Morgunblaðið - 06.12.1990, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 6. DESEMBEft 1990
B 7
að setja fram ákveðnari kröfu um
að fyrirtækin skili meiri hagnaði,
hagnaði sem er viðunandi miðað
við það verð sem greitt er fyrir
hlutabréfin. Þeir geta ekki lengur
reitt sig á að verð hlutabréfanna
hækki á markaði án beinna tengsla
við afkomu fyrirtækjanna. Hluthaf-
ar bera fram kröfu sína um viðun-
andi hagnað þannig að ef þeir eru
óánægðir með það hvernig fyrir-
tækinu tekst að ávaxta sitt fé selja
þeir hlutabréfin og við það lækkar
verð bréfanna."
Ávöxtunarkrafan nú um
11-12%
Sigurður B. Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri VÍB, skyggndist
fram til ársins 2000 í erindi sínu á
ráðstefnunni. Hann kvaðst geta
fullvissað alla viðstadda um að
ávöxtun hlutabréfa myndi framveg-
is ekki lengur standa í öfugu hlut-
falli við þá áhættu sem tekin væri.
„Á þessu frumskeiði hlutabréfavið-
skipta sem nú er lokið hafa öll
hlutabréf hækkað í verði vegna
þess að þau voru vanmetin meðan
viðskipti voru hverfandi — og þetta
átti við í enn ríkari mæli um hluta-
bréf traustustu fyrirtækja en ann-
arra.“
Sigurður sagði að út frá V/H
hlutfallinu og Q-hlutfallinu væri
hægt að reikna að kaupendur hluta-
bréfa á innlendum markaði gerðu
nú kröfu um 11-12% raunávöxtun
eigin fjár almenningshlutafélag-
anna. í máli hans kom fram að
markaðsvirði hlutabréfa almenn-
ingshlutafélaga í lok ársins 1990
stefnir hátt í 30 milljarða króna.
Hlutabréf verða þá orðin liðlega
fimmtungur af heildarandvirði
verðbréfa á innlendum verðbréfa-
markaði sem stefnir í um 140 milij-
arða króna og um 5-6% af heildar-
fjármagni í landinu sem gæti orðið
nálægt 550 milljörðum króna í lok
ársins. Andvirðið gæti þá orðið um
8-9% af framleiðslu þjóðarbúsins á
einu ári. Þetta er hlutfall er afar
lágt í alþjóðlegum samanburði eins
og sést á meðfylgjandi mynd. Miðað
við að hlutfallið á íslandi færi í
svipað horf og í nágrannaríkjunum
á næstu árum hefði andivirði
skráðra hlutabréfa aukist í 200-300
milljarða króna í lok aldarinnar
m.v. núgildandi verðlag og fram-
leiðslu. Svo mikla aukningu taldi
Sigurður ósennilega, nema atvinnu-
líf færi að blómstra með óvæntum
hætti á næstu árum.
Hann sagði augljóst að framund-
an væru miklar breytingar á eignar-
haldi í íslenskum atvinnurekstri og
nefndi þar nokkrar ástæður. Ein
helsta ástæðan fyrir því að fram-
undan væru miklar breytingar á
eignarhaldi ■ í atvinnurekstri er sú
hækkun raunvaxta sem varð í
landinu um miðjan áratuginn. „Á
tímum neikvæðu raunvaxtanna var
sá hluti lánsijár sem aldrei var end-
urgoldinn, flestum fyrirtækjum
næg uppspretta eigin fjár, en jafn-
framt óafturkræfur styrkur til fyrir-
tækja sem ekki voru arðbær. Hluta-
bréfamarkaður er því einasta upp-
spretta eigin fjár fjölmargra fyrir-
tækja. Breytingin úr neikvæðum í
jákvæða raunvexti getur því knúið
fyrirtæki til að leita út á hlutabréfa-
markað þótt þau hefðu annars eng-
ar ástæður til þess.“
Sigurður nefndi einnig að upplýs-
ingabyltingin hefði í för með sér
breytingu á eignarhaldi fyrirtækja
fram til aldamóta svo og krafa fólks
um að vita meira um hvert sparifé
rennur, hvernig það væri ávaxtað
og hver kostnaður við þá ávöxtun
reynist. í þriðja lagi sagði hann
innlendan hlutabréfamarkað eina
af forsendunum fyrir því að öflug
og þróttmikil fyrirtæki risu upp og
þrifust, og að þeim fjölgaði. Islensk-
ir hluthafar myndu og krefjast þess
að fyrirtækin sýndu meiri arðsemi
en íslensk fyrirtæki hefðu gert til
þessa. Loks myndu viðskipti með
erlend verðbréf og kaup útlendinga
á íslenskum hlutabréfum leiða til
þess að veruleg umskipti yrðu
næsta áratuginn.
IÐNLÁNASJÓÐUR
fyrir íslenskt atvinnulíf
ÁRMÚLA13A 155 REYKJAVfK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950
Metsölublad á hverjum degi!
SUM MEISTARAVERK
ERU FYRIRMYNDIR ANNARRA
= ÖRTÖLVUTÆKNI M
TOLVUKAUP HF • SKEIFUNN117 • SlMI: 68 72 20
Geislaprentarar Hewlett Packard eru ótvíræðir frumherjar.
sem aðrir miða framleiðslu sína við.
HP prentararnir eru ekki aðeins skrefi á undan
- aðalsmerki þeirra er ótrúleg fullkomnun, fjölhæfni* og öryggi.
Kynntu þér Hewlett Packard prentara áður en þú leitar annað
- frummyndin gefur alltaf meira en eftirmyndin.
* Margar leturgeröir, pappírsstærðir; umslög. HP-PCL, PostScript, HP-GL/2; innbyggt eða fáanlegt.