Morgunblaðið - 08.09.1990, Side 33

Morgunblaðið - 08.09.1990, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990 33 ‘ Finnbogi J. Kristjáns- son bóndi íReykjar- firði - Aldarminning Finnbogi Jakob var fæddur í Reyðarfirði í Grunnavíkurhreppi 7. sept. 1890. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Gideonsdóttir, fædd á Oddsflöt í Grunnavík og Kristján Loftsson frá Litlu-Ávik í Árneshreppi. Þau voru fátæk hjón sem ekki áttu margra kosta völ, töldust þá í húsmennsku í Reykjar- firði. Þau áttu líka tvær dætur, sem voru eldri. Þegar Jakob er 6 ára flyst hann með foreldrunum að Litlu-Ávík þangað sem faðir hans var fæddur og uppalinn. Á þeim bæ byijar hann að vinna fyrir sér að ein- hveiju leyti. Gerðist hann smali og vikadrengur hjá Jóni Magnús- syni bónda þar. Snemma hafði Jakob orð á sér fyrir hvað hann var fjárglöggur og léttur á fæti. Það þóttu góðir eiginleikar hjá smaladreng. Þá var hann líka látinn fara á milli með heybandslestina, 7 hesta úr Ávík- urdal, og þurfti þá að labba aðra leiðina. Famar voru 3—4 ferðir yfir daginn. Þegar búið var að hleypa niður af hestunum var drengur settur á einn reiðingshest- inn og réttur matarbiti, er hann skyldi borða á leiðinni til baka. Ekki er fullljóst _hve mörg ár Jakob dvaldi í Litlu-Ávik. Veturinn 1901—1902 er hann þar, þá þátt- takandi í mikilli þrékraun. I ársriti átthagafélags Strandamanna, Strandapóstinum, 6. árgangi 1972, er skilmerkileg frásögn af hákarla- veiðum upp um hafís, skráð af Jóhannesi Jónssyni frá Asparvík. Heimildarmenn hans eru: Agnar Jónsson og Guðfríður Kristjáns- dóttir, alsystir Jakobs. Hún er þá vinnustúlka á sama bæ og bróðir- inn, 14—15 ára gömul. Jakob er 111/2 árs. Agnar Jónsson einu ári eldri. Þessir unglingar allir, ásamt fleira fólki, eru nafngreind í frá- sögninni af merkum atburði er gerðist um páska 1902. Bændurnir á Ávíkum, Finnboga- stöðum og fleiri bæjum í Ámes- hreppi drógu mikið af hákarli upp um hafís langt úti á firði. Klukku- stundar gangur var frá Ávík eftir hafísnum út að vökinni þar sem hákarlinn veiddist. Fn'skustu mennirnir unnu við að draga og skera hákarlinn, en konur og ungl- ingar unnu af kappi við að draga aflann á land á sleðum langan veg í snjó og ófærð og miklu frosti. Vegna fátæktar vom margir ekki nógu vel búnir að skjólfötum og reyndi þá mjög á harðfengi manna. En lífsbaráttan var hörð, allir urðu að taka þátt í erfiðinu, ungir sem gamlir. Um eins árs skeið var Jakob hjá Njáli Guðmundssyni á Krossnesi í sömu sveit. Bar hann alla tíð mik- ið lof á þá vist og hvað Njáll hefði verið sér góður. Þegar Jakob var á 13. ári kom hann aftur í Reykjaríjörð og varð sá staður hans aðalvettvangur upp frá því. Hann ræðst til hjónanna Ketilríðar Jóhannesardóttur og Benedikts Hermannssonar sem þá eru búandi þar. Þess skal getið að fyrri kona Benedikts hét Matthild- ur Gideonsdóttir, tvíburasystir Sig- ríðar móður Jakobs. í Reykjarfirði var mikið að starfa. Þar var tijáreki góður,y nokkur selveiði í lögnum og úti- gangur fyrir sauðfé á vetram. Benedikt vann mikið að smíðum margs konar og Ketilríður var mikil hannyrðakona. Hún kenndi Jakobi að vefa á vefstól og það starf líkaði honum vel. Þegar illa viðraði á vetrum og tími gafst til greip hann oft í vefstólinn svo um munaði. Jakob varð eftirsóttur til vinnu. Hann fór til sjóróðra vestur í Jökulljörðu og Hnífsdal og út að Horni á vorin til að afla matfanga handa heimilinu í Reykjarfirði. Um vetur 1913 varð Jakob fyrir slysi er hann var á heimleið frá Furufirði úr kaupstaðarferð til ísa- Qarðar. (Frásögn af þeim atburði er skráð í Hrakningar og heiðar- vegir IV. bindi.) Mikil undur þóttu að hann skyldi sleppa óbrotinn og lifandi frá því atviki að hrapa fram af háum klettum niður í stórgrýtta fjöru. Hann slasaðist að visu og lá rúmfastur í Furufirði á þriðja mán- uð. — Þetta sama ár var Jakob orðinn vistráðinn að Dröngum í Árneshreppi og um fardaga var hann orðinn það hress að geta mætt í vistina á réttum tíma og staðið þannig við orð sín. Á Dröng- um var lika mikið að starfa. Þar var mikill tijáreki og æðarvarp. Það þurfti mikinn dugnað og vand- virkni til að hreinsa æðardúninn. Oft fór Jakob að Dröngum til þeirra verka eftir að hann fór að búa í Reykjarfirði. Árið 1915, 19. september, gift- ist Jakob Matthildi Herborgu Benediktsdóttur í Reykjarfirði, einkadóttur hjónanna Ketilríðar og Benedikts og stofnuðu þau heimili á þeim bæ. Vora þau þá búin að eignast saman tvö börn. Fyrstu búskaparárin í Reykjarfirði reynd- var að koma aftur sem fyrst. Menn og konur sóttust einnig eft- ir samvistum við Þórunni, eða hana Tótu, eins og allir kölluðu hana. Og nafn hennar hafði og hefur innihald. Hvenær sem var og hvemig sem á stóð þá var heimilið á Hellu opið og Tóta tilbú- in að leggja sitt af mörkum til þess að létta undir með öðrum. Hvort heldur sem var í spjalli við búðarborðið í Mosfelli eða í sam- ræðum við eldhúsborðið heima á Arnarsandinum. Hún var heil- steypt kona með heilbrigðar og ákveðnar skoðanir á málefnum líð- andi stundar. Þeir sem áttu við hana samræður fóru af þeim fundi ríkari og með nýtt sjónarhorn í farteskinu. Þegar komið var að erfiðum sjúkrabeði hennar vora það hennar fyrstu orð að spyija um aðra og fá fullvissu um liðan þeirra en beina talinu frá sjálfri sér. Hún bar mikla umhyggju fyrir sínum nánustu og var þeim ávallt stoð og stytta. Þetta eru fátækleg orð um persónugerð hennar en Tóta var mannkostakona, hún var góð kona. Þegar við nú kveðjum ástkæran vin og ættingja er söknuðurinn sár yfir því að mega ekki framar upp- lifa samverastundir með henni, heyra hvatningarorð hennar og ust mjög erfið. Þá gengu yfir harð- indaár og heimsstyijöld geisaði. Frostaveturinn 1918 gekk spánska veikin. Þá létust í sömu vikunni Benedikt, faðir Matthildar, og Sig- ríður, móðir Jakobs, sem orðin var ekkja og dvalið hafði hjá syni sín- um síðustu árin. Þennan illræmda vetur lá hreinlega við skorti í Reyð- arfirði. Eftir hallærið og heimsstyijöld- ina fór aftur að rofa til og smátt og smátt glæddist efnahagur og bústofninn stækkaði. Starfsdagur- inn var oft langur, snemma risið úr rekkju og mikil reglusemi höfð á öllum verkum t.d. mjöltum og hirðingu búfjár, matmálstímar þrisvar á dag. Langt þurfti áð fara til að komast í kaupstað og ekki hægt að fara á smábátum að vetr- arlagi. Menn reyndu að birgja sig upp að haustlagi með kornvöra og fóðurmjöl ef efnahagur leyfði slíkt. Jakob vildi alla tíð forðast að safna skuldum, gat ekki hugsað sér að vera í skuld við verslun eða hrepps- félagið um áramót. Og honum tókst það líka. Það var honum metnaðarmál. Jakob og Matthildur eignuðust saman 14 börn á árunum 1913—1941 og ólust þau upp hjá foreldrunum. Eitt misstu þau árs gamalt en 13 komust til fullorðins- ára. Öll börnin nema það elsta og næstyngsta fæddust í Reykjar- firði. Árið 1930 eru 12 manns í heimili hjá þeim hjónum. Á áratugnum 1930 til 1940 gengu yfir hin svokölluðu kreppu- ár. Afurðaverð var þá mjög lágt og önnur heimsstyijöld braust út. En á þessu tímabili byggði Jakob ný peningshús og nýtt íbúðarhús í Reykjarfirði og hélt áfram búskap þar í 17 ár eftir þetta og búnaðist vel. Um vetur 1955 veiktist Matt- hildur og lá lengi veik. Þá var komið talstöðvarsamband í Reykj- arfjörð og Björn Pálsson flugmað- ur var fenginn til að koma norður í sjúkraflug. Hann hafði aldrei komið þangað áður en tók strax vel í málið og flugferðin gekk að óskum. Hjónin fóru bæði suður. Matthildur gekkst undir uppskurð á Landspítalanum hjá Snorra Hall- grímssyni og komst heim í Reykj- aríjörð aftur. — Hún fór að vinna alltof snemma eftir skurðaðgerð- ina og náði sér aldrei að fullu. Sjúk- dómurinn var ekki illkynja og hún lifði í 34 ár þar eftir. Jakob hætti búskap 1957 og flutti til Ísaíjarðar árið 1958. — Hjónin fengu húsaskjól hjá Jó- hönnu, elstu dótturinni og Kristjáni manni hennar. Síðar fluttu Jakob og Matthildur til Jóhannesar sonar síns í nýtt hús og höfðu þar eldhús og stofu út af fyrir sig. Á ísafirði stundaði Jakob al- genga verkamannavinnu, aðallega við fiskvinnslu, spyrða skreið og hengja upp í skreiðarhjalla. Eitt haust er hann var að störfum uppi í Breiðadalsheiði í kalsaveðri veiktist hann og náði aldrei fullri heilsu eftir það. Hann gekkst und- ir skurðaðgerð í Ísafjarðarspítala hjá Úlfi Gunnarssyni lækni. Það var erfið aðgerð, svo aldrei greri um heilt og Jakob gat ekki stund- að vinnu eftir það. Þegar svo var komið fannst honum dagarnir lengi að líða. Hans mesta gleði fólst öll í starfmu á meðan heilsan leyfði. Jakob gat ekki unnið nema heilshugar að hveiju sem hann gekk. Það var hans upplag sem gengið hefur að erfðum til afkom- enda. Á meðan Jakob stundaði bú- skapinn í Reykjarfírði hirti hann vel um skepnur sínar og fór vel með þær. Haustið 1930 fékk hann mann til að útvega sér hross norð- an úr Húnavatnssýslu. Þettá var ljósgrá hryssa, þriggja vetra. Hún hafði gengið með folaldi um suma- rið og sýndist ekkert afgerandi. Þessa hryssu nefndi Jakob Lóu, ól hana vel um veturinn og umg- ekkst hana af nærfæmi. Svo brá við að hún reyndist afbragðsvel og varð augnayndi og stolt eigan- dans. Jakob dáði hana mest af sínum skepnum á meðan hún lifði. í vinahópi gat Jakob oft verið glaður og hláturmildur. Hann átti létt með að hafa lag og hafði ánægju af söng, kunni líka nokkuð af visum og þulum. Einn ríkur þáttur í fari hans var mikil trú- hneigð, sem hann flíkaði ekki en veitti honum styrk í veikindum og amstri daganna þegar dró að leið- arlokum. Jakob lést í Sjúkrahúsi ísafjarð- ar haustið 1972 — 82 ára að aldri. Guðfinnur Jakobsson Ingólfur Jónsson Nýlendi — Minning Fæddur 6. nóvember 1923 Dáinn 27. ágúst 1990 Hann Ingólfur Jónsson frændi okkar er dáinn. Hann er nú úr aug- sýn en í hjörtum okkar á hann stór- an stað, og í hugum okkar mun hann alltaf vera. Okkur finnst ein- kennilegt að vita af honum svo óra langt í burtu, en þó svo nálægur. Við minnumst allra þeirra stunda er Ingólfur heimsótti okkur, ætíð svo hress og kátur, jafnvel fram á síðustu stundu, eins var þegar við komum norður til hans, þá var oft glatt á hjalla. Nú er Ingólfur vinur okkar far- taka þátt í glaðværðinni sem ávallt var svo stutt í. Eftir stendur svo það sem kærleiksrík vinátta og kynni af góðri manneskju gef- ur. Það fyllir hugann og verður gefandi við hinar ýmsu aðstæður sem lífíð skapar þegar frá líður. Þórunnar Ólafsdóttur er sárt saknað meðal allra sem kynntust henni en gleðin er líka mikil yfir því að hafa fengið að eiga með henni samleið. Kynnin era lær- dómsrík og kenna okkur mikilvægi þess að rækta sinn vináttu- og frændgarð. Orð mega sín lítils frammi fyrir hinum stóru stað- reyndum lífsins. En vissan um betra líf gefur styrk og beinir huganum að kærleiksríkri minn- ingu um góða manneskju. Innilegustu samúðarkveðjur sendum við fjölskyldunum á Hellu og í Hellnatúni sem bera sárasta söknuðinn. Megi góður Guð gefa ykkur styrk í sorgirini. Sigurður Jónsson, Esther Óskarsdóttir, Díana Óskarsdóttir, Guðmundur Óskarsson. inn. Við vildum svo sannarlega kynnast fleiri svona mönnum, sem hafa slíkt hugrekki og slíkan kjark sem Ingólfur heitinn hafði og sem kom gleggst fram þegar honum var sagt frá sjúkdómnum sem hann gekk með. Við getum öll tekið undir orð meistarans og sagt: „Allir menn fæðast til að missa, en þá kemur aftur á móti, en við getum öll glaðst óendanlega yfir því að hafa átt.“ Guð blessi alla aðstandendur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. v (V.Briem.) Blessuð sé minning Ingólfs frænda. Jón E. Hjartarson, Vigdís Hjartardóttir, Hreinn Hjartarson. í dag fer fram á Hofí á Höfða- strönd jarðarför Ingólfs Jónssonar bónda á Nýlendi, en Hann lést á Landsspítalanum eftir stutta legu þann 27. ágúst sl. Ingólfur var fæddur á Kambi í Deildardal 6. nóvember 1923, sonur Hólmfríðar Þorgilsdóttur og Jóns H. Arnarsonar trésmiðs er þar .bjuggu um alllangt skeið. Hann var yngstur fjögurra sona þeirra Hólm- fríðar og Jóns og ólst upp á Kambi með foreldrum sínum og bræðrum. 1941 kaupir Hólmfríður og synir hennar Brúarland, en þá var Jón látinn fyrir nokkru. Á Brúarlandi bjó hún ásamt sonum sínum Run- ólfí og Ingólfi til 1955, að þau Ing- ólfur kaupa Nýlendi og flytja þang- að. Hólmfríður lést árið 1971 og bjó Ingólfur þar síðan, oftast einbúi. Ingólfur var í frumbernsku mik- ill sjúklingur en varð er hann þrosk- aðist hraustmenni og harðduglegur og mátti segja að hvert verk iéki í höndum hans. Lengst af ævinnar stundaði hann vinnu utan heimilis- ins ef aðstæður leyfðu, fór á ver- tíð, vann á þungavinnuvélum, í byggingavinnu og að múrverki. Bú mun hann aldrei hafa haft stórt, enda gaf jarðnæðið ekki tilefni tií slíks en hann var alltaf vel bjarg- álna. Um skeið átti hann vörubíl og var ósínkur að hjálpa vinum sín- um og grönnum, því einn stærsti þátturinn í fari hans var hjálpsemi og greiðvikni sem þó oft mun hafa komið niður á hag hans sjálfs. Ingólfur var í uppvexti mikill mömmudrengur enda brást hann henni ekki er hann eltist og má fullyrða að hann fómaði sér alveg fyrir móður sína meðan hún lifði svo að hún gæti lifað lífinu á þann hátt er hún kaus. Ýmsir munu sakna Ingólfs er hann er allur. Hann var gleðimaður og kátína hans oft gáskafull og þeir sem þekktu hann best vissu að hann var drengur góður og þá bestur er mest á reyndi. Steinar Þórðarson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.