Morgunblaðið - 06.12.1990, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
6 9
eða hinu nýja ísflugi. Þó telur hann
að samkeppni sé öllum til góðs. „Ég
vil ekki fjárfesta í fyrirtæki sem fer
í beina samkeppni við Flugleiðir.
Það er minn gamli atvinnuveitandi
og mér þætti ekki rétt að hjálpa
aðilum í beinni samkeppni við
hann,“ sagði Gunnar. Hann er flug-
virki að mennt og hóf störf hjá Flug-
félaginu 1958 en fiutti sig yfir til
Loftleiða 1959. Honum var falið að
setja upp stöð flugfélagsins í Lúx-
emborg 1963 og varð þar um kyrrt.
Hann gekk að eiga franska konu
og þau eiga tvo syni. Hann var
yfirmaður viðgerðardeildar Flug-
leiða þegar Cargolux tók hana yfir
á áttunda áratugnum og hélt störf-
um áfram hjá Cargolux þangað til
að hann fór út í eigin viðskipti
sumarið 1982. Hann fluttisttil Liec-
htenstein 1984 en er ríkisborgari í
Lúxemborg og eyðir stórum hluta
ársins í íbúðinni sinni í Montreux í
Sviss eða húsinu í Nizza á frönsku
Rívíerunni.
Hann er sannarlega vel efnaður
og stundar viðskipti þar sem allir
hljóta að reyna að maka krókinn.
„Ég reyni að standa þannig að
mínum samningum að allir séu
ánægðir. Ég reyni að skilja afstöðu
þess sem ég er að semja við og
koma þannig fram við hann að við
getum aftur átt viðskipti í fram-
tíðinni. Auðvitað stunda einhveijir
þessi viðskipti sem vilja græða heil-
mikið með skjótum hætti, en þeir
endast ekki lengi í þessu ef þeir
gera það ekki á heiðarlegan hátt,“
sagði Gunnar. Hann hefur áhyggjur
af óréttlátri misskiptingu auðs
heimsins milli ríkra og fátækra,
iðnríkja og þróunarríkjanna. „Ég
held að það sé ekki eins bjart fram-
undan eins og margir virðast halda.
Það er mikil ólga í þjóðunum hérna
í Evrópu og ég hef á tilfinningunni
að það verði það líka á mörkuðun-
um.“
Hann veltir fyrir sér framtrð ís-
lands, þar sem hann á enn ættingja
og marga kunningja sem hann hitt-
ir þegar hann fer heim að meðal-
tali einu sinni á ári. „Það hlýtur
að verða íslandi fyrir bestu að
tengjast Evrópu og opnast sem
mest. Það eru miklir möguleikar á
íslandi ef fjármagn er fyrir hendi.
Til þess þarf að gefa erlendum aðil-
um tækifæri til að fjárfesta þar.
Það ætti aðeins að koma þjóðinni
að góðum notum.“ Sjálfur var hann
ekki reiðubúinn að segja í hveiju
hann myndi fjárfesta á íslandi ef
skilyrði væru fyrir hendi. „Það yrði
ekkert í sambandi við flugvélar,"
var það eina sem hann vildi láta
hafa eftir sér.
-ab.
Um 300 íslendingar uppfylla skil-
yrði fyrir inngöngu í velvildarklúbb-
inn en jafnframt er gert ráð fyrir
að útlendingar geti gerst félagar.
Að sögn Asdísar verður í fyrstu
stuðst við upplýsingar frá ferðaskrif-
stofum og söluskrifstofum Flugleiða
um hveijum verður boðin þátttaka
en í framtíðinni verður unnt að fá
upplýsingar af farþegaskrám um
hveijir uppfylla áðurnefnd skilyrði.
Þeir sem ekki fá sjálfkrafa inngöngu
í klúbbinn en telja sig eiga rétt á
því þurfa að senda inn umsókn á
sérstökum eyðublöðum sem liggja
frammi á ferðaskrifstofum og sölu-
skrifstofum Flugleiða.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís-
lands verður heiðursíelagi í velvild-
arklúbbi Flugleiða. Ásdís segir það
mat fyrirtækisins að forsetinn hafí
lagt ómetanlegan skerf til þess að
skapa íslandi jákvæða ímynd víða
um lönd. Erlendar heimsóknir for-
setans og heimsóknir erlendra þjóð-
höfðingja hingað til lands á hennar
fund hafi styrkt mjög tengsl íslend-
inga við aðrar þjóðir. Hún segir að
Flugleiðum sé vitaskuld heiður að
því að flytja forsetann heiman og
heim á ferðalögum hennar. Það sé
jafnframt fagnaðarefni að frú Vigdís
hafi þekkst boð félagsins um að
verða heiðursfélagi í velvildarklúbbi
þess.
n tryggvTTT
IjUNNARSSON
ÆVIOG STORF ATHAFNAMANNS
NÚ, UM LEIÐ og 4. og síðasta bindi ævisögu
Tryggva Gunnarssonar, ritað af Bergsteini
Jónssyni, kemur út hjá Bókaútgáfu Menningar-
sjóðs, að tilhlutan Landsbanka íslands og Seðlabanka
íslands, kemur jafnframt ritsafnið út í heild í eintaklega
vandaðri gjafaöskju.
Sagan er ekki einvörðungu litrík ævisaga þessa merka
manns, hún er jafnframt sjónarhóll, þaðan sem gefur að líta
óvenjulega vítt og fjölbreytt svið íslensks þjóðfélags,
athafnalífs, stjórnmála og menningar um meira en hálfrar
aldar skeið. í 4. og síðasta bindi ritsafnsins er fjöldi mynda
af samtímamönnum Tryggva sem aldrei hafa birst áður.
Af störfum Tryggva um dagana er augljóst að þar fór mikill
athafnamaður sem lét sig flest skipta er þjóðinni gat orðið
til framdráttar. Má þar t.a.m. nefna aðild hans að Hinu
íslenska þjóðvinafélagi, Fiskifélaginu ogöðrum samtökum
útvegsmanna, Dýraverndunarfélaginu, Skógræktarfélag-
inu, Alþýðubókasafninu, Slippfélaginu í Reykjavík,
íshúsfélaginu og síðast en ekki síst Gránufélaginu.
AÐEINS 350 GJAFAÖSKJUR
EN 650 EINTÖK AF 4. BINDI.
Vert er að taka fram að einstök bindi ritsafnsins (1.-3.) eru
ófáanleg. í tilefni af útkomu heildarsafnsins voru
1. og 2. bindi endurprentuð í aðeins 350 eintökum hvort.
irsóknarverð eign
vandaðri gjafaöskju
GLÆSILEGUR GÆÐAVAGN
Á meðan Bandaríkjadalur er skráður lágt er hagstœtt
að kaupa bandarískan glœsivagn.
Hinn nýi fjögurra dyra Chevrolet Blazer er ekki aðeins aflmikill fjórhjóladrifsbíll,
heldur einnig sparneytinn, stöðugur f akstri, lipur, þýður og hljóðlátur
eins og fólksbíll. Chevrolet Blazer er byggður á heila grind. Rýmið í honum
er mjög mikið, bœði fyrir farþega og farangur, og aftursœtið má leggja
alveg niður, þannig að gott svefnpláss myndast í bílnum.
Búnaðun
• 4,3 1, V-6 bensínvél • Afl- og veltistýri
• Sjálfskiptur með yfirgfr • Hraðastillir (Cruise Control)
• Aflhemlar með ABS lœsingavara á • Stereó-útvarp
öllum hjólum • Stafrœnt mœlaborð
• Rafstýrðar hurðalœsingar og • Álfelgur - Hjólbarðar P235 - 15
rúðuvindur • Glœsileg innrétting
Verð 2.854.000staðgreitt.
Komdu til okkar með fjölskylduna og reynsluaktu þessum frábœra bíl!
CHEVROLET BLAZER - Bestur þegar mest á reynir.
J(°Mi®D
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91 -670 000 OG 674 300