Morgunblaðið - 08.09.1990, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990
I 1 > ...... ----I--..—... .... ■ ■ f :——
t
Móðir okkar,
SÍSÍ MATTHJASSON,
verður jarðsett frá kapellunni í Fossvogi mánudaginn 10. septem-
ber kl. 15.00.
Börnin.
t
Fósturfaðir okkar,
ÞORSTEINN KRISTLEIFSSON,
fyrrum bóndi á Gullberastöðum,
Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi,
lést í sjúkrahúsi Akraness 7. september.
Erla Magnúsdóttir
Kristín Herbertsdóttir.
t
BJÖRG SVEINSDÓTTIR
frá Skógum,
Vesturgötu 103,
Akranesi,
verður jarðsungin frá Reykholtskirkju
þriðjudaginn 11. september kl. 14.00.
Sveinn Þórðarson, Björg Loftsdóttir,
Guðmundur Þórðarson, Sigurrós Arnadóttir,
Ingvi Þórðarson, Auður Þorkelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
FERÐAFÉIAG
ÖLDUGÖTU 3 S 11798 19533
Sunnudagur 29. -
Dagsferðir sunnudag-
inn 9. sept.
Afmælisgangan
Reykjavík - Hvítárnes
11.ferð
Kl. 09.00 Sandá - Kórinn -
að Bláfellshálsi (um 12 km)
Þessari vinsælu raðgöngu fer
senn að Ijúka og sú breyting
verður gerð á prentaöri áætlun,
að síðustu tveimur áföngunum
verður skipt í þrjár gönguferðir.
Aukaferð verður laugardaginn
15. sept. frá Bláfellshálsi að
Svartá (um 12 km) og síðasti
áfanginn verður genginn 22.
sept. frá Svartá að Hvítárnes-
skála.
Neðarlega i Bláfellshálsi vestan-
verðum er gljúfur er nefnist Kór-
inn, gamall vatnsfarvegur. Sér-
stæð náttúrusmíð, sem skoðuð
verður í göngunni á sunndaginn
9. sept. Gönguhraöa stillt í hóf
- styttri áfangar í hverri göngu.
Verð kr. 1.700,-
Kl. 09.00 Bláfellsháls -
Hvítárnes, ökuferð
Óbyggðir á hausti eru sérstakar
- loftið tærara og haustlitir.
Áhugaverð ökuferö. Verð kr.
2.000,-
Kl. 13.00 T röllafoss -
Haukafjöll
Gengið frá Stardal niður með
Leirvogsá að Tröllafossi. Létt
gönguferð. Verð kr. 800,-
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bíl. Fritt fyrir börn.
Ferðafélag fslands.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar
framundan
Sunnudagur. Safnaðarsam-
koma kl. 11.00. Ræðumaður
Hafliði Kristinsson. Almenn
samkoma kl. 20.00. Ræðumaður
Sam Glad.
Miðvikudagur. Safnaðarfundur
kl. 20.00.
Föstudagur. Æskilýðssamkoma
kl. 20.30.
Laugardagur. Bænasamkoma
kl. 20.30.
ISLANDS
Vélagslíf
Skyggnilýsingafundur
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
heldur skyggnilýsingafund mánu-
daginn 10. september kl. 20.30 í
Skútunni, Dalshrauni 15, Hafnar-
firði. Húsið opnað kl. 19.30. Miðar
seldir við innganginn.
Hugræktarnámskeið
vekur athygli á leiöum til jafn-
vægis og innri friðar. Kennd er
almenn hugrækt og hugleiðing.
Athyglisæfingar, hvíldariðkun og
andardráttaræfingar. Veittar
leiðbeiningar um iðkun jóga.
Kristján Fr. Guðmundsson,
sími 50166 á kvöldin og um helg-
ar.
Kaffisala
Árleg kaffisala Kristniboðsfélags
karla, til ágóða fyrir islenska
kristniþoðið í Afríku, verður á
morgun, sunnudag, í kristni-
boðssalnum, Háaleitisbraut
58-60,3. hæð, kl. 14.30-18.00.
Styðjið gott málefni með því að
kaupa kaffi.
UTIVIST
GROFIHHII • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVUII4MÍ
Sunnudagur 9. sept.
Kl. 08.00: Básar.
Nú fer dagsferðum í Þórsmörk
að fækka. Skipulögð gönguferð
um nágrenni Bása í fylgd með
fararstjóra. Verð kr. 2.000.
Kl. 08.00: Þórsmerkurgangan.
Göngumenn eru nú farnir að
nálgast Bása og er þetta 16.
gangan og næst síðasta ferðin.
Gengið inn með giljum í hlíðum
Eyjafjallajökuls. Gefinn góður
tími til að skoða Selgil, Grýtugil,
Kýlisgil, Smjörgil og jökullónið
við Falljökul. Verð frá Reykjavik
kr. 1.500. Hægt að slást í hópinn
við Fossnesti á Selfossi, Grill-
skálann á Hellu og við Hlíðar-
enda á Hvolsvelli.
Kl. 13.00: Hengill.
Gengið frá Draugatjörn um vest-
urbrúnir Hengils og á Skeggja.
Til baka um Innstadal. Verð kr.
1.000.
Brottför í ofangreindar ferðir frá
BSf - bensínsölu, stansað við
Árbæjarsafn.
Kl. 13.00: Hjólreiðaferð.
Hjólað meðfram Elliðavatni og
um Heiðmörk. Takið með ykkur
nesti. Brottför frá Árbæjarsafni.
Verð kr. 200.
Ath.: Frá og með 1. sept. er
skrifstofan opin frá kl. 12 til kl.
18. Uppl. um næstu ferðir fé-
lagsins á si'msvara 14606.
Sjáumst!
Útivist.
Minning:
Fjóla Jóhannsdótt-
ir frá Hlíðarlandi
í dag verður jarðsett frá Stærri
Árskógskirkju á Árskógsströnd
Fjóla Jóhannsdóttir frá Hlíðarlandi
sama stað. Hún fæddist 22. septem-
ber 1937 á Svalbarðseyri við Eyja-
fjörð, dóttir Sigrúnar Guðbrands-
dóttur og Jóhanns Bergvinssonar
sem síðar fluttust norðar með firð-
inum í Grýtubakkahrepp og reistu
þar nýbýlið Áshól. Þar ólst Fjóla
upp í fögru umhverfi og við almenn
sveitastörf.
Fjóla, sem var elst sex systkina,
giftist eftirlifandi eiginmanni
sínum, Þorsteini Marinóssyni frá
Engihlíð, árið 1956 og eignuðust
þau 5 börn, 3 stúlkur og 2 pilta.
Fyrstu hjúskaparárin bjuggu Fjóla
og Steini eins og þau voru kölluð
daglega, á Hauganesi en byggðu
sér síðar hús í landi Engihlíðar, þar
sem Steini hafði reist bifreiðaverk-
stæði sem hann rak þar til fyrir
um tveim árum er hann seldi verk-
stæðið og flutti ásamt fjölskyldu
sinni til Akureyrar.
Fjóla var mjög jákvæð og félags-
lynd og hafði unun af að ferðast
og blanda geði við annað_ fólk. Á
búskaparárum þeirra á Árskógs-
strönd starfaði hún með kvenfélag-
inu af miklum krafti, einnig söng
hún með kirkjukómum og tók þátt
í safnaðarstarfinu. íþróttir voru
henni hugleiknar.' Öll fjölskyldan
hafði yndi af íþróttum og útiveru,
drengimir spiluðu knattspyrnu með
Reyni og vom báðir í keppnisliðinu.
Þegar Reynir tók þátt í keppni
skipti það ekki máli hvar hún fór
fram, Fjóla var mætt á völlinn tii
að hvetja liðið og eftir leik var
rætt af miklum móð um leikinn
bæði það sem vel var gert og einn-
ig hitt sem betur mætti fara.
Fyrir nokkrum árum endur-
byggði Steini sendibifreið og breytti
í húsbíl. Á húsbílnum var ferðast
víða hérlendis og meira að segja
var hann hafður með til Færeyja í
skoðunarferð, en hann reyndist ekki
eins hentugur og skyldi, og því var
ráðist í að kaupa annan sem að
vísu þurfti að breyta og lagfæra.
Að því var unnið liðinn vetur en
nota átti sumarið til ferðalaga.
Steini annaðist allar breytingar
sjálfur, hvort sem unnið var með
tré eða jám en Fjóla sá um allt sem
laut að innbúinu. Já, það átti að
skoða Vestfirðina, vera í Vagla-
skógi um verslunarmannahelgina
o.s.frv., ferðaáætlanir voru gerðar
og ferðast í huganum. Líklega var
Fjólu ljóst á meðan á undirbúningn-
um stóð að henni mundi ekki end-
ast ævin til að fara í þær allar,
stundaglasið yrði tæmt áður.
Fyrir tveimur árum varð vart við
þann sjúkdóm sem nú hefur haft
Sigríður Bjömsdóttir
frá Kornsá — Minning
Fædd 25. janúár 1897
Dáin 22. júlí 1990
Hún Sigríður á Laufásveginum,
Sigríður Bjömsdótttir, er látin, 92ja
ára gömul. Það er hár aldur, enda
mikið langlífi í ættinni. Foreldrar
hennar voru Ingunn Jónsdóttir,
skáldkona og húsfreyja á Kornsá í
Vatnsdat, og Björn Sigfússon, al-
þingismaður.
Kornsá var mikið höfðingjasetur
eins og flestir bæir í Vatnsdal á
þessum tíma og vildi Sigríður gjarn-
an kenna sig við Kornsá, þó ætti
heima í Reykjavík.
Þegar fólk sem maður hefur
umgengist í áratugi deyr, þá hrann-
ast minningarnar upp. Sigríður var
glaðlynd og gamansöm og sérlega
skemmtileg á vinafundum. Hún
hafði ríka kímnigáfu og sagði
skemmtilega frá. Fegurðarsmekk
hafði hún góðan, vildi hafa allt í
röð og reglu og góða umgengni í
kringum sig og var mikið fyrir fal-
lega hluti. Hún keypti aldrei ljótan
hlut, allt varð að vera listrænt og
smekklegt. Hún gekk í Kennara-
skólann í Reykjavík og síðar í skóla
í Kaupmannahöfn þar sem hún
lærði vefnað og matreiðslu, sem hún
bjó að alla ævi, enda vandaði hún
til alls sem hún gerði, hvort heldur
var handavinna eða matreiðsla.
Árið 1925 giftist hún Jóni Árna-
+
Dóttir mín og systir,
ALDÍS EIRÍKSDÓTTIR,
sem lést þann 12. ágúst, hefur verið jarðsungin.
Bergþóra Runólfsdóttir
og systkini hinnar látnu.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til-
vitnanir í Ijóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama
gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar
birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar af-
mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.
betur. Frá upphafi benti flest til
þess að tíminn yrði skammur, en
þrátt fyrir það var beitt öllum þeim
ráðum sem nútíminn býður til varn-
ar. Þess vegna dvaldist Fjóla oft
fjarri heimili sínu í Reykjavík og á
milli þess sem hún var undir læknis-
hendi dvaldist hún á heimili okkar.
Það var aðdáunarvert að fylgjast
með baráttu hennar og æðruleysi
til síðustu stundar.
Við leiðarlok sendum við Steina,
börnum, bamabörnum og öðrum
nákomnum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Blessuð sé minning Fjólu Jó-
hannsdóttur.
Guðrún og Helgi
é
syni frá Stóra-Vatnsskarði í Skaga-
firði. Hann var framkvæmdastjóri
hjá Sambandi islenskra samvinnu-
félaga og síðar bankastjóri við
Landsbanka íslands og loks við
Alþjóðabankann. í sambandi við
störf manns síns var hún mikið í
utanlandsferðum og naut þess í
ríkum mæli.
En sorgin barði líka að dyrum
hjá Sigríði eins og mörgum öðrum.
Árið 1948 missti hún einkadóttur
sína, Ingunni Guðrúnu, af slysför-
um, 13 ára gamla. Þess beið hún
aldrei bætur. Mann sinn missti hún
á nýársdag 1977, og 1984 eldri son
sinn, Björn, en Ebba kona hans lést
árið 1974. Allur þessi ástvinamissir
var henni mjög þungbær, en hún
átti því láni að fagna að geta dval-
ið á eigin heimili til æviloka, þótt
auðvitað þyrfti hún á stundum að
dvelja á sjúkrahúsum vegna van-
heilsu. Alltaf komst hún þó aftur
heim og bjó þar í sambýli við Árna
son sinn og Gíselu konu hans og
naut þar aðhlynningar þeirra og
bamabarnanna í ríkum mæli.
Fögur blóm og fallegur gróður
voru henni til mikils unaðar og fram
á síðustu daga hafði hún hug á að
láta laga til í garðinum sínum. Nú
hefur hún lagt upp í sína hinstu
för, þegar náttúran skartar sínu
fegursta. Betri kveðjustund getur
enginn kosið sér.
Blessuð sé minning hennar.
G.Þ.