Morgunblaðið - 08.09.1990, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990
41 '
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Víti til varnaðar
Til Velvakanda.
Mig langar til að láta alþjóð vita,
á hveiju þeir geta átt von í viðskipt-
um við ferðaskrifstofur. Með kveðju
og ósk um að þetta geti verið víti
til varnaðar.
Ferðaskrifstofan Útsýn, Úrval,
Saga bjóða upp á ferðir til hótelsins
Silchoro í Algarve. Ég var þar á
tímabilinu 25. júlí til 15. ágúst á
vegum þess fyrst nefnda. Gistiað-
staða mín og nokkurra fleiri íslend-
inga var í nýbyggingu sem reyndist
vera bakhús upp á 4 hæðir, þar af
3 hæðir niður. Og við í daglegu
tali okkar á milli kallaðir skúffufé-
lagarnir i Útihúsunum.
Stúdíóíbúðirnar voru þokkalegar
að því frátöldu að í þeim var einn
svefnbekkur, dýnulengd 180x80 sm
breið. Rúmfataskúffan reyndist
geyma svampdýnu að lengd 170
sm, sem í þurfti að sofa er tveir
deiídu íbúðinni. Var þessi skúffa
þá dregin undan bekknum er kom
að svefntíma. Þægilegt fyrir karl-
mann sem er tæpir 190 sm á hæð
að sofa í þessu.
Sól kom aldrei inn um svalirnar,
sem voru án borðs og stóla. Útsýni
var blokk í byggingu. Þar var haf-
ist handa við vinnu kl. 6.50 hvern
morgun nema sunnudaga. Enginn
svefnfriður var eftir það, vegna
steypuhrærivéla og annarskonar
byggingahávaða.
Ekkert gagn var að því að taia
við fararstjórann um að fá sig færð-
an. Allt var talið eðlilegt. Reyndar
kváðust þeir óhressir með þetta
fyrir okkar hönd, en það væri ekki
við þá að sakast, við skyldum tala
við skrifstofuna heima.
Eftir 11 daga bauðst Guðmundur
fararstjóri til þess að fara úr sinni
stúdíóíbúð fyrir okkur, það þáðum
við ekki, töldum það enga lausn.
Ég fór í þessa ferð með tveggja
daga fyrirvara á gjaldi sem ferða-
skrifstofan bauð kr. 49.900 fyrir
utan flugvallarskatt. Og átti þetta
að vera hvíldarferð, en ekki reynd-
ist svo. Það reyndust vera fleiri á
þessu hóteli á ennþá lægra gjaldi,
en fengu þó betri stúdíóíbúðir með
þeim þægindum að hafa 2 svefn-
bekki auk þess að hafa borð og
stóla úti á svölum, auk sólar, ein-
hvern hluta dagsins. Þær íbúðir
reyndust líkjast þeim myndum, sem
okkur voru sýndar af stúdíóíbúðun-
um hér heima á skrifstofu.
Óþrifnaður var mikill í sundlaug,
svo ekki sé minnst á vatnsskort í
þeim tveimur sturtum sem eru úti
við sundlaug. Kom fyrir að þær
væru vatnslausar suma dagana.
Einnig var vatnslaust á hótelinu í
tvígang. Annað skiptið frá kl. 8 að
kveldi til kl. 9 að morgni.
Ræsting var í algjöru lágmarki
í íbúðunum, skítugt skólpvatn notað
í gólfþvott rétt yfir miðju gólfs
sjaldan út í horn, og aldrei í 3 vik-
ur undir svefnbekk. Einnig sáust
ræstingakonur bleyta borðtuskur
sínar í sundlaug til að þvo borð og
stóla fyrir utan barinn við sundlaug-
ina. \
Ég hefi áður verið hér í Algarve
þá á Villa Magna. Því stóðst ég
ekki það að labba þangað til að
skoða aðstöðuna þar og sundlaug-
ina, sem var hrein og tær alveg til
fyrirmyndar.
Fróðlegt væri að fá að vita hvers
vegna allar ferðir sem boðið er upp
á erlendis hjá fararstjórunum eru
allt að 110% dýrari en hjá hinum
ferðaskrifstofunum, svo sem ensku
og dönsku.
Líka umrædd sælkerakvöld sem
boðið var upp á, það reyndist dýr-
ara en að fara á eigin vegum.
Að endingu, ef þið skylduð nú
ekki vita hvernig hvíldaraðstaðan
er í nýbyggingu Silchoro sendi ég
hér með mynd því til sönnunar. Það
verður að segjast eins og er, eftir
þessa ferð, að lftill áhugi er á að
ferðast með ferðaskrifstofu sem
þessari, sem veitir rangar upplýs-
ingar í upphafi, og fararstjórn sem
ekki stendur fast á því að bjóða
gestum sínum betri þjónustu á
staðnum. Fararstjórar voru þó til
fyrirmyndar í ferðunum. Skoðana-
könnun var frá ykkur í ferðinni út.
Hún hefði mátt vera á leiðinni heim.
Bára Þórðardóttir
Til Velvakanda.
Styrktarfélag aldraðra í Hafn-
arfirði vill koma á framfæri kveðj-
um og þakklæti en 55 eldri borgar-
ar dvöldu á Edduhótelinu á Húna-
völlum 20. til 27. ágúst. Hótel
stjórarnir Þór Ragnarsson og
Sigríður Sigmundsdóttir sýndu
gestum sínum einstaka alúð og
umhyggju sem ber að þakka. Og
þjónustufólkið, sem flest var ungt
að árum, gerði sitt til að gera
Bjargaði
hundi
Til Velvakanda,
í gær, þriðjudaginn 2. september
kl. rúmlega fimm, var ég með barn
og tvo hunda á bakka stríðrar elfur
bílaumferðar á Miklubraut gegnt
Tjörninni. Hafði barnið misst tökin
á ól um hálsinn á Chosie litlu (Cock-
er Spaniel) og hljóp hún út í umferð-
arflauminn og komst á eyjuna milli
austur- og vesturumferðar.
Vestur-straumurinn var óstöðvandi
lest af bílum, bíll við bíl, á báðum
akreinum, og gerði Chosie sig
líklega til þess að stökkva út í
flauminn í opinn dauðann. Ekki gat
ég sleppt barninu og hlaupið á eft-
ir Chosie, en mér fannst sem ég
sæi hana þar í síðasta sinn og hún
mundi kremjast undir bílhjólum í
óvitaskap sínum. Hefði það gerst,
ef ekki hefði borið að göfuglynda
stúlku á svörtum bíl á vesturleið í
vinstri akrein, sem hægði ferðina
og girti fyrir dauða-leið Chosiar.
Og til þess að tryggja líf hennar
sveigði hún upp á eyjuna, væntan-
lega til armæðu fyrir þá bíla sem
á eftir voru og höfðu hægt á sér
og stöðvast, en vissu ekki hvað olli.
Þegar loks slotaði umferðinni og
varð hlé vegna gönguljósa ofar við
Miklubraut, komst ég yfir með
barnið og Tinnu, svarta labradortík,
en rétt í því skaust Chosie yfir ak-
brautina á öruggum stað milli bíla
og hélt niður að Tjörn, en ég beið
á eyjunni með barnið og Tinnu eft-
ir frekari uppstyttu í umferðinni,
skelfingu lostin. Þegar loksins varð
hlé komst ég yfir, og var þar mað-
ur sem náði Chosie fyrir mig, —
reyndist hann danskur, og þakkaði
ég honum af innsta grunni hjarta
míns! Þennan mann hitti ég í dag
í Norræna húsinu, fundarstað allra
Norðurlandabúa! — En ég veit ekki
hver stúlkan á svarta bílnum er.
Nú langar mig svo fjarska mikið
að biðja Velvakanda að hafa upp á
henni með því að birta þennan pist-
■ il og biðja hana að hringja í annað
hvort okkar hjónanna svo við getum
þakkað henni lífgjöf okkar góðu og
trúföstu vinkonu, hennar Chosie.
Síminn er 16605 (eða 694349). Og
með þessu skrifi fylgja auðvitað
innilegar þakkir til stúlkunnar á
svarta bílnum sem við eigum svo
mikið upp að unna. Megi lánið og
gæfan fylgja henni í allri umferð
lífsins um ókomin ár.
Þórir Kr. Þórðarson
dvöl eldri borgaranna sem án-
gægjulegasta og þægilegasta. Það
má gjarnan geta þess sem vel er
gert sem mótvægi gegn öllum
þeim umkvörtunum og þeirri nei-
kvæðu umfjöllun sem mest er
áberandi í dagblöðum. Einnig vilj-
um við þakka bílstjóranum sem
var mjög þægilegur. Þökkum
ánægjulega dvöl á Húnavöllum.
Styrktarfélag aldraðra
í Hafnarfírði
Ánægjuleg ferð
Mínar bestu þakkir til allra þeirra, sem heiðr-
uðu mig vegna sextugsafmœlis míns með gjöf-
um, skeytum og vinarhug.
Guð blessi ykkur. öll.
Hilmar Bjarnason.
f ^ II
LIMB0ND
FYRIR TRJÁPLÖNTUR
í stað spotta og borða, í stað þess að hefta eða
negla, býðst nú lausn sem gerir uppbindingu
trjáa að léttum leik. Veðurþolnu límböndin frá
MAPA eru sterk, mjúk og þjál og særa ekki
viðkvæman börk.
Sölustaðir:
Sölufél. garðyrkjumanna, Smiðjuvegi 5, Kóp.
Málningarþjónustan, Akranesi.
Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.
Skipavík, Stykkishólmi.
Versl. Hamrar, Grunarfirði.
Versl. Vík, Ólafsvík.
Ástubúð, Patreksfirði.
Versl. Tían, Tálknafirði.
Kf. Dýrfirðinga, Þingeyri.
Jón Fr. Einarsson h/f, Bolungarvík.
Pensillinn, ísafirði.
Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík.
Kf. A-Hún., Blönduósi.
Kf. V-Hún., Hvammstanga.
Versl. Hegri, Sauðárkróki.
Torgið, Siglufirði.
Valberg h/f, Ólafsvík.
Skapti h/f, Akureyri.
Kf. Þingeyinga, Húsavík.
Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði.
Kf. Héraðsbúa, Egilsstöðum.
Stálbúðin, Seyðisfirði.
Versl. Vík, Neskaupstað.
K.A.S.K. Hornafirði.
Kf. Rangæinga, Hvolsvelli.
Þríhyrningur, Hellu.
Kf. Árnesinga, Selfossi.
Kf. Suðurnesja, Keflavík.