Morgunblaðið - 08.09.1990, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 08.09.1990, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990 KAUPSTAÐIRNIR þrír við Eyjafjörð gengu formlega í Héraðsnefnd Eyjafjarðar í fyrradag við undirritun samninga þar að lútandi. Alls á 21 fulltrúi sæti í nefndinni, en í héraðsráði, sem fer með umboð ^iéraðsnefndar á milli funda eiga sæti 5 fulltrúar. Verkefni nefndar- innar eru margvísleg, en þau máf sem einkum hafa verið á döfínni að undanförnu hafa snúið að álmálinu. Héraðsnefnd Eyjafjarðar tók til starfa í desember árið 1988, en hún leysti gömlu sýslunefndirnar af hólmi. Auk þeirra sveitarfélaga sem mynduðu sýslunefnd Eyjafjarðar bættist Grýtubakkahreppur við. Nú hafa kaupstaðirnir þrír, Olafsfjörð- ur, Dalvík og Akureyri bæst við héraðsnefndina og var skrifað und- Heimarækt- un þéttbýl- isbúaekki skattlögð Morgunblaðinu hefur bo- rist eftirfarandi tilkynning frá skattstjóranum í Norður- landsumdæmi eystra, Gunn- ari Rafni Einarssyni: „í tilefni af umræðu fjöl- miðla um skattskylda garðá- vexti og ber skal tekið fram, að svör skattstjóra Norður- landsumdæmis eystra í því sambandi hafa einungis verið efnisleg. Ekki hefir staðið til að skattleggja heimaræktun þéttbýlisbúa í Norðurlandsum- dæmi eystra fremur en annars staðar í landinu. Fram hefur komið, að sam- kvæmt túlkun embættis ríkis- skattstjóra er hér ekki um skattskyldar -tekjur að ræða. Sú túlkun gildir að sjálfsögðu í Norðurlandsumdæmi eystra sem og öðrum skattumdæm- um.“ ir nýjan samningþar um í fyrradag. í héraðsnefnd eiga sæti fulltrúar 12 sveitarfélaga í Eyjafirði, 2 frá Dalyík og 2 frá Ólafsfirði og 5 frá Akureyri eða samtals 21 fulltrúi. Hérðasnefnd kemur sama a.m.k. tvisvar á ári, á vor- og vetrarfund, en héraðsráð, sem fer ineð málefni nefndarinnar á milli funda, kemur saman eftir þörfum. í héraðsráði eru 5 fulltrúar, einn frá hveijum kaupstað og tveir frá sveitarfélög- unum. „Ég vona að þetta verði heilla- spor fyrir héraðið að fá kaupstaðina í nefndina," sagði Guðný Sverris- dóttir, sveitarstjóri í Giýtubakka- hreppi, en hún er formaður Héraðs- nefndar Eyjafjarðar. Morgunblaðið/Runar Þor Þær Olga Loftsdóttir og María Loknar starfa hjá Alafossi hf. á Akureyri, Olga er nýbyrjuð að vinna þar, en María hefur starfað hjá verksmiðjunum í 18 ár. Þær voru ánægðar með fundinn með Ólafi Ólafs- syni forsljóra fyrirtækisins, sögðu hann hafa verið góðan og málefnalegan og þar hefðu fengist svör við ýmsu því sem á starfsfólki hefði brunnið í kjölfar þess að yfírstjórn fyrirtækisins var flutt suður í Mosfellsbæ. Starfsfólk Álafoss á fundi með forstjóra fyrirtækisins: Flutningur Alafoss úr bænum hefur aldrei verið á dagskrá + A * seg-ir Olafur Olafsson forstjóri Alafoss STARFSFOLK Alafoss hf. á Akureyri afhenti Ólafí Ólafssyni forstjóra fyrirtækisins áskorun í gær, þar sem það tekur undir áskorun atvinnumálanefndar Akureyrar frá 10. maí síðastliðn- um, en þar lýsir nefndin áhyggj- um sínum vegna flutnings aðal- Akureyrarbær: Skuldabréfin upp- seld á tæpri viku SÍÐUSTU skuldabréfín í 200 milljóna króna skuldabréfaútboði Akur- eyrarbæjar seldust eftir hádegi í gær og tók því einungis tæpa viku að selja öll bréfín sem í boði voru, en sala þeirra hófst á mánudag. Albert Jónsson hjá Landsbréfum, •>jem umsjón hafði með sölu bréf- anna, sagði að.einkum hefðu það verið lífeyrissjóðir og verðbréfafyr- irtæki sem keyptu skuldabréf Akur- eyrarbæjar, en einnig hefðu ein- staklingar í nokkrum mæli keypt bréf. Síðasta skuldabréfaútboð Akur- eyrarbæjar var árið 1988 og seld- ust bréfin þá á tveimur til þremur mánuðum. Landsbréf höfðu skuld- bundið sig til að selja bréfin fyrir 15. desember næstkomandi. „Við áttum ekki von á svona góðum við- brögðum, en ég held að þetta sýni að sveitarfélög geti nýtt sér skulda- bréfaútboð af þessu tagi í mun meira mæii en þau hafa gert,“ sagði Aibert. Hreppsnefnd Grýtubakkahrepps: Yill álver í Eyjafirði HREPPSNEFND Grýtubakka- hrepps hefur sent alþingimönn- um kjördæmisins bréf, þar sem þeim tilmælum er beint til þeirra að vinna að því að álver verði reist við Eyjafjörð. í bréfinu segir að hreppsnefndin beini þeim eindregnu tilmælum til alþingismanna Norðurlandskjör- dæmis eystra að þeir beiti sér ötul- lega fyrir vali á Eyjafirði undir byggingu álvers. Hreppsnefndin telji byggingu stóriðju vænlegan kost til atvinnuuppbyggingar á svæðinu. skrifstofu fyrirtækisins frá Ak- ureyri. Ólafur Ólafsson forstjóri Alafoss hf. kom til Akureyrar í gær til fundar við starfsfólk, þar sem hann skýrði frá áformum varðandi rekstur fyrirtækisins og því sem framundan væri, jafnframt því sem hann ítrekaði að ekki væri á dagskrá að flytja starfsemi fyrii-tækisins burtu úr bænum. Nú um mánaðamótin fluttist aðalskrifstofa Alafoss hf., sem verið hefur á Akureyri, suður í Mosfellsbæ. Miklar um- ræður urðu um flutninga yfír- manna fyrirtækisins á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í vik- unni og óttuðust sumir bæjar- fulltrúar að fyrirtækið allt myndi fylgja á eftir. I áskorun starfsfólks Alafoss segir að komið hafi í ijós að um mun fleiri störf hafi verið að ræða Sjávarútvegsdeild: Engin sjávar- líffræði vegna aðgerða FIN KENNSLA í sjávarlíffræði í sjáv- arútvegsdeild Háskólans á Akur- eyri fellur niður í haust í kjölfar þess að félagar í Félagi íslenskra náttúrufræðinga neita að vinna stundakennslu. Jón Þórðarson deildarstjóri sjáv- arútvegsdeildar sagði að starfs- menn Hafrannsóknastofnunar hefðu ætlað að annast kennsluna. Aætlað hafði verið að nemendur fengju eínn dag á rannsóknarskip- inu Árna Friðrikssyni í nóvember • tii umhverfisrannsókna í Eyjafirði. Jón sagði bagalegt að fella þyrfti kennsluna niður, „þetta er ekki gott“. sem færðust burtu en upphaflega var gert ráð fyrir. „Af þessu hefur starfsfólk Álafoss hf. á Akureyri miklar áhyggjur og skorar því á forstjóra og stjórn fyrirtækisins að endurskoða þessar ákvarðanir og vinna að frekari uppbyggingu fyrir- tækisins á Akureyri,“ segir í áskor- uninni. Kristín Hjálmarsdóttir formaður Iðju, félags verksmiðjufólks, sagði að starfsfólk hefði áhyggjur þegar verið væri að breyta til innan fyrir- tækisins. „Við höfum ekki ■ alltof góða reynslu af því og þess vegna er ósköp eðlilegt að fólk sé kvíðið og hrætt um að þessi atvinnugrein geti horfið, en hún á sér meira en 100 ára sögu hér í Eyjafirði. Þess vegna viljum við með öllum tiltæk- um ráðum halda í þessa atvinnu- grein,“ sagði Kristín. Heimir Ingimarsson formaður atvinnumálanefndar sagði að hann myndi leggja það til við bæjarstjórn að óskað yrði eftir viðræðum við stjórn og eigendur fyrirtækisins um flutning yfirstjórnar fyrirtækisins suður í Mosfellsbæ, en í stofnsam- þykkt félagsins segði að heimili þess og varnarþing væri á_ Akur- eyri. Það stæði ekki lengur. Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í vikunni sagði Björn Jósef Arnviðarson, Sjálfstæðisflokki, alvarlegast að þarna ætti í hlut fyrirtæki í eigu ríkisins, m.a. með tilliti til þess að verið væri að flytja burtu atvinnu af landsbyggðinni þar sem hana skorti. Óiafur Ólafsson forstjóri Álafoss sagði eftir fundinn í gær, að hann hefði ítrekað við starfsfólk að ekki stæði til að flytja verksmiðjur fé- lagsins í burtu frá Akureyri. Allur ótti þar um væri ástæðulaus. „Við hörmum það að hagsmunir bæjar- ins og Álafoss hf. fari ekki saman í þessu einstaka máli, en hagsmun- ir okkar og starfsmanna fara alfar- ið saman um að treysta rekstur fyrirtækisins. Við höfum leitað allra ieiða og tekið ýmsar sársauka- fullar ákvarðanir, en markmiðið er fyrst og fremst að treysta rekstur- inn og þar með þau tæpiega 200 störf sem eru á Akureyri. Flutning- ur verksmiðjunnar þaðan er ekki á dagskrá og hefur aldrei verið,“ sagði Ólafur. Júlíus Jónsson og Jón V. Ólafsson matreiðslumenn við nýja kjöt- borðið í Hrísalundi. Nýtt kjötborð í Hrísalundi NÝTT fullkomið kjötborð hefur verið tekið í notkun í Hrísalundi, sem hefur í för með sér mun betri vörumeðferð en áður var. Tveir matreiðslumenn starfa í Hrisalundi sem yfirumsjón munu hafa með þeim vörum sem settar verða í borðið. Vélsmiðjan Oddi seldi og setti nýja borðið upp, en fyrirtækið gerði nýlega samning við þýska fyrirtæk- ið Linde AG um sölu og þjónustu á kæli- og frystiklefainnréttingum í verslanir. KEA er fyrsti aðilinn sem keypt hefur kjötborð, framleitt af hinu þýska fyrirtæki af Odda. Borðið er tæpir átta metrar á lengd. (Úr fréttatilkynningu) Kaupstaðirnir við Eyjafjörð ganga í héraðsnefndina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.