Morgunblaðið - 08.09.1990, Síða 44

Morgunblaðið - 08.09.1990, Síða 44
Fróðleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Ekið á þrjá gangandi vegfarendur FJOGUR umferðarslys urðu í Reykjavík síðdegis í gær. í þrem- ur þeirra var ekið á gangandi vegfarendur. Roskinn maður slasaðist talsvert er hann varð fyrir bíl á Miklubraut skammt austan Réttarholtsvegar. Drengur varð fyrir bíl og meiddist á Lönguhlíð við Skaftahlíð. Hann var á leið vestur yfir Lönguhlíðina og varð fyrir bíl sem ekið var í suð- ur eftir hægri akrein. Ökumaðurinn gat ekki stöðvað bílinn í tæka tíð þegar barnið gekk út á götuna milli tveggja kyrrstæðra bíla. Þá var ekið á gangandi vegfar- anda í Lækjargötu og var sá fluttur á sjúkrahús með sjúkrabifreið. Maður var fluttur á sjúkrahús eftir harðan árekstur á mótum Norð- urfells og Breiðholtsbrautar. Sjálfstæðismenn 1 Reykjavík: Lagt til að prófkjör verði haldið STJÓRN Fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík heldur fund í dag, þar sem tilhögun vals á framboðslista Sjálfstæðisflokks- ins fyrir þingkosningarnar á næsta ári er á dagskrá. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins verður á fundinum lögð fram tillaga um að valið verði á listann með prófkjöri. Samkvæmt heimildum blaðsins er Morgunblaðið/RAX Útför Geirs Hallgrímssonar Útför Geirs Hallgrímssonar, seðlabankastjóra og fyrrverandi forsætisráðherra, var gerð með viðhöfn frá Dómkirkjunni í Reykjavík í gær. Hvert sæti í kirkjunni var skipað, margir stóðu og varð hópur fólks að standa utan dyra. ,. _ Kanadískt fyrirtæki vill kaupa kindakjöt frá íslandi: Vilja flytja íslenzkt kindakjöt almennur vilji fyrir því meðal stjórn- armanna í fulltrúaráðinu að prófkjör verði haldið, en mismunandi skoðan- ir eru uppi um tilhögun þess. Baldur Guðlaugsson, formaður fulltrúaráðsins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að stefnt væri að því að taka ákvörðun í dag um tillögu stjórnarinnar til fulltrúaráðs- ins og boða til fulltrúaráðsfundar í framhaldi af því. Stjórn fulltrúa- ráðsins gerir tillögu til fundarins um tilhögun kjörs framboðslistans, en fulltrúaráðið, sem telur yfir 1.000 manns, hefur úrslitavaldið. inn til Líbýu og Egyptalands Fengu neikvæð svör frá Sambandinu FORSTJÓRI kanadíska fyrirtækisins Ultra Management Systems, Henry Combrink, hefur ritað afurðadeild Sambands islenzkra sam- vinnufélaga bréf og falazt eftir íslenzku kindakjöti til kaups í heilum skrokkum. Kjötið vill Combrink flytja inn til Líbýu og Egyptalands í félagi við Ahmed Nayed, líbýskan auðjöfur. Combrink sagðist í sam- tali við Morgunblaðið í gær hafa fengið neikvætt svar frá Sambandinu. munnlega, en skrifleg svör hefði hann engin fengið. Alþing-ishúsið: Húsafriðunamefnd hafnar skjaldarmerki HÚSAFRIÐUNARNEFND hafnaði á fundi sínum í gær fyrirliggj- andi tillögu um uppsetningu skjaldarmerkis íslenska Iýðveldisins á svalir alþingishússins. Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings, sagði í samtali við Morgunblaðið að forsetar þingsins myndu hittast í dag og ræða þetta mál. Hún myndi leggja til að ný tillaga yrði gerð. í svari húsafriðunarnefndar til húsameistara ríkisins vegna þessa segir: „Alþingishúsið er friðað samkvæmt þjóðminjalögum. I þeim er kveðið svo á um að óheimilt sé að breyta friðuðu húsi nema með leyfi nefndarinnar og sérstaklega er tekið fram að ekki megi setja skilti eða aðrar áletranir á friðuð hús. Húsfriðunarnefnd lítur svo á að þegar hús er friðað beri nefnd- inni að sýna ítrustu varkárni í því að veita leyfí til breytinga. Slíkt eigi einungis að leyfa í undantekn- ingartilvikum og þá aðeins ef þess er þörf til að húsið megi nýtast á eðlilegan hátt. Það er mat nefndar- innar að um slíkt sé ekki að ræða í þessu tilviki og ennfremur að merkið, eins og það liggur fyrir í tillögu, falli ekki að byggingarstíl hússins og yrði ekki til prýði. Nefndin getur því ekki fallist á erindi yðar. Húsafriðunarnefnd vill enn- fremur taka fram að ekki er hefð fyrir því að opinberar byggingar séu merktar með skjaldarmerki iýðveldisins. Sú hefð sem tíðkaðist á fyrri tímum að merkja opinberar byggingar með nafndrætti þess stjórnarherra sem þá ríkti hefur ekki viðhaldist, en slík merki eru þó látin vera áfram á húsum.“ „Forsetar munu hittast og ræða hvað gera skuli og ég mun alla vega leggja til að önnur tillaga verði gerð og lögð að nýju fyrir húsafriðunarnefnd. Hún hefur þetta vald ótvírætt samkvæmt þjóðminjalögum", sagði Guðrún Helgadóttir. í bréfinu segist Combrink hafa öll leyfi til innflutnings á kjöti tii Líbýu og Egyptalands. Hann biður Sam- bandið að senda sér um hæl svör á telefaxi við eftirfarandi spurningum: „Hafið þér lambakjöt til útflutn- ings eftir að eðlilegri ársneyzlu yðar og núverandi skuldbindingum um útflutning hefur verið •fullnægt? Ef svo er, hversu mikið kjöt (í tonnum talið) gætuð þér útvegað? Gætum við sent einhvern til að hafa umsjón með slátrunirini af okkar hálfu, til að sjá tii þess að kröfum múslima um slátrun sé fullnægt í þágu trúar- legra skoðana? Gefið okkur vinsam- legast upp verðið f.o.b. á skrokk, eða á tonn. Hvenær gæti fyrsta sending farið frá íslandi ef öllum þessum skijyrðum er fullnægt?" í bréfinu segir Combrink að fyrir- tæki sitt stundi alþjóðleg viðskipti í félagi við fyrirtæki Ahmeds Nayeds og hafi það skrifstofur víða um heim, auk þess sem það stundi viðskipti við sex ríki í Mið-Austuriöndum. „Við myndum reiða fram borgun í hvaða gjaldmiðli sem þér óskið. Ég bíð svars yðar.“ Er Morgunblaðið ræddi símleiðis við Combrink í gær sagðist hann hafa beðið svars frá Sambandinu, sem ekki hefði komið. Hann hefði þá hringt sjálfur til afurðadeildarinn- ar, en verið tjáð af talsmanni henn- ar, Jóhanni Steinssyni, að ekkert kjöt væri til reiðu og til lítils væri því að ræða um verð. Einnig hefði sér verið tjáð að til þess að slátra mætti fé samkvæmt trúarsetningum múslima, það er með því að skera það á háls, þyrfti Alþingi að breyta lögum. Combrink sagðist hafa beðið um að þetta samtal yrði staðfest bréflega. „Þetta var fyrir sex vikum. Ég hef ekkert bréf fengið og enginn haft samband við mig,“ sagði hann. Hann sagði að Ahmed Nayed hefði tjáð sér að mikill skortur væri nú á kindakjöti í Mið-Austurlöndum, en hann hefði leyfi til að flytja inn kjöt ef hann fyndi seljanda. Frá íslenzk- um kunningja sínum í Kanada hefði hann þá vitneskju að offramleiðsla væri á kindakjöti á íslandi, og hann hefði því leitað hingað. Hann sagðist hafa orðið mjög hissa á viðbrögðum Sambandsins. „Ég sagði að ef um einhveija umframframleiðslu væri að ræða eða hægt væri að auka fram- leiðsluna, skyldi hann ræða við mig, því að við gætum þá eflaust undirrit- að einhvers konar langtímasamn- ing,“ sagði Combrink. „Ég fékk mjög neikvæð viðbrögð." Ekki náðist í Jóhann Steinsson hjá Sambandinu vegna þessa máls. Árni S. Jóhannsson, framkvæmdastjóri afurðadeildarinnar, sagðist ekki hafa heyrt af þessu máli, en sér kæmi á óvart ef bréfi Combrinks hefði ekki verið svarað. Hann sagði að stjórn- völd hefðu gefið leyfi fyrir útflutn- ingi 1.400 tonna af kindakjöti á síðasta framleiðsluári. „Það var allt selt til Norðurlanda fyrir margfalt betra verð en hægt er að fá þarna niðurfrá. Þessir markaðir hafa verið kannaðir þráfaldlega," sagði hann. Árni sagði að útflutningsheimildir fyrir næsta ár lægju ekki fyrir, en ekki væru líkur á að þær yrðu meiri en fyrir kjöt, sem hægt væri að selja á Norðurlöndum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.