Morgunblaðið - 08.09.1990, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990
Gunnarog’ Guðbjörg halda tón
leika á Isafírði og Flateyri
GUNNAR Guðbjörnsson óperusöngvari og Guðbjörg Siguijónsdóttir
píanóleikari halda tónleika á Isafirði og Flateyri, helgina 8. og 9.
september. Tónleikarnir á Isafirði verða í Sal frímúrara á laugardeg-
inum kl. 17 en á Flateyri verða tónleikarnir haldnir í mötuneyti
Hjálms kl. 17 á sunnudeginum. Efnisskrá beggja tónleikanna inni-
heldur tónlist úr ýmsum áttum, íslensk og ítölsk sönglög sem og
ljóðasöngva eftir Gouynod og Schubert.
Gunnar Guðbjömsson stundaði
söngnám lengst af hjá Sigurði V.
Demetz í Nýja Tónlistarskólanum.
Hann fór í framhaldsnám til
Hanne-Lore Kuhse prófessors í
Berlín og Paul Wynne Griffiths í
London. Hann hefur einnig sótt
tíma hjá Nicolai Gedda í Vín, Morg-
es og London. Gunnar hefur á
síðustu 5 árum komið víða fram sem
einsöngvari bæði hér heima sem
erlendis. Hann hefur sungið óperu-
hlutverk með íslensku óperunni,
Buxton Festival í Englandi, Velsku
Þjóðaróperunni og komið fram í
leikriti hjá Opera North í Leeds.
Hann' hefur einnig komið fram á
tónleikum í St. Davids Hall í Card-
iff, Queens Hall í Edinborg, og í
Royal Albert Hall í London með
Royal Philharmonic Orchestra á
síðastnefnda staðnum. Þeir tónleik-
ar hafa verið gefnir út á hljómplötu
og disk í London.
Nýlega tók Gunnar þátt í upp-
töku á safndiski fyrir Philips
Classics, en þar söng hann aríu úr
óperunni „Mitridate" eftir Mozart,
með hljómsveitinni Academy og St.
Martin in the Fields, undir stjórn
Sir Neville Marriners. Gunnar hefur
oft komið fram í útvarpi og sjón-
varpi m.a. í Vikivaka Atla Heimis
Sveinssonar og nú síðast í þætti
Granada Television um ferðaóperur
í Englandi. Fyrir stuttu undirritaði
Gunnar námssamning við National
Opera Studio í London til eins árs
en samhliða mun hann áfram koma
fram á tónleikum hér heima og í
London.
Guðbjörg Siguijónsdóttir er fædd
í Reykjavík. Hún hóf píanónám hjá
Ragnari Bjömssyni, en fór síðan til
Hollands og stundaði nám við
Sweelinck Conservatorium frá 1972
og lauk þaðan prófi árið 1979.
Guðbjörg hefur tekið þátt í nám-
skeiðum fyrir söngvara og samleik-
ara hjá prof. Hanne-Lore Kuhse,
prof. Charles Spencer og Dalton
Baldwin og unnið með mörgum
Gunnar Guðbjörnsson, óperu-
söngvari.
söngvuram á síðustu áram. Guð-
björg starfar einnig sem píanókenn-
ari í Reykjavík.
Vettvangsferð
í Keilisnes
í DAG stendur Náttúruvemdar-
félag Suðvesturlands fyrir vett-
vangsferð á Keilisnes sem er á
mótum Vatnsleysustrandar- og
Innanheiðarbæjanna.
Farið verður klukkan 13.30 frá
Stefánsvörðu (Varðan er vestan-
megin við gamla Suðumesjaveg-
inn) austur af Kálfatjöm og geng-
ið niður á Keilsnes. Gengið verður
á fjörurein og fyllt út eyðublaðið
„Fjaran’mín“. Þá verður gengið
um nesið og fyllt út tilraunaeyðu-
blöð fyrir „Landið mitt“. Tilgangur
ferðarinnar er að kynna ofan-
greind skoðunarverkefni og fram-
kvæmd þeirra. Fylgdarmenn verða
fróðir menn um náttúrufar, sögu
og ömefni svæðisins og nágrenni
þess.
%
aiisleiJKur
p
i
í kvöld
frá kl. 22.00 - 3.00
Hljómsveitin KOMPÁS leikur nýju og gömlu
dansana ásamt Jóni Sigurðssyni og
söngkonunni Kristbjörgu Löve
Gestur kvöldsins: Hinn sívinsæli
Örvar Kristjánsson
Dansstuðið er í Ártúni
VEmNQAHÚS
Vagnhöfða 11, Reykjavfk, sími 685090.
&
STÖNGIN INN
Hljómsveltin Gott
ásamt
Eyjólfl Kristjánssyni
ogfélögum
skemmta í kvöld.
hýtt SÍMANOMER
prentmyndagerðar-
KLÚBBURINN
Sportklúbburinn,
Borgartúni 32.
NÝTT SÍMANÚMER
auglýsngadeildar^
egnn
fUorsjíim&Iattti
Dúett úr
The Dubliners
f rá írlandi
í kvöld. flllra síðasta sinn.
Húsið opnað kl. 18.00.
Nýrírskur matseðill á írsku verði.
Miðaverð eftir kl. 21.00 aðeins kr. 500,-.
í KVÖLD
Fjölbreytt skemmtiatriði
ásamt kvöldverði
MA TSEÐILL:
Reykturlax
Glóðarsteikt lambafile
ís meðávöxtum
Kr. 2.900,-
Afsláttur fyrir h ópa
Hljómsveit
Pdlma Gunnarssonar
Miðasala og borðapantanir ísíma 687111
Snyrtilegur klæðnaður (gallaklæðnaður bannaður)
Meirn en þú getur ímyndað þér!