yngri árum og fylgdist með alla tíð. Það var á knattspyrnuvellinum á Görðum í Staðarsveit sem ég kynnt- ist Kristni fyrst, en þá var hann þar með ungum Hólmurum sem síðar urðu mér kunnungir sam- starfsmenn. Framganga þessa hægláta manns einkenndist af festu og yfirvegun, en um leið glettni on frásagnargleði. Kristinn var hlédrægur maður og tranaði sér hvergi fram. Áhugi hans á stjórnmálum fór þó ekki leynt. Kristinn var flokkshollur og samkvæmur í trausti sínu á Sjálf- stæðisflokkinn á hvetju sem gekk. Á sama hátt og í starfi hans við fískvinnsluna var hver dagur að hans mati þýðingarmikjil í vinnu fyrir flokkinn og þá sem hann studdi. Var hann óþreytandi við að leita að næsta útspili í stjórnmálum líkt og við spilaborðið. Vildi hann að hver leikur væri þrauthugsaður og hefði ótvíræðan tilgang. Kristinn festi rætur sfnar í Stykk- ishólmi þar sem hann eignaðist gott heimili og samhenta fjölskyldui* Hann var einlægur Hólmari sem bar hag bæjarins mjög fyrir brjósti og lagði mikið til sjálfur og með sínu fólki. Engu að síður var spegil- slettur Eskifjörðurinn og æsku- byggðin þar honum kær og oft minntist hann góðra daga þar með ættingjum og vinum. Að leiðarlokum er Kristinn kvaddur með þökk og virðingu. Ég og fjölskylda mín vottum Þóru og fjölskyldunni innilega samúð. Sturla Böðvarsson DANSSKÓLIAUÐAR HARALDS Afhending skírteina hefst sunnudaginn 9. september. REYKJAVÍK: í Gerðubergi, Breiðholti, KR- heimilinu v/Frostaskjól, Tónabæ og Skeifunni 11 B (opið í Skeifunni frá kl. 13-19). GARÐABRÆ: í Garðalundi frá kl. 13-16. KEFLAVÍK: í Hafnargötu 31 frá kl. 13-16. VOGAR: í Glaðheimum frá kl. 17-19. Kennsla hefst mánudaginn 10. september. Euro-Visa raðgreiðsiur. DA/VSS AUÐAR HARAIDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.