Morgunblaðið - 08.09.1990, Page 43
- - ___ , f?Vf 'T ..
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990
43
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ
17. umferð í dag:
Spennan í
hámarki!
Úrslit geta ráðist á toppi sem botni
NÆST síðasta umferð íslandsmótsins fer fram í dag. Spennan er
í hámarki og getur verið óbreytt að leikjunum loknum, en sá
möguleiki er fyrir hendi að Framarar tryggi sér titilinn og íslands-
meistarar KA bjargi sér endanlega frá falli. Ekkert er sjálfgefið,
víst er að fjögur efstu liðin þurfa að hafa mikið fyrir því að halda
sínum hlut og því má fastlega gera ráð fyrir skemmtilegum bar-
áttuleikjum.
Framarar sækja Stjörnumenn
heim. Gestirnir eru í efsta sæti
á markatölu og með sigri getur tit-
illinn verið í höfn, én þá verða
Skagamenn að bera sigurorð af
KR-ingum á Skipaskaga og Eyja-
menn og Valsmenn að tapa stigum.
„Stjarnan úthrópuð
í Garðabæ"
„Ég hygg að úrslit mótsins ráðist
ekki fyrr en í síðustu umferð,“ sagði
Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram.
„Enn getur allt gerst og það gildir
hjá öllum fjórum efstu liðunum að
þau verða að sigra til að eiga mögu-
leika á titlinum. Spurningin er
hvemig menn þola álagið og því
er ekki að neita að Fram hefur
mikla reynslu í úrslitaleikjum og
það er undir okkur sjálfum komið
hvort við fögnum sigri.“
Pétur Arnþórsson verður í banni,
en Ásgeir sagði að maður kæmi í
manns stað. „Þetta verður samt
erfitt, því ég er viss um að Stjarnan
gefur ekkert eftir.“
Nýliðar Stjörnunnar hafa heldur
betur staðið undir nafni á fyrsta ári
í 1. deild og rækilega sannað til-
vemrétt sinn. Liðið er í efri kantin-
um, en möguleiki á Evrópusæti er
langsóttur.
„Það er ekki langt síðan að tak-
markið var að ná 20 stigum,“ sagði
Jóhannes Atlason, þjálfari. „Síðan
var markmiðið að komast í núver-
andi stöðu, en nú spáum við ekkert
í sæti lengur. Hins vegar er öll við-
bót plús og við gefum ekkert eftir.
Okkur hefur gengið vel að undan-
förnu, en þetta verður viss próf-
raun. Liðið hefur spilað best gegn
sterkari liðunum, en ef þessi leikur
verður ekki erfiður er enginn leikur
erfiður. Það er að duga eða drepast
fyrir Framara og ef þeir reyna ekki
núna, gera þeir það aldrei."
Jóhannes sagði að þrátt fyrir
velgengnina hefði Stjarnan fá-
mennan stuðningsmannahóp á
leikjum. „Allir virðast fylgjast með
úr fjarlægð og allir eru tilbúnir að
styrkja liðið, en Stjarnan er úthróp-
uð á leikjum í Garðabæ, sem er
umhugsunarefni. Reyndar er um
20 manna kjarni, sem fylgir okkur
hvert á land sem er og veitir okkur
geysilegan stuðning, en lið í topp-
baráttu í 1. deild þarf á fjölmenn-
ari hópi að halda."
Afsláttarmiðar með Akraborg
KR-ingar mæta Skagamönnum
á Skipaskaga og er gert ráð fyrir
fjölda áhorfenda frá Reykjavík enda
mikið í húfi hjá liðunum. Því hefur
verið ákveðið að bjóða sérstkar
pakkaferðir með Akraborginni, sem
fer kl. 12:30 frá Reykjavík og til
baka frá Akranesi kl. 17. Ferðir og
miði á leikinn kosta 1.100 kr. fyrir
fullorðana og 450 kr. fyrir börn.
„Ég hef alla tíð borið mikla virð-
ingu fyrir Skagamönnum og geri
enn. Þeir hafa gert mikið fyrir
íslenska knattspyrnu og síst vildi
ég sjá liðið falla í 2. deild,“ sagði
Ian Ross, þjálfari KR. „Við förum
í alla leiki með því hugarfari að
gera okkar besta og sigra, en það
er ekki auðvelt frekar en annað í
lífínu. Við höfum ekki efni á að
vanmeta Skagamenn, en ég vonast
eftir sigri, þó það þýði fall fýrir
Skagamenn, því miður.“
KR-ingar hafa aðeins yfir tveim-
ur sigrum að státa á Akranesi síðan
1969, en Skagamenn hafa verið í
óvenjulegum öldudal í sumar. „Við
höldum í vonina og og gefum ekk-
ert eftir,“ sagði Hörður Jóhannes-
son, þjálfari ÍA. „Það hefur ekki
gengið vel í sumar en leikurinn
gegn ÍBV hleypti nýju blóði í menn
og breytti hljóðinu í bæjarbúum,
sem ég geri ráð fyrir að fjölmenni
og styðji vel við bakið á okkur.
Þetta verður baráttuleikur, sem
ætti einnig að geta orðið skemmti-
legur.“
Eyjamenn fjölmenna
Eyjamenn eru í 3. sæti, en hafa
ekki sagt sitt síðasta orð. Meðbyr-
inn hefur aukist með hverjum leik
og sagði Sigurlás Þorleifsson, þjálf-
ari, að hann ætti von á góðum
stuðningi á Víkingsvelli, en áhang-
endur. liðsins ætla að hittast á
Kringlukrá klukkan 12.
„Við gerum okkur alveg greín
fyrir stöðunni,“ sagði jSigurlás, „en
fjögur efstu liðin eiga ámóta erfiða
leiki eftir og það verður heppni sem
ræður úrslitum um endanlega röð
og svo dagsformið. Við ætlum okk-
ur sex stig úr síðustu tveimur leikj-
unum, en spyrjum að leikslokum.
Strákarnir eru metnaðarfullir,
stemmningin er ótrúleg og stuðn-
ingurinn mikill, en Eyjamenn eru á
jörðinni og hafa umfram allt gaman
að vera með í toppbaráttunni.“
Jakob Jónsson verður í leikbanni
og Elías Friðriksson er meiddur, en
að öðru leyti stillir Sigurlás upp
sterkasta liði, sem völ er á.
„Álagið er á Eyjamönnum,“ sagði
Logi Olafsson, þjálfari Víkings.
„Takmarkið hjá okkur er að gera
betur en í fyrra og því gefum við
ekkert eftir á lokasprettinum. Við
erum með þijá tapleiki í röð á bak-
inu og höfum fullan hug á að snúa
dæminu við, seljum okkur dýrt, en
þetta verður erfitt.“
Goran Micic byrjar í ljögurra
leikja banni í dag og verður því
ekki meira með Víkingum í ár, en
hann hefur verið einna öflugasti
sóknarmaður liðsins.
Valsmenn treysta á aðra
Bikarmeistarar Vals fá FH-inga
í heimsókn. „Það var ákveðið
spennufall eftir bikarúrslitin, sem
kom fram í deildarleiknum gegn
KR,“ sagði Ingi Björn Albertsson,
þjálfari Vals. „Við verðum hins veg-
ar að sigra í tveimur síðustu leikjun-
um til að eiga möguleika, en verðum
jafnframt að treysta á aðra — þetta
er ekki í okkar hendi. Ég á ekki
von á að FH-ingar slaki á, ef ég
þekki þá rétt og það er þeim til
bóta að þeir eru ekki undir neinu
álagi."
Sævar Jónsson verður í leikbanni
go Snævar Hreinsson er farinn til
Bandaríkjanna í nám og að auki
sagði Ingi Björn að nokkrir menn
væru vafasamir vegna meiðsla og
nefndi Anthony Karl, Þórð, Einar
Pál og Baldur, en gerði samt ráð
fyrir að þeir yrðu með.
Eyjamenn hafa haft ærna ástæðu
til að fagna í sumar.
FH-ingar stilla upp sterkasta liði
sínu og sagði Ólafur Jóhannesson,
þjálfari, að viðureignin yrði örugg-
lega skemmtileg, því bæði lið mættu
afslöppuð til leiks. „Við þurfum að
rífa okkur upp úr þessu sleni, sem
hefur verið yfir okkur, til að ná
stemmningu fyrir Evrópuleikinn,“
sagði Ólafur. „Við náðum okkur á
strik gegn Fram og sækjum stíft
til sigurs gegn Val.“
„Tímabært að sigra Þór“
íslandsmeistarar KA eru í fall-
hættu, en sigur gegn Þór tryggir
áframhaldandi veru í 1. deild..KA
hefur hins vegar aldrei sigrað ná-
grannana í deildinni. „Það er að
duga eða drepast," sagði Guðjón
Þórðarson, þjálfari, „ogþað ertíma-
bært að snúa blaðinu við áður en
Þórsarar yfirgefa deildina. Þeir
ætla sér örugglega að gera það sem
þeir geta til að taka okkur með
niður og hafa engu að tapa, en við
erum jafnmargir og ekkert nema
sigur kemur til greina. Þetta verður
samt mjög erfiður leikur, því Þór
spilar aldrei betur en gegn KA.“
Halldór Kristinsson verður í banni
og Erlingur Kristjánsson er erlend-
is.
Luca Kostic, þjálfari Þórs, sagði
að þetta væri sérstakur leikur eins
og allar viðureignir félaganna, burt-
séð frá stöðunni. „Við erum að spila
fyrir Þór og okkar stuðningsmenn
og viljum ljúka mótinu með reisn.
Því leikum við stíft til sigurs og
stefnum að því að halda uppteknum
hætti gegn KA í deildinni." Hlynur
Birgisson leikur ekki með Þór vegna
leikbanns.
Stórleikur á Fylkisvelli
Spennan er ekki minni í 2. deild.
Víðir, sem sækir Tindastól heim,
hefur þegar sigrað í deildinni. Bar-
áttan um 2. sætið er á milli Fylkis
og UBK, en liðin mætast á Fylkis-
velli og fara heimamenn upp með
sigri. Grindavík gulltryggir sætið í
deildinni með sigri á Selfossi, KS
fær ÍR í heimsókn og tap þýðir
fall. Sama verður uppi á teningnum
hjá Leiftri, ef liðið tapar í Keflavík.
Fj. leikja U j T Mörk Stig
VÍÐIR 16 11 4 1 35: 16 37
FYLKIR 16 9 3 4 33: 17 30
BREIÐABLIK 16 8 4 4 22: 13 28
ÍBK 16 7 3 6 15: 15 24
ÍR 16 7 2 7 17: 21 23
SELFOSS 16 6 3 7 32: 28 21
TINDASTÓLL16 5 4 7 18: 25 19
GRINDAVÍK 16 5 2 9 18: 30 17
KS 16 4 1 11 18: 29 13
LEIFTUR 16 3 4 9 12: 26 13
Fj. leikja u J T Mörk Stig
FRAM 16 10 2 4 30: 13 32
KR 16 10 2 4 26: 16 32
ÍBV 16 9 4 3 31: 29 31
VALUR 16 9 3 4 25: 18 30
STJARNAN 16 8 2 6 21: 17 26
FH 16 6 2 8 22: 26 20
VÍKINGUR 16 4 7 5 16: 16 19
KA 16 5 1 10 17: 24 16
IA 16 3 2 11 17: 31 11
ÞÓR 16 2 3 11 7: 22 9
Hvaleyrar-
holtsvöllur
Úrslitaleikur í 3. deild
HAUKAR - ÍB
ídag kl. 14
Tryggja Haukar sér sæti í 2. deild?
50 fyrstu gestirnir fá Stjörnupopp
Kaffistofan Kænan, Verkamanna- Augnsýn, verslun,
Fornbúðum félagið Hlíf Reykjavíkurvegi 62
Nú mæta allir Haukar á völlinn
Fylgjum strákunum alla leið upp í 2. deild
ÁFRAM HAUKAR! - ÁFRAM HAUKAR!
Firmakeppni Gróttu
í innanhússknattspyrnu
verður haldin laugardaginn 30. sept. og sunnudag-
inn 1. okt. í nýja íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi.
Þátttaka tilkynnist: Rögnvaldi Dofra Péturssyni s.
621160 - 687210, Sverri Herbertssyni s. 615786,
Pétri Sigurðssyni s. 675603 - 686300.
Knattspyrnudeild Gróttu